Réttur


Réttur - 01.01.1983, Qupperneq 34

Réttur - 01.01.1983, Qupperneq 34
séu fjórar til fimm milljónir, en aðeins lítill hluti þeirra hefur verið rannsakaður. Stærsta samfellda svæðið, sem hefur verið kannað vandlega í regnskógum Brasilíu, er ótrúlega lítið, innan við sex hektarar. Það er stutt síðan menn fundu þverá Amazon, sem áður var ekki vitað um, og það uppgötvaðist að nokkrir fjallgarðar voru á skökkum stað á landabréfum. Ekki er hægt að henda reiður á öllu viðarhöggi í heiminum. Þeir, sem fara vægt í sakirnar, telja að helmingi skóg- lendis hafi verið eytt. Líklega er yfir sjö milljónum hektara skóglendis eytt árlega og næstum því jafnmikið er skemmt. Ef engin breyting verður á, verður skógum Malajsíu, Nígeríu, Fílabeinsstrandarinn- ar og Mið-Ameríku eytt fyrir næstu alda- mót. Þegar tré er höggvið er ekkert sem verndar jörðina fyrir uppblæstri. Einn regnstormur getur feykt 75 lestum af jarðvegi af hálfum hektara lands á skömmum tíma. Mikið af þeim trjám, sem eru höggvin, eru eftirsóttur harð- viður. Skógar Asíu eru ekki svipur hjá sjón og menn sækja því í vaxandi mæli til Mið- og Suður-Ameríku. Einna mest er eyðileggingin þar sem menn reyna að yrkja jörðina. Meðan trén eru á sínum stað virðist jarðvegurinn frjór, en hann er það ekki nema í tvö eða þrjú ár eftir að trén eru farin. Og þá er ekki um annað að ræða en flytja sig um set þangað sem skógar hafa verið nýhöggnir. Stórbændur fara enn verr með landið en fátæklingar, sem hafa ekkert nema haka og skóflu. Einn vísindamaður komst svo að orði, að stórbændurnir í rómönsku Ameríku breyttu skógum í hamborgara. Tjón á gróðurlendi af völdum nautgripahjarða í Mið-Ameríku og Brasilíu er skelfilegt. Skógarnir eru felldir og hjörðunum beitt á ’.andið, en eftir fáein ár er jarðvegurinn steindauður og þá verður að fella fleiri tré. Á síðustu tuttugu árum hefur kjöt- framleiðsla í Mið-Ameríkuríkinu Costa Rica þrefaldast. Mest af kjötinu er flutt út. Heimamenn borða minna kjöt en áður, minna en venjulegur heimilisköttur í Bandaríkjunum, segir Observer. Regn- skógarnir þar eru aðeins þriðjungur af því sem þeir áður voru. Samt eru á þessum litla bletti fleiri fuglategundir en í allri Norður-Ameríku. Samkvæmt opinberri skýrslu í Banda- ríkjunum er hugsanlegt að ein milljón tegunda dýra og plantna í regnskógum deyji út fyrir árið 2000. Hver tegund er dýrmæt, og sú sem einu sinni hverfur af jörðinni, kemur aldrei aftur. Helmingur- inn af öllum lyfjum á þeim lyfjaskrám sem til eru, koma að einhverju leyti úr regn- skógum. Margir náttúrufræðingar álíta, að undur Amazonsvæðisins sé hið flókna samspil vatns, plantna og dýra. Tuttugu og þrjú prósent af öllu ferskvatni jarð- arinnar kemur þaðan og fyrir súrefnis- framleiðslu eru regnskógarnir ómetanleg- ir. Það er ekki einu sinni vitað ná- kvæmlega hve mikið súrefni kemur frá regnskógunum við Amazon. Þegar skóg- arnir eyðast minnkar úrkoma og því verður minna vatn í ám, uppsprettum og stöðuvötnum. Fyrirhyggjuleysið kann að verða dýrkeypt. Eyðing hitabeltisskóg- anna kann að raska öllu lífi á jörðinni og breyta loftslagi hennar. Heimildir: Observer, Time, Newsweek, Tribune og fl. Ennfremur Ingvi Þorsteinsson. 34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.