Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um 1,75% í Kauphöll Íslands í gær og var lokagildi hennar 6.403 stig. Heildarviðskipti í Kauphöllinni námu um 19,7 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með íbúðabréf fyrir um 9,5 milljarða og með hluta- bréf fyrir um 5,7 milljarða. Mest voru viðskipti með bréf Landsbankans, fyrir 1,4 milljarða. Aðeins eitt félag hækkaði í verði, Grandi um 0,51%. Bréf Össurar lækkuðu um 3,91%, Straums-Burðaráss um 3,63% og FL Group um 3,38%. Úrvalsvísitalan lækkar enn        " & #  /  &  */ %                    !" #$%  &"   &'   ( %) #%  *+ %" %  * "%  '%) #% ( %)  ,  ,  &  %  -./01 &21#%  3         %   & .0 ( %)  %)  4. 02%   5 %)   672  89& % 8. :;"" %". 0  0 %  < %%   0 %      & ) =;220   -1>" -0%)   !" #$  5?=@ -A0   0 0       /    /         /   /   /  / /   ; %" 1 ;  0 0 /  /  /  / /  /  / /  / / /  / /  /  / /  /   / /  / / / / / / / B /CD B /CD B /CD B / CD B /CD B / CD / B /CD B /CD / B /CD / B /CD B /CD B /  CD B / CD / B CD / B /CD / B / CD / / / / B /CD 4 ) 0   )" % : #0 A  )" E * -         /       /           /      /  /  / /                                                            < 0   A +$   :4 F "%  &2 )  0    / /     /   /  /  / /  ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● STJÓRN Seðlabanka Evrópu hækkaði stýrivexti bankans um 0,25 prósentur í 2,5% í gær. Reiknað var með að danski seðlabankinn myndi gera slíkt hið sama seinna í gær og hækka vextina einnig um 0,25%. Þetta var í annað skipti á þremur mánuðum sem Jean-Claude Trichet hefur tilkynnt um hækkun stýrivaxta en flestir höfðu reiknað með þessari ákvörðun bankastjórnarinnar enda vísbendingar um að hagvöxtur sé að glæðast og verðbólga að aukast. Sérfræðingar eru almennt sammála um að seðlabankinn muni hækka stýrivextina aftur í júní í 2,75% og að þeir verði komnir í 3% fyrir lok ársins. Sérfæðingar Den Danske Bank hafa spáð því að stýrivextirnir verði komn- ir í 3,5% eftir eitt ár eða svo. Stýrivextir hækkaðir á evrusvæðinu ● BRESKA verslanakeðjan Iceland áformar að segja upp 235 starfs- mönnum á næstunni samkvæmt fregn dagblaðs í Norður-Wales. Fyrir um ári sagði Iceland upp um 400 manns. Einn af stofnendum Iceland, Malcolm Walker, náði yfirráðum í fé- laginu ásamt hópi íslenskra fjár- festa í febrúar á síðasta ári eftir að hafa hætt sem stjórnarformaður árið 2001. Haft er eftir Walker að tekist hafi að snúa rekstri Iceland við á þessu eina ári en verslanakeðjan, sem aðallega selur frosin matvæli, hefur átti við taprekstur að stríða um langt skeið. Uppsagnir hjá Iceland ● HAGNAÐUR Fasteignafélagsins Stoða nam 2.085 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári, en árið 2004 nam hagnaður félagsins 2.851 milljón króna. Eigið fé félags- ins í árslok 2005 nam 10.832 millj- ónum en var 9.452 milljónir í árslok 2004. Heildareignir samstæðunnar í árslok 2005 námu 72.663 millj- ónum króna en námu 45.450 millj- ónum króna í árslok 2004 og hafa því aukist um 27,2 milljarða milli ára. Í árslok 2005 gerði félagið samn- ing um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og verður félagið hluti af sam- stæðureikningi félagsins frá yfir- tökudegi sem var 6. janúar 2006. Helstu eigendur Fasteignafélagsins Stoða eru Baugur Group með 49,1%, KB banki með 21,9% og Ingi- björg Pálmadóttir og Eignarhalds- félagið ISP með 17,9%. Fasteignir félagsins eru versl- unarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur. Meðal