Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
Leviatan er stórt farþegaskip sem heldur í
jómfrúrferð sína frá Englandi til Indlands árið
1878. Loft er lævi blandið um borð því meðal
farþega leynist morðingi sem framið hafði
glæp aldarinnar skömmu áður.
BORIS AKÚNIN nýtur mikilla vinsælda fyrir
sakamálasögur sínar. Þetta er fimmta bókin
um Fandorin ríkisráð sem út kemur á íslensku
en þær fyrri eru Ríkisráðið, Krýningarhátíðin,
Vetrardrottningin og Tyrknesk refskák.
Vinsælasti spennusagnaflokkur heims!
Fandorin snýr aftur
Kilja á góðu verði
1.799 kr.
GLATT var á hjalla þegar þeir Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og hinn
þekkti sjónvarpsmaður Magnús Magnússon opnuðu sýninguna „Pure Ice-
land“ í Vísindasafninu í Lundúnum í fyrrakvöld með aðstoð raftækninnar.
Með því að slá saman tveimur vírum kveiktu þeir á glæsilegu myndskeiði
úr eldgosi, en á sýningunni er gestum safnsins kynnt orkuframleiðsla á Ís-
landi og náttúra landsins.
Magnús var sérstakur heiðursgestur sýningarinnar, en hann hefur sem
kunnugt er verið ötull talsmaður íslenskrar menningar, sögu og náttúru.
Fullt var út úr dyrum við opnun sýningarinnar, en ætla má að um þrjú
hundruð boðsgestir hafi verið viðstaddir.
Ljósmynd/Tyson Sadlo
Opnuðu sýninguna
með eldgosi
TÆPLEGA 370 þúsund erlendir
ferðamenn komu til landsins í fyrra
og er það nýtt met. Ferðamönnum
fjölgaði um 9.000 frá árinu 2004, en
þá voru þeir rúmlega 360.000.
Á síðustu þremur árum hefur
fjöldi ferðamanna aukist um 30%. Sé
horft yfir lengra tímabil má meðal
annars sjá að árleg fjölgun síðastlið-
inn áratug er að meðaltali 11%.
Mest er aukningin á fjölda ferða-
manna frá Bandaríkjunum og Asíu.
Ársæll Harðarson, forstöðumaður
markaðssviðs Ferðamálastofu, segir
athyglisvert að nærmarkaðirnir sem
hafi verið í hvað mestum vexti und-
anfarin misseri séu nú að hægja á
vexti en á móti vegi að fjærmarkaðir
eins og Bandaríkin og Asía séu í
meiri vexti en áður. Ferðamönnum
fjölgar einnig yfir veturinn og er
ferðamannatímabilið að lengjast.
Þannig var fjöldi ferðamanna í októ-
ber sem leið hinn sami og í júní fyrir
fjórum árum.
Í talningum Ferðamálastofu í
Leifsstöð er hægt að skoða skiptingu
ferðamanna eftir þjóðernum. Bretar
eru sem fyrr fjölmennastir þeirra
sem hingað koma og voru 57.800 á
árinu 2005. Bandaríkjamenn voru
54.300 og Þjóðverjar 37.000. Sé horft
á skiptingu eftir markaðssvæðum
eru Norðurlandabúar fjölmennastir,
92.600, en frá Mið- og Suður-Evrópu
komu 89.800 manns. Af einstökum
löndum er langmest aukning frá
Bandaríkjunum, 5.800 manns eða
rúm 11%.
Langflestir ferðamenn sem hing-
að koma fara um Keflavíkurflugvöll.
Alls voru þeir 356.152 í fyrra, sam-
anborið við 348.533 árið 2004. Með
Norrænu komu rúmlega 8.000 gestir
á árinu 2005, sem er fjölgun um 2,8%
og með öðrum skipum og á aðra
millilandaflugvelli en Keflavík er
áætlað að 5.200 erlendir ferðamenn
hafi komið. Þá komu um 56.000 gest-
ir með skemmtiferðaskipum til
landsins í fyrra.
