Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 10

Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 10
10 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HEIMDALLUR félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík efnir til opinnar ráðstefnu um nokkur álitamál í íslenskum grunn- og framhaldsskólum. Ráðstefnan sem er öllum opin fer fram í dag, laugardaginn 21. janúar, og hefst kl. 14. og stendur til kl. 16. Eftir það starfa minni umræðuhópar til kl. 17. Á dagskrá fyrirlesaranna verða nokkur álitamál í ís- lensku skólakerfi: Samræmd próf í grunn- og framhaldsskól- um, stytting framhaldsskól- anna, brottfall nemenda o.fl. Markmið ráðstefnunnar er fræðsla og skoðanaskipti, auk þess í framhaldinu að móta stefnu í þessum atriðum menntamála fyrir Heimdall. Erindi halda: Jón Torfi Jón- asson prófessor við HÍ., Mey- vant Þórólfsson lektor í nám- skrárfræðum og námsmati við KHÍ, Steingrímur Sigurgeirs- son aðstoðarmaður mennta- málaráðherra, Guðrún Ebba Ólafsdóttir borgarfulltrúi og Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhalds- skólakennara. Eftir kl. 16 verða umræður í minni umræðuhópum, sem Sig- urður Kári Kristjánsson al- þingismaður stýrir. Fundar- stjóri verður Jóhann Alfreð Kristinsson stjórnarmaður í Heimdalli. Mennta- ráðstefna Heimdallar um grunn- og fram- haldsskóla FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um Kjaradóm og kjaranefnd var sam- þykkt sem lög frá Alþingi síðdegis í gær. Frumvarpið var samþykkt með 26 atkvæðum stjórnarþing- manna en stjórnarandstaðan sat hjá. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að úrskurður Kjaradóms frá 19. desember sl., um hækkun launa æðstu embættismanna og þjóðkjör- inna fulltrúa um u.þ.b. 8% falli úr gildi frá og með 1. febrúar nk. Þess í stað eiga laun þessara aðila að hækka um 2,5% frá sama tíma. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu í umræðunni um frumvarpið í gær að bregðast ætti við úrskurði Kjaradóms. Þeir vildu hins vegar fara aðra leið en ríkisstjórnarflokk- arnir. Þeir lögðu til að framkvæmd úrskurðar Kjaradóms yrði frestað frá 1. febrúar til 1. júní nk. Í milli- tíðinni yrði skipuð nefnd, með fulltrúum allra þingflokka, sem skyldi endurskoða fyrirkomulag launa þeirra sem heyra undir Kjaradóm og kjaranefnd. Nefndin skyldi leggja fram til- lögur í formi frumvarps fyrir 15. mars nk. og eftir samþykkt frum- varpsins skyldi nýr úrskurður um launakjör kveðinn upp. Sá úrskurð- ur skyldi gilda frá og með 1. febr- úar. Þessi tillaga var kynnt í minni- hlutaáliti efnahags- og viðskipta- nefndar þingsins og var felld eftir aðra umræðu um frumvarpið á Al- þingi í gær. Meirihluti nefndarinnar lagði til að frumvarpið yrði sam- þykkt óbreytt, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Önnur umræða um frumvarpið hófst fyrir hádegi í gær. Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu deildu þar m.a. um það hve fast lögfræð- ingar, sem kallaðir hefðu verið til í efnahags- og viðskiptanefnd, hefðu kveðið að orði er fjallað var um hvort frumvarpið stangaðist á við stjórnarskrána. Lúðvík Berg- vinsson, þingmaður Samfylkingar- innar, og talsmaður minnihluta nefndarinnar sagði að lögfræðing- arnir hefðu allir sem einn varað ein- dregið við því að fara þá leið sem ríkisstjórnin hefði valið. „Þeir töldu víst að frumvarpið færi gegn ákvæðum stjórnarskrár um eignar- rétt og jafnræði […],“ segir m.a. í minnihlutaáliti nefndarinnar. Ásta Möller, þingmaður Sjálf- stæðisflokks og Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sem sæti eiga í nefndinni, andmæltu þessu. Ásta sagði m.a. að lagapró- fessorarnir Eiríkur Tómasson og Sigurður Líndal hefðu ekki kveðið eins fast að orði og Lúðvík héldi fram. Þeir hefðu m.