Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 48
48 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Samkirkjuleg
bænavika 2006
ALÞJÓÐLEG, samkirkjuleg
bænavika verður haldin dagana
22.–29. janúar. Bænavikan hefst
með guðsþjónustu í Árbæj-
arkirkju 22. janúar. Þá viku
verða haldnar bænastundir og
samkomur bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og á Akureyri þar sem
trúfélög sameinast um helgihald.
Finna má dagskrá vikunnar á
heimasíðum aðildarfélaganna.
Bænavikan er haldin árlega um
þetta leyti og er þá beðið fyrir
einingu kristinna manna um heim
allan. Það er Alkirkjuráðið
(World Council of Churches) sem
stendur að baki vikunnar ásamt
kaþólsku kirkjunni og er bæn-
arefni vikunnar frá Írlandi og
var samið af fulltrúum frá rétt-
trúnaðarkirkju, lútherskri kirkju,
öldungakirkju, meþódistakirkju,
anglikönsku kirkjunni og kaþ-
ólsku kirkjunni.
Yfirskrift vikunnar er „Hvar
sem tveir eða þrír eru saman
komnir í mínu nafni, þar er ég
mitt á meðal þeirra“.
Undirbúningur bænavikunnar
hérlendis er í höndum samstarfs-
nefndar kristinna trúfélaga. Að-
ild að nefndinni eiga: Aðvent-
istar, Fríkirkjan Vegurinn,
Hvítasunnukirkjan, Hjálpræð-
isherinn, Íslenska Kristkirkjan,
Kaþólska kirkjan, Óháði söfn-
uðurinn og Þjóðkirkjan.
Dagskrá:
Sunnudagur 22. janúar:
Kl. 11.00 Útvarpsmessa í Ár-
bæjarkirkju, Reykjavík, með þátt-
töku allra trúfélaganna. Kl.
20.00: Samkoma hjá Íslensku
Kristskirkjunni, Fossaleyni 14,
Reykjavík.
Mánudagur 23. janúar:
Kl. 12:00 Bænastund í Frið-
rikskapellu, Reykjavík. Kl. 20:00
Aftansöngur í St. Jósefskirkju,
Jófríðarstöðum, Hafnarfirði. Kl.
20.00 Bænastund í Hvítasunnu-
kirkjunni, Skarðshlíð 20, Ak-
ureyri.
Þriðjudagur 24. janúar:
Kl. 12:00 Bænastund í Veg-
inum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Kl. 20.00 Bænastund í umsjá Að-
ventista í Sunnuhlíð í félagsheim-
ili KFUM og KFUK, Akureyri.
Miðvikudagur 25. janúar:
Kl. 12:00 Bænastund í Fíladel-
fíu, Hátúni 2, Reykjavík. Kl.
20:00 Samkoma í Kristskirkju,
Landakoti, Reykjavík. Kl. 12:00
Bænastund á Hjálpræðishernum,
Hvannavöllum 10, Akureyri.
Fimmtudagur 26. janúar:
Kl. 12.00 Bænastund í Hall-
grímskirkju, Reykjavík. Kl. 20.00
Samkoma á Hjálpræðishernum,
Kirkjustræti 2, Reykjavík. Kl.
12:00 Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í þjóðkirkjunni í Akureyr-
arkirkju, Eyrarlandsvegi.
Föstudagur 27. janúar
Kl 12:00 Bænastund í Veginum,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Kl. 20.00
Samkoma í Aðventkirkjunni, Ing-
ólfsstræti . Kl. 20:00 Aftansöngur
í Kaþólsku kirkjunni, Péturs-
kirkju, Hrafnagilsstræti 2, Ak-
ureyri.
Laugardagur 28. janúar
Kl. 20.00 Lokasamkoma í Veg-
inum, Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Sunnudagur 29. janúar
Bænaviku lýkur í guðsþjón-
ustum safnaðanna á Akureyri.
Eldri borgarar
og sporin tólf
NÚ hefja samverur eldri borgara
í Laugarneskirkju göngu sína
annan hvern fimmtudag fram á
vor. Fimmtudaginn 26. janúar kl.
14 komum við saman og þá munu
tengdafeðgarnir og veiðifélgag-
arnir Jón Erlendsson og Þórarinn
Eyfjörð sýna myndir og segja frá
ferðum sínum um hálendi Íslands.
