Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 2
2 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
í 4. sæti
Hauk Þór
www.haukurthor.is
Prófkjör sjálfstæðismanna
í SV-kjördæmi
Ráðdeild og lausnir
Lárus, ætlarðu að breyta nem-
endunum í grautarhausa?
„Nei, en ég vona að grauturinn geri
þeim gott.“
Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð
eiga kost á ókeypis hafragraut alla
morgna nema á mánudögum fram á vor.
Lárus H. Bjarnason er rektor skólans.
ÞÝSKALAND, AP Lögreglan í Þýska-
landi leitaði í gær samstarfs við
lögregluyfirvöld í Bandaríkjun-
um til að fá úr því skorið hvort
netspjall, sem virtist mikilvæg
heimild um aðdraganda skotárás-
arinnar í gagnfræðaskóla í Winn-
enden á miðvikudag, væri gabb.
Talsmenn þýsku lögreglunn-
ar segjast nú vera mjög efins um
sannleiksgildi afritsins af net-
spjallinu, sem virtist hafa átt sér
stað milli hins sautján ára Tims
Kretschmer og spjallfélaga á net-
inu sex klukkustundum áður en
Kretschmer hóf skothríðina sem
varð sextán manns að bana.
Netþjónninn sem þjónustar
netspjallsgátt þá sem um ræðir
er í Bandaríkjunum og því þarf
aðkomu yfirvalda þar í landi. - aa
Skotárásin í Þýskalandi:
Netspjall hugs-
anlega falsað
NOREGUR, AP Aurskriða lenti á
nokkrum íbúðarhúsum í bænum
Namsós í Norður-Þrændalögum
í Mið-Noregi í gær, með þeim
afleiðingum að húsin steyptust
bókstaflega í sjó fram. Engar
fregnir voru af manntjóni.
Marit Dahl, talsmaður lögregl-
unnar í Norður-Þrændalögum,
sagði sjö manns hafa verið bjarg-
að af hamfarasvæðinu og svo
virtist sem enginn þeirra væri
alvarlega slasaður. Björgunar-
sveitir og -þyrlur könnuðu hvort
fleiri væru í rústunum. Vegagerð
er í gangi í grennd við skriðustað-
inn, sem kann að skýra hvað kom
henni af stað. - aa
Aurskriða í Mið-Noregi:
Nokkur hús í
sjóinn í Namsós
HAMFARIR Rústir nokkurra húsanna í
flæðarmálinu en þangað svipti aurskrið-
an þeim í gær. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Valtýr Sigurðsson ríkis-
saksóknari leggst gegn því að sak-
sóknari efnahagsbrota hjá ríkis-
lögreglustjóra, Helgi Magnús
Gunnarsson, leggi fram ákæru á
nýjan leik á hendur Jóni Ólafssyni
athafnamanni og félögum.
Málið snýst um skattalagabrot
vegna skattskila mannanna og
skattskila fyrirtækjanna Norður-
ljósa, Skífunnar og Íslenska
útvarpsfélagsins, sem höfðu verið
rannsökuð í rúm sjö ár. Jóni var
gefið að sök að hafa svikið undan
skatti 360 milljónir króna.
Í úrskurði héraðsdóms frá 17.
desember var vísað til þess að rík-
isskattstjóri hefði þegar sektað
mennina fyrir brotin. Af þeim
sökum mætti ekki refsa þeim
aftur og málinu var því vísað
frá.
Saksóknari efnahagsbrota
fór þá með málið fyrir Hæsta-
rétt, sem vísaði því einnig frá,
en í þetta sinn vegna form-
galla. Saksóknari efna-
hagsbrota sótti
um leyfi til að
kæra málið að
nýju, en því
var hafnað
5. mars síð-
astliðinn.
Í bréfi
ríkissak-
sóknara
til sak-
sóknara
efna-
hagsbrota er farið yfir lög sem
banna meðal annars að kæra
tvisvar sama málið til sama dóm-
stóls. Einnig segir ríkis-saksókn-
ari að ný ákæra í sama máli myndi
reyna á sömu efnisatriði og þegar
hefur verið úrskurðað um. Málinu
sé því lokið.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota,
segir að rök ríkis-
lögreglustjóra
séu gild, því
ekki séu for-
dæmi fyrir
ann-
ars konar málsmeðferð.