ö.o. ekki haft neina vissu fyrir því að frumvarpið færi gegn ákvæðum stjórnarskrár- innar. Þeir hefðu þó sagt að fara ætti varlega. Dagný tók í sama streng og sagði ennfremur að rétt- mæt rök og brýna nauðsyn bæri til þess að fara þá leið sem stjórn- arflokkarnir legðu til. Stjórnarskráin njóti vafans Lúðvík svaraði því hins vegar til að lögfræðingarnir hefðu kveðið misfast að orði eftir því um hvaða stjórnarskrárákvæði væri að ræða. Hann sagði ennfremur að stjórn- arskráin ætti að njóta vafans. Annarri umræðu um frumvarpið lauk á fjórða tímanum og eftir að fyrrgreindar breytingartillögur stjórnarandstæðinga höfðu verið felldar hófst nýr fundur Alþingis og þar með þriðja og síðasta umræða. Enginn tók þátt í þeirri umræðu. Í atkvæðagreiðslum um frum- varpið gagnrýndi Ögmundur Jón- asson, þingflokksformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, stjórnarflokkana m.a. fyrir að sam- þykkja frumvarp sem fæli í sér 2,5% launahækkun til þingmanna og ráð- herra. Hann taldi að þingmenn ættu ekki að ákvarða launakjör sín með þessum hætti. Lúðvík Bergvinsson og Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, tóku í sama streng. Dagný Jónsdóttir sagði hins veg- ar að meirihluti nefndarinnar hefði talið eðlilegt að miða við 2,5% launa- hækkun, þ.e. þá hækkun sem gilti um hinn almenna markað og fella um leið úrskurð Kjaradóms úr gildi. „Með þessu viljum við gera okkar til að skapa jafnvægi á vinnumarkaði,“ sagði hún. Frumvarpið var síðan samþykkt samhljóða með atkvæð- um stjórnarliða, eins og áður sagði. Það verður sent fjármálaráðherra sem mun í framhaldinu leggja það fyrir forseta Íslands til staðfesting- ar. Frumvarpið um Kjara- dóm samþykkt samhljóða Breytingar- tillögur minni- hlutans felldar Morgunblaðið/Ásdís Þingmenn fylgjast með umræðum. Stjórnarliðar samþykktu frumvarpið en stjórnarandstaðan sat hjá. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is TRÚNAÐI var í gær létt af gögnum um samskipti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og fjármálaráðuneyt- isins og menntamálaráðuneytisins varðandi frumvarp menntamálaráð- herra um Ríkisútvarpið sf. sem lagt var fram á Alþingi sl. vor. Áður höfðu þingmenn stjórnarandstöð- unnar í menntamálanefnd Alþingis krafist þess að fá þessi gögn vegna umræðu um nýtt frumvarp ráðherra um Ríkisútvarpið sem lagt var fram á Alþingi fyrir jól. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar sem sæti á í menntamálanefnd, vakti máls á því í umræðum á Alþingi í vikunni að stjórnarandstæðingar vildu sjá þessi gögn svo þeir gætu metið athuga- semdir ESA við frumvarpið um Rík- isútvarpið sf. Sigurður Kári Krist- jánsson, formaður nefndarinnar, upplýsti að til stæði að leggja þessi gögn fram í nefndinni. Þegar það var síðan gert fylgdu gögnunum þau skilaboð að þau væru bundin trún- aði, vegna þess að málið væri enn til formlegrar meðferðar hjá ESA. Þingmenn mættu m.ö.o. lesa gögnin en ekki vitna í þau opinberlega. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í menntamálanefnd mótmæltu þessu í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í gær. Síðdegis var trúnaðinum hins vegar létt af gögnunum, eins og áður sagði. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráð- herra, sagði í samtali við mbl.is í gær að leita hefði þurft heimilda frá bæði ESA og forsvarsmönnum 365 miðla, til að aflétta trúnaði, þar sem for- svarsmenn Norðurljósa sendu erindi til ESA á sínum tíma um uppruna- lega frumvarpið. Töluverð vinna eftir við skilgreiningu á hlutverki RÚV „Ég tel afar mikilvægt að fá loks- ins þessar upplýsingar og bréfasam- skipti, enda hefði verið erfitt að ræða opinskátt um málið á Alþingi verandi bundinn trúnaði,“ segir Mörður í samtali við Morgunblaðið og tók fram að framundan væri að fara vandlega yfir gögnin til að sann- reyna endursögn greinargerðarinn- ar og meta yfirlýsingar ráð- herranna. Aðspurður sagðist Mörður í fljótu bragði t.a.m. ekki sjá beinar fyrir- skipanir frá ESA um það að gera yrði RÚV að hlutafélagi eins og látið hefði verið í veðri vaka. „Heldur er þess krafist, sem vitað var, að ef að ríkið væri með svona fyrirtæki í samkeppnisrekstri þá mætti ekki vera með ótakmarkaða ríkisábyrgð auk fastra tekjuliða á borð við af- notagjöld. Úr því má leysa með ýms- um hætti,“ segir Mörður og bendir á að ESA gefi engar lausnir í þeim efnum. „Ein lausnin er hlutafélag, sem er með takmarkaðri ábyrgð, önnur er sjálfseignarstofnun og sú þriðja er að vera ekki með fyrirtæk- ið í eiginlegum samkeppnisrekstri.