leigjenda má nefna Haga, Flugleiðahótel, Fast- eignir ríkissjóðs, KB banka og SPRON. Nýtingarhlutfall fasteigna er yfir 98%. Eignir Stoða aukast ALÞJÓÐA matsfyrirtækið Stand- ard & Poor’s hefur sett lánshæf- iseinkunn Íbúðalánasjóðs í innlendri mynt til langs tíma á eftirlitslista með neikvæðar horfur. Fyrirtækið staðfestir hins vegar lánshæfisein- kunn sjóðsins í erlendri mynt til langs tíma og einnig til skamms tíma, bæði í erlendri og innlendri mynt. Talsmaður Íbúðalánasjóðs segir þetta mat koma nokkuð á óvart. Í tilkynningu frá Standard & Poor’s segir að ástæður þessarar breytingar séu í fyrsta lagi þær að vægi sjóðsins á húsnæðislánamark- aði hafi minnkað, og í annan stað sé óvissa um framtíðarhlutverk sjóðs- ins. Þó liggi fyrir að sjóðurinn sé enn mikilvægur fyrir húsnæðis- stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar. Í tilkynningunni segir einnig að það, að Íbúðalánasjóður sé settur á eft- irlitslista, sé til vitnis um að Stand- ard & Poor’s telji að sjóðurinn sé ekki eins ómissandi fyrir húsnæð- islánamarkaðinn og hann var. Láns- hæfismat Íbúðalánasjóðs styðst enn sem fyrr við það að sjóðurinn nýtur ríkisábyrgðar. Standard & Poor’s telur að ríkið muni styðja sjóðinn verði þörf á því. Bankarnir höfðu áhrif Sérfræðingar Standard & Poor’s segja að aðkoma viðskiptabankanna að íbúðalánamarkaðinum í ágúst 2004 hafi haft mikil áhrif á mark- aðinn, og þeirri þróun sem orðið hafi verði ekki snúið við. Vægi Íbúðalánasjóðs í íbúðalánum hafi síðan þá minnkað úr um 80% í 50% í árslok 2005. Greint er frá því að starfshópur, sem var á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins og Íbúða- lánasjóðs, hafi skilað tillögum um framtíðarhlutverk sjóðsins í janúar, þar sem mælt var með því að sjóð- urinn yrði gerður að heildsölubanka til að bregðast við þróuninni á lána- markaðinum. Engu að síður telur Standard & Poor’s að hlutverk sjóðsins verði áfram mikilvægt, sér- staklega í ljósi þess að viðskipta- bankarnir lána ekki nema takmark- að til húsnæðiskaupa utan helstu þéttbýlisstaða. Kemur sjóðnum á óvart Standard og Poor’s ætlar að end- urskoða lánshæfismat Íbúðalána- sjóðs þegar ríkið hefur skýrt hvert verður framtíðarhlutverk sjóðsins og hversu víðtæk ríkisábyrgðin muni vera. Jóhann Jóhannsson, sviðsstjóri áhættu- og fjárstýringar hjá Íbúða- lánasjóði, segir að í raun hafi þessi breyting á lánshæfismati sjóðsins komi nokkuð á óvart. Hið sama hafi gerst í fyrra og þá hafi lánshæf- ismatinu verið breytt aftur eftir að sjóðurinn kom með athugasemdir. Jóhann segir að slíkt hið sama verði gert núna og hafi sjóðurinn um viku til að koma sínum athugasemdum á framfæri. Íbúðalánasjóður á eftirlits- lista Standard & Poor’s   Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is GETA íslensku viðskiptabankanna þriggja til að standa af sér efnahags- leg áföll innan íslenska hagkerfisins hefur aukist á síðustu þremur árum að mati alþjóða matsfyrirtækisins Fitch Ratings. