Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 39 MINNINGAR ✝ SigurðurTrausti Kjart- ansson fæddist í Reykjavík 25. maí 1968. Hann lést í vinnuslysi í Kaup- mannahöfn 22. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Kjartan Trausti Sigurðsson, farar- stjóri, f. 22. septem- ber 1939, og Unnur Jensdóttir, ljósmóðir og söngkennari, f. 8. mars, 1941 – þau skildu. Sigurður Trausti var yngra barn þeirra, en systir hans, Krist- ín, er tveimur árum eldri, f. 12.5. 1966, gift Philip Maymann, f. 29.12. 1965. Börn þeirra eru: Emma, f. 28.7. 1998, Mark, f. 12.5. 2004, og Victor, f. 3.11. 2005. – Bera þau eftirnafnið Maymann. Sigurður Trausti, sem var ein- hleypur og barnlaus, ólst upp í Reykjavík og gekk í Melaskóla og Hagaskóla. Hann út- skrifaðist síðar sem stúdent frá Mennta- skólanum í Reykja- vík – fór þaðan í Tækniskólann og lauk þaðan námi, fyrst sem iðnrekstr- arfræðingur og síð- ar sem iðntækni- fræðingur. Sigurður Trausti vann m.a. hjá Granda h/f og Öku- skóla Íslands áður en hann flutti til Danmerkur 29.7. 1998. Hann vann þar sem tæknifræðingur við land- mælingar, fyrst hjá verktakafyrir- tækinu Comet a/s við byggingu nýja Metrokerfisins í Kaupmanna- höfn, svo hjá Phil & Søn a/s, m.a. í Grænlandi og Noregi og loks hjá Hoffmann a/s. Útför Sigurðar Trausta verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á, í víðáttu stórborgarinnar. En dagarnir æða mér óðfluga frá og árin án vitundar minnar. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd, gleymd’ ekki hvað sem á dynur, að albesta sending af himnum send, er sannur og einlægur vinur. (Höf. ók.) Af hverju er ungu fólki í blóma lífsins, sem virðist eiga svo bjarta framtíð, kippt í burtu svo fyrirvara- laust? Við fáum víst aldrei svar við því. Sigurður bróðursonur minn var einn af þessum ungu mönnum, hvers manns hugljúfi, alltaf bros- andi, með glettni í augunum. Hann átti ekki auðveld æsku- og unglingsár vegna sinna veikinda, en hann var svo lánsamur að fá fullan bata við að fara í stóra og tvísýna aðgerð til Bandaríkjanna. Og hafði átt yndisleg ár eftir það. Og svo er öllu lokið á augabragði. Sigurður átti bara eina systur, Kristínu, tveimur árum eldri en hann, og hafa þau alla tíð verið ná- in, þótt þau séu óskaplega ólík. Ein skemmtilegasta minning um þau systkin er frá því er ég kom eitt sinn í heimsókn á Tjarnargötuna, en þar ólust þau upp öll sín upp- vaxtarár. Þá voru þau svo áköf í að segja mér frá útilegu sem þau höfðu farið í á sunnudaginn með pabba sínum. Þau höfðu gengið niður í Hljóm- skálagarð, Kristín með dúkkuvagn- inn sinn og Sigurður með bílinn sinn, en pabbi þeirra var með nesti í bakpoka og tjald. Í Hljómskála- garðinum var tjaldað og það eitt sunnudagseftirmiðdegi og áttu þau ekki til nógu sterk orð yfir það hversu stórkostleg útilega þetta hefði verið. Þau áttu eftir að fara í margar útilegur síðar og var Krist- ín alveg ótrúlega dugleg að dröslast með bróður sinn með sér, þótt það færi alveg í hennar fínustu taugar hversu rólegur og yfirvegaður hann var alltaf, en hún þurfti helst að gera hlutinn ekki síðar en í gær. Þegar Kristín giftist og flutti til Danmerkur leið ekki langur tími þar til Sigurður var fluttur þangað líka. Þau gátu ekki hvort án annars verið. Þetta var mjög erfið ákvörðun fyrir Sigurð, að skilja móður sína vita heilsulausa eina eftir. En þau töluðust við í síma flesta daga og hann kom í heimsókn eins oft og hann gat. Börn Kristínar dýrkuðu frænda sinn. Þegar hann kom í heimsókn til þeirra þá komst hann varla inn úr dyrunum áður en þau voru kom- in upp í fangið á honum. Ég held samt að það lýsi Sigurði best hvernig hann var við móð- urömmu sína eftir að hún fór á Elliheimilið Grund. Þá þurfti hann flesta daga að kíkja aðeins til ömmu (eins og hann sagði) á leið- inni heim úr skólanum. Amma hans og afi á Akranesi voru líka afar stolt af