Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 94
62 14. mars 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. bifa, 6. í röð, 8. gagn, 9. taug, 11. átt, 12. hlutdeild, 14. kjötstykki, 16. bardagi, 17. rá, 18. tálknblað, 20. tveir eins, 21. innyfla. LÓÐRÉTT 1. dæsa, 3. öfug röð, 4. blys, 5. óhreinka, 7. stoppistöð, 10. lúsaegg, 13. prjónavarningur, 15. drepa, 16. ái, 19. númer. LAUSN LÁRÉTT: 2. þoka, 6. áb, 8. nyt, 9. sin, 11. na, 12. aðild, 14. steik, 16. at, 17. slá, 18. fön, 20. ll, 21. iðra. LÓÐRÉTT: 1. mása, 3. on, 4. kyndill, 5. ata, 7. biðstöð, 10. nit, 13. les, 15. kála, 16. afi, 19. nr. „Georg er alveg sérsniðinn fyrir Hollywood,“ segir Jón Gnarr en í gær var það tilkynnt að kvikmynd byggð á Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavakt- inni hefði fengið vilyrði fyrir styrk úr Kvikmynda- sjóði. Fréttablaðið greindi frá því á fimmtudaginn að átta myndir hefðu fengið ámóta vilyrði en kvik- myndin um Georg, Daníel og Ólaf Ragnar bættist í hópinn á síðustu stundu. Jón segir aðstandendur sjónvarpsþáttannna hafa legið yfir handritinu, það sé nú klárt. Myndin mun taka upp þráðinn þegar Georg losnar úr fangelsi en eins og Fréttablaðið hefur greint frá er nú unnið að gerð þriðju þáttaraðarinnar sem ber heitið Fanga- vaktin. Jón lítur svo á að Georg verði hent í ruslið þegar kvikmyndin lítur dagsins ljós. „Já, hann kall- ar alltaf fram allt það versta í manni enda bæði leið- inlegur og heimskur maður.“ Jón er nú að undir- búa Georg fyrir fangelsisvistina en hann hefur lagt mikið á sig við að túlka þennan karakter. Ekki var þó mögulegt að láta loka sig inni á Litla-Hrauni sökum plássleysis. „Mig hefur oft langað til að sitja af mér sekt en ég hef bara aldrei verið sektaður,“ segir Jón. Fastlega má gera ráð fyrir því að Jörundur Ragn- arsson, Pétur Jóhann Sigfússon og áðurnefndur Jón Gnarr verði í aðalhlutverkum en ekki hefur verið gengið frá ráðningu í önnur hlutverk. Leikstjóri verður sem fyrr Ragnar Bragason. - fgg Vaktmenn verða kvikmynd Á HVÍTA TJALDIÐ Orðrómur um gerð bíómyndar sem byggist á sjónvarpsþáttunum Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin hefur lengi verið á kreiki. Hann var loks staðfestur í gær þegar kvikmyndinni var úthlutað vilyrði fyrir styrk. „Við gerum allt frá því að hjálpa hönn- uðum við að klippa efni, sauma og sníða klæðnað fyrir sýningar og vísa til sætis, allt upp í að vera í „show-room“ sem eru sölurnar eftir sýningar,“ segir Elsa María Blöndal, en ellefu nemendur í fatahönnun við LHÍ hafa á undanförnum vikum starf- að í kringum tískuvikuna í París. „Það er nokkurs konar hefð að fyrsta árs nemendur fari út. Við dveljum í um það bil fimm vikur í París og erum búnar að vera að vinna á hverjum degi, tíu til tólf tíma á dag. Þær sem eru að vinna hjá hönnuðum eru að mestu búnar því sýn- ingarnar eru að klárast, en „show-room“ eru enn þá. Þar erum við að taka upp úr og setja ofan í kassa og dressa módelin,“ útskýrir Elsa María og segir stelpurn- ar hafa skipt sér niður í tvær íbúðir sem þær búi í á meðan þær dvelja úti. Stelpurnar hafa unnið hjá fata- hönnuðum á borð við Martine Sit- bon, Sharon Wauchob og Gaspard Yurkievich. Þau „show-room“ sem stelpurnar hafa starfað við eru MC2, GIBO og Totem, en þau eru meðal annars með hönnuðina Man- ish Arora, Undercover og Rochas. Aðspurð segir Elsa María þetta vera einstakt tækifæri. „Ég upplifi þetta alveg milljón sinnum skemmtilegra en ég hafði vonað. Þetta veitir manni mikinn innblást- ur og við teljum okkur alveg afskap- lega heppnar.