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Fitch gaf út í gær um íslensku viðskiptabankana þrjá; Íslandsbanka, KB banka og Lands- bankann. Þó segir í skýrslunni að vegna þess hve íslenska hagkerfið er lítið og vegna þess þjóðhagslega mis- vægis sem nú ríki sé enn talsverð áhætta til staðar hjá bönkunum komi til áfalla í hagkerfinu. Í skýrslunni er fjallað um næmni íslensku bankanna fyrir áhrifum gengis- og vaxtabreytinga, fjár- mögnun og greiðsluhæfi þeirra. Fitch segir að sterk eiginfjárstaða bankanna gefi þeim aukið svigrúm til að takast á við efnahagsleg áföll inn- an hagkerfisins. Þá séu þeir ekki eins háðir íslenska hagkerfinu og áður vegna aukinna umsvifa á alþjóða- mörkuðum. Fitch bendir þó á að hröð útrás bankanna á erlenda markaði kalli einnig á flóknari stjórnun þeirra vegna aukinnar gengisáhættu og aukna þörf fyrir fjármögnun. Þá seg- ir að þýðingarmikil framför hafi átt sér stað hjá bönkunum í áhættustýr- ingu, sem auki getu þeirra til að standa af sér efnahagleg áföll sem endurspeglist í lánshæfismati bank- anna og að því hafi ekki verið breytt. Aukin geta til að takast á við áföll EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Byr ehf. hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Tæknivali en að félaginu standa sömu aðilar og eiga meiri- hluta í upplýsingatæknifélaginu Þekkingu, auk fleiri fjárfesta. Selj- andi er Fons eignarhaldsfélag sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar og er kaupverðið trúnaðarmál. Nýir eigendur hafa þegar tekið við félaginu og er Stefán Jóhann- esson stjórnarformaður. Nýr for- stjóri Tæknivals er Magnús V. Snædal. Sigrún Guðjónsdóttir frá- farandi forstjóri verður nýjum eigendum innan handar á næstu vikum. Taprekstur hefur verið viðvar- andi hjá félaginu undanfarin ár en velta síðasta árs nam um 1.100 milljónum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að gripið hafi verið til aðgerða til hagræðingar í rekstri félagsins og muni þær skila sér í bættri afkomu á þessu ári. Eignarhaldsfélagið Byr kaupir Tæknival Morgunblaðið/Kristinn Eigendaskipti Magnús V. Snædal, nýr forstjóri Tæknivals, og Stefán Jó- hannesson, stjórnarformaður Eignarhaldsfélagsins Byrs. „ÍSLENDINGAR geta ekki eignast allt sem þeim dettur í hug. Að minnsta kosti ekki þegar þeim dett- ur í hug að reyna að eignast þjóð- arleikvang Dana,“ segir í frétt Børsen í gær en þar er greint frá því að bæði íslenskur og breskur fjár- festingarsjóður hafi skoðað kaup á Parken, danska þjóðarleikvanginum í Kaupmannahöfn og að málin hafi verið komin það langt að bæði Ís- lendingarnir og Bretarnir hafi verið nálægt því að leggja fram kaup- tilboð. Er Dönum að vonum brugðið við þessa frétt. Segja má að ef af kaupum Íslendinganna hefði orðið hefði að nokkru verið hefnt ófara ís- lenska knattspyrnuliðsins sem tap- aði þar 14–2 fyrir Dönum margt fyr- ir löngu og raunar 6–0 fyrir ekki svo mörgum árum. Hinn íslenski fjár- festir, sem renndi hýru auga til Parken, er ekki nafgreindur í frétt- inni og heldur ekki sá breski. Danski auðkýfingurinn Steen Larsen keypti stóran hlut í Parken síðastliðið haust og tryggði að leik- vangurinn yrði áfram í danskri eigu. Félag á vegum Steen Larsen á nú 33,19% hlut en mun væntanlega ekki auka við hann frekar þar sem yf- irtökuskylda myndast þegar ein- stakur hlutahafi fer yfir 33,33% eignarhlut. Það var Flemming Østergaard, öðru nafni Don Ø, sem seldi Larsen, en hann vildi ekki að útlendingar eignuðust þjóðar- leikvang Dana. Íslendingar vildu kaupa Parken í Kaupmannahöfn Vildu eignast Parken Knötturinn hafnar enn einu sinni í marki Íslendinga á Idrætsparken eða Parken haustið 1967. Fjórtán sinnum máttu Íslending- ar sækja boltann í netið og náðu að skora tvisvar hjá Dönum. 6 )G -H8    C C &:-= ! I C C ? ?  J,I     C C J,I * % 6      C C 5?=I !K L%  C C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.