Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 58
Sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum kvartar undan
3ví að marxísk hugmyndafræði ríki
Dar á bæ
í ræðu sem sendiherrann, Jeane Kirkpatrick, hélt hjá American
Enterprise Institute í desember s.l. kom fram að Bandaríkjamenn hafa alls
ekki í hyggju að taka alvarlega vandamál þriðja heimsins. Eftirfarandi
tilvitnanir í ræðu þessa sýna glöggt að bandarísk stjórnvöld bera ekkert
skynbragð á félagslegar afleiðingar efnahagsafskipta iðnríkja í þróunar-
löndum. Þau gera hins vegar óspart grín af slíkum vandamálum. Þau líta
á heiminn sem markað, og lífverur allar sem húsdýr fjölþjóðaauðhringa,
sem nú eru í hávegum hafðir við hirð Ronalds Reagan. En snúum okkur
að ræðu sendiherrans. Hann sagði:
„Stórauknar aðgerðir Sameinuðu þjóð-
anna (Sþ) til að hafa áhrif á alþjóðavið-
skipti eru mikið vandamál“. ...„Á vett-
vangi Sþ. eru fjölþjóðaauðhringar sóttir
til saka og sakfelldir fyrir hin sérstæðustu
afbrot“. Pá gerði sendiherrann grín að
viðleitni Sþ. til að búa til einhvers konar
staðla um það hvernig fjölþjóðaauðhring-
ar skyldu bera sig að við markaðsfærslu á
barnamat, sölu á lyfjum og eiturefnum
sem og hvernig losa beri sig við eitruð
úrgangsefni. Hún minntisthinsvegarekki
á að sala á ólöglegum lyfjum hefur valdið
því að miljónir deyja á ári hverju í þriðja
heiminum, né á þá staðreynd að markaðs-
færsla á barnamat á svæðum þar sem ekki
er að finna hreint vatn hefur valdið
stórauknum ungbarnadauða.
Pá sagði Kirkpatrick að „hugmynda-
fræðilegar rangfærslur“ séu kjarni eftirlits-
aðgerða Sþ. varðandi ofantalið. Eftirtekt-
arvert er að sendiherrann talar hér ekki
um stórhættulegar starfsaðferðir fjöl-
þjóðaauðhringa, heldur blæs hann til póli-
tísks stríðs þeim til hjálpar. Og sendiherr-
ann segir síðar í ræðu sinni að „ríkjandi
hugmyndafræði Sþ. byggist á þeirri
tegund stéttaskiptingar sem boðuð væri í
marxískri hugmyndafræði". „Hin hráa
andkapítalíska hugmyndafræði Sþ.“
heldur því fram að „fjöldi fátækra ríkja
standi nauðug í hatrammri baráttu við
fáein auðug ríki“. Þá sagði hún; en
sendiherrann er kona, að samkvæmt þess-
ari hugmyndafræði væri litið svo á að
„fátækt væri afleiðing arðráns“ og að
„vanþróuð ríki væru sönnun fyrir slíku
arðráni“, og að „velmegun sannaði sekt
um arðrán“.
í framhaldi af þessu sakaði sendiherr-
58