Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 14. mars 2009 11
ÁGÆTU REYKVÍKINGAR!
Sem borgarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra hef ég öðlast víðtæka reynslu af stjórnmálum.
Í störfum mínum hef ég ávallt fylgt þeirri sannfæringu að ganga eigi hreint til verks við að leysa
þau verkefni sem við er að glíma hverju sinni. Ég vil láta verkin tala.
Meginverkefni mitt sem heilbrigðisráðherra fólst í að hagræða í heilbrigðisþjónustunni en gæta
um leið hagsmuna notendanna – fólksins í landinu. Á 20 mánuðum kom ég eftirfarandi í verk:
Batt enda á alræmdar sumarlokanir á sjúkrastofnunum
Kom sjúklingum af göngum Landspítalans
Eyddi biðlistum á Landspítala eftir varanlegri vist á öldrunarstofnunum
Stóð að löngu tímabærum umbótum á rekstri BUGL
Kom jafnvægi á rekstur Landspítala
Sparaði 1,5 milljarða í útgjöldum vegna lyfja og lækkaði lyfjakostnað sjúklinga
Náði samkomulagi við borgarstjóra um sameiningu heimahjúkrunar
og félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík
Ég hef áður glímt við erfið verkefni með góðum árangri og sem leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík er ég
reiðubúinn að vinna hratt að lausn þess vanda sem við blasir. Reykvíkingar þurfa forystumann sem þorir.
Þess vegna óska ég eftir stuðningi þínum í 1. sætið í Reykjavík.
STÉTT MEÐ STÉTT Samstaða um endurreisn Ármúla 18 108 Reykjavík sími 568 4876 gth@gudlaugurthor.is www.gudlaugurthor.is
Guðlaugur Þór Þórðarson,
1. þingmaður Reykjavíkur norður
ÖRYGGISMÁL Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra var hífð upp
í TF-EIR, björgunarþyrlu Land-
helgisgæslunnar, í gær, þegar
hún tók þátt í æfingu Gæslunnar
og Slysavarnaskóla sjómanna.
Ragna var að kynna sér starf-
semi Gæslunnar ásamt starfs-
mönnum úr ráðuneytinu.
Heimsóknin hófst í stjórn-
stöð Gæslunnar, þar sem hópn-
um var kynnt starf sprengju-
deildar. Hádegisverður var síðan
snæddur í varðskipi Landhelgis-
gæslunnar. Heimsókn Rögnu og
fylgdarliðs lauk á Reykjavíkur-
flugvelli þar sem henni var kynnt
starfsemi flugdeildar. - shá
Ráðherra í lausu lofti:
Ragna hífð í
björgunarþyrlu
Í FULLUM SKRÚÐA Ráðherra tók sig vel
út í gær. MYND/LHG
STJÓRNSÝSLA Sautján karlmenn
og tvær konur sóttu um stöðu
forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
en umsóknarfrestur rann út 11.
mars.
Meðal umsækjenda voru Vil-
hjálmur Bjarnason, lektor og
formaður Samtaka fjárfesta, og
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota hjá ríkis-
lögreglustjóra.
Hjá Capacent-ráðningum er
unnið úr umsóknunum. Gunnar
Haugen, framkvæmdastjóri þar,
segir að gerð verði óbindandi
skýrsla yfir þá hæfustu og hún
send til eftirlitsins. Erfitt sé að
áætla hvenær það verði: „En það
verður í fyrsta lagi í seinni hluta
næstu viku sem línur fara eitt-
hvað að skýrast.“ - kóþ
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins:
Nítján sóttu
um stöðuna
Dr. Arnar Bjarnason
Arnbjörn Ingimundarson
Árni Thoroddsen
Bolli Héðinsson
Guðmundur Ásgeirsson
Gunnar Þ. Andersen
Halldór Eiríkur S. Jónhildarson
Helgi Magnús Gunnarsson
Ingólfur Guðmundsson
Jóhann Gunnar Ásgrímsson
Jóhann Halldór Albertsson
Magnús Ægir Magnússon
Már Wolfgang Mixa
Tamara Lísa Roesel
Sigrún Helgadóttir
Sigurður Guðjónsson
Vilhelm R. Sigurjónsson
Vilhjálmur Bjarnason
Þorsteinn Ólafs
Sækja um forstjórastólinn:
SAMFÉLAGSMÁL Félagsfundur
Breiðavíkursamtakanna lýsir
yfir innilegu þakklæti sínu
fyrir afsökunarbeiðni Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra,
fyrir hönd stjórnvalda, til fyrrum
vistmanna Breiðavíkurheimilis-
ins og fjölskyldna þeirra. Tillaga
þess efnis var samþykkt á fund-
inum á fimmtudagskvöld.
