Morgunblaðið - 21.01.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar
til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið
Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu,
kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum
innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar
sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Vectavir
Virkar á öllum stigum frunsunnar
- aldrei of seint!
LÆGSTU LAUN HÆKKA
Lægstu laun verða hækkuð og
mun launanefnd sveitarfélaga kynna
niðurstöður sínar fyrir sveit-
arstjórnum ekki síðar en 10. febrúar
nk. Þetta er ljóst eftir að launa-
málaráðstefna sveitarfélaga sam-
þykkti að beina því til launanefndar
að fjalla um þær tillögur og hug-
myndir sem fram komu á ráðstefn-
unni um leiðir til lausna í kjara-
málum starfsmanna sveitarfélaga.
Að mati Gunnars Rafns Sig-
urbjörnssonar, formanns nefnd-
arinnar, munu þær aðgerðir ekki
opna kjarasamninga.
Náði ekki þingmeirihluta
Bandalag trúarlegra stjórn-
málaflokka sjíta, Íraska bandalagið,
fékk flest þingsæti í kosningunum í
Írak 15. desember samkvæmt kjör-
tölum sem birtar voru í gær. Banda-
lagið fékk þó ekki nógu mikið fylgi
til að geta myndað stjórn án stuðn-
ings annarra flokka.
Agca aftur í fangelsi
Mehmet Ali Agca, Tyrkinn sem
reyndi að ráða Jóhannes Pál II páfa
af dögum árið 1981, var handtekinn í
Istanbúl í gær eftir að áfrýj-
unarréttur úrskurðaði að honum
bæri að fara aftur í fangelsi. Rétt-
urinn hnekkti úrskurði dómstóls í
Ankara sem veitt Agca frelsi fyrr í
mánuðinum.
Metár hjá LV
Ávöxtun hjá Lífeyrissjóði verzl-
unarmanna var 20,9% á síðasta ári
sem samsvarar 16,1% raunávöxtun.
Er þetta besta ávöxtunin í sögu
sjóðsins.
Þorskur í stað lax
Slakt gengi í laxeldi hefur leitt til
þess að eldisfyrirtækið Salar Is-
landica á Djúpavogi hefur ákveðið að
auka þorskeldi, en draga úr laxeldi.
Y f i r l i t
Í dag
Úr verinu 18 Umræðan 42/47
Viðskipti 18/20 Kirkjustarf 48/49
Erlent 22/24 Minningar 50/59
Akureyri 28 Myndasögur 64
Suðurnes 27 Dagbók 64
Landið 30 Víkverji 64
Árborg 30 Staður og stund 65
Daglegt líf 32/33 Velvakandi 66
Ferðalög 34/35 Ljósvakamiðlar 74
Menning 36/37 Staksteinar 75
Forystugrein 38 Veður 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is
Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
UNDIRBÚNINGUR var í algleym-
ingi fyrir undankeppni Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
leit við í sérstöku myndveri
keppninnar á Granda í gær. Unnu
tæknimenn ötullega að því að allt
yrði tilbúið fyrir keppnina sem
hefst í kvöld.
Jónatan Garðarsson, umsjón-
armaður keppninnar, segir spennu
í loftinu og keppendurna tilbúna í
slaginn. „Húsið er líka að verða
tilbúið,“ segir Jónatan. „Það er
búið að vera hamagangur að
koma þessu heim og saman. Þarna
tókum við vöruskemmu og henni
var breytt í myndver og tónleika-
sal. Menn eru búnir að vinna
linnulaust í þessu undanfarna
daga og vikur þannig að það
gangi upp að hafa svið og áhorf-
endur úti í sal og lýsa þetta allt
saman.“
Keppnin hefst í sjónvarpinu kl.
20.10 í kvöld, en kynnar verða þau
Garðar Thór Cortes og Brynhildur
Guðjónsdóttir. | 70Morgunblaðið/Sverrir
Senn líður
að söngva-
keppni
„OKKUR finnst málflutningurinn að
undanförnu ósanngjarn í okkar garð.
Það hefur verið talað um það hástöf-
um að laun þeirra hópa sem heyri
undir kjaranefnd og Kjaradóm hafi
hækkað umtalsvert umfram launa-
vísitölu. En eins og við sjáum það í
Félagi prófessora þá hefur það alls
ekki verið raunin hvað varðar
launaþróun prófessora,“ segir Þor-
steinn Loftsson, formaður Félags
prófessora.
Í bréfi sem Félag prófessora sendi
félagsmönnum sínum sl. fimmtudag
er bent á að sé litið til fastra launa
prófessora megi sjá að þau hafi hækk-
að um 53% að meðaltali frá 1. janúar
1999 til dagsins í dag, en launavísital-
an fyrir sama tímabil hafi hækkað um
51% og laun æðstu embættismanna
sem heyri undir Kjaradóm hafi hækk-
að á bilinu 72,9% til 119,8%. Fram
kemur í bréfinu að að hluta til megi
rekja niðurstöðuna hvað varðar pró-
fessora til launaskriðs sem orðið hafi
vegna þess að prófessorar hafi hækk-
að um launaflokka innan launakerf-
isins á grundvelli mats á verkum
þeirra, en ekki vegna beinna úr-
skurða kjaranefndar. „Úrskurðir
nefndarinnar einir og sér hafa aðeins
leitt til um 42% hækkunar launa frá
1999,“ að því er segir í bréfinu.