“ - ag Íslenskar stelpur unnu við tískuvikuna í París SKEMMTA SÉR VEL Í PARÍS Elsa María og Gígja Ísis eru meðal þeirra ellefu íslensku nema sem hafa unnið í kringum tískuvikuna í París að undanförnu. BLEIKT OG BLÓMLEGT Einn af kjólum Manish Arora af tískusýningunni í París sem fram fór 9. mars síðastliðinn. „Já, ég skildi nú ekkert í þess- ari sendingu fyrst og ætlaði bara að henda umslaginu og duftinu í ruslið. Svo fór ég nú að spá í það hvort sendingin hefði hugsanlega átt að fara til hins Davíðs Odds- sonar,“ segir Davíð Oddsson for- ritari, alnafni Davíðs Oddsson- ar, fyrrverandi seðlabankastjóra og forsætisráðherra, sem í nokk- ur ár hefur ekki haft nafn sitt og símanúmer í símaskránni vegna áreitis. Steininn tók þó úr þegar hann fékk hvítt duft í pósti sent til sín fyrir nokkrum árum, í kring- um þann tíma er menn hræddust miltisbrandssendingar hryðju- verkamanna. „Ég hringdi niður á lögreglu- stöð og náði loks í einhvern sem sagði mér að hringja í 112. Ég hringdi þangað og hélt að það kæmi kannski bara einhver að sækja umslagið svona í rólegheit- um. Þess í stað mætti her manns heim til mín, slökkviliðið og allir í einhverjum undarlegum hvítum göllum. Sloppar? Nei, þetta líktist mun frekar einhverjum geimbún- ingum. Þeir þorðu ekki að koma inn í húsið út af þessu efni og voru því á ráfi fyrir utan hjá mér þar sem efnafræðingurinn var ekki mættur.“ Efnafræðingurinn mætti svo um klukkutíma síðar. „Við fjölskyldan höfðum þá verið föst heima allan tímann og horft á herskarann taka einhverjar æfing- ar fyrir utan.“ Viðbrögð efna- fræðingsins komu því verulega á óvart er hann mætti en hann tók umslagið, stakk því ofan í tösku hjá sér og sagðist „ætla að kíkja á þetta í fyrramálið“ að sögn Dav- íðs. „Ég held að það hafi enginn átt von á því að þetta væri neitt annað en hveiti, en viðbúnaðurinn var nú samt svona rosalegur.“ Davíð frétti ekkert frekar af hvítadufts-málinu en þetta er ekki í fyrsta skipti sem það hefur einhverjar afleiðingar fyrir hann að heita Davíð Oddsson. „Það var mikið hringt í mig, á nóttunni sér- staklega, þegar menn voru orðn- ir aðeins í glasi, jafnvel á virkum dögum. Ég vaknaði hins vegar aldrei við símann heldur lenti þetta allt á konunni minni. Það fór því svo að einn daginn tilkynnti hún mér að hún væri búin að láta taka mig úr símaskránni.“ Eftir að Davíð lét taka sig úr símaskránni hefur hann að mestu fengið frið nema hann hefur lent í því að það sé vandkvæðum búnið að panta pitsu. „Stuttu eftir pöntun hefur verið hringt í mig og spurt hvort ég heiti örugglega Davíð Oddsson og hafi verið að panta mér pitsu.“ Á árum áður þegar ávísanir voru skrifaðar var líka stundum horft á hann kímnislega þegar hann ritaði Davíð Oddsson undir tékkana. Davíð Oddsson for- ritari sér þó fram á að geta jafnvel bráðlega látið birta símanúmerið sitt aftur í símaskránni. „Jú, hver veit nema það líði ekki á löngu þar til ég geri það.