Sem fyrr er það sóknarprestur
sem stýrir samverunum en þjón-
ustuhópur kirkjunnar annast
undirbúning og allan viðurgjörn-
ing ásamt kirkjuverði.
Þriðjudagskvöldið 24. janúar
kl. 20 verður annar kynning-
arfundurinn á merku hópastarfi í
Laugarneskirkju sem nefnt er 12
sporin – andlegt ferðalag. Ára-
löng hefð hefur skapast fyrir
þessu starfi í söfnuðinum og nú
er það hópur sjálfboðaliða undir
forystu Guðrúnar K. Þórsdóttur
djákna sem stendur að kynning-
unni og starfinu sem framundan
er. Í þessari tólf spora vinnu er
markvisst hugað að eigin tilfinn-
ingum og unnið úr lífsreynslunni.
Unnið er í smáum kynskiptum
hópum sem koma vikulega saman
í safnaðarheimilinu. Þátttaka
kostar ekkert og það kostar held-
ur ekkert að kynna sér málið á
kynningarfundinum. Gengið er
inn um aðaldyr kirkjunnar og
samverunni lýkur kl. 22. Það er
auðvelt að koma til Laugarnes-
kirkju og hún er góður og örugg-
ur staður.
Fjölskylduhátíð í
Hafnarfjarðarkirkju
ÞÁ eru jólin og áramótin liðin og
lífið komið í sinn vanagang. Eftir
mikla kirkjusókn um hátíðirnar
byrjar nú safnaðarstarfið Í Hafn-
arfjarðarkirkju af fullum krafti
með fjölskylduhátíð næstkomandi
sunnudag. Slíkar hátíðir eru
haldnar einu sinni í mánuði í
kirkjunni.
Fjölskylduhátíðin byrjar kl.11.
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur
undir söng og annast alla tónlist,
en hljómsveitina skipa hljóðfæra-
leikarar sem jafnframt eru leið-
togar í sunnudagaskólanum. Báð-
ir prestar kirkjunnar taka þátt. Á
hátíðinni verður mikið sungið,
farið í leiki og heilsað upp á
brúðuleikhús kirkjunnar. Sr. Þór-
hallur segir glærusögu og kennir
öllum kirkjugestum nýjan sunnu-
dagaskólasöng.
Eftir stundina í kirkjunni er
boðið upp á kirkjunammi í safn-
aðarheimilinu. Allir eru velkomn-
ir og krakkar, munið að taka
með pabba og mömmu, afa og
ömmu og stóru systkinin.
Barnahátíð
sunnudagaskólanna
Reykjarvíkurprófastsdæmi eystra
stendur nú annað árið í röð, fyrir
barnahátíð sunnudagaskólanna.
Hátíðin verður haldin á morgun
kl. 11 í Grafarvogskirkju. Yf-
irskrift hátíðarinnar er „Heil-
brigð sál í hraustum líkama“ og
af því tilefni koma íbúar Lata-
bæjar í heimsókn. Við munum
syngja og fara í kirkjuleikfimi og
að sjálfsögðu mætir brúðan Guð-
finna og spjallar við krakkana.
Fjölskyldan er öll hvött til að
koma saman í trú og gleði. Rútur
fara tímanlega frá kirkjum pró-
fastsdæmisins, nánari upplýs-
ingar í kirkjunni þinni.
Taize-guðsþjónusta
í Hjallakirkju
Á SUNNUDAGINN verður Taize-
guðsþjónusta í Hjallakirkju kl.
11. Sungnir verða sálmar að
franskri fyrirmynd sem eiga upp-
runa í klausturmenningu munka.
Sálmarnir eru mjög einfaldir, við-
lögin eru sungin aftur og aftur
sem íhugunarsálmar með sungn-
um ritningargreinum og bæna-
versum inn á milli. Í guðsþjónust-
unni verður einnig boðið upp á
fyrirbænastund og ritning-
arlestrar verða lesnir bæði á ís-
lensku og þýsku. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða sálmasönginn
undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðs-
sonar, organista.
Á sama tíma verður barna-
starfshátíð í Grafarvogskirkju.
Lagt verður af stað frá Hjalla-
kirkju kl. 10.50 og fellur sunnu-
dagaskólinn kl. 13 niður af þeim
sökum.
