Morgunblaðið - 21.01.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi
Hlíðasmára 19 - sími 564 6410
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi
Þátttaka í prófkjörinu
er heimil öllum fullgildum
félögum í sjálfstæðisfélögunum
í Kópavogi. Þá er heimil þátttaka
öllum stuðningsmönnum
flokksins sem verða orðnir 18 ára
27. maí næstkomandi og hafa
undirritað inntökubeiðni í
sjálfstæðisfélögin í Kópavogi
fyrir lok kjörfundar.
verður haldið í dag, laugardaginn 21. janúar 2006,
í félagsheimili Sjálfstæðismanna
að Hlíðasmára 19 (sama húsi og SPK).
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 18:00.
Mætum snemma á kjörstað og tökum virkan þátt!
Margt þykir benda til þess aðHillary Clinton, öld-ungadeildarþingmaður frá
New York og fyrrverandi forsetafrú
Bandaríkjanna, hyggist sækjast eftir
útnefningu Demókrataflokksins
vegna forsetakosninganna 2008.
Næði Clinton settu marki yrði hún
fyrsta konan til að vera frambjóðandi
stóru flokkanna tveggja í forseta-
kosningum.
Nokkur umræða hefur verið um
það vestra síðustu daga hvort kona
muni hugsanlega setjast í stól forseta
á allra næstu árum. Kemur það m.a.
til af ummælum sem Laura Bush,
forsetafrú Bandaríkjanna, lét falla í
þann mund sem hún hélt af stað í
ferðalag til Afríku til að vera við-
stödd embættistöku Ellen Sirleaf-
Johnson, nýs forseta Líberíu, en hún
er fyrsta konan til að gegna embætti
lýðræðislega kjörins þjóðhöfðingja í
Afríku.
En það bar til tíðinda í vikunni
einnig að kona, Michelle Bachelet,
var kjörin forseti Chile í fyrsta skipti.
Nokkrum dögum fyrr hafði Bush
raunar lýst því yfir að hún óskaði
þess heitt að
Condoleezza
Rice, utanrík-
isráðherra
Bandaríkjanna,
færi í framboð
fyrir Repúblik-
anaflokkinn
vegna kosning-
anna 2008.
Eftir sem áður
þykir heldur líklegra að það verði
demókratar sem bjóði upp á konu
sem forsetaefni í kosningunum 2008;
Hillary Clinton hefur ekki gefið yf-
irlýsingu um að hún hyggist sækjast
eftir útnefningunni en flestir virðast
telja að hún stefni leynt og ljóst að
því.
Þykir Clinton hafa það framyfir
Rice að hún hefur á sínum ferli háð
og unnið sigur í kosningum. Rice hef-
ur á hinn bóginn aldrei farið í fram-
boð eða verið kjörin til ábyrgð-
arstarfa.
Á digran kosningasjóð
Menn eru ekki á einu máli um
möguleika Clinton á því að tryggja
sér útnefningu Demókrataflokksins
vegna forsetakosninganna 2008. Ein
stór hindrun virðist þó úr veginum;
því var lengi haldið fram að repúblik-
anar myndu leggja sig svo fram um
að koma í veg fyrir endurkjör Hillary
Clinton í þingkosningunum í haust
að hún myndi með engu móti geta
farið að leggja drög að forseta-
framboði fyrr en þá eftir kosningar.
Það hefði þrengt mjög stöðu Clint-
on því að fyrstu forkosningar demó-
krata, í Iowa-ríki, fara fram aðeins
rúmu ári eftir þingkosningarnar, en
það telst stuttur undirbúningstími
fyrir forsetaframbjóðanda.
Ekki þarf að taka fram að það
myndi skaða Clinton verulega ef
henni tækist ekki að verja þingsætið.
En repúblikönum hefur gengið illa
að finna vænlegan frambjóðanda til
að fara gegn Clinton, sem hefur þýtt
að hún hefur getað haft sig mjög í
frammi á landsvísu og þannig lagt
grunn að forsetaframboði. Banda-
rískir fjölmiðlar fjölluðu t.a.m. ítar-
lega um heimsókn hennar á hamfara-
svæðin í New Orleans og Clinton
hefur raunar verið á ferðalagi um
Bandaríkin þver og endilöng til að
safna í kosningasjóði sína, í úttekt
The New York Times í vikunni kom
fram að hún hefði nú þegar yfir að
ráða 13,8 milljónum Bandaríkjadala.
