Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 8
8 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
PRÓFKJÖR
SAMFYLKINGARINNAR
Í REYKJAVÍK
KOSNINGU LÝKUR Í DAG!
Prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna vals
á framboðslista til Alþingiskosninga lýkur í dag,
laugardag kl 18. Kjörið fer fram á internetinu og
því mögulegt að kjósa hvar sem er, svo lengi sem
tölva, nettenging og aðgangur að heimabanka eru
til staðar. Kosið er á samfylking.is.
Hefðbundinn kjörstaður er í kosningamiðstöð
Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Þeir
sem ekki hafa aðgang að tölvu, nota ekki heima-
banka eða vilja kjósa á pappír, er velkomið að kjósa
á Skólabrú. Framvísa þarf persónuskilríkjum á kjör-
stað. Opið kl. 9 - 18.
Nánari upplýsingar á samfylking.is og í síma 414 2200.
Skráið inn kennitölu
Smellið á merki heimabanka
(nýr gluggi opnast)
Smellið á PRÓFKJÖR
og veljið kjördæmi
Lokið glugga heimabankans
Skráið inn lykilorð Kjörseðill birtist með nöfnum allra frambjóðenda. Setjið
minnst 4 og mest 8 frambjóðendur í sæti með því að velja
númer fyrir framan nafn viðkomandi. Númer 1 fyrir fyrsta
sæti, númer 2 fyrir annað sæti og þannig koll af kolli.
Farið á samfylking.is
Greiðið atkvæði
Sækið lykilorð í heimabanka
(yfi rlit-netyfi rlit eða yfi rlit-rafræn skjöl)
Staðfestið
upplýsingar
1. Hverja bað Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra
afsökunar á fimmtudag?
2. Hvaða fyrirtæki hlaut Ný-
sköpunarverðlaunin í ár?
3. Lög hvaða tónlistarmanns
munu hljóma á væntanlegri
plötu Papanna?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 62
BAUGSMÁLIÐ Saksóknari felldi í
gær niður ákæru á hendur Baugi
Group í þeim anga Baugsmálsins
sem snýr að skattamálum. Ekki er
venjan að sækja gjaldþrota fyrir-
tæki til saka, segir Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari efnahags-
brota hjá Ríkislögreglustjóra.
„Þetta er í samræmi við venjur
sem við höfum mótað í svona til-
vikum,“ segir Helgi Magnús. Verði
félög í þeirri stöðu sektuð sé í raun
verið að sekta kröfuhafa í félag-
ið. Slíkt hafi enga réttarvörslulega
þýðingu. Eftir stendur ákæra á
hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
Kristínu Jóhannesdóttur, Tryggva
Jónssyni og Fjárfestingafélag-
inu Gaumi. Ákært er fyrir brot
á skattalögum. Málið var tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Verjendur þeirra sakborn-
inga sem eftir eru skiluðu greinar-
gerð. Saksóknari hefur nú tæpar
þrjár vikur til að skila sinni grein-
argerð. - bj
Baugur Group tekið til gjaldþrotaskipta og skiptastjóri skipaður í héraðsdómi:
Fallið frá ákæru í Baugsmáli
EÐLILEGT Ákvörðun um að falla frá
ákæru á hendur gjaldþrota fyrirtæki er í
samræmi við dómvenju, segir Ragnar H.
Hall, verjandi Baugs. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Dómari féllst á ósk Baugs Group
um gjaldþrotaskipti í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Erlendur Gísla-
son, hæstaréttarlögmaður á Logos,
var skipaður skiptastjóri félagsins.
Stjórn Baugs Group ákvað að
óska eftir því að félagið yrði tekið
til gjaldþrotaskipta eftir að héraðs-
dómur hafnaði kröfu félagsins um
framlengingu á greiðslustöðvun.
BAUGUR Í ÞROT
NEW YORK, AP Jarðarbúar fara yfir
sjö milljarða markið snemma á
árinu 2012 og verða yfir níu millj-
arðar árið 2050. Þetta kemur
fram í nýjustu uppfærslu mann-
fjöldaspár Sameinuðu þjóðanna,
sem birt var í vikunni.
Fjölgunin verður að langmestu
leyti í þróunarlöndum í Asíu og
Afríku. Engar miklar breytingar
hafa orðið á spánni frá því að hún
kom síðast út árið 2006, að því er
Hania Zlotnik, yfirmaður mann-
fjöldaskrifstofu SÞ, sagði á blaða-
mannafundi í höfuðstöðvum SÞ í
New York á miðvikudag.
„Við spáum því enn að árið 2050
verði íbúafjöldi heimsins kom-
inn í um 9,1 milljarð,“ sagði hún.
„Spáin byggir á þeirri forsendu
að frjósemi, sem er nú í kring-
um 2,56 börn á konu að meðaltali,
muni lækka í um 2,02 börn á konu
á tímabilinu.“
En hún bætti við að héldist frjó-
semi um hálfu barni á konu hærri
en 2,02 yrðu íbúar heimsins 10,5
milljarðar árið 2050. Yrði frjósem-
in aftur á móti hálfu barni minni
á konu þá myndi mannkyninu ekki
fjölga nema í átta milljarða fram
til ársins 2050.
Gert er ráð fyrir að um mitt
þetta ár verði jarðarbúar orðnir
6,8 milljarðar.
- aa
FRJÓSEMI Megnið af fólksfjölguninni verður í þróunarlöndum Afríku og Asíu.
NORDICPHOTOS/AFP
Ný mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna kynnt:
Jarðarbúar verða
sjö milljarðar 2012
VINNUMARKAÐUR Kjararáð hefur
ákveðið að lækka laun dómara á
sama hátt og laun annarra emb-
ættismanna. Lækkunin er á bilinu
fimm til fimmtán prósent og tekur
ákvörðunin gildi um miðjan mars.
Heildarlaun upp á 1.156 þúsund
á mánuði lækka um fimmtán pró-
sent en heildarlaun sem eru 450
þúsund á mánuði lækka um fimm
prósent. Í ákvörðun meirihluta
Kjararáðs kemur fram að minnst
röskun felist í því að lækka laun-
in þannig að dregið verði úr yfir-
vinnugreiðslum en mánaðarlaun
haldist óbreytt eftir því sem við
verður komið. Minnihluti ráðsins
skilaði sératkvæði og taldi ekki
forsendur til að lækka laun dóm-
ara. - ghs
Kjararáð um laun dómara:
Greiðslur lækka
VEISTU SVARIÐ?