„Héraðsdómurinn stendur og
við skulum vona hans vegna að
hann hafi verið réttur. Þeir og
aðrir dómstólar hafa gert allt sem
þeir geta til að fjalla ekki efnis-
lega um málið, en það er svo sem
ekki nýtt í efnahagsbrotamálum,“
segir hann: „Ég vildi bara að þeir
gerðu það sem þeir eiga að gera;
að skera úr í svona málum.“
Það verði skemmtilegt eða hitt
þó heldur fyrir sérstakan sak-
sóknara bankahrunsins að mæta
þessu viðmóti hjá dómstólum:
þegar mál séu af ákveðinni stærð-
argráðu sé dómaframkvæmdum
breytt.
„Við sáum þetta í Baugsmálinu,
við sáum þetta í olíumálinu og
við sjáum þetta í þessu máli.
Svo er sagt að dómstólar
hafi alltaf rétt fyrir sér,“
segir Helgi Magnús.
klemens@frettabladid.is
Ríkissaksóknari stöðv-
ar efnahagsbrotadeild
Saksóknari efnahagsbrota vildi ákæra Jón Ólafsson athafnamann aftur fyrir
skattalagabrot, en málinu hafði áður verið vísað frá. „Dómstólar hafa gert allt sem
þeir geta til að fjalla ekki efnislega um málið,“ segir saksóknari efnahagsbrota.
VEÐUR Fólk í fjórum húsum í Bol-
ungarvík var beðið um að rýma
hús sín fyrir miðnætti í gær
vegna snjóflóðahættu. „Við kipp-
um okkur ekkert upp við þetta,
ef við erum beðin að fara út þá
förum við út,“ sagði Þorkell Már
Þrándarson, einn íbúanna sem
varð að yfirgefa hús sitt. Það
er í þriðja sinn á einum mánuði
sem hann hefur þurft að gera
svo. „Bærinn finnur fyrir okkur
íbúð,“ segir hann þegar hann var
spurður hvar hann muni halla
höfði.
Lögreglan á Vestfjörðum segir
að um tíu til tólf manns hafi þurft
að yfirgefa hús sín. - jse
Snjóflóðahætta í Bolungarvík:
Þriðja húsrým-
ingin á mánuði
STJÓRNSÝSLA Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra segist ekki
mótfallinn því að stjórn Fjár-
málaeftirlitsins gefi upp hver
séu laun skilanefnda bankanna.
Hann hafi ekki nákvæma tölu
yfir þau, en honum skiljist að
þau séu úr takti við eðlileg laun
fyrir ábyrgðarstörf hjá hinu
opinbera. Ráðherra hefur mælt
fyrir lagafrumvarpi, en sam-
kvæmt því yrðu launin greidd af
þrotabúum bankanna en ekki af
ríkinu.
Gunnar Haraldsson, stjórnar-
formaður FME, segist hafa fund-
að um þetta í gær. Ákvörðun
komi fljótlega. Spurður vill hann
ekki segja hvort til standi að
gefa launin upp nákvæmlega, og
vísar til þess að gott verði að sjá
fyrst hvað komi út úr frumvarpi
ráðherra. - kóþ
Viðskiptaráðherra:
FME má greina
frá launum
skilanefnda
VÍMUEFNI Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi
á Arnarnesinu í gær og fann eitt
hundrað kannabisplöntur í rækt-
un. Maður var handtekinn og
yfirheyrður. Lögreglan fór einnig
í hús í Kópavogi og fann þar tvö
hundruð grömm af kannabisefn-
um í söluumbúðum.
Síðustu daga hafa laganna
þjónar gert upptækar hátt í þús-
und plöntur í fjórum húsleitum.
Fimm hafa verið handteknir og
síðan verið sleppt. Vísbending-
ar munu hafa gefist um að málin
tengist öll. - kóþ
Kannabisplöntur á Arnarnesi:
Lögreglan tók
100 plöntur
LÖGREGLUMÁL „Þetta er mikið áfall.