Að sögn Þorsteins hafa prófessorar
í raun dregist aftur úr viðmiðunar-
hópum sínum og því sé orðið afar erf-
itt fyrir HÍ að ráða til sín starfsfólk
auk þess sem skólinn sé að missa hæft
fólk í önnur störf sökum þess að laun-
in séu ekki lengur samkeppnishæf.
Segja prófessorslaun
hafa dregist aftur úr
launum viðmiðunarhópa
STÚLKAN sem lést í bílslysi á
Hnífsdalsvegi á fimmtudag hét Þór-
ey Guðmundsdóttir, til heimilis á
Garðavegi 4 í Hnífsdal. Hún var
fædd 25. mars 1988, dóttir hjónanna
Guðmundar Þórs Kristjánssonar,
vélstjórnarkennara við Menntaskól-
ann á Ísafirði, og Elínborgar Helga-
dóttur.
Þórey var nemandi á félagsfræði-
braut við Menntaskólann á Ísafirði,
auk þess sem hún starfaði sem þjálf-
ari yngri flokka kvenna hjá KFÍ.
Lést í bíl-
slysi á Hnífs-
dalsvegi
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands (ASÍ)
fagnar því að Alþingi felldi úrskurð
Kjaradóms frá 19. desember sl. úr
gildi í gær, að sögn Gylfa Arnbjörns-
sonar, framkvæmdastjóra ASÍ.
Hann segir að launabreytingar
Kjaradóms hafi ekki verið í neinu
samræmi við það sem gerst hafði á
vinnumarkaði. „Þessar launahækk-
anir 19. desember komu til viðbótar
ríflega 5% launahækkunum til sömu
hópa á árinu. Þeir fengu 3% hækkun
1. janúar 2005 og aftur 2% hækkun
hinn 1. júlí. Þessi viðbót var ekki í
neinu samræmi við 5,5–6% launa-
breytingu á markaðnum.“
Gylfi segir nauðsynlegt að breyta
fyrirkomulagi á launaákvörðunum
æðstu embættismanna og kjörinna
fulltrúa. Gögn Hagstofunnar sýni
víxlverkanir milli ákvarðana Kjara-
dóms og kjaranefndar, sem ekki séu í
neinu samræmi við þróun á vinnu-
markaði. Með lögunum í gær gefist
svigrúm út árið til að skoða málið.
„ASÍ hefur lengi kallað eftir því að
allt sé haft með þegar kjör æðstu
embættismanna og kjörinna fulltrúa
eru skoðuð. Þar með talin lífeyris-
réttindi sem eru umtalsvert meiri en
á almennum markaði, einkum hjá
ráðherrum en einnig alþingismönn-
um. Kjör sem jafngilda 50–100% af
þeim launum sem þessir aðilar fá.
Það er ekki hægt að una því að menn
séu með þetta aukreitis og vilji ekki
ræða það,“ sagði Gylfi.
Leiðir til stöðugleika
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins (SA), telur að lög Alþing-
is í gær um afnám úrskurðar
Kjaradóms frá 19. desember sl. leiði
til meiri stöðugleika á vinnumarkaði
en ella hefði orðið. Hannes sagði
samtökin hafa lýst því yfir á sínum
tíma að niðurstaða Kjaradóms um
kjör æðstu embættismanna og kjör-
inna fulltrúa hafi verið óheppileg og
komið á slæmum tíma. Þá var nýbúið
að staðfesta að samningar á almenn-
um markaði héldu gildi sínu og eins
hafði Reykjavíkurborg gert samn-
inga sem SA óttaðist að hefðu keðju-
verkandi áhrif á vinnumarkaði.
„Við töldum að það væri erfitt fyr-
ir stjórnmálamenn að tala fyrir hóf-
stillingu í kjaramálum með úrskurð
um 8% launahækkun fyrir sig í far-
teskinu,“ sagði Hannes.
Hann sagði ljóst að sveitarfélögin
væru í gríðarlegum vanda vegna
samnings Reykjavíkurborgar við
Eflingu. Þar væru nú miklu hærri
launataxtar í gildi en í öðrum sveit-
arfélögum. Sveitarfélögin hefðu
hingað til verið samferða í launamál-
um. Hvort þeim tækist að samræma
samning Reykjavíkurborgar við ein-
hverja lægri launaflokka ætti eftir að
koma í ljós. Samningur borgarinnar
kvæði á um tiltölulega jafna launa-
hækkun upp launaflokkana.
Launamál sveitarfélaga hafa ekki
verið rædd sérstaklega innan ASÍ,
að sögn Gylfa Arnbjörnssonar. Hann
sagðist ekki átta sig á hvernig hækk-
un lægstu launa ætti að fara fram,
enda kjarasamningar bundnir. Ljóst
væri að launabreytingar hjá borginni
hefðu framkallað mikla ólgu og við-
brögð leikskólakennara hefðu valdið
vonbrigðum í röðum ASÍ-félaga.
Fagna ákvörðun
Alþingis um Kjaradóm
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is