Réttur - 01.01.1983, Page 14
Mauritz Nylund:
Nokkur ljóð
Janúar 1973
Það er enginn snjór á jörðu
friður á jörðu.
Það er vetur án þess þó að vera vetur.
Friður án þess þó að vera friður.
En eins og veturinn
kemur
mun einnig friðurinn
einhvern tíma
koma.
Og hann kemur.
Morgunn einn þegar við vöknum
er friður á jörðu
og hvítur snjór hylur landið.
Og fólkið
þýtur út úr húsunum
og gróðursetur litla rauða fána
í sköflunum.
Og fánarnir fara að bœrast
fyrir vindinum
vaxa móti vori.
Og þeir fylla götur og torg
og þeir fylla borgir og bæi
fylla lönd og álfur.
Og þeir blakta glaðlega fyrir vindinum
og smella
í takt við Internasjónalinn
blakta smella og boða:
Öreigar allra landa hafa sameinast.
Um Mauritz Nylund er fæddur í Helsinki 1925. Fyrstu
höfundinn Ijóðabók sína gaf hann út 1953, en alls hafa komið út eftir
hann 6 Ijóðabækur. Hann var í hópi þeirra finnlandssænsku
Ijóðskálda, sem á síðari hluta 7. áratugarins gerðu uppreisn
gegn innhverfri lýrík módernistanna. Þessi Ijóðskáld ortu í
staðinn opnari Ijóð, gjarnan á hversdagslegu máli og með
pólitískum boðskap. Kvæði þau er hér fylgja í íslenskri
þýðingu eru úr síðustu Ijóðabók Mauritz Nylund, sem kom
út 1975. Hún er óvenjuleg að því leyti, að öll kvæðin birtast
þar bæði á sænsku og finnsku, nokkuð sem þrátt fyrir allt
14