Réttur


Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 61

Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 61
minnkað um helming síðan 1979. Bara á árinu 1982 urðu 7000 bændur að selja jarðir sínar og flytja til borganna í at- vinnuleysið. Fjöldi fyrirtækja, sem ekki fær hergögn til framleiðslu, fer á hausinnn. Um mitt ár 1982 urðu 18000 iðnaðar- og verslunar- fyrirtæki gjaldþrota. 35 bankar lýstu sig ófæra til að borga. í desemberbyrjun 1982 voru 12miljónir manna atvinnulausir. Þar að auki er 1,6 miljón manns, sem búast ekki við neinni atvmnu meir og láta því ekki skrá sig á skráningastofunum. 6,6 miljónir manna vinna aðeins hluta úr degi. — Og nú fá aðeins 48% atvinnuleysingjanna atvinnu- leysisstyrk, en 1975 voru það 68%. — 6 miljónir Ameríkana verða því að setja alla von sína á fátækramáltíð þá, sem útdeilt er á strætum úti. í Englandi hnignaði framleiðslunni í kolaiðnaði á þrem árum um 30%, í vélaframleiðslu um 15% — atvinnuleys- ingjatalan er 3,3 miljónir. í löndum Efnahagsbandalagsins var í árslok 1982 tíundi hver maður atvinnu- laus: í Belgíu 14,8%, í írlandi 13,5%, í Bretlandi 12,8% o.s.frv. Talið er að 12 miljónir manna verði atvinnulausar í Efnahagsbandalagslöndunum 1983. Þróunarlöndin fá sárt að kenna á þess- ari kreppu. 21 þróunarland varð að biðja um greiðslufrest á skuldum sínum, 139 miljörðum dollara, hjá alþjóðabönkum. Mexíko er skuldugast: 80 miljarðar doll- ara. — Helmingur þróunarlandanna, sem ekki flytja út olíu, verða að borga 40% af útflutningstekjum sínum til skulda- greiðslu, þau fátækustu jafnvel 75%. Þau bæta í sífellu við skuldirnar, — til að standa í „skilum", — og eru skuldir þeirra yfir 500 miljarðar dollara. Iðnaðarlöndin selja þróunarlöndunum árlega vörur fyrir 249 miljarða dollara, en kaupa bara af þeim fyrir 64 miljarða. Og hver er sú lausn, sem auðvaldið eygir? Bæði „Financial Times“ og „Economist“ rita alveg hispurslaust, að það verði að lækka vinnulaunin og auka gróða fyrir- tækjanna! Og „Washington Post“ skrifar glaðklakkalega að kreppan hafi kennt þróunarlöndunum „virðingu fyrir lána- drottnunum“. Petta er það, sem afturhaldið á íslandi líka vill: Beygja verkalýðinn undir ok launalækkunar og beygja íslensku þjóðina í duftið fyrir „lánadrottninum mikla“, Bandaríkjunum. Er ekki tími til kominn að hinar vinn- andi stéttir og fátæku þjóðir heims sam- einist gegn okur-auðvaldi heimsins? Marianella Garcia-Villas myrt í E1 Salvador Marianella Garcia Villas, einn af for- ingjum Mannréttindasamtakanna var í mars myrt af böðlum ríkisstjórnar E1 Salvador. Hún var í vetur hér á landi að berjast fyrir hugsjón sinni og vann hjörtu allra, er henni kynntust. — En við skulum ekki gleyma því við hugsunina um þennan glæp, að yfirmorðingjarnir sitja í Wash- ington. 17. mars var morðinu mótmælt á úti- fundi í Reykjavík og með stöðu við banda- ríska sendiráðið og mótmæli afhent sendi- herranum. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.