370 þúsund erlendir
ferðamenn komu í fyrra
PÉTUR Sigurðsson, vagnstjóri sem
lést í umferðarslysi 13. janúar sl., var
borinn til grafar frá Bústaðakirkju í
gær. Sr. Pálmi Matthíasson sóknar-
prestur jarðsöng og Strætókórinn
söng við athöfnina. Stóðu starfs-
bræður Péturs heiðursvörð og báru
sorgarborða. Þá lögðu vagnstjórar
strætisvögnum beggja vegna
Tunguvegar og ók líkfylgdin á milli
þeirra til heiðurs hinum látna.
Líkmenn Péturs voru Pétur Þor-
steinsson, Halldór Guðbergsson og
Hallgrímur Pétur Gunnlaugsson
varðstjórar hjá Strætó bs., Steindór
Steinþórsson, Einar Kristjánsson,
Úlfur Einarsson, Rafn Sigurðsson
og Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs. Var Pétur greftr-
aður í Gufuneskirkjugarði.
Pétur var fyrsti vagnstjórinn í sjö-
tíu og fimm ára sögu strætisvagn-
areksturs á höfuðborgarsvæðinu
sem lætur lífið við skyldustörf.
Morgunblaðið/Þorkell
Heiðursvörður við
útför vagnstjóra
MUNURINN á umfjöllun fjölmiðla í nokkrum
löndum Evrópu um íþróttir karla og kvenna er
mjög mikill. Einungis 9% íþróttaumfjöllunar eru
um kvennaíþróttir en karlaíþróttir fá um 78%
umfjöllun. Þetta kom fram þegar niðurstöður úr
rannsókn um íþróttir, fjölmiðla og staðalímyndir
kynjanna voru kynntar í gær á ráðstefnu á Hótel
Loftleiðum. Rannsóknin, sem er sameiginlegt
verkefni Austurríkis, Litháens, Noregs, Íslands
og Ítalíu, er víðtækasta könnun á íþróttafjöl-
miðlum sem gerð hefur verið í Evrópu og sá Jafn-
réttisstofa um að leiða verkefnið.
Markmiðið með rannsókninni var að leiða í ljós
þann mun sem er til staðar á umfjöllun um íþrótt-
ir kynjanna og að leita leiða til að breyta því
ástandi. Unnið hefur verið að gerð fræðsluefnis
sem ætlað er íþróttafréttamönnum, íþróttakenn-
urum og þjálfurum. Fræðsluefninu verður dreift
á margmiðlunardiski og er efni þess ætlað til að
hvetja til breytinga á birtingamyndum kynjanna í
íþróttum og íþróttafréttum.
Einsleit umfjöllun um konur
Gerd von der Lippe, fyrrverandi hlaupakona og pró-
fessor við Telemark háskólann í Noregi, sagði að um-
fjöllun fjölmiðla um kvennaíþróttir væri og einsleit og of
oft væri einblínt á kvenlíkamann fremur en hæfni
kvenna í greininni. Hún benti á að á síðustu Ólympíu-
leikum hefði strandblak kvenna verið ein vinsælasta
íþróttagreinin, aðallega útaf klæðnaði þátttakenda, sem
samanstóð af litlum bikini-brókum og toppum.
Einnig hefði umfjöllun um íþróttakonur utan vallar
beinst of mikið að líkama þeirra og benti hún á algengt
myndefni þegar íþróttakonur halda boltum fyrir berum
barmi. Þessi umfjöllun ætti hinsvegar ekki við karla en
þar væru afreksmenn frekar settir í guðatölu fremur en
að hlutgera þá á kynferðislegan máta. Hún taldi mik-
ilvægt að breyta þessu viðhorfi, þannig að athygli fólks
beindist frekar að íþróttunum sjálfum, og stuðla að því
að ungar stúlkur fengju heilbrigðari fyrirmyndir.
Morgunblaðið/ÞÖK
9% íþróttafrétta í Evrópu
eru um kvennaíþróttir