Morgunblaðið - 21.01.2006, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Þrír framtakssamir karlarréðust í það stórvirki aðfara á ellefu vikna nám-skeið hjá Heimilisiðn-
aðarfélagi Íslands í haust, þar sem
þeir þiggja leiðsögn hjá kenn-
urunum Guðrúnu Hildi Rosenkjær
og Oddnýju Kristjánsdóttur í því að
sauma á sig íslenska herrabúning-
inn. Þær Guðrún og Oddný segja
mjög mikla vinnu felast í því að
sauma slíkan búning, því það sé að
langmestum parti handavinna. Öll
hnappagöt eru til dæmis handgerð
en þau eru hvorki meira né minna en
um fimmtíu talsins á einum slíkum
búningi. Félagarnir þrír voru mjög
áhugasamir og stóðu sig vel, þó svo
að þeir hafi ekki þá reynslu sem þær
konur sem sátu með þeim á nám-
skeiðinu hafa í saumaskap. Þær létu
sig ekki muna un að sauma herra-
búning ýmist á eiginmenn eða syni
og tvær þeirra ætluðu að gera tvo
búninga, enda áttu þær tvo syni
heima sem biðu spenntir eftir af-
rakstrinum og ætluðu að skarta bún-
ingunum á þjóðhátíðardaginn í sum-
ar. Og ein kvennanna í hópnum
vílaði ekki fyrir sér að sauma herra-
búning í sjálfboðavinnu fyrir Heim-
ilisiðnaðarfélagið.
Opið hús í dag
Á síðustu árum hefur verið mikil
vakning á eldri gerðum íslensku
þjóðbúninganna, hvort sem það er
faldbúningur, skautbún-
ingur, kyrtill, 19. aldar
upphlutur eða íslenski
herrabúningurinn. Í nokk-
ur ár hefur verið boðið upp
á námskeiðaröð í því að
sauma þessa eldri gerð
búninganna og er Heimilis-
iðnaðarfélag Íslands eini
aðilinn sem veitir þessa
þjónustu.
Í dag klukkan 11–13
verður opið hús hjá Heim-
ilisiðnaðarfélaginu Lauf-
ásvegi 2, þar sem kynntir
verða íslenskir herrabún-
ingar og faldbúningar, sýn-
ing á vinnubrögðum þeim
tengdum, veittar upplýs-
ingar um hvernig skal
klæðast búningunum sem
og upplýsingar um nám-
skeiðin sem kennd eru við
Heimilisiðnaðarskólann.
Aðgangur er ókeypis.
HANDVERK | Jafnræði með kynjunum á skemmtilegu saumanámskeiði
Sauma sjálfir sinn
íslenska herrabúning
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
KRYDDTEGUNDIR Rajah
Mild Madras Curry Powder og
Rajah Hot Madras Curry
Powder í 100 g dósum hafa
verið innkallaðar úr öllum
verslunum samkvæmt ábend-
ingu matvælaeftirlits Umhverf-
issviðs Reykjavíkurborgar.
Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá heildversl-
uninni Karli K. Karlssyni.
„ Í ljós hefur komið að snefill
(0,99-1,5 mg/kg) af litarefninu
Súdan er í dósum úr þremur
framleiðslulotum, sem merktar
eru með síðasta söludegi
30.06.2007, 30.07.2007 og
31.07.2007. Strangar reglur
gilda um viðmiðunarmörk á
þessu efni í matvöru hérlendis.
