Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 25
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Fyrir vöðva og liðamót
GLUCOSAMINE -HCI
SUÐURNES
Keflavík | „Strákarnir mínir voru í körfubolta og sá yngri er
enn að. Ég fór í þetta til að gefa til baka það sem búið var að
gefa þeim,“ segir Kristín Herdís Kristjánsdóttir, fyrrverandi
formaður unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Keflavíkur,
sem fengið hefur afhentan starfsbikar félagsins fyrir árið
2005.
Miklar framfarir urðu í rekstri unglingaráðsins þau fimm
ár sem Herdís var formaður. Hún lagði áherslu á að fá góða
þjálfara til starfa og koma fjármálunum í lag. Einar Haralds-
son, formaður Keflavíkur, gat þess þegar hann afhenti starfs-
bikarinn,að Kristín hefði stundum beðið fyrir utan íþrótta-
húsin til þess að sjá hvort þjálfarnir mættu á réttum tíma og
stæðu sig. „Okkur tókst ótrúlega vel að ná þessum mark-
miðum,“ segir Herdís og leggur áherslu á að hún hafi haft
hóp af góðu fólki með sér í starfinu. Mikil fjölgun hefur orðið
á iðkendum á vegum unglingaráðsins svo framtíðin ætti að
vera björt hjá Keflvíkingum í körfunni. Í fyrravetur voru 350
börn í körfuboltanum og Samkaupsmótið var glæsilegra en
nokkru sinni fyrr. Þangað komu 850 krakkar. Kristín segir
stefnt að því að ná þúsundinu á komandi Samkaupsmóti.
„Þetta er hreint hugsjónastarf. En mér finnst ótrúlega
gaman að vinna með krökkunum og gefa eitthvað af mér til
samfélagsins, nú þegar ég er búinn að ala upp mín börn,“ seg-
ir hún.
Kristín Herdís lét nýlega af formennsku í unglingaráðinu
og Margrét Sturlaugsdóttir tók við, en er áfram meðstjórn-
andi. Hún segir að formennskunni hafi fylgt mikil vinna. Það
hafi gengið vel enda hafi hún notið skilnings fjölskyldunnar.
Nú sé hings vegar kominn tími til að minnka aðeins við sig og
fá inn nýtt hresst fólk með ferskar hugmyndir. Hún sagðist þó
starfa áfram, á meðan hún gæti miðlað af reynslu sinni.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Viðurkenning Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, af-
henti Kristínu Herdísi Kristjánsdóttur starfsbikar félagsins.
Gaman að gefa af sér til samfélagsins
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavík | Öll aðalstjórn Kefla-
víkur – ungmenna- og íþrótta-
félags var endurkjörin á aðal-
fundi félagsins sem nýlega var
haldinn. Þykja það í sjálfu sér
ekki mikil tíðindi,því félaginu og
deildum þess hefur almennt
haldist betur á stjórnarfólki en
flest önnur íþróttafélög í land-
inu.
Einar Haraldsson, formaður
Keflavíkur, segir að almennt sé
fólk ekki lengur en tvö til fjögur
ár í stjórnum íþróttafélaga. Hjá
Keflavík situr fólk mun lengur.
Algengt er að það sé tíu til
fimmtán ár í stjórn. Félagið hef-
ur frá árinu 1999 veitt viður-
kenningar fyrir fimm og tíu ára
stjórnarsetu. Á þessum tíma
hefur 51 einstaklingur fengið
bronsmerki fyrir fimm ára starf
og níu silfurmerki fyrir tíu ára
starf. Einar segist ekki hafa
skýringu á þessu, aðra en þá að
starfið sé gott og mikill metn-
aður hjá stjórnarfólkinu.
Á aðalfundinum voru veitt sex
bronsmerki fyrir fimm ára
stjórnarsetu en þau fengu Einar
Skaftason, Gunnar Jóhannsson
og Hermann Helgason, allir úr
körfuknattleiksdeild, Níels Her-
mannsson úr sunddeild og Árni
Leifsson og Geir Gunnarsson úr
skotdeild.
Veitt voru fjögur silfurmerki
fyrir tíu ára stjórnarsetu og þau
fengu Árni Pálsson úr skotdeild,
Sesselja Birgisdóttir úr badmin-
tondeild og Sigurvin Guðfinns-
son og Þórður Magni Kjartans-
son aðalstjórnarmenn. Þá voru
Jón Þorsteinsson og Bjarney S.
Snævarsdóttir sæmd starfs-
merki UMFÍ.
Keflvíking-
um helst vel
á stjórn-
arfólki