Sigurði og dáðust mikið að dugnaði hans og þrautseigju í skóla. Hann missti oft úr skóla vegna veikinda, en var af- bragðs námsmaður. Ég man hvað þau voru hreykin þegar hann setti upp stúdentshúfuna. Sigurður hafði komið sér vel fyr- ir í Danmörku. Hann naut sín sér- staklega í söngnum, en hann hafði erft sérstaklega fallega söngrödd frá mömmu sinni, sem nýttist hon- um vel í kórastarfi. Megi minn kæri frændi hvíla í ró. Þegar ég missti 17 ára son minn 1967 í vinnuslysi bárust mér svo falleg eftirmæli frá kærum vini og sveitunga og finnst mér síðasta er- indið í þeim eins geta átt við um Sigurð: Góða mamma, grát þú eigi, genginn sonur biður lágt, skamma tíð þó skilji vegi skulum hittast aftur brátt. Um samvistanna dáða daga dýrðleg minning vakir blíð, allt sem fæðist lífsins daga lifir stutta ævitíð. Elsku bróðir, Unnur og Kristín, megi góður Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Vigdís (Munda frænka). Kæri vinur. Mikið skelfing hefur mér liðið skringilega síðan hún mamma þín hringdi í mig og sagði mér þær hræðilegu fréttir að þú værir dáinn. Hugurinn leitaði til baka til þess tíma sem við vorum par. Þú varst fyrsta ástin mín og það er nú ekkert lítið. Ég hef und- anfarna daga rifjað upp í gegnum tárin ýmislegt úr okkar sambandi og þá er nú broslegasta minningin sú þegar við kynntumst. Það var haustið 1988 en fullorðna fólkinu í félaginu okkar (Laufinu) fannst sniðugt að stofna einhvers konar hóp innan félagsins sem væri ætl- aður ungu fólki með flogaveiki. Það var gott og gilt en þarna mættum við ásamt tveimur öðrum ungling- um í lítið herbergi í Ármúlanum og ekkert okkar þekkti hin. Ég hafði að vísu séð hina stelpuna í hópnum en þekkti hana lítið. Kvöldið fór í að tala saman og að reyna að kynn- ast, deila reynslu okkar að vera unglingar með flogaveiki o.fl. Ég man lítið eftir kvöldinu sjálfu nema öllum augnagotunum sem okkur fóru á milli, smábros en aðallega að við vorum feimin og fórum eig- inlega hjá okkur þegar við tókum hvort eftir öðru. Næstu daga á eftir var ég staðráðin í að hitta þig aftur en það var torsótt, við höfðum nefnilega ekki haft vit eða þor til að skiptast á símanúmerum. Þetta var fyrir tíma internets og gsm-síma og það eina sem ég vissi var að þú hét- ir Sigurður, ættir heima í Reykja- vík og að þú værir á síðasta ári í MR. Nú voru góð ráð dýr en ég varð mér úti um símabók úr MR og úpps! Fleiri en einn Sigurður í bók- inni í 6. bekk og þá var ekkert ann- að að gera en að prófa sig áfram. Og viti menn, það heppnaðist í fyrstu tilraun, þú svaraðir sjálfur og vildir meira að segja hitta mig. Strax frá fyrsta degi áttum við vel saman og hver veit ef við hefðum verið aðeins þroskaðri hvernig framtíðin hefði orðið. En þó að upp úr slitnaði hjá okkur tæpu ári seinna hefur einlæg vinátta og væntumþykja einkennt okkar sam- skipti. Hér áður fyrr hittumst við reglulega á fundum í félaginu okk- ar en við höfum bæði haft metnað fyrir tilvist þess. Í seinni tíma, eftir að þú skrappst á ráðstefnu fyrir hönd Laufsins en fluttir aldrei aft- ur heim, hafa samverustundirnar verið fáar en góðar. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og við sem eftir stöndum trúum því að þér hafi verið ætlað stærra og meira hlutverk á æðri stað. Ég geymi allar okkar dýrmætu minn- ingar í hjarta mínu og þær eru ófá- ar. Takk fyrir samfylgdina, kæri vinur, og takk fyrir að vera sá sem þú varst. Elsku Unnur, Kjartan, Kristín og fjölskylda, ég og fjölskylda mín vottum ykkur dýpstu samúð á þess- um erfiðu tímum. Megi góður Guð leiða ykkur og gefa styrk til að sjá ljósið á ný. Guðrún Margrét. Mig langar að kveðja vin minn Sigurð sem ég hef þekkt alla mína ævi. Hann var fæddur í maí og ég í júní sama ár og hann á stóran þátt í æskuminningum mínum. Hann var sá allra traustasti vinur sem nokkur gat átt og mun ég sakna hans og hans sterka og trausta