Rómverjabréfið –
Texti, trú og
tilgangur
FIMMTUDAGINN 26. janúar
hefjast á vegum Leikmannaskól-
ans og Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra Biblíulestrar. Farið verður
í efni Rómverjabréfsins og sögu-
leg tilurð þess skoðuð. Í tengslum
við efni bréfsins verður síðan
fjallað um kristinn Guðs- og
mannskilning, lögmál og fagn-
aðarerindi, náð og kærleika og
um opinberun Guðs í náttúrunni
og í Kristi. Kennari á námskeið-
inu er dr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son héraðsprestur og stunda-
kennari við HÍ.
Kennt verður í Breiðholts-
kirkju í Mjódd og hefst nám-
skeiðið 26. janúar kl. 20.00.
Kennt er í 10 skipti, 2 tíma í
senn.
Skráning fer fram á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkjan.is/
leikmannaskoli eða í síma 535
1500
Konurnar í Biblíunni
ÞRIÐJUDAGINN 24. janúar hefst
í Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar
námskeið um konurnar í Biblí-
unni. Kennari á námskeiðinu er
dr. Arnfríður Guðmundsdóttir
dósent og mun hún fjalla um kon-
ur úr Gamla og Nýja testament-
inu. Margar þessara kvenna hafa
verið lítt áberandi í kristinni hefð
og verður hugað að hlutverki
þeirra í sögum Biblíunnar og
boðskapnum sem þær hafa að
flytja samtíma okkar.
Námskeiðið fer fram í Grens-
áskirkju og er kennt í fjögur
skipti, tvo tíma í senn.
Skráning fer fram á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkjan.is/
leikmannaskoli eða í síma 535
1500.
Samvera hjá
KFUM og KFUK
KFUM og KFUK bjóða til sam-
veru á hverjum sunnudegi kl. 17 í
félagshúsinu á Holtavegi 28 í
Reykjavík. Áhersla er lögð á hlý-
lega samveru þar sem Guðs orð
er boðað og komið er saman til
að lofa Guð. Á meðan á samkomu
stendur er boðið upp á barna-
starf.
Sunnudaginn 22. janúar flytur
Keith Reed listrænn stjórnandi
KFUM og KFUK ræðu. Í janúar
verða auk þess fræðslustundir
fyrir hverja samveru sem hefjast
klukkan 16 og er hugmyndin að
tækifæri gefist til að kynnast
Guði betur. Á fræðslustund þessa
sunnudags fjallar Halldór Lár-
usson um: „Hverjir eru kristni-
boðar?“ Allir velkomnir.
Litlir og stórir læri-
sveinar í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
BARNASTARFIÐ er aftur komið
á skrið á nýju ári. Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta er kl. 14 og
munum við þar skoða lærisveina
Jesú Krists og hvað það merkir
að vera lærisveinn hans eins og
við erum öll. Fjölbreytileiki
mannlífsins er skoðaður. Við
heyrum helgisögu lesna, syngjum
mikið saman og öll börn fá bibl-
íumynd í lokin ásamt andabrauði,
sem er fastur liður eftir guðs-
þjónusturnar hjá okkur. Barn
verður borið til skírnar. Carl
Möller leiðir tónlistina, en Ása
Björk og Hjörtur Magni leiða
stundina auk Nöndu Maríu
kirkjuverði.
Æðruleysismessa -
Dómkirkjan
FYRSTA æðruleysismessa ársins
verður á sunnudagskvöld kl. 20.
Verður messan á þeim ljúfu og
léttu nótum sem þróast hafa í
„æðruleysissamfélaginu“ á und-
anförnum árum. Bræðraband
þeirra Harðar og Birgis Braga-
sona leiku ásamt Hjörleifi Vals-
syni fiðluleikara. Einsöng og
söngstjórn annast Anna Sigríður
Helgadóttir. Séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson flytur hugleiðingu,
sr. Karl V. Matthíasson fer með
bæn og sr. Hjálmar Jónsson stýr-
ir samkomunni. Þá verður
reynslusaga kirkjugests á sínum
stað. Við hvetjum fólk til að
koma í Æðruleysismessu.
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl.11. Gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári
Þormar, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðs-
þjónusta kl. 14. Félagar úr kór Áskirkju
syngja, organisti Kári Þormar, prestur sr.
Þórhildur Ólafs. Kaffi eftir guðsþjónustu í
boði sóknarnefndar í efri safnaðarsal.
