Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 31 00 5 0 1/ 20 06 Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn á Nordica hótel laugardaginn 4. febrúar kl. 14. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en átta dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal um framboð til bankaráðs eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu liggja frammi í Aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund. Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar. Dagskrá: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári. 4. Tillögur til breytinga á samþykktum. 5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum. 6. Kosning bankaráðs. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil. 9. Önnur mál. Bankaráð Landsbanka Íslands hf. Aðalfundur 410 4000 | www.landsbanki.is                  ! "#  #                ! !  "#  $% %   7 ) 8 !/ .3  8 !/ .3 $ )4 8 !/ .3 < -  .3   8 !/ .3 * 8 !/ .3 + -   .3 = !/ $  .3 =4! .3 * -   +  .3 >  .3 > 7 . .3 + .3  !"! #$! % & 2& 3 -   .3 ?! .3 & '#  (   ) 8 !/ .3  " %! +  .3 8  .3  "/%2  .3  (7 7 8 !/ .3 : %-  .3   @A. 2 .3 'B  7 ' !" C 1 "%4% .3 D!4% .3 ) '   !*!   E12 32 % .3 &! 3F  !%!   )3 +  ,  (5EG 9%  )% ) %            # # #  # #   # # #  $ 1 3 & 31 )% ) % # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # # H # I H # I H # I H  I # H # I H # I H # I H # I # H  I # H # I H  I H  I # # # # # # # H  I # H #  I # # H # I  )% /   C-% 9   J = !/                           # # #  # #   #  # #                                     D% / 9  C K .!!  24 )% /      # # #  # # #  # #  HAGNAÐUR Baugs Group á árinu 2005 nam 28 milljörðum króna eftir skatta. Þar af eru 15 milljarðar inn- leystur hagnaður. Heildareignir í lok ársins voru bókfærðar á 145 millj- arða króna. Eigið fé var 62,9 millj- arðar og eiginfjárhlutfall félagsins 43%. Arðsemi eigin fjár nam 78,7% á árinu 2005. Í tilkynningu frá Baugi segir að góð afkoma félagsins stafi af innleystum og óinnleystum hagnaði af fjárfestingum í Bretlandi, Dan- mörku og á Íslandi. Baugur er kjöl- festufjárfestir í hátt í 30 fyrirtækjum í löndunum þremur. Velta þeirra nam um 950 milljörðum króna á síð- asta ári og hagnaður þeirra fyrir af- skriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA-hagnaður, var um 40 millj- arðar króna. Í eigu þessara fyrir- tækja eru 3.500 verslanir og hjá þeim starfa um 62 þúsund manns. Mikill árangur „Það er sérstaklega ánægjulegt að hagnaður félagsins byggist ekki á einni eða tveimur fjárfestingum, heldur á þeim hátt í 30 fyrirtækjum sem Baugur Group er kjölfestufjár- festi í,“ segir Jón Ásgeir Jóhanns- son, forstjóri Baugs Group, í tilkynn- ingu félagsins. „Þetta sýnir betur en margt annað hversu miklum árangri við höfum náð á undanförnum árum. Nú er dreifingin mun meiri, bæði á milli landa sem og á milli fjölda sterkra félaga sem starfa á mismun- andi sviðum smásölu, fasteigna og fjárfestingarstarfsemi, auk fjar- skipta og fjölmiðlastarfsemi.“ Forskot í samkeppni Baugur Group hefur aukið fjár- festingar í skráðum félögum. Í til- kynningunni segir að félagið sé í dag á meðal helstu fjárfesta í FL Group, Dagsbrún, Mosaic Fashions og í þró- unar- og fasteignafélaginu Keops í Danmörku. Þá segir í tilkynningunni að staða Baugs Group sé sterkari en nokkru sinni fyrr. Félagið hafi byggt upp eignasafn sem samanstandi af félögum með þekkt vörumerki, sem öll eigi það sammerkt að bjóða neyt- endum betri vöru og þjónustu en þekkist annars staðar. Þekking og reynsla starfsmanna Baugs Group á smásölu