faðmlags sem maður fékk óspart þegar við hittumst. Ég er ekki al- veg að kyngja því að hann sé farinn en ég mun ylja mér við minningar um yndislegan, greindan og hæfi- leikaríkan mann. Ég á svo margar minningar frá Tjarnargötunni sem barn, afmælin, heimsóknirnar og þegar ég fékk að gista. Amma Kristín fór þá alltaf með bænirnar með okkur og þær lærði ég af henni, Sigurði og Kristínu. Ynd- islega fjölskylda, Unnur, Kjartan, Kristín, Philip og börn, Guð veri með ykkur. Kveðja. Guðný. Félögum í Kór íslenska safnaðar- ins í Kaupmannahöfn verður síðast- liðinn fimmtudagur lengi minnis- stæður. Þann dag barst okkur sú harmafregn að Sigurður Trausti Kjartansson væri látinn. Það er erfitt fyrir okkur að kyngja því að Siggi, sem var ungur maður í blóma lífsins, muni aldrei aftur syngja með okkur. Það er sárt að hugsa til þess að við munum aldrei aftur hitta þennan kæra félaga okk- ar og vin. Siggi var virkur í tónlistarstarfi Íslendinga í Kaupmannahöfn. Hann var einnig í dönskum kór og söng í öðrum sönghópum auk þess að starfa sem fastráðinn söngvari við Sions-kirkju á Austurbrú. Siggi hafði verið félagi í kórnum okkar lengur en við flest, eða í tæp átta ár. Það er óhætt að segja að hann hafi verið einn af máttarstólpum kirkjukórsins. Hann hafði trausta og góða bassarödd, enda gekk hann undir nafninu Siggi bassi meðal vina og kunningja úr kórastarfinu. Siggi las nótur eins og ekkert væri og var fljótur að læra nýjar söng- línur. Aðrir kórfélagar nutu góðs af því, enda var Siggi natinn við að aðstoða þá sem minni söngreynslu höfðu og taldi það ekki eftir sér að leiðbeina og hjálpa. Það var líka gott að vita til þess að það skipti engu máli hversu djúpt sönglín- urnar lágu, Siggi náði þeim alltaf. Því var ekki óalgengt að heyra strákana í bassanum segja: „Siggi, þú tekur þetta,“ ef svo bar undir og okkar maður lét djúpa tónana óma fyrirhafnarlaust. Sigga bassa verður sárt saknað úr kirkjukórsstarfinu. Fyrir utan að vera góður söngvari, var hann skemmtilegur félagi og vinur sem kunni að njóta lífsins. Hann var hlýr í viðmóti og blátt áfram. Siggi var einhvern veginn alltaf hann sjálfur, rólegur og mikill húmoristi. Það var eitthvað sérstakt við hann Sigga og ekki annað hægt en að þykja vænt um hann. Við félagar úr Kór íslenska safn- aðarins í Kaupmannahöfn erum af- ar þakklát fyrir þær góðu stundir sem við áttum með Sigga og mun- um varðveita minninguna um góðan félaga. Við vottum fjölskyldu og ástvinum Sigga okkar dýpstu sam- úð. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Félagar í Kór íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn. Það er algjörlega óskiljanlegt að Sigurður hafi verið tekinn frá okk- ur í hörmulegu vinnuslysi. Sigurður var sterkur Íslendingur með fallegt og tilfinninganæmt hjarta. Hann var trúr sínum sann- færingum og gildum; hjálpsemi hans og tillit til samferðamanna sinna var alveg sérstakt og góða skapið hans smitandi. Sigurður var einstök manneskja með mikla útgeislun. Hann var með afbrigðum góður söngvari með óvenjuglæsilega bassarödd. Við minnumst allra þeirra stunda sem við áttum með Sigurði við söng í kvartettinum okkar. Hann skilur eftir sig stórt tómarúm. Hugsanir okkar eru hjá fjöl- skyldu Sigurðar. Nina og Michael, Helle og Tore. Yndislegur vinur okkar og hlýr bassasöngvari, Sigurður Kjartans- son, er skyndilega fallinn frá. Það er óskiljanlegt og óbærilegt. Sig- urður var einstök manneskja, sem ómögulegt var annað en að þykja vænt um. Frá honum geislaði lífs- gleði og mikil hlýja og hann kenndi okkur að skynja hið góða og fagra. Hann var klettur, sem stóð við bak vina sinna og hafði ríka réttlæt- iskennd. Við þökkum honum fyrir tónlistina og hinar mörgu góðu upplifanir og þær ferðir, sem við höfum átt saman. Við munum ávallt muna hve hjálpsamur hann var, smitandi góða skapið hans og hlýj- an hláturinn. Án þessa verður