Hjúkrunarheimilið Skjól: Guðsþjónusta
kl. 15.30, félagar úr kór Áskirkju syngja,
organisti Kári Þormar, prestur sr. Þórhildur
Ólafs.
HRAFNISTA í Reykjavík: Guðsþjónusta
klukkan 15.30 í samkomusalnum Helga-
felli á 4. hæð. Orgelleikari Kári Þormar en
kór Hrafnistu og kórfélagar úr kirkjukór Ás-
kirkju munu syngja. Hanna María Karls-
dóttir spilar einleik á þverflautu. Ritning-
arlestur lesa þær Bergljót Aradóttir og
Hanna María Karlsdóttir. Prestur sr. Svan-
hildur Blöndal. Allir velkomnir.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
klukkan 11.00. Söngur, fræðsla, gleði.
Foreldrar, afar og ömmur hvött til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta klukkan
14.00. Kór Bústaðakirkju syngur. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Molasopi
eftir messu. Sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dómkór-
inn syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur
á orgel. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á
messu stendur. Æðruleysismessa kl.
20.30. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson pré-
dikar en ásamt honum þjóna einnig sr.
Hjálmar Jónsson og sr. Karl V. Matthías-
son. Bræðrabandið, Hjörleifur Valsson og
Anna Sigríður Helgadóttir sjá um tónlist-
ina.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur (Lellu)
og unglinga úr
kirkjustarfinu. Guðsþjónusta kl. 11. Sam-
skot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Molasopi að lokinni guðs-
þjónustu. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11.00. Sr. Sigurður Pálsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur. Umsjón barnastarfs Magn-
ea Sverrisdóttir. Kaffisopi eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón með barnaguðsþjón-
ustu: Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra
Marteinsdóttir og Annika Neumann. Léttar
veitingar eftir messu. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 10.30 á Landspítala
Hringbraut. Rósa Kristjánsdóttir djákni,
organisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
María Vigdís Kjartansdóttir syngur ein-
söng. Séra Bára Friðriksdóttir messar.
Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Fé-
lagar úr Kór Langholtskirkju leiða söng.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara
börnin í safnaðarheimilið með Steinunni
og Arnóri. Kaffisopi eftir messuna.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur þjónar ásamt Sigurbirni Þorkels-
syni meðhjálpara. Fulltrúar lesararhóps
flytja texta dagsins. Sunnudagaskólann
annast Hildur Eir Bolladóttir, Þorvaldur
Þorvaldsson og Heimir Haraldsson.
Messukaffi. Guðsþjónusta kl. 13.00 í sal
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Sóknarprestur þjónar ásamt Guðrúnu K.
Þórsdóttur djákna, organista safnaðarins
og hópi sjálfboðaliða.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl.
11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í
messunni en fara síðan í safnaðarheim-
ilið.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Sigurður
Grétar Helgason. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Börnin hvött til að mæta til skemmti-
legrar stundar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14.00. Bjarni Gíslason kristniboði prédik-
ar. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Fjallað verður
um það að við erum öll lærisveinar Jesú
Krists. Helgisaga, mikið sungið og Bibl-
íumyndin verður á sínum stað. Barn verð-
ur borið til skírnar. Carl Möller leiðir tón-
listina en Ása Björk og Hjörtur Magni leiða
stundina auk Nöndu Maríu. Andabrauð að
lokinni guðsþjónustu að venju.
ÁRBÆJARKIRKJA: Kl.11 verður útvarpað
samkirkjulegri guðsþjónustu frá Árbæj-
arkirkju. Að þessari guðsþjónustu kemur
þjóðkirkjufólk, aðventistar, kaþólikkar,
hvítasunnufólk, og þannig mætti halda
áfram. Sr. Þór Hauksson, sr. Bjarni Þór
Bjarnason og sr. María Ágústsdóttir þjóna
fyrir altari. Eric Guðmundsson aðventisti
prédikar. Bænir flytja fulltrúar Hvítasunnu-
kirkjunnar, Kaþólsku kirkjunnar og Veg-
arins. Einsöngur Miriam Óskarsdóttir. Org-
anisti Krisztina Kalló Szklenár. Kór
Árbæjarkirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng. Á sama tíma er barna-
starfshátíð í Grafarvogskirkju á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Farið
verður með rútu frá Árbæjarkirkju
kl.10.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Org-
anisti Keith Reed. Barnastarfshátíð fyrir
alla sunnudagaskóla í Reykjavík-
urprófastdæmi eystra í Grafarvogskirkju.