“ Eitt af því sem bent er á í umfjöll- un Skrifstofu samkeppnismála og ríkisaðstoðar hjá ESA um RÚV er að skilgreining í fyrra frumvarpi menntamálaráðherra, á hlutverki RÚV sem útvarpsþjónusta í al- mannaþágu, virðist vera of víðtæk og óljós, en það bjóði m.a. þeirri hættu heim að einkareknir sam- keppnisaðilar geti ekki vitað ná- kvæmlega hvaða þjónustu RÚV veiti og eigi sökum þessa erfitt með að skipuleggja sína starfsemi. Aðspurður hvernig þetta atriði horfi við sér segir Mörður eina leið að skilja þann rekstur sem ekki lúti útvarpsþjónustu í almannaþágu frá öðrum rekstri RÚV, sem sé sú leið sem farin sé í fyrirliggjandi frum- varpi um RÚV. „Ég held hins vegar að það sé töluverð vinna eftir við að skilgreina hlutverk RÚV. Ég hef borið hlutverkaskilgreiningu frum- varpsins saman við leiðbeiningar Evrópuráðsins og mér sýnist að menn hafi ekki miðað við skilgrein- ingu þeirra á almannaútvarpi,“ segir Mörður. Brugðist við athugasemdum um ótakmarkaða ríkisábyrgð Aðspurður segir Sigurður Kári það sitt mat að með nýju frumvarpi menntamálaráðherra um Ríkisút- varpið sé komið til móts við kröfur og aðalathugasemdir ESA, sem snúa annars vegar að skilgreiningunni á hugtakinu útvarpi í almannaþágu og hins vegar að ótakmarkaðri ríkis- ábyrgð, sem raski samkeppni. Bend- ir hann á að nýja frumvarpið þrengi skilgreininguna auk þess sem heim- ildir RÚV til þess að taka þátt í ann- arri starfsemi hafi að mestu eða öllu leyti verið felldar út. „Einnig sýnist mér að í bráða- birgðaúrskurði sínum sé ESA að gera athugasemd við það að með Ríkisútvarpinu sf. hafi ríkið lagt til reglu sem brýtur í bága við ákvæði EES-samningsins sem fjallar um ríkisstyrki. Sú athugasemd sé rök- studd með vísan til þeirrar reglu sem felst í sameignarfélagsforminu um það að eigandinn beri ótakmark- aða ábyrgð á öllum skuldbindingum félagsins og af því leiði að það geti ekki einu sinni orðið gjaldþrota. En með því að breyta RÚV í hlutafélag þá snarbreytist þetta því kjarninn í hlutafélagaréttinum er sá að eigand- inn beri takmarkaða ábyrgð í sam- ræmi við eignarhluta sinn.“ Aðspurður hvort hægt sé að tala um takmarkaða ábyrgð þegar félag- ið sé í 100% eigu ríkisins svarar Sig- urður Kári því játandi og bendir á að samkvæmt hlutafélagalögum geti eignaraðili aldrei borið ábyrgð á hærri fjárhæð en eigin eign, þ.e. því hlutafé sem hann leggi til. Í tilfelli RÚV sé í frumvarpinu lagt til að einn helsti tekjustofn RÚV hf. verði 13.500 kr. gjald á hvern einstakling og sé miðað við 300 þúsund Íslend- inga þá nemi það rúmum fjórum milljörðum sem sé þá hlutur ríkisins. Spurður hvort ekki hefði komið til greina að gera RÚV að sjálfseign- arfélagi svarar Sigurður Kári því til að það hefði verið hugsanlegt, en af- ar óskynsamlegt þar sem löggjöfin um sjálfseignarstofnanir sé bæði ófullkomin og óljós. Trúnaði létt af gögnum ESA Eftir Örnu Schram og Silju Björk Huldudóttur INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um að sett verði ákvæði um opinber hluta- félag í lög um hlutafélög. Meðflutn- ingsmenn eru sjö aðrir þingmenn Samfylkingarinnar. Opinbert hlutafélag er í frum- varpinu skilgreint sem félag sem ís- lenska ríkið eða sveitarfélag hefur sömu tengsl við og móðurfélag hef- ur við dótturfélag. „Þegar um op- inbert hlutafélag er að ræða er þó nægjanlegt að hluthafi sé einn,“ segir í frumvarpinu. Meðal annars er lagt til að í hlutafélagalögin verði bætt við greinum sem kveða á um að hlutur íslenska ríkisins í op- inberu hlutafélagi verði ekki seldur nema fyrir liggi samþykki Alþingis. Sömuleiðis verði hlutur sveitarfé- lags í opinberu hlutafélagi ekki seldur nema fyrir liggi samþykki sveitarstjórnar. Auk þess er mælt fyrir um hlutfall kynja í stjórn op- inbers hlutafélags. Í greinargerð segir m.a. að það hafi færst mjög í aukana, á und- anförnum árum, að stofnuð séu hlutafélög um rekstur á vegum hins opinbera. „Oft hefur það verið und- anfari einkavæðingar, þ.e. fyrirtæki er breytt í hlutafélag til að koma því í söluhæft form,“ segir í grein- argerðinni. Þar segir ennfremur að því sé ekki að neita að talsverðrar tor- tryggni gæti í garð stjórnvalda um hugmyndir þeirra um að breyta op- inberum fyrirtækjum í hlutafélög. Margir telji einsýnt að það sé gert til að auðvelda sölu þeirra á síðari stigum. Í frumvarpinu er því m.a. lagt til að samþykki alþingismanna og/eða sveitarstjórnarmanna þurfi til ef selja eigi hlut ríkis eða sveit- arfélags í hlutafélagi. Vilja ákvæði um opinber hlutafélög

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.