Frekari dreifing vörunnar
hefur þegar verið stöðvuð. Um-
rædd kryddtegund á nú hvergi
að vera lengur til sölu. Inn-
flutningur vörunnar hefur
sömuleiðis verið stöðvaður á
meðan skýringa er beðið frá
framleiðanda. Innflutningur
verður ekki hafinn að nýju fyrr
en tryggt er að umrætt lit-
arefni sé undir leyfilegum við-
miðunarmörkum. Heildversl-
unin biður kaupendur
vörunnar velvirðingar á þeim
óþægindum sem þeir kunna
hugsanlega að hafa orðið fyrir
vegna þessa.“
Neytendur eru jafnframt
hvattir til þess að skila sem
allra fyrst Rajah Mild Madras
Curry Powder og Rajah Hot
Madras Curry Powder í 100 g
dósum með fyrrgreindum
dagstimplum. Tekið er við dós-
unum hjá heildversluninni Karl
K. Karlsson ehf., Skútuvogi 5,
104 Reykjavík. Frekari upplýs-
ingar um litarefnið Súdan er
hægt að nálgast á vefsíðu Um-
hverfisstofnunar, www.ust.is.
NEYTENDUR
Krydd inn-
kallað vegna
ólöglegs
litarefnis
„ÉG ER búinn að ganga með þetta í
maganum í tvö ár, að sauma mér
svona föt, og var því heldur betur
glaður þegar þetta námskeið fór af
stað,“ sagði Ebeneser Bárðarson
sem var mjög einbeittur við sauma-
skapinn. „En ég er ekki algjör byrj-
andi með saumnálina, ég hef stytt
buxur af mér og gert annað smá-
legt. Konan mín er í Heimilisiðn-
aðarfélaginu og mikil áhugamann-
eskja um þjóðbúninga, þannig að ég
er kannski svolítið litaður af því.“
Hann sagði sér ganga vel að sigrast
á erfiðustu málunum í gerð bún-
ingsins. „Sumt af því sem við þurf-
um að gera virðist óyfirstíganlegt í
byrjun en svo kemur þetta allt sam-
an.“ Ebeneser ætlar sjálfur að búa
til hnappana á fötin og gera þá úr
íslenskum reynivið. En eiginkon-
una ætlar hann að fá til að prjóna á
sig húfu og sokka til að bera við
klæðin fín.
Mæli með þessu fyrir aðra karla
„Þetta eru svo skemmtileg föt að
ég ætla vera í þeim eins oft og ég
get og auðvitað er frábær tilfinning
að ganga í einhverju sem maður
hefur gert sjálfur og lagt svona
mikið í eins og þessi klæði.“ Eben-
eser segir ekki ólíklegt að fötin
gætu orðið ættargripur, rétt eins
og tíðkast með kvenbúningana. „Ég
verð allavega að hækka heim-
ilistrygginguna eftir að þetta dýr-
mæti bætist inn á heimilið,“ segir
Ebeneser í hálfkæringi.
Aðspurður segist hann ekki hafa
legið á þessu framtaki sínu við
vinnufélagana. „Þeir grípa sumir
andann á lofti og einn sagði að hann
hefði komið með mér á námskeiðið
ef hann hefði vitað af því.
Ég mæli hiklaust með þessu fyrir
aðra karla, því þetta er alveg frá-
bært.“
EBENESER BÁRÐARSON
Sumir grípa
andann á lofti
Morgunblaðið/Kristinn
Ebeneser tók glaður við leiðsögn og hjálp frá Oddnýju.
EINKENNI hans eru: Treyja tví-
hneppt og innanundir einnig tví-
hneppt vesti.
Buxur eru svokallaðar lokubux-
ur hnésíðar eða síðar. Efnin í bún-
ingnum eru ullarefni; svört,
dökkblá, dökkgræn eða brún, svo-
nefnt klæði. Skyrtan er ljós úr lér-
efti eða hör. Skotthúfan er gjarn-
an röndótt en hálsklúturinn
einlitur. Sokkabönd og axlabönd
voru oft spjaldofin en gátu einnig
verið útsaumuð. Þá klæðast menn
ullarleistum og sauðskinnsskóm.
Tölur á búningnum eru ýmist úr
silfri, látúni, tini eða beini.
Íslenskur
herrabún-
ingur frá
um 1800
Kossaglaði maðurinn á
þessari mynd klæðist
herrabúningi frá 1800,
eins og þeim sem Bjarni,
Valur og Ebeneser eru
að sauma sér.