Réttur - 01.01.1983, Page 25
Ríkisþinghúsið brennur.
sama mánuði lagði Chamberlain til í
„innsta ráði“ bresku stjórnarinnar að
Mussolini yrði beðinn um að athuga
friðarmöguleika Englands við Hitler.
Þessi tillaga um að England gæfist upp var
felld með 3 atkvæðum — (Churchill og
verkamannaráðherrarnir tveir) gegn
tveim (Chamberlain og Halífax lávarð-
ur). Svik versta afturhaldsins í breska
heimsveldinu mistókust. Reikningur Hitl-
ers brást á lokasprettinum á þrjósku
Bretans, þó mestöll Vestur- og Suður-
Evrópa lægi nú undir pyntingarstjórn
hans.
En hið blóðuga stríð alvörunnar hófst
er fasistaherirnir æddu inn í Sovétríkin
22. júní 1941, — fórnfrekasta stríð mann-
kynssögunnar: 20 milljónir manna,
kvenna og barna voru fórnirnar, sem
Sovétþjóðirnar færðu fyrir frelsið. Hitler
hugðist ná Moskvu og Leningrad það
haust. Hvorugt tókst: Leningrad stóðst
900 daga umsátur, þótt þúsundir féllu úr
hungri, Moskva hrundi árásunum. í vestri
furðuðu menn sig á mótstöðukraftinum,
margir höfðu haldið að Sovétríkin hryndu
við hin þungu högg.
Og þá réðst nasistaherinn á sunnan til
25