og fjárfestingarstarfsemi hafi nýst þessum félögum í uppbygg- ingarstarfsemi þeirra og gefið þeim forskot í samkeppni. „Eins og ég hef margoft sagt er eina leiðin til að hafa betur í sam- keppni að leitast stöðugt við að þjóna viðskiptavinum betur en aðrir, þetta er það sem við höfum að leiðarljósi í allri okkar starfsemi,“ segir Jón Ás- geir í tilkynningunni. Tólf stærstu fjárfestingar Baugs Group eru eftir vægi: FL Group, Mosaic Fashions, Keops, Dagsbrún, Stoðir, Iceland, Hagar, French Connection, Julian Graves, Booker, LXB II og Magasin du Nord. Baugur hagnast um 28 milljarða PROPERTY GROUP A/S heitir nýtt fjárfestingafyrirtæki fasteigna fyrir danska einkafjárfesta og stofn- anafjárfesta. Það er í eigu Straums- Burðaráss sem á 50,1% hlut, B2B Holding ehf., eignarhaldsfélags í eigu Birgis Þórs Bieltvedt, sem á 12,4% og hóps danskra stjórnenda félagsins sem eiga 37,5%. Eigið fé Property Group er í upp- hafi 100 milljónir danskra króna eða um einn milljarður íslenskra króna en í tilkynningu kemur fram að fé- lagið hafi fjárhagslegt bolmagn til fjárfestinga fyrir a.m.k. 50 milljarða íslenskra króna á ári. Jesper Damborg, framkvæmda- stjóri Property Group, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að félagið muni skoða eignir í Skandinavíu og Finnlandi, Þýskalandi og eins í Eystrasaltsríkjunum og Austur- Evrópu. „Við erum núna að skoða eignir í Svíþjóð að verðmæti um þrjá millj- arða [danskra] króna og eignasafn í Þýskalandi að verðmæti 1,5–2 millj- arða en ég tek fram að það liggur ekkert fyrir um það hvort af þess- um kaupum verður.“ Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums- Burðaráss, segir bankann hafa ver- ið að skoða ýmis fjárfestingatæki- færi. Stofnun Property Group sé rökrétt framhald á því sem félagið hafi verið að gera í Danmörku. Straumur-Burðarás muni einmitt opna skrifstofu þar á næstu vikum. „Við höfum verið að efla starfsemi okkar í Danmörku og Straumur- Burðarás hefur verið virkur í fjár- festingum og uppbyggingu á fjár- festingum erlendis síðastliðið eitt og hálft ár.“ Þórður segir menn vissulega sjá tækifæri og samlegðaráhrif milli fjárfestingabanka og félags eins og Property Group. „Við sjáum tæki- færi í Norður-Evrópu mörkuðum og þá ekki bara Danmörku sérstak- lega.“ Property Group mun einkum fjárfesta í fasteignum í íbúðarhús- næði, skrifstofum, verslunum og hótelum og í svipuðum fasteigna- verkefnum í stórborgum. Fyrirtæk- ið hefur einnig fjármuni til kaupa á eignasöfnum fyrir einn milljarð evra (74,6 milljarðar króna) eða meira eða til kaupa á öðrum fyr- irtækjum á sviði fasteignafjárfest- inga. Búist er við að fyrstu skulda- bréfin verði gefin út í Kauphöllinni í Danmörku jafnvel þegar á þessu ári. Fjárfestingargeta allt að 50 milljarðar króna á ári Jesper Damborg Þórður Már Jóhannesson Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kaup- hallar Íslands lækkaði í gær um 0,49% og var hún í lok dags 6.086 stig. Heildarviðskipti í Kauphöllinni námu 8.967 milljónum króna og voru mest viðskipti með hlutabréf fyrir um 6.296 milljónir króna. Mest voru viðskipti með bréf Avion Group sem skráð voru á markað í gær og námu viðskipti með bréf í fé- laginu um 3.293 milljónum króna. Mest hækkun varð á bréfum fær- eyska félagsins Atlantic Petroleum og hækkuðu bréfin um 18,8%. Þá lækkuðu bréf Atorku um 5,3% og var það mesta lækkun á markaði í gær. Úrvalsvísitalan lækkaði á ný @  6 L'    $ $ CE <M #  # $ $ 55 N>M   $ $ N>M =.43 @   #  $  (5EM <O :    $ $

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.