Jafnframt hefur hún komið fram á
styrktarsamkomum fyrir aðra demó-
krata, en Clinton þykir alltaf líkleg til
að draga marga að; þannig hefur hún
verið að vinna sér inn góðvild ann-
arra demókrata, sem sjálfsagt mun
nýtast henni þegar fram í sækir.
Clinton þarf hins vegar að vara sig
á því að áður en hún getur farið í for-
setaframboð þarf hún að verja þing-
sæti sitt í kosningum í haust.
En það er gömul saga og ný að
kjósendur kunna lítt að meta það ef
hugur frambjóðanda stefnir í raun
allt annað; þ.e. ef augljóst er að til-
tekinn frambjóðandi hyggist ekki
staldra lengi við heldur nota sigurinn
til að klífa hærra.
Clinton hefur því þurft að feta sig
varlega í undirbúningi vegna forseta-
framboðs 2008 og hún segist sjálf
eingöngu vera að hugsa um þing-
kosningarnar í haust.
Viðmælendur The New York Tim-
es segja hins vegar að Clinton hafi
fram til þessa tekist að feta þetta ein-
stigi slysalaust. Staða hennar í New
York þykir sterk, á sama tíma og
henni hefur tekist að undirbúa jarð-
veginn fyrir forsetaframboð.
Annað sem þykir benda til að
Clinton hyggist reyna að feta í fót-
spor bónda síns, Bills Clinton, er sú
staðreynd að hún hefur markvisst
unnið að því að breyta ímynd sinni,
endurskapa sig sem miðjukonu, sem
frambjóðanda sem geti höfðað til
meginþorra almennings í forseta-
kosningum en ekki bara mennta-
elítunnar á austurströndinni.
Til marks um þetta er nefnt að
Clinton hefur verið einn af fáum
þingmönnum demókrata sem stutt
hafa framgöngu Bandaríkjahers í
Írak. Hún hefur líka gerst íhaldssöm
í samfélagsmálum; hefur m.a. gerst
talsmaður þess að stemma þurfi
stigu við útbreiðslu ofbeldisfullra
tölvuleikja og hún hefur einnig held-
ur tekið sveig til hægri í afstöðu sinni
til fóstureyðinga.
Og fyrir um ári var mjög í fréttum
að Clinton hefði fundið Guð; en Clint-
on hélt þá nokkrar ræður þar sem
hún úttalaði sig um mikilvægi trú-
arinnar, sem túlkað var þannig að
hún vildi nálgast Bandaríkjamenn
sem hún ella gæti aldrei gert ráð fyr-
ir að myndu kjósa hana í forseta-
kosningum.
Má rifja upp í þessu samhengi að
Bill Clinton sagði í ræðu eftir að
George W. Bush var endurkjörinn
forseti í hittiðfyrra að demókratar
yrðu að hætta að „væla“ yfir sigri
hans og einhenda sér þess í stað í að
bæta ímyndina. Sagði Clinton að re-
públikönum hefði tekist að fá kjós-
endur í strjálbýli og litlum borgum til
að halda að Demókrataflokkurinn
tryði ekki á Guð og fjölskylduna,
legði ekki áherslu á vinnusemi og
frelsi. Má leiða að því líkum að
Hillary Clinton sé sammála þessu
mati bóndans og að hún hafi þessar
staðreyndir að leiðarljósi á vegferð
sinni til þess að verða vænlegur for-
setaframbjóðandi.
Allt galopið á
vinstri vængnum?
Eftir sem áður er Hillary Clinton
umdeild manneskja og í nýlegri
grein í The Economist er því velt upp
hvort það hafi e.t.v. verið mistök hjá
Clinton að gefa sér að vinstrimenn í
Bandaríkjunum myndu fylkja sér um
hana, að fylgi hennar þar væri tryggt
og að því gæti hún notað tækifærið
og reynt að milda ímynd sína í hug-
um kjósenda á miðjunni eða þeirra
sem sveigjast til hægri.
