Réttur - 01.07.1983, Blaðsíða 52
HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGAR í SÓKN
Aldrei
aftur Hírósíma
Friðargangan ’83 var farin 6. ágúst s.l., þá voru 38 ár liðin frá því að Banda-
ríkin vörpuðu kjarnorkusprengju á Hírósíma. Herstöðvaandstæðingar og aðrir
friðarsinnar fylktu þá liði snemma morguns við víghreiðrið bandaríska á Miðnes-
heiði undir kjörorðunum: Aldrei aftur Hírósíma og ísland úr NATO — herinn
burt.
Það sem einkum var eftirtektarvert við
þessa göngu var hve vel hún var undirbú-
in, hvað öll áróðurstækni í kringum hana
tók fram því sem áður hefur sést og hve
vel staðfestist sú trú að Keflavíkurgöngur
gefi miklum fjölda nýrra fylgismanna kost
á að stíga fyrstu skrefin. Það hefur og ver-
ið viðtekin venja að hin magnþrungna
krafa herstöðvaandstæðinga, ísland úr
NATO — herinn burt, hafi kaffært allar
tilraunir til að ná upp nýjum kröfum. En
svo var ekki nú. Krafan „Aldrei aftur
Hírósíma“ hljómaði nú eins og staðfest-
ing þess að friðarbylgjan, sem nú fer yfir
hinn iðnvædda heim, er gengin upp á
landið. Friðarkeðja herstöðvaandstæð-
inga í lok göngunnar vakti verðskuldaða
athygli. Göngufólk tók höndum saman og
myndaði samfellda röð milli sendiráða
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna til þess
m.a. að vekja athygli á nauðsyn gagn-
kvæmrar afvopnunar.
Það er okkur bráðnauðsynlegt að hin
s.k. friðarbylgja verði virkjuð af ölium
friðarsinnum til að skapa breiðfylkingu
gegn vígbúnaði í landinu. Hún veitir ef til
vill það lag sem lengi hefur verið beðið
eftir. Það er heldur ekki seinna vænna,
því áform um ný víghreiður út um allt ís-
land eiga eflaust einhverjar rætur að
rekja til þess hve mótstaðan var lítil. Það
tók og ekki nema fáein ár fyrir Pentagon
að fá byggða nýja flugstöð, olíuhöfn í
Helguvík, olíubirgðastöð á Hólsbjargi og
ný sprengjuheld flugskýli á Keflavíkur-
flugvelli, þrátt fyrir aðild herstöðvaand-
stæðinga í ríkisstjórn.
Það er því ljóst að baráttan gegn
bandarísku hernaðarvélinni, sem nú
lætur sig dreyma um allt frá takmörkuðu
kjarnorkustríði í Evrópu til ævintýralegs
stjörnustríðs gegn kommúnisma, á eftir
að harðna hér á landi. Því er nauðsynlegt
að fylkja allri alþýðu gegn íslenska burg-
eisavaldinu og öðrum aftaníossum stjórn-
arinnar í Pentagon, ef sjálfstæði íslands
á ekki að verða bandarísku heimsvalda-
stefnunni að bráð.
Við skulum vera minnug þess að ís-
lensk alþýða hefur látið sér lynda að fá-
menn flokkseigendafélög borgaraflokk-
anna hafi allt úrslitavald á framvindu
180