Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 49
FRÉTTIR
MARKAÐSRÁÐ Þingeyinga
fagnar áhuga Alcoa á stóriðj-
urekstri við Bakka með tilheyr-
andi nýtingu vistvænna orkulinda
í Þingeyjarsýslum.
„Markaðsráðið hefur kannað
meðal félagsmanna sinna mögu-
leg áhrif aukinna umsvifa í Þing-
eyjarsýslum á ferðaþjónustu og
verslun.
Niðurstaðan er sú að allir sem
rætt var við telja að með nýjum
atvinnutækifærum sem fylgja
stóriðju og nýtingu jarðvarma-
orku þá skapist einstakir mögu-
leikar til sóknar í greinum versl-
unar og þjónustu.
Sérstaklega líta heimaaðilar til
þeirra samgöngubóta sem fylgja
fyrrgreindum framkvæmdum en
þær munu auðvelda áframhald-
andi uppbyggingu ferðaþjónustu
á svæðinu.
Markaðsráð Þingeyinga er
tilbúið að takast á við verkefni á
öllum sviðum þjónustu og versl-
unar. Eins er félagið tilbúið að
vinna með hverjum þeim er óskar
eftir samvinnu um markaðs- og
framfaramál í Þingeyjarsýslum.“
Fagna áhuga
Alcoa á stór-
iðjurekstri
VERKFRÆÐIDEILD Háskóla Ís-
lands og Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsen hf. (VST)
hafa gert samstarfssamning um
kennslu í námskeiðinu vatnsafls-
virkjanir á meistarastigi í um-
hverfis- og byggingarverkfræði.
Í samningnum felst að VST
hefur umsjón með kennslu í
vatnsaflsvirkjunum og sér til
þess að viðurkenndir sérfræð-
ingar sem uppfylla hæfniskröfur
verkfræðideildar HÍ sjái um
kennslu í námskeiðinu. Jafn-
framt styrkir VST verk-
fræðideild HÍ með því að greiða
hluta af kostnaði við nám-
skeiðið.
Ábyrgðarmaður námskeiðsins
er dr. Gunnar Guðni Tómasson,
aðstoðarframkvæmdastjóri VST,
og umsjónarmaður af hálfu
verkfræðideildar HÍ er dr. Sig-
urður Magnús Garðarsson dós-
ent.
HÍ og VST
í samstarf um
kennslu
Barcelona er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri
við. Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins og
láta dekra við þig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg á
frábærum kjörum. Gisting á hinu glæsilega Hotel Avenida
Palace við Gran Via götuna, ein besta staðsetningin í hjarta
Barcelona, við þekktustu
verslunargötuna. Glæsilegt
fjögurra stjörnu "superior"
hótel með frábærum
aðbúnaði og þjónustu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Lúxushelgi í
Barcelona
23. mars
frá kr. 49.990
Hotel Avenida Palace ****+
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
Frá kr.49.990
M.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Avenida
Palace ****+ með morgunverði, 23. mars.
Netverð á mann.
FRÉTTABLAÐIÐ afhenti í gær í
fyrsta sinn svonefnd samfélags-
verðlaun. Ólafur Ragnar Grímsson
afhenti ein af þeim sex verðlaunum
sem veitt voru.
Verðlaunin eru veitt þeim sem
hafa lagt sitt af mörkum til að gera
íslenskt samfélag betra og voru af-
hent í sex flokkum. Aðalverðlaunin
fóru til félagsins Forma, sem eru
samtök átröskunarsjúklinga á Ís-
landi. Þessi verðlaun eru veitt fé-
lagasamtökum sem hafa unnið
framúrskarandi mannúðar- eða
náttúruverndarstarf. Ólafur Ragn-
ar Grímsson afhenti þeim verðlaun-
in og fengu samtökin pen-
ingaverðlaun upp á eina milljón
króna.
Guðbjörn Magnússon var valinn
„hvunndagshetjan“ en hann er sá
Íslendingur sem oftast hefur gefið
blóð. Í flokknum „unga hetjan“
varð Gylfi Bragi Guðlaugsson fyrir
valinu en hann sýndi rétt viðbrögð
þegar hann varð var við eld í íbúð-
arhúsi. Þráinn Hafsteinsson og
Þórdís Lilja Gísladóttir fengu verð-
laun í flokknum „uppfræðari árs-
ins“ fyrir frjálsíþróttastarf sitt hjá
ÍR. Blátt áfram, forvarnarverkefni
UMFÍ, fékk verðlaun í flokki fé-
lagasamtaka sem hafa sinnt börn-
um af sérstökum metnaði og alúð.
Toshiki Toma, prestur innflytjenda
á Íslandi, fékk verðlaun fyrir at-
lögu gegn fordómum. Verðlaunin í
þessum fimm flokkum voru fartölv-
ur eða ferðaverðlaun.
Almenningi gafst kostur á að
senda inn tilnefningar en dómnefnd
valdi handhafa verðlaunanna úr
innsendum tilnefningum. Formaður
dómnefndar er Steinunn Stef-
ánsdóttir, ritstjórnarfulltrúi á
Fréttablaðinu, en ásamt henni áttu
sæti í dómnefnd þau Davíð Schev-
ing Thorsteinsson, Svanfríður Inga
Jónasdóttir og Guðjón Friðriksson.
Ljósmynd/Hari
Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Eddu Ýri Einarsdóttur og Ölmu Dröfn Geirdal, forráðamönnum Formu, sam-
félagsverðlaunin. Á myndinni eru einnig þau sem tilnefnd voru til aðalverðlaunanna.
Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins afhent í gær
EFTIRFARANDI er ályktun fram-
kvæmdastjórnar Öryrkjabandalags
Íslands vegna skýrslu um réttlátari
notendagjöld í sjúkratryggingum á
Íslandi:
„Framkvæmdastjórn Ör-
yrkjabandalags Íslands lýsir stuðn-
ingi við þau megin sjónarmið sem
fram koma í skýrslu sérfræðinga
Tryggingastofnunar ríkisins um
réttlátari notendagjöld í sjúkra-
tryggingum á Íslandi. Miklu varðar
fyrir notendur heilbrigðiskerfisins
að kerfið sé einfaldað frá því sem
nú er, álögur lækkaðar á þá sem
þurfa á þjónustunni að halda og að
jafnræðis sé gætt á milli hópa sjúk-
linga. ÖBÍ hvetur ráðherra heil-
brigðis- og tryggingamála að skoða
skýrsluna með jákvæðum og opnum
huga og hefja þegar í stað, á grund-
velli hennar, endurskoðun laga og
reglna í nánu samráði við heildar-
hagsmunasamtök. ÖBÍ lýsir sig
reiðubúið til þess verkefnis.“
Jafnræðis verði
gætt milli sjúk-
lingahópa