Morgunblaðið - 21.01.2006, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 63
FRÉTTIR
UM helgina verða skíðadagar í
Kringlunni. Á skíðadögum kynna
skíðafélögin á höfuðborgarsvæð-
inu sig og starfsemi sína. Að auki
munu skíðasvæðin á höfuðborg-
arsvæðinu auk skíðasvæðanna á
Siglufirði, Sauðárkróki og Ak-
ureyri kynna sig. Gestir geta séð
með eigin augum svokallaða snjó-
byssu sem notuð er til að fram-
leiða snjó í Hlíðarfjalli á Ak-
ureyri.
Í tilefni skíðadaga verður sett
upp 35 metra löng gönguskíða-
braut á 1. hæð Kringlunnar. Al-
vöru snjór verður notaður í
brautina og munu skíða-
göngumenn og börn keppa í
brautinni kl. 14 á laugardag.
Á skíðadögum verður leikur í
gangi fyrir gesti og gangandi í
Kringlunni. Þeir sem fylla út
þátttökuseðla geta átt von á
glæsilegum vinningum, segir í
fréttatilkynningu. Meðal vinninga
má nefna árskort á skíðasvæði
höfuðborgarsvæðisins, dagskort á
skíðasvæðin og vegleg gjafabréf í
versluninni 66°Norður.
Skíðadagar
í Kringlunni
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að árekstri við Síðu-
múla 25 16. janúar um kl. 8 fyrir
hádegi. Þar var bíll með númerinu
DP-546 kyrrstæður þegar svörtum
Mercedes Benz, trúlega leigubíl,
var ekið aftan á hinn bílinn. Í upp-
hafi voru ökumenn sammála að
kalla til og bíða eftir lögreglu á
vettvang, en áður en til þess kom
ók ökumaður á Benzinum á brott
og er ekki vitað um hann frekar.
Því er ökumaður hans eða aðrir
sem geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til umferð-
ardeildar lögreglunnar í Reykja-
vík.
Þá er lýst eftir vitnum að
árekstri fimmtudaginn 19. janúar
kl. 21:27 á gatnamótum Laugavegs
og Nóatúns. Þar lentu saman tveir
fólksbílar, blár Hyundai sem ekið
var austur Laugaveg og rauður
Nissan sem ekið var norður Nóa-
tún. Ökumenn greinir á um stöðu
umferðarljósanna á gatnamót-
unum. Þeir sem gætu gefið upplýs-
ingar í málinu eru beðnir að hafa
samband við lögregluna í síma
444-1000 eða 444-1130.
Lýst eftir vitnum
KJARTAN Valgarðsson, sem stefn-
ir á 3. sætið í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík, opnar kosn-
ingamiðstöð á Laugavegi 170,
gamla Hekluhúsinu, í dag, laug-
ardag kl. 11. Boðið verður upp á
veitingar og Hallgrímur Helgason
rithöfundur leggur orð í belg.
Kjartan opnar
kosningamiðstöð
VGR, Vinstrihreyfingin – grænt
framboð í Reykjavík heldur borg-
armálaráðstefnu í dag, laugardag,
að Vesturgötu 7. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er: Málefnadeigla
Vinstri grænna og hefst hún kl. 10
og lýkur kl. 17. Fundarstjóri er
Gísli Hrafn Atlason.
M.a. verður fjallað um málefni
barna, umhverfismál, málefni eldri
borgara og kvenfrelsis- og mann-
réttindamál.
Málefnadeigla
vinstri grænna
ÁRLEGUR Alþjóðadagur Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins verður haldinn í Háskólabíói
fimmtudaginn 26. janúar nk. frá kl. 13–17.
Kynningarbásar verða opnir kl. 13–16 og kl.
16–17 verða erindi um stúdentaskipti og starfs-
þjálfun.
Tilgangurinn með Alþjóðadeginum er að
vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi fyrir há-
skólanema; í stúdentaskiptum, starfsþjálfun og
vekja athygli á námi erlendis almennt. Al-
þjóðadagurinn er ætlaður innlendum og er-
lendum stúdentum í háskólum á Íslandi. Hægt
verður að nálgast á einum stað þá möguleika
sem bjóðast í námi og starfsþjálfun erlendis.
Alþjóðadagurinn er vettvangur allra þeirra
sem hafa hug á námi, starfsþjálfun eða starfi
erlendis.
Að minnsta kosti 2.500 Íslendingar stunda
nám erlendis um þessar mundir og þar af eru
um 300 skiptinemar sem fara á vegum skipt-
istúdentaáætlana, t.d. Erasmus eða Nordplus.
Eftirtaldir verða með kynningarborð og
svara fyrirspurnum um nám og störf erlendis,
styrki, námslán, vegabréfsáritanir og fleira:
Samband íslenskra námsmanna erlendis, Leon-
ardó starfsþjálfun, Bandalag íslenskra náms-
manna, Fulbright-stofnunin, fulltrúar frá er-
lendum sendiráðum og ræðisskrifstofum,
EES-vinnumiðlun, Alþjóðaskrifstofa háskóla-
stigsins-Upplýsingastofa um nám erlendis o.fl.
Kynning á alþjóðlegu samstarfi
fyrir háskólanema í Háskólabíói
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt að styrkja kaup á korn-
myllu sem fyrirhugað er að gefa
til þorpsins El Kere í Eþíópíu. Er-
indi þessa efnis barst frá Ómari
Þ. Ragnarssyni í vikunni. Kostn-
aður verður greiddur a gjald-
liðnum „styrkveitingar bæj-
arráðs“. Oddur Helgi Halldórsson
óskar bókað að hann sætihjá við
afgreiðslu.
Styrkja kaup
á kornmyllu
-40%
-40%
-20%
Romantique hnotulína
Borðstofuborð 190x85
Verð áður:
45.000
-40%
Verð nú:
27.0 0
Stóll
Verð áður:
12.500
-20%
Verð nú:
10.0 0
Skenkur 180cm
Verð áður:
79.000
-40%
Verð nú:
47.4 0
Romantique borð,
6 stólar og skenkur
ALLT SETTIÐ SAMAN NÚ:
134.400
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið um helgina: lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
Útsalan í fullum gangi afsláttur10-50%
Mikið vöruúrval
-30%
Borðstofuborð 190x90 og 6 stólar
Verð áður:
128.000
-30%
Verð nú:
89.600
-20%
Tungusófi
microfiber áklæði með óhreinindavörn
Verð áður:
139.000.-
Verð nú:
111.200.-
-30%
RIO LEÐUR TUNGUSÓFI
Verð áður:
212.000
-30%
Verð nú:
148.400