Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 33

Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 33
Allsnægtir ráða ríkjum í „brunch-hlaðborðum“ Nítj- ándu og Vox og úrval- ið með eindæmum. Allt frá salötum og súpum til fiskrétta, eggjarétta og nautakjöts í bernaise-sósu. Ekki er amalegt að byrja dag- inn með slíkri máltíð á laugardegi og sunnudegi. Þar geta ástfang- in pör jafnt og fjölskyldur og vina- hópar komið saman og notið góðrar stundar. Dögurður með útsýni Útsýnið úr veitingastaðnum Nítjándu er magnað. Út um stóra glugga sést til allra átta, út á Álftanes og Reykja- nes, til Bláfjalla og út á haf. Þar er ekki amalegt að tylla sér niður um helgar til að gæða sér á þeim fjöl- breyttu réttum sem í boði eru í „brunch-hlaðborði“ Nítjándu. „Við erum með nokkra fasta rétti á hlaðborðinu eins og egg Benedikt sem er einkennisréttur okkar og nauta rib eye með bernaise-sósu,“ segir Stefán Ingi Svansson, kokkur á Nítjándu, og tekur fram að fasta- gestir staðarins sæki mikið í þessa tvo rétti. Þess má geta að nautakjötið er eldað í tólf klukkustundir. Annar fastur liður er súkkulaði- kakan sem er sívinsæl svo og humar- súpan klassíska. mars 2009 matur [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ] FRAMHALD Á BLS. 4 Morgunstund gefur gull í mund. Það má með sanni segja að þetta gamla íslenska máltæki eigi vel við um upplifun þeirra matar- gesta sem leggja leið sína um helgar í brunch eða dögurð á veit- ingastöðunum Vox á hótelinu Hilton Nordica og Nítjándu í Turninum í Kópavogi. Girnileg upplifun um helgar Fiskiálegg og hnetubrauð Þó hafragrauturinn standi alltaf fyrir sínu á morgnana er gaman að breyta til. Börnin verða líka glöð þegar eitthvað nýtt og skemmti legt er á boðstólum. BLS. 6 Orka í gönguna Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögu- maður gefur hugmyndir að orkuríku fæði fyrir og eftir erfiðar göngur. BLS. 2 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.