Ég bjóst aldrei við að þetta myndi
gerast hér á Íslandi,“ segir Dee-
pak Panday, eigandi nepalska
veitingastaðarins Eldhússins við
Laugaveg, sem hefur starfsemi
sína á þriðjudaginn næsta. Brot-
ist var inn í húsnæði staðarins í
fyrrinótt.
Panday, sem er frá Nepal en
hefur búið á Íslandi í átta mán-
uði, segir staðinn hafa verið til-
búinn undir opnunina á þriðju-
daginn fyrir innbrotið. „Þessir
innbrotsþjófar voru mjög fagleg-
ir og brutu engar rúður heldur
spenntu einfaldlega upp hurðina
og tóku sér góðan tíma í það sem
þeir ætluðu sér að gera. Þeir tóku
öll glösin, allt áfengið af barnum,
glænýja kaffivél, tvo flatskjái og
fartölvuna mína, svo eitthvað sé
nefnt. Þeir hafa augljóslega verið
vel búnir því flatskjáirnir héngu
neðan úr loftinu, en þjófunum
tókst að skrúfa þá niður.“
Panday segist ætla að gera allt
sem í hans valdi standi til að hefja
rekstur Eldhússins á þriðjudag
eins og ætlunin var. Sem betur fer
sé staðurinn tryggður og skaðinn
verði því vonandi ekki of mikill.
„Lögreglan kom hingað og leitaði
að fingraförum og slíku. Þeir lof-
uðu að láta mig vita ef þeir yrðu
einhvers vísari, og ég vona bara
að það verði sem fyrst,“ segir Dee-
pak Panday. - kg
Brotist inn í nepalskan veitingastað örfáum dögum fyrir opnun:
Bjóst ekki við þessu á Íslandi
ÁFALL Deepak Panday, eigandi Eldhússins við Laugaveg, segir greini-
legt að þjófarnir hafi verið vel búnir og tekið sér nægan tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Lagabreyting til að liðka
fyrir að notaðir bílar yrðu seldir
úr landi hefur skilað litlu frá því
hún var samþykkt 11. desember
síðastliðinn. Aðeins 73 bílar hafa
verið seldir úr landi og 98 umsókn-
ir bíða afgreiðslu. Alls hafa borist
190 umsóknir en nítján hefur verið
hafnað. Þetta er aðeins brotabrot
af því sem menn gerðu sér vonir
um, en talið var raunhæft að gjald-
eyristekjur af slíkum útflutningi
gæti numið um milljörðum króna.
Áætlanir gerðu ráð fyrir að seldir
yrðu að minnsta kosti 5.000 bílar
úr landi.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, segir
að tækifærið hafi runnið mönnum
úr greipum vegna seinagangs í
kerfinu. „Við fórum af stað fljót-
lega upp úr bankahruninu og lögð-
um fram tillögur við fjármála-
ráðuneytið. Þegar stjórnkerfið var
búið að fara höndum um þetta voru
menn fallnir á tíma. Til viðbótar
var sett tveggja milljóna króna
þak á samanlagða endurgreiðslu
vörugjalds og virðisaukaskatts á
hvern bíl. Þetta gerði það að verk-
um að dýru bílarnir fara ekkert úr
landi. Þetta missti því gjörsamlega
marks.
Mikill áhugi var á meðal útlendra
bílasala, sem flykktust til landsins
eftir bankahrunið vegna hugsan-
legra viðskipta. Fulltrúar fyrir-
tækja frá Þýskalandi og Danmörku
hugðust kaupa „heilu bílaflotana“,
eins og Özur orðar það. - shá
Bílgreinasambandið segir seinagang í kerfinu hafa hamlað bílasölu:
Sárafáir bílar seldir úr landi
BÍLAFLOTI Erlendir bílasalar segja
hik stjórnvalda hafa komið í veg fyrir
útflutning á bílum sem skila áttu mikl-
um gjaldeyristekjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKATTAMÁLIÐ STOPPAÐ
Valtýr Sigurðsson ríkis-
saksóknari sér ekki að
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota,
geti gengið lengra í
skattamálinu gegn
Jóni Ólafssyni
athafna-
manni.
SPURNING DAGSINS