Réttur - 01.01.1983, Page 23
fyrstu tilkynningu þess og fjölda ályktana,
yfirlýsinga og ávarpa. í baráttunni til að
sameina verkalýðshreyfinguna í ýmsum
löndum og í viðleitni sinni til að beina
hinum ýmsu greinum hins ómarxistíska
sósíalisma (Mazzini, Proudhon, Bakunin,
hin enska „frjálslynda“ iðnfélagahreyfing
og hægri-tilhneigingar Lassalles í Pýska-
landi) til sameiginlegs starfs, og í bar-
áttunni við kenningar þessara flokks-
brota, ákvað Marx hina einu réttu bar-
áttuhögun í verkalýðshreyfingu hinna
ýmsu landa. Pegar Parísaruppreisnin,
sem Marx lýsti svo snilldarlega og mat svo
mikils („Borgarastyrjöldin í Frakklandi“)
hafði verið bæld niður og fylgjendur
Bakunins höfðu klofið „Alþjóðasamband
verkamanna“, gat Alþjóðasambandið eigi
staðið lengur í Evrópu. Marx hafði það
fram eftir þing Alþjóðasambandsins í
Haag 1872, að aðalráð þess var flutt yfir
til New York. 1. Alþjóðasambandið hafði
nú leyst af hendi sitt sögulega hlutverk og
rýmdi nú til fyrir nýju tímabili, sem
einkennt var af hraðfara vexti verka-
lýðsstéttarinnar í öllum löndum. Á þessu
tímabili breiddist verkalýðshreyfingin óð-
fluga út og þá skópust hinir sósíalistísku
-fjöldaflokkar verkamanna innan ein-
stakra þjóðríkja..
Hið erfiða verk í Alþjóðasambandinu
og enn þá fremur hin örðuga kenninga-
starfsemi Marx fóru algerlega með heilsu
hans. Hann hélt áfram verki sínu í þjóð-
hagsfræðinni og vann að því að ljúka við
„Auðmagnið“. 2. des. 1881 dó kona hans.
14. mars 1883, er hann sat í hægindastól
sínum, sofnaði hann svefninum langa.
Hann var grafinn við hlið konu sinnar í
kirkjugarðinum „Highgate“ í Lundúnum.
Nokkur af börnum Marx dóu á bernsku-
skeiði, er fjölskyldan bjó við skort og
vandræði í Lundúnum.
Þrjár dætur hans giftust enskum og
frönskum sósíalistum, Elenora Aveling,
Laura Lafargue og Jenny Longuet.
N. Lenin
HEIMILDIR:
Myndirnar í grein Lenins um Marx eru fengnar frá
stofnun Marxismans-Leninismans hjá miösljórn
SED úr aðalskjalasafni flokksins, sem er í
Berlín - DDR.
Gröf Karls Marx og konu hans í Highgate í Lundúnum.
23