Er þeim möguleika velt upp að
hún hafi e.t.v. með hamskiptum sín-
um skilið eftir sóknarfæri fyrir aðra
hugsanlega frambjóðendur í röðum
demókrata, sem kynnu að keyra til
vinstri. Bendir greinarhöfundur á að
reiðin meðal margra demókrata
vegna Íraksstríðsins sé slík að þeir
geti einfaldlega aldrei lagt lag sitt við
nokkurn, sem styður aðgerðirnar
þar eða er hálfvolgur í afstöðu sinni.
Eru þeir Russ Feingold og John
Edwards nefndir til sögunnar í þessu
sambandi, en báðir hafa þeir talað
mjög gegn Íraksstríðinu.
Og svo eru þeir demókratar til
sem segja að það sé sama hversu
mikið Clinton reynir að breyta ímynd
sinni; að hún verði alltaf holdgerv-
ingur villta vinstrisins í huga margra
kjósenda, sem þar af leiðandi muni
aldrei kjósa hana í nægilega ríkum
mæli til að hún geti náð kjöri sem
forseti.
Benda menn á að þegar sé til stað-
ar ákjósanlegur valkostur Demó-
krataflokksins, sem eigi mun auð-
veldar með að fara fram sem
miðjumaður í forsetakosningum.
Ræðir hér um Mark Warner, fyrr-
verandi ríkisstjóra í Virginíu, sem
gat sér gott orð fyrir störf sín – og
það í ríki sem jafnan hefur hallað sér
að repúblikönum í landsmálum, rétt
eins og flest önnur ríki í suðurhluta
Bandaríkjanna. Er bent á í því sam-
hengi að ríkisstjórum gengur jafnan
betur en þingmönnum í forsetakosn-
ingum; raunar hefur það aðeins einu
sinni gerst á síðustu 100 árum, að
demókrati úr öldungadeildinni hefur
verið kosinn forseti.
Reuters
Hillary Clinton hefur verið þingmaður fyrir New York-ríki síðan árið 2001.
Farin að leggja drög
að forsetaframboði
Fréttaskýring | Það er ekkert sem bendir til
að Hillary Clinton muni lenda í erfiðleikum
með að verja þingsæti sitt í haust. Davíð
Logi Sigurðsson segir spurninguna þá
hvort Clinton eigi útnefningu demókrata
vegna forsetakosninga 2008 vísa.
david@mbl.is
Condoleezza Rice
’[…] Clinton […] hefurmarkvisst unnið að því
að breyta ímynd sinni,
endurskapa sig sem
miðjukonu […]‘
Ankara. AFP. | Áfrýjunardómstóll í
Tyrklandi hefur úrskurðað að Mehm-
et Ali Agca, manninum sem reyndi að
ráða Jóhannes Pál II. páfa af dögum
árið 1981, beri að fara aftur í fangelsi.
Snýr dómstóllinn með ákvörðun sinni
við úrskurði dómstóls í Ankara 12.
janúar sl. sem veitti Agca frelsi.
Fregnir hermdu að Agca hefði verið
handtekinn.
Agca hafði setið næstum 25 ár í
fangelsi, fyrst á Ítalíu og svo í Tyrk-
landi, þegar honum var sleppt úr
haldi 12. janúar sl. Tyrknesk stjórn-
völd áfrýjuðu úrskurði dómstólsins í
Ankara og í gær komst áfrýjunar-
dómstóll að þeirri niðurstöðu að aldr-
ei hefði átt að
sleppa Agca úr
haldi.
Er það niður-
staða dómsins að
Agca eigi að sitja
lengur í fangelsi
vegna brota sem
hann framdi í
Tyrklandi áður en
hann reyndi að
myrða páfa, þ.e. bankaráns og morðs.
Áður hafði dómstóll á lægra dómstigi
komist að þeirri niðurstöðu að rétt
væri að draga frá fangelsisdómi Agc-
as í Tyrklandi þann tíma sem hann
hafði þegar afplánað á Ítalíu.
Mehmet Ali Agca
Agca aftur í fangelsi