Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 64
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ELLA, LÍF MITT ER
TILGANGSLAUST ÁN ÞÍN
ÞAÐ ER HVORT
SEM ER TILGANGS-
LAUST
HVAÐ MEINARÐU AÐ ÞAÐ SÉ
HVORT SEM ER TILGANGSLAUST?
ÞETTA ER
GREINILEGA MJÖG
GREIND STELPA
ÞAÐ VAR UM DIMMA OG
STORMASAMA NÓTT...
SAGAN
BYRJAR
SPENN-
ANDI
TAKK
GANGI ÞÉR
VEL MEÐ
NÆSTU
SETNINGU
MÉR
SKILST AÐ
FÚLEGG
LYKTI MJÖG
ILLA
JÁ,
HRÆÐILEGA
SETTU
EGGIN AFTUR Á
SINN STAÐ
AF HVERJU GETUM VIÐ EKKI TALAÐ
SAMAN VIÐ MATARBORÐIÐ EINS OG
ÖNNUR HJÓN?
ÉG Á VIÐ SAMTAL
SEM SKILST!
SVONA SÆTI
HUNDUR OPNAÐU
NÚ MUNNINN
NÚ SKULUM VIÐ
BURSTA Í ÞÉR
TENNURNAR
NÚ SKULUM VIÐ
GLEYPA HÖFUÐIÐ Á
LITLU SÆTU
AÐSTOÐAR-
STÚLKUNNI
FER VEL
UM PABBA
Á
SÓFANUM?
ÉG TRÚI
EKKI AÐ
MAMMA ÞÍN
HAFI HENT
HONUM ÚT
FYRIR AÐ
STYÐJA BUSH
JÁ, FÓLKI
VIRÐIST
VERÐA ANSI
HEITT Í
HAMSI
ÞESSA
DAGANA
ÉG SKIL
EKKI HVERNIG
FÓLK GETUR
TEKIÐ
STJÓRNMÁL
SVONA NÆRRI
SÉR
MÉR FINNST KERRY
ÁGÆTUR EN BUSH HEFUR
EKKERT STAÐIÐ SIG ÞAÐ
ILLA HELDUR
HVAÐ
SAGÐIRÐU?
ER PLÁSS
FYRIR MIG?
ÞESSI VEFUR ÆTTI AÐ HALDA ÞÉR!
ÞÚ HEFUR
GREINILEGA...
...ADREI BARIST VIÐ
MANN EINS OG MIG
HVERT FÓR HANN?
VARLA ER
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN SKRÆFA
Dagbók
Í dag er laugardagur 21. janúar, 21. dagur ársins 2006
Víkverji er sólginn íþorramat, einkum
súrmetið. Það jafnast
fátt á við væna hangi-
kjötsflís, súran
hrútspung og sviða-
sultu. Með þessu er
svo ekki verra að hafa
blauta rófustöppu eða
kartöflumús. Að ekki
sé talað um flatbrauð
og harðfisk með vænni
klípu af sméri. Vík-
verji fær bara vatn í
munninn við tilhugs-
unina. Þó er hann enn
ekki farinn að nefna
rúsínuna í pylsuend-
anum – hákarlinn. Sú göfuga skepna
er eitt mesta lostæti sem manninum
hefur dottið í hug að leggja sér til
munns um dagana.
x x x
Í þessu ljósi þarf ekki að koma les-endum á óvart að Víkverja þykir
þorrinn skemmtilegur árstími, með
blótum og tilheyrandi. Það er nauð-
synlegt að komast á a.m.k. eitt eða
tvö þorrablót til að eta á sig gat og
gleðjast með vinum og vandamönn-
um. Víkverji beið raunar ekki boð-
anna þetta árið heldur brá sér á blót
þegar við upphaf þorra í gærkvöldi.
Og það var sko alvöru þorrablót
með hefðbundnu súr-
meti. Ekki eins og
blótin sem Víkverji
sótti á stúdentagörð-
um borgarinnar á önd-
verðum síðasta ára-
tug. Þar var vissulega
súrmeti á borðum –
fyrir Íslendingana. Út-
lendingarnir kusu á
hinn bóginn hveiti-
klessur og fiðurfé í
staðinn. Stóðu svo
álengdar og grettu sig
meðan landinn reif
súrmetið í sig, rymj-
andi og ropandi. Lagð-
ist þar lítið fyrir karl-
mennskuna hjá hinum annars ágætu
gestum.
x x x
Það er bara eitt sem fer í taug-arnar á Víkverja í sambandi við
þorramat: Verðið. Hvers vegna þarf
agnarsmár biti af hrútspung að
kosta á sjötta hundrað krónur úti í
kjörbúð? Og hvers vegna fæst lítil
askja af hákarli varla fyrir minna en
þúsundkall? Þarf þetta virkilega að
vera svona dýrt? Hvaða stórmark-
aður ætlar að verða fyrstur til að
hefja verðstríð á þorramatarmark-
aðnum? Þar lofar Víkverji að versla
út árið – og allt hans hyski.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Háskóli Íslands | Sendiráð Japans og svið japanskra fræða við hugvís-
indadeild Háskóla Íslands standa að Japanshátíð í dag, frá kl.14 til 18, í hátíð-
arsal aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Hátíðin er liður í því að fagna 50 ára stjórnmálasambandi Japans og Ís-
lands og kennslu í japönskum fræðum sem hófst haustið 2003.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla aldurshópa. Má þar nefna júdó-,
karate- og kendósýningu á sviði; erindi um anime-teiknimyndir og manga-
teiknimyndasögur, obake-drauga og súmóglímu; ljósmyndasýningu um Jap-
an; kynningu á landafræði Japans, blómaskreytingarlist, bókmenntum og
þjóðsögum, igo- og shogi-skák og tónlistar- og fatatísku japanskra ung-
menna. Gestir geta einnig fengið nafn sitt skrautritað með japönsku kanji-
letri og prófað sig í origami-pappírslist.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Kanji-letur og origami-list
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbif-
anlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki ár-
angurslaust í Drottni. (1. Kor. 15, 58.)