Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505. Opið virka daga 10-18, laugardaga kl. 10-16. Full búð af nýjum vorvörum jakkar, stuttkápur,pils, buxur, bolir, dragtir.j , , il , , li , i . Holt | Ekki þykir fýsilegt að byggja lægra á reitnum milli Þverholts og Einholts en gert er ráð fyrir í þeim tillögum sem auglýstar voru 16. janúar sl. í kjölfar athugasemda íbúa í nágrenn- inu. Ástæðuna segir Kári Arngrímsson, for- stjóri Atafls, sem hefur byggingarétt á hluta reitsins, m.a. þá að dýrara sé að kaupa hús, rífa niður og byggja svo upp á nýtt, en að byggja á nýrri lóð. Þá séu tveggja hæða bílakjallarar undir öllum húsum fyrirtækisins á reitnum, sem geri framkvæmdina enn dýrari. Kári segir þó ekki hátt byggt miðað við upp- haflegar hugmyndir og fyrirtækið sé komið að mörkum viðunandi hagnaðar af byggingunni. „Það er verið að rífa 11.000 fermetra af hús- næði, en það eru verðmæti sem þarf að dekka í uppbyggingunni,“ segir Kári. „Þetta er komið á ystu mörk og þá snúa menn sér að öðrum nýt- ingarmöguleikum.“ Kári segir upphaflega hafa verið gert ráð fyrir því að bæta það atvinnu- húsnæði sem fyrir var og byggja upp verslun og jafnvel verksmiðjur á reitnum, en hugmynd- ir borgarinnar hafi hins vegar snúið að íbúða- húsnæði og samstaða hafi náðst um það. Kjörið til að fækka bílum Varðandi bílastæðamálin segir Kári bíla- kjallara undir öllu svæðinu. eins og því er stillt upp. „Það er gert ráð fyrir einu bílastæði á íbúð og svo geta menn keypt sér aukastæði. Þetta svæði er hins vegar mjög miðsvæðis og helstu staðir innan fimm mínútna göngufæris, þannig að þetta mun draga að sér fólk sem vill draga úr einkabílanotkun sinni og jafnvel fækka heim- ilisbílunum um einn,“ segir Kári og bætir við að vissulega muni uppbyggingin þýða aukna um- ferð, en hún muni aukast hver sem uppbygg- ingin er á svæðinu. „En við trúum því eftir að hafa unnið að þessum hugmyndum með borg- inni í þrjú ár og komist að ákveðinni niðurstöðu sem var lögð fyrir íbúana, að þetta eigi eftir að geta gengið upp.“ Kári segir mikinn áhuga á íbúðum á hinum áformaða reit. „Það er hringt reglulega, sér- staklega eftir að þetta fór í auglýsingu,“ segir Kári og bætir við að fyrirtækið sé afar ánægt með samstarfið við borgina sem hafi verið mjög gott og málefnalegt. „Allir hafa sýnt skynsemi og gott samstarf í þessu máli, líka nágrann- arnir. Auðvitað verða aldrei allir algerlega sátt- ir, en það er tekið tillit til athugasemda og það hefur allt farið vel fram.“ Dagur B. Eggertsson, formaður Skipulags- ráðs Reykjavíkur, segir að verulega hafi verið komið til móts við athugasemdir nágranna, en lægst sé byggt næst byggð- inni Einholtsmegin. „Þar eru fjórar hæðir næst göt- unni og fyrsta hæðin er inn- dregin, en hún fer hæst í sex hæðir norðar á reitnum, þar sem skuggavarpið gengur síður á íbúðirnar í grennd,“ segir Dagur. Á reitnum hefur í áratugi verið atvinnu- og iðnaðar- húsnæði sem fullútleigt myndi að sögn Dags draga til sín töluvert mikla umferð. „Það er alls óljóst hvort íbúðarhúsnæði yki eða drægi úr umferðinni,“ segir Dagur og bætir við að göturnar í kring eigi vel að geta borið viðbótarumferðina frá hinum nýju hús- um, þótt Háteigsvegurinn sé orðinn þröngur, en um fleiri götur sé að ræða á svæðinu. Þó seg- ir hann ekki ráðlegt að beina umferð frá Há- teigsvegi t.d. með einstefnu í Einholti. „Okkur sýnist á þessu svæði hentugra að hafa straum- ana fleiri og minni en að fækka þeim og beina umferð á vissar götur.