Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 82
50 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Í fljótu bragði virðist tískan sem hönnuðir boðuðu fyrir næsta haust
og vetur á nýafstaðinni tískuviku í París einkennast af áhrifum frá
fimmta áratugnum og hinum níunda ásamt fjöldanum öllum af mótor-
hjólaleðurjökkum. Fyrir þá sem vilja fylgja nýjustu straumunum áður
en þeir koma í verslanir eru ákveðnir hlutir sem maður ætti greinilega
að eiga í fataskápnum. Herralegir blazerjakkar eru enn afar heitir en
í þetta sinn eru þeir með afskaplega þröngum ermum sem eiga vænt-
anlega að láta okkur líta út fyrir að vera með súpermjóa handleggi.
Balenciaga var til dæmis með níðþröngar ermar á silkijökkum sem
skörtuðu rennilás til að gera þær enn þrengri. Hlébarðamynstur eru
víst ennþá heit samkvæmt Parísartískunni, ásamt slatta af pallíettum
og glitri. Sniðug leið til að ná „eighties“ Duran Duran-lúkkinu án þess
að verða hallærislegur er að klæða sig í stóran herralegan blazer með
breiðum herðum, bretta upp ermarnar og vera í níðþröngum gallabux-
um eða leggings við. Þær djörfu ættu að notfæra sér litagleðina sem
tröllreið öllu og sækja innblástur í bláa hlébarðamynstraða kjóla hjá
Lanvin eða skærappelsínugular peysur hjá Christopher Kane. Svo má
geta þess að mikill andlitsfarði er í tísku. Augu eru stórýkt með mikl-
um kattarlegum augnskugga og varirnar iðulega rauðar.
Eighties-jakkar og varalitur
Indverski hönnuðurinn Manish Arora hélt eina litríkustu sýninguna á ný-
yfirstaðinni tískuviku í París. Honum var lýst af tískuspekúlöntum sem
einum af trylltustu hugsjónamönnum tískuheimsins í dag og sendi fyrirsætur
eftir pallinum skreyttar fuglum, dýrum og öllum regnbogans litum. Einnig
var að finna veski í formi ljónshöfuðs og simpansahöfuðs úr swarovski-krist-
öllum. Exótísk og skemmtilega dramatísk sýning sem sannarlega lífgaði upp
á tískuvikuna. - amb
INDVERSK EXÓTÍK Í PARÍS
Manish Arora
heillar tískuheiminn
SIMPANSATASKA
Fylgihlutir Arora Manish
vöktu mikla athygli.
... unaðslega tælandi
nýjan hunangs og sítr-
ónuilm með glimmeri
frá L‘Occitane.
OKKUR
LANGAR Í
…
... dimmfjólublátt naglalakk frá nýju
Bohemian Fantasy línu Chanel. Seiðandi!
... nýju sumarlitina á augun frá Make Up Store
í grænum og fjólubláum tónum.
FRAMTÍÐARLEGT
Ævintýralegur
kjóll með
breiðum
herðum og
mjöðmum
alsettur
kristöllum.
PÁFUGL Dásamlega
fallegur dimmblár
kjóll með risavöxn-
um páfugli.
FIÐRILDI Hreint ótrú-
legt dress sem minnir
á einhvers konar
skrautlegt skordýr.
8:00
8:30
8:45
9:15
9:45
10:00
10:30
11:00
11:15
13:00
Handverks-samkeppni
Melrakkaseturs Íslands ehf
Melrakkasetur Íslands ehf efnir ti l samkeppni um handverk ti l að selja í netverslun og á sýningu um íslenska melrakkann sem
staðsett verður í Súðavík. Óskað er eft ir ti llögum að handverki sem getur fl okkast undir t.d. nytjahluti , listmuni eða klæðnað
og hefur ti lvísun í íslenska melrakkann (tófuna). Efnisval er frjálst og hægt er að senda inn fl eiri en eina ti llögu. Dómnefnd mun
fara yfi r allar innsendar ti llögur og velja úr þeim. Stjórn félagsins mun í framhaldi óska eft ir samningi um sölu vörunnar við
viðkomandi höfunda.
Frekari upplýsingar um samkeppnina er að fi nna á heimasíðu Melrakkaseturs Íslands ehf á slóðinni: www.melrakkasetur.is
Sýnishornum, ljósmyndum eða öðrum upplýsingum um ti llögurnar skal skila ti l Melrakkaseturs Íslands ehf,
Grundarstræti 3, 420 Súðavík fyrir 1. maí 2009.
> FARÐI FRÁ
GARETH PUGH
Enski hönnuðurinn
Gareth Pugh staðfesti
orðróm í síðustu viku
um að hann væri að
setja á fót förðunarlínu.
Líkt og með fatnað hans
má búast við sérstaklega
frumlegum vörum.