Rútuferð frá Breiðholtskirkju kl. 10.45.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
A hópur. Súpa í safnaðarsal eftir messu.
Sunnudagaskóli fer í heimsókn í Graf-
arvogskirkju. Lagt af stað frá Digra-
neskirkju kl. 10.30. (www.digra-
neskirkja.is)
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Org-
anisti Lenka Mateova. Eftir guðsþjón-
ustuna verður foreldrafundur ferming-
arbarna í Fellasókn í safnaðarheimili
kirkjunnar. Barnastarfshátíð fyrir alla
sunnudagaskóla í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra í Grafarvogskirkju. Rúta fer
frá Fella- og Hólakirkju kl.10.30.
GRAFARHOLTSSÓKN: Barnastarfshátíð
fyrir alla sunnudagaskóla í Reykjavík-
urprófastdæmi eystra í Grafarvogskirkju
kl. 11. Rútuferð frá Ingunnarskóla kl.
10.35.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barnastarfshátíð
kl. 11 í Grafarvogskirkju á vegum Reykja-
víkurprófastsdæmis eystra. Rúta fer frá
Borgarholtsskóla 10.40.
HJALLAKIRKJA: Taize-guðsþjónusta kl.
11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Sálmar
sungnir að franskri fyrirmynd. Fyrirbæna-
stund. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Barnastarfshátíð í Graf-
arvogskirkju kl. 11. Lagt af stað með rútu
frá Hjallakirkju kl. 10.45. Sunnudagaskóli
kl. 13 fellur niður af þeim sökum. Við
minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðju-
dag kl. 18 (sjá einnig á www.hjalla-
kirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í kirkjunni
kl. 12.30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs
Þórs og Sigríðar. Guðsþjónusta kl. 14.
Sóknarprestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson
predikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.
Organisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir.
Kaffisopi eftir messu. Bæna- og kyrrð-
arstund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Barnastarfshátíð
fyrir alla sunnudagaskólana í prófasts-
dæminu verður í Grafarvogskirkju kl.11.
Lagt verður af stað með rútu frá Linda-
skóla ekki síðar en 10.45. Á meðan börn-
in verða á barnastarfshátíðinni verður
guðsþjónusta í Lindaskóla. Kór Linda-
kirkju syngur, organisti Hannes Bald-
ursson, sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónustuhátíð í
Grafarvogskirkju kl. 11. Lagt verður af
stað frá Seljakirkju kl. 10.45 í rútu. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng. Org-
anisti Jón Bjarnason. (sjá nánar á
www.seljakirkja.is).
Barnahátíð sunnudagaskólanna.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN, Fossaleyni
14: Morgunguðsþjónusta kl.11. Friðrik
Schram heldur áfram að kenna um efnið:
„Vöxtur í trúnni“, að þessu sinni: Rétt
sjálfsmynd og samskipti. Barnapössun
fyrir 1–2 ára börn, sunnudagaskóli fyrir
3–6 ára og Krakkakirkja í Lofgjörðarlandi
fyrir 7–13 ára. Kl. 20 er samkoma með
fjölbreyttri dagskrá í umsjá unga fólksins í
kirkjunni. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og
tilveruna“ sýndur á Ómega kl.14.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Söngflokkur
með M.C. Restroff syngur. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.
Umsjón Anne Marie Reinholdtsen. Mánu-
dagur: Heimilasamband kl. 15. Allar kon-
ur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Vitn-
isburðasamkoma kl. 14 í umsjá Bjargar R.
Pálsdóttur. Mikil lofgjörð. Barnastarf á
samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Gleymum ekki að gefa Drottni dýrðina af
því sem hann hefur fyrir okkur gert og er
að gera.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í
húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Kl. 16
fræðsla: kristniboð. Halldór Lárusson. Kl.
16.40 kaffi og samfélag. Kl. 17 sam-
koma: lofgjörð og samfélag. Þriðja og síð-
asta ræðan sem Keith Reed flytur um
hvernig „Sjónarhorn móta sambönd … “
Halldór Lárusson túlkar. Stund fyrir börnin
Guðspjall dagsins:
Jesús gekk ofan
af fjallinu.
(Matt. 8.)
MESSUR Á MORGUN