“ Tryggt gegn skemmdum vegna sprenginga Hvað varðar áhyggjur íbúa af sprengingum og áhrifum þeirra á lagnir segir Dagur ljóst að slíkt sé á ábyrgð framkvæmdaraðila. „Við mun- um sjá til þess að ítrustu kröfum verði fylgt, all- ir fái eignir sínar metnar og lagðar verði fram nægjanlegar tryggingar svo enginn beri skaða af, eins og gert hefur verið á sambærilegum reitum með góðum árangri,“ segir Dagur. Skipulagsyfirvöld telja að bílastæðin sem gert er ráð fyrir vegna uppbygingarinnar muni uppfylla þær kröfur sem hin nýja byggð skap- ar. „Sumir íbúar hafa áhyggjur af því að fleiri bílastæði muni draga að sér meiri umferð, svo þarna felst galdurinn í því að ná betra jafnvægi. Það á sérstaklega við um námsmannaíbúðirnar sem þarna rísa. Þetta er lykilsvæði fyrir fólk sem vill spara það við sig að vera á tveimur bíl- um,“ segir Dagur. „Þessi uppbygging á að geta aukið gæðin í hverfinu, leitt af sér blómlegri þjónustu við íbúa, bætt umhverfið og allar líkur á að þetta muni leiða til hækkandi fasteigna- verðs á svæðinu. Með verkefninu Hlemmur+ erum við að lyfta þessu svæði og stuðla að því að þetta verði eitt eftirsóttasta íbúðasvæði í borginni.“ Dýrt að rífa og byggja Eftir Svavar Knút Kristinsson Svavar@mbl.is Dagur B. Eggertsson HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ VÉLAVERSLUNIN Fossberg í Reykjavík, sem verið hefur í eigu tveggja fjölskyldna allt frá stofnun árið 1927, var seld síðastliðinn föstudag. Það voru þeir Benedikt Jóhannsson og Grettir Sigurðarson, sem hafa unnið hjá Fossberg undanfarin þrjú ár, sem keyptu reksturinn. Nýlega var ákveðið að selja hið gamalgróna fjölskyldufyrirtæki, og segir Grettir að þeir Benedikt hafi þá séð sér leik á borði og keypt það. „Eigendurnir vildu endilega að þeir sem tækju við myndu halda Fossberg nafninu gangandi,“ segir hann. Fossberg var stofnað árið 1927 af Gunnlaugi Fossberg, en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra fyrirtæk- isins fyrstu 22 árin. Með honum þessi ár var Bjarni Jónsson, sem tók við framkvæmda- stjórn af Gunnlaugi, en hann átti einnig hlut í fyrirtækinu. Niðjar þeirra hafa svo rekið það fram til þessa. Verslunin hóf starfsemi á Vesturgötu og starfaði þar í mörg ár en var svo um langt skeið til húsa á Skúlagötu 63. Fyrir ári fluttist hún svo í Dugguvog 6 eftir að hafa um hríð verið rekin á Suðurlands- braut. Gamalt og þekkt nafn Spurður um hvernig sé að taka við rekstri fyrirtækis sem svo lengi hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar segir Grettir að það sé nokkuð sérstakt, enda sé um gamalt og þekkt nafn að ræða. „Þetta er nokkuð stórt skref enda hafa fyrirtæki gengið kaupum og sölum nokkuð títt. Mörg hafa sprottið upp og hætt starfsemi jafnharðan, en Fossberg hefur staðið þetta allt af sér,“ segir Grettir. Skemmtilegt sé að taka við fyrirtækinu núna. Þeir Benedikt hafi undanfarin ár starfað við sölu vara Fossberg á landsbyggðinni og þar þekki þá nú orðið flestir. Nú munu þeir taka alfarið við rekstrinum en hjá Fossberg eru seld verkfæri í málm- og tréiðnað og allt sem því fylgir, „allt frá minnstu skrúfum“, segir Grettir að lokum. Nýir eigendur taka við vélaversluninni Fossberg sem var rekin af sömu fjölskyldunum í um 80 ár Morgunblaðið/Brynjar Gauti Traustir menn Þeir Benedikt og Grettir í Fossberg munu halda nafni fyrirtækisins á lofti. Skemmtilegt að taka við rekstrinum AUSTURLAND tækjum og búnaði vegna meðferðar var almennt gott á sjúkrahúsinu. Þá má nefna að sjúklingar töldu rúmin á deildum þægileg og and- rúmsloft þótti einnig gott á þeim deildum sem rannsóknin náði til að mati sjúklinga. Út frá könnuninni voru metnir þættir sem ástæða þykir til að vinna áfram með, þó svo þeir fái