Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 22
Kritik der politisclien Oekonomie.
Von
Karl Marx.
Erstcr Band.
Buch I: Der Produktiontprocet* det Kapitals.
Dm Rccbt dcr Ucbcrictiuog wird corbobcluii
Hamburg
Verlag von Otto Meiðsner.
1867.
Kfw-Vork: L. W. Sclimid:. 34 Barclu>.Streei.
“Auðmagnið“, 1. útgáfa 1. bindis 1867.
til dauðadags.
Kjör og hagur Marx í þessari sífelldu
útlegð var mjög þröngur. Kemur þetta
skýrt fram í bréfaviðskiftum hans og
Engels, sem gefin voru út 1913. Marx og
fjölskylda hans bjuggu við sífellda neyð
og fjárþröng, og hefði Marx eigi haft tök
á að ljúka við „Auðmagnið“, ef hann hefði
eigi notið stöðugrar fjárhagslegrar að-
stoðar frá Engels. Hinar ríkjandi kenn-
ingar innan hins smáborgaralega sósíal-
isma þröngvuðu Marx til stöðugrar og
miskunnarlausrar baráttu eða varnar gegn
grimmúðlegum og nærgöngulum persónu-
legum árásum, er hann hlaut að sæta.
Án þess að hafa nokkurt samband við
Friedrich Engels.
smáflokka útlaganna, skýrði Marx þessa
efnishyggjukenningu sína í allmörgum
sögulegum ritum. Varð hún sérstaklega
grundvöllur félags- og hagfræðivísinda.
Sérstaklega bylti þó Marx þessum vís-
indum með ritum sínum: „Til gagnrýni á
hinni póíitísku hagfræði" 1859 og „Auð-
magninu“ 1. bindi, 1867.
Eftir lok 6. og 7. tugar aldarinnar, kom
nýtt líf í lýðræðishreyfinguna. Var Marx
þá aftur kallaður til verklegrar baráttu.
28. sept. 1864 var 1. alþjóðasambandið
stofnað í Lundúnum, og var það kallað:
„Hið alþjóðlega verkalýðssamband“.
Marx var helsti stjórnandi og leiðandi
þessa sambands. Hann var höfundur að
22