“ juliam@frettabladid.is DAVÍÐ ODDSSON: Á ERFITT MEÐ AÐ PANTA SÉR PITSU Umkringdur af mönnum í hvítum eiturefnabúningum KONAN LÉT TAKA DAVÍÐ ODDSSON ÚR SÍMASKRÁNNI Davíð Oddsson forritari lét það ekki raska ró sinni þótt hringt væri í hann að nóttu til í mörg ár. Konan hans vaknaði nefnilega alltaf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Selma Björnsdóttir Aldur: 34 ára. Starf: Söngkona og leikstjóri. Stjörnumerki: Tvíburi. Búseta: 105 Reykjavík. Fjölskylda: Gift Rúnari Frey Gísla- syni leikara og á dótturina Selmu Rún og soninn Gísla Björn. Selma hefur gengið til liðs við Euroband- ið í staðinn fyrir Regínu Ósk, en hún er jafnframt dómari í Idol-stjörnuleit og leikstýrir Grease í Loftkastalanum. Kvikmyndaframleiðendurnir Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp vinna nú að málsókn gegn NBC-sjón- varpsrisanum vegna meintra höf- undarréttarbrota í sjónvarpsþáttun- um Heroes. Þeir félagar staðhæfa að atriði í síðasta þætti hafi verið stolið úr kvikmyndinni Astrópíu og að fleira slíkt gæti komið í ljós í næstu þáttum. Töluverð umræða hefur verið um málið á netinu, meðal annars á Twitchfilm. net og á heima- síðu Fantastic Fest, kvikmyndahátíðar þar sem Astrópía var einmitt sýnd í fyrra. Ingvar sagði í samtali við Frétta- blaðið að þeir væru að kanna málsóknir á hendur Heroes á fleiri stöðum en í Bandaríkjunum, til að mynda í Japan og Þýskalandi, enda væri þátturinn sýndur og nyti vinsælda um allan heim. Lögfræð- ingar þeirra í Bandaríkjunum meti þó möguleika þeirra nokkuð sterka þar í landi, í það minnsta hafi þeir fallist á að vinna að málsókninni launalaust en gegn því að fá hluta af mögulegum ágóða. Það verður að teljast gott fyrir íslenska kvik- myndagerðarmenn því kostnaður- inn við að koma slíkri málsókn af stað getur numið 15-20 milljónum króna. Og það er bara byrjunin. Bloggarinn og tónlistarspekúlantinn Jens Guð lýsir yfir stuðningi sínum við teiknarann Sigurð Val Sigurðs- son í máli hans vegna Plöntu- handbókarinnar sem Fréttablaðið greindi frá í vikunni. Sjálfur segist Jens hafa orðið fyrir þeim óþæg- indum að verk hans hafi verið gefin út að honum forspurðum á geisla- disk og þá oft afbökuð. Jens er nefnilega höfundur umslaga þekktra íslenskra hljómplatna og nægir þar að nefna Loftmynd Megasar og Konu Bubba Morhtens. - hdm, fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Langar þig í spennandi námsár í Noregi? Lýðháskólinn í Romerike Fremstur í sinni röð í leiklist, tónlist og leikhúshönnun. Enn eru laus pláss í leikmyndahönnun skólaárið 2009/10. • Erum í næsta nágrenni við fl ugvöllinn í Oslo • Skólinn byrjar 23 . ágúst 2009 • Þú verður að vera 18 ára • Hægt er að sækja um skólastyrk til norden@norden.is Sjá heimasíðu skólans: www.romerike.fhs.no Hafðu samband sem fyrst. Sími 004763970910, post@romerike.fhs.no Hjartamiðstöðin T ilkynning – H jartalæ knar Hef flutt læknastofu mína í Hjartamiðstöðina, Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi. Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á www.hjartamidstodin.is Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is Axel F. Sigurðsson Dr.Med. hjartalæknir VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1. Breiðavíkurdrengina. 2. Fyrirtækið Mentis Cura. 3. Lög Gylfa Ægissonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.