almennt góða einkun. Þar má nefna mat og drykk, „enda aldrei hægt að gera öllum til hæfis í mat og drykk,“ eins og það var orðað við kynningu á könnuninni, möguleika á að tala í einrúmi við hjúkrunarfræðinga, aðgengi að upp- lýsingum um hvaða læknir væri ábyrgur fyrir meðferð í hverju tilviki og upplýsingar um sjálfsbjörg. Umrædd könnun var gerð á liðnu ári, þannig að samskonar könnun verður gerð á því næsta. „Þá ættum við að fá vísbendingar um hvort okk- ur hefði miðað áfram svo sem metn- aður okkur er,“ segir Bjarni Jón- asson, formaður stjórnar FSA. Halldór segir niðurstöðuna í takt við það sem menn áttu von á, „okkar tilfinning er sú að flestir séu sáttir við þá þjónustu sem þeir fá hér.“ Halldór nefndi líka að kröfur sjúklinga sem og aðstandenda þeirra væru vaxandi og menn yrðu að vera tilbúnir að mæta þeim. SJÚKLINGAR á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri eru almennt ánægðir með þjónustu þess. Meiri- hluti þeirra telur að þeir hafi fengið bestu mögulegu læknismeðferð og að starfsfólk hafi sýnt þeim áhuga, virð- ingu og skilið hvernig þeir upplifðu aðstæður sínar. Þetta kemur fram í þjónusturann- sókn sem IMG Gallup gerði fyrir FSA, en á ársfundi á liðnu ári skrifaði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra undir stefnu og framtíðarsýn sjúkra- hússins á tímabilinu frá 2005 til 2010, þar sem kveðið er á um að gerðar verði reglubundnar kannanir meðal sjúklinga. Tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um framkvæmd sem flestra þjónustuþátta sjúkrahússins, hvort og þá hver megi bæta úr og á hvaða sviðum takist vel til. Kannanir sem þessi verða gerðar á tveggja ára fresti og svo hægt verði að fylgjast með þróun og gæðum þjónustunnar á hverjum tíma. „Það er mikilvægt að gera mælingar á því sem við erum að gera, sjá hvernig sjúklingarnir upp- lifa þá þjónustu sem við veitum og á hvaða sviðum við getum bætt okkur. Við viljum alltaf gera betur,“ segir Halldór Jónsson forstjóri FSA. Fram kom í könnuninni að viðmót á stofnuninni var gott í garð aðstand- enda og vina sjúklinga og aðgengi að Sjúklingar ánægðir með þjónustu FSA Morgunblaðið/Margrét Þóra Gæðakönnun Bjarni Jónasson, formaður stjórnar FSA, Sigríður Ólafs- dóttir frá IMG Gallup og Halldór Jónsson, forstjóri FSA, kynntu niðurstöðu könnunar á gæðum þjónustu sem FSA veitir. Afbrot | Helgi Gunnlaugsson, pró- fessor við Háskóla Íslands, og Rann- veig Þórisdóttir, félagsfræðingur við embætti Ríkislögreglustjóra, halda erindi við Háskólann á Akureyri, í Sólborg, stofu L101 í dag kl. 16. Fjallað verður um niðurstöður nýrr- ar rannsóknar meðal þolenda af- brota á Íslandi í samanburði við op- inbera skráningu lögreglunnar. Fundurinn er haldinn á vegum ný- stofnaðra Samtaka félagsfræðinga á Norðurlandi.    Rósenborg | Íþrótta- og tóm- stundaráð hefur ákveðið nýtt nafn á hús gamla Barnaskóla Akureyrar. Þar er nú hýst starfsemi Hússins, Punktsins og Menntasmiðjunnar og fleira sem tengist tómstundum. Nýja nafnið er Rósenborg en und- irtitillinn er Möguleikamiðstöð. ÞEIR voru hraustlegir karlarnir í Slökkviliði Akureyrar sem mættu í fullum skrúða við Ráð- húsið á Akureyri um hádegisbil á öskudag. Þeir voru ekki beint í öskudagsliði eins og veg- farendur gætu haldið þar sem þeir stilltu sér upp framan við Ráðhúsið og sungu fullum hálsi Hraustir menn – og gerðu það vel. „Við tókum eina æfingu áður en við fórum út úr húsi,“ sagði Jón Knútsson, einn slökkviliðsmanna, en liðsmenn vildu minna á sig með þessum hætti. Hraustir menn Morgunblaðið/Margrét Þóra Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.