erfitt að komast af. Það verður erfitt að halda áfram að syngja. Kammerkórinn Broccoli, Kaupmannahöfn. Það var forvitinn ungur drengur sem oft fylgdi í kjölfar stóru systur sem kom stundum niður í kjall- arann á Tjarnargötunni til þess að hitta leigjandann, listamanninn. Hún var kröftug og ákveðin en hann sérstaklega einlægur, íhugull en opinn og einstaklega móttæki- legur fyrir lífi og listum í kringum sig. Þau stóðu frammi á ganginum og horfðu stórum augum gegnum hálfopna hurðina og reyndu að sjá hvað listamaðurinn var að sýsla með í hornherberginu. Þar voru að verða til súrrealískar teikningar í sterku ljósi frá Lúxorlampanum, þetta höfðaði til frjós ímyndunar- afls ungra barna sem héldust í hendur frammi á rökkvuðum gang- inum. Svo opnaðist hurðin æ meir með litlum fingrum og spurninga- flóðið skall á listamanninum. Minnti þetta helst á dularfullt myndbrot í einhverri stórmynd Bergmans, kvikmynd sem fjallar um þroskaferli mikillar fjölskyldu á umbrotatímum. Þessar heimsóknir eru mér mjög eftirminnilegar sem og dýrmætar og hafa verið greypt- ar i huga minn alla tíð síðan. Siggi Kjartans sagði kannski ekki margt á þessum árum en þeg- ar hann tjáði sig þá var það hnit- miðað og markvisst, fullur af metn- aði og húmor. Hann vildi alltaf gera miklu meira en hann gat, heilsu- farsins vegna. En þegar fram liðu stundir og með auknu sjálfstrausti þá varð hann að skemmtilegum ungum manni sem blómstraði í vinnu og leik. Eftir að hafa leitað sér lækninga í Ameríkunni, þangað sem systir hans fylgdi honum, þá fór heldur betur að birta til í tilvist Sigurðar. Hann stundaði nám af miklum áhuga og sinnti sönglistinni sem honum var í blóð borin og fylgdi hjartanu með eigin útrás. Oftast eftir að maður hafði hitt og átt samtal við Sigurð, alltaf svo „cool“ og yfirvegaður, annaðhvort á förnum vegi eða í hópi vina varð maður enn sannfærðari um að hann væri með stærra og hlýrra hjarta en flestir aðrir. Einlægt viðhorf hans til lífsins og tilverunnar var aðdáunarvert og hefur eflaust hjálpað honum við að ganga í gegn- um brimrót flókins fjölskyldulífs. Hann leit upp til Kristínar systur sinnar enda stóðu þau alla tíð þétt saman. Nú er Sigurður horfinn úr þessu lífi eftir hörmulegt slys í Danmörku sem ekki gerði boð á undan sér. Þetta eru sorgar- og erfiðleika- tímar hjá fjölskyldunni, aðstand- endum og vinum. Vona ég að Guð hjálpi þeim við að takast á við sorg- ina. Við öll erum ríkari fyrir það eitt að hafa kynnst einstökum dreng. Votta ég foreldrum hans, Kjart- ani og Unni, Kristínu og fjölskyldu hennar, ásamt öðrum aðstandend- um innilegustu samúð mína við frá- fall Sigurðar. Vignir Jóhannsson. Fyrirvaralaust hefur sorgin lagst yfir hjarta félaga okkar og vinar, Kjartans Trausta, við sonarmiss- inn. Óvæntar fréttir bárust um að Sigurður, sonur hans og Unnar, hefði látist af slysförum í Kaup- mannahöfn í síðustu viku. Það er okkur öllum mikið áfall en þó sér- staklega þeim sem næst standa er einn úr hópnum hverfur á braut. Viljum við veita styrk og sýna sam- stöðu með kærum vini á erfiðum tímum. Vinir og gamlir skátafélagar í Kleinuhringnum samhryggjast innilega foreldrunum, Kjartani og Unni, ásamt öðrum aðstandendum við fráfall Sigurðar og vottum þeim okkar innilegustu samúð. Skátafélagar af Akranesi. SIGURÐUR TRAUSTI KJARTANSSON Ástkær dóttir mín, systir og mágkona, ÁLFRÚN EDDA SÆM ÁGÚSTSDÓTTIR, lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við Hring- braut mánudaginn 20. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Rauða krossinn. Guðný Vilhelmína Karlsdóttir, Daði Sæm Ágústsson, Halldóra Elísabet Kristjánsdóttir, Gústav Ágústsson, Hrönn Ágústsdóttir, Sigurbjörn Fanndal, Barði Ágústsson, Hrafnhildur Ingadóttir, Auður Björk Ágústsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Hörður Ágústsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.