Réttur


Réttur - 01.07.1983, Page 57

Réttur - 01.07.1983, Page 57
í herlúðrana. José Martí skildi að til að halda baráttunni áfram og sigra var nauð- synlegt að stofna byltingarflokk. Það er einmitt á þessum árum sem hugmyndir hans um slíkan flokk taka að mótast og hann fer að beina kröftum sínum að því að undirbúa stofnun hans, sem varð svo að veruleika 1892. Þegar litið er yfir stuttan æviferil José Martí er engu líkara en maðurinn hafi lif- að ótrúlega hratt. Afköst hans eru með ólíkindum, og allsstaðar skaraði hann fram úr. Ljóðabókin „Ismaelillo“ sem hann gaf út 1882 var að margra áliti tíma- mótaverk í ljóðagerð á spænskri tungu, og enn óx hrifning manna á honum sem ljóðskáldi þegar hann gaf út „Versos sencillos“ (Einföld ljóð) 1891. Sem blaða- maður varð hann frægur um alla álfuna þegar hanns krifaði frá New York í u.þ.b. 20 suður-amerísk blöð og tímarit. Hann var frábær ræðumaður, rökfastur stílsnill- ingur og bjó yfir miklum sannfæringar- krafti og persónutöfrum. Árið 1889 tók hann að sér að skrifa fyrir börn. Útgef- andi í New York hafði fengið þá hug- mynd að gefa út tímarit fyrir börn á spænsku og fékk Martí til að semja allt efni í það. Þetta tímarit hét „Gullöldin“ (Edad de Oro) og heftin urðu fjögur. í þeim sagði Martí börnum „Okkar Amer- íku“ sögur af frelsishetjum álfunnar, tal- aði við þau um gildi sannleikans, kærleik- ans og föðurlandsástarinnar á einföldu ljóðrænu máli. Sagt er að betri barnabæk- ur hafi ekki verið skrifaðar í Suður-Am- eríku. Hér hefur alls ekki allt verið talið af bókmenntaverkum José Martí, en þau voru aðeins einn þáttur í ævistarfi hans. Auk alls annars má nefna að hann var konsúll Uruguay, Argentínu og Paraguay í New York, forsvarsmaður í samtökum suður-amerískra rithöfunda um árabil og fulltrúi argentískra blaðamanna í Banda- ríkjunum og Kanada. 1891 verða aftur þáttaskil í lífi hans. Á Kúbu verður vart hræringa sem gefa til kynna að uppreisn gegn Spánverjum sé á næsta leiti. Martí segir upp öllum sínum mörgu störfum, nema einkatímum í spænsku sem hann hafði fyrir lifibrauð, og tók nú til við að undirbúa af fullum krafti það sem hann kallaði „nauðsynlegt stríð“. Stríðið gegn Spánverjum átti að verða stutt — aðeins með því móti sá Martí fram á að mögulegt yrði að koma í veg fyrir að Bandaríkin skærust í leikinn. Bandaríkin áttu þegar mikilla hagsmuna að gæta á Kúbu og hættan á íhlutun þeirra var orðin auðsæ. Kúbanski byltingarflokkurinn var sem fyrr segir stofnaður 1892. Höfuðstöðvar hans voru í Bandaríkjunum, en hann starfaði einnig leynilega á Kúbu sjálfri. Martí stjórnaði flokknum og ritstýrði málgagni hans, „Patria“ (Föðurland), þau þrjú ár sem hann átti ólifuð. Meðlim- ir flokksins voru úr ýmsum þjóðfélags- stéttum — menntamenn í útlegð, tóbaks- bændur sem hrakist höfðu frá Kúbu til Florida, svo dæmi séu tekin. Þetta fólk átti það sameiginlegt að vilja berjast fyrir sjálfstæði Kúbu og skapa nýtt þjóðfélag. Markmið Kúbanska byltingarflokksins var „fullt og óskorað sjálfstæði Kúbu“ og í stefnuskrá hans var einnig heitið aðstoð við þjóðfrelsisöflin í Puerto Rico. En það sem er merkilegast við þennan flokk er að hann lagði pólitískan grundvöll að nýju samfélagi á Kúbu, og var raunverulegur byltingarflokkur. Þótt engum detti í hug að kalla José Martí marxista og stéttabar- átta sé ekki liður í hugmyndafræði hans, höfðaði hann þó jafnan í málflutningi sín- um til þeirra sem minnst máttu sín, þeirra 185

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.