Í tillögu fundarins kemur einn-
ig fram að Breiðavíkursamtökin
taki afsökunarbeiðni forsætisráð-
herra fagnandi og fallist fegin-
samlega á hana. Stórt og mik-
ilvægt skref hafi verið stigið
áleiðis að góðri sáttargjörð í mál-
inu. - kg
Breiðavíkursamtökin:
Fallast á afsök-
unarbeiðni
DÓMSMÁL Lögregla heldur
nákvæma skrá yfir þá sem hún
hefur fylgst með með hjálp eftir-
fararbúnaðar sem nú liggur fyrir
að var notaður ólöglega fram til
síðustu áramóta. Lögregla getur
hins vegar ekki gefið upp hversu
margir þeir eru. Þetta segir Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri.
Maður sem búnaðinum var beitt
gegn fékk nýverið dæmdar skaða-
bætur vegna þess. Lögmaður hans
hefur í kjölfarið kallað eftir því að
yfirvöld hafi frumkvæði að því að
greina öllum þeim sem fylgst var
með á þennan hátt frá því, gera
þeim grein fyrir þeirri skaðabóta-
skyldu sem kann að hafa myndast
og jafnvel bjóða þeim bætur að
fyrra bragði.
Búnaðurinn var dæmdur ólög-
mætur á þeim forsendum að hann
væri þess eðlis að dómsúrskurð
þyrfti til að beita honum. Fram til
áramóta var hins vegar ekki heim-
ild til þess í lögum fyrir dómara
að veita slíkan úrskurð þar sem
hvergi var kveðið á um notkun
búnaðarins í lögum.
Nefnd á vegum ríkissaksókn-
ara komst að því árið 1999 að ekki
þyrfti dómsúrskurð til að beita
búnaðinum og á því voru reglur
lögreglu um hann byggðar. Dóm-
stólar hafa nú lýst sig ósammála
þeirri niðurstöðu. Í nefndinni sátu
meðal annars Atli Gíslason, nú
þingmaður, og Björg Thorarensen,
nú prófessor í stjórnsýslurétti. - sh
Lögregla upplýsir ekki hve margir gætu sótt bætur vegna ólögmæts búnaðar:
Gefa ekki upp fjölda eftirfara
STEFÁN EIRÍKSSON Lögreglan getur ekki
gefið upp með hversu mörgum hún
hefur fylgst með hjálp eftirfararbúnaðar.
STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins-
son, varaformaður Frjálslynda
flokksins, gefur kost á sér til for-
mennsku á landsþinginu um helg-
ina. Hann fer þar gegn Guðjóni
Arnari Kristjánssyni.
Magnús Þór sóttist eftir öðru
sæti í prófkjörinu í Norðvestur-
kjördæmi en hafnaði í fjórða. Í
yfirlýsingu segir Magnús flokkinn
í grafalvarlegri stöðu og ef fram
fari sem horfi nái hann engum á
þing. Því sé þörf á breytingum.
Aðspurður segir Guðjón styrk-
leikamerki að fleiri hafi áhuga á
forystustörfum. Guðni Halldórs-
son hefur dregið formannsfram-
boð sitt til baka. - sh
Guðjón Arnar fær keppni:
Magnús Þór vill
verða formaður