Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 41
MINNINGAR
✝ Þráinn Jónsson,fæddist á Akur-
eyri 23. ágúst 1935.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 22. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Hólmfríður Guðna-
dóttir, f. 9. mars
1907, d. 2. febrúar
1984, og Jón Þórar-
insson, f. 26. febrúar
1907, d. 19. desem-
ber 1991. Þráinn
var einn átta systk-
ina. Hin eru: Þórarinn, f. 14. ágúst
1931, d. 8. júlí 1951, Guðný Halla,
f. 16. mars 1933, d. 14. apríl 2003,
Herdís Guðrún, f. 15. maí 1938,
Þórey Jarþrúður, f. 14. júní 1940,
Guðni Örn, f. 14. febrúar 1943, d.
1. október 1997, Ævar Heiðar, f.
4. ágúst 1945, Sæbjörn Jón, f. 6.
nóvember 1949. Á uppvaxtarár-
um Þráins bjó fjölskyldan á Fjólu-
götu 15 á Akureyri.
Eftirlifandi eiginkona Þráins er
Halla Gunnlaugsdóttir, f. 18. des-
ember 1938. Þau gengu í hjóna-
band 21. apríl 1957 og bjuggu alla
tíð á Akureyri. Foreldrar Höllu
voru Gunnlaugur Markússon, f.
11. janúar 1906, d. 24. febrúar
1974, og Anna Halldórsdótttir, f.
10. apríl 1908, d. 24. október 1968.
Börn Þráins og Höllu eru Ásta
Þórunn, f. 24. ágúst 1956, og
Gunnlaugur, f. 16. mars 1965.
Ásta Þórunn býr í Reykjavík
ásamt þremur börnum sínum.
Eiginmaður hennar var Ágúst
Nordgulen, f. 30. júlí 1957, d. 23.
maí 1999. Ágúst var
sonur Lúðvíks
Nordgulen og Sig-
ríðar Einarsdóttur.
Börn Ástu og
Ágústs eru Halla
Sjöfn, f. 29. desem-
ber 1979, sambýlis-
maður hennar er
Friðrik Már Stein-
þórsson, f. 29. apríl
1976, sonur þeirra
er Birkir Már, f. 12.
nóvember 2004;
Anna Rut, f. 13.
febrúar 1984, unn-
usti hennar er Gunnar Pétur
Hauksson, f. 29. nóvember 1985,
og Ágúst Orri, f. 27. mars 1991.
Gunnlaugur býr í Reykjavík
ásamt eiginkonu og tveimur börn-
um. Eiginkona Gunnlaugs er Erla
Margét Haraldsdóttir, f. 3. ágúst
1966. Foreldrar hennar eru Har-
aldur Óli Valdimarsson og Ólína
Lilja Sigurjónsdóttir. Börn Gunn-
laugs og Erlu Margrétar eru
Gauti, f. 9. ágúst 1992, og Sandra
Ýr, f. 13. maí 1996.
Þráinn hóf ungur störf hjá
vöruflutningafyrirtækinu Pétri
og Valdimar hf. Hann starfaði við
skrifstofustörf og rekstur þar all-
an sinn starfsferil og hjá þeim fyr-
irtækjum sem á eftir komu, fyrst
hjá Dreka ehf. og síðar hjá Eim-
skip Flytjanda.
Þráinn var virkur félagi í Odd-
fellow-reglunni á Akureyri í rúm
30 ár.
Útför Þráins verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi. Á stundu sem þess-
ari koma upp margar minningar
sem eru mér kærar. Ég minnist þín
sem allra besta pabba í heimi. Alltaf
varstu jafn rólegur, hvort sem þú
varst að leyfa mér að keyra bíl í
fyrsta skiptið eða í hverju öðru sem
þú kenndir mér. Ekki var vandamál
að leita til þín, sama hvað á bjátaði.
Minnisstæðar eru berjaferðirnar
okkar á haustin sem við bæði höfð-
um gaman af. Engum duldist hve
stoltur þú varst af barnabörnunum
þínum enda fylgdistu vel með öllu
sem þau gerðu. Gaman var að sjá
hve glaður þú varst þegar Birkir
Már, gullmolinn þinn, var í heim-
sókn og eitt það síðasta sem þú
spurðir um var hvort hann væri far-
inn að gera eitthvað nýtt.
Ekki varstu að kvarta síðustu ár-
in sem oft voru erfið, það var ekki
þinn stíll að bera líðan þína á torg,
enda hafðirðu mömmu sem vakti yf-
ir þér dag og nótt. Einnig hafðirðu
þessar yndislegu konur hjá Heima-
hlynningunni á Akureyri sem allar
voru þér svo góðar, enda ekki hægt
að hafa ljúfari sjúkling en þig, elsku
pabbi minn.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stef.)
Ástarkveðja.
Ásta Þórunn.
Elsku afi minn, ég sit núna í hæg-
indastólnum þínum og margar
minningarnar rifjast upp fyrir mér.
Þú varst alltaf svo rólegur og yf-
irvegaður og ekki minnist ég þess að
þú hafir nokkurn tímann verið í
vondu skapi. Það var alltaf jafn ynd-
islegt að koma norður til ykkar og
vel tekið á móti okkur. Ég man allar
bækurnar þínar og ekki fannst mér
leiðinlegt þegar þú last fyrir mig
Helgi skoðar heiminn og allar sög-
urnar sem þú sagðir mér. En aldrei
tókst þér að kenna mér að borða ber
en ég tíndi þau bara fyrir ykkur.
Þær voru ófáar berjamóferðirnar
okkar, já, og veiðiferðirnar. Þó að þú
hafir ekki komið oft suður síðustu ár
þá man ég enn hvað ég var alltaf
spennt þegar þið komuð, og hvað ég
var ánægð þegar þú ákvaðst að
koma í útskriftina mína.
Elsku afi, þú varst svo montinn
með langafastrákinn þinn hann
Birki Má, alltaf spurðirðu um hann,
hvernig hann hefði það og hvað
hann væri farinn að geta. Afi, ég lofa
að segja honum frá þér.
Jæja, afi minn, það er komið að
kveðjustund, ég veit að pabbi hefur
tekið vel á móti þér og þið vakið yfir
okkur öllum. Minningarnar eru ljós
í lífi mínu.
Þín,
Halla Sjöfn.
Mig langar að minnast afa míns,
Þráins Jónssonar, með fáeinum orð-
um.
Afi hefur alltaf verið mér mikil
fyrirmynd og ég ber einstaklega
mikla virðingu fyrir honum. Hann
var klár, traustur, góðhjartaður og
þolinmóður sem kom sér vel þegar
hann var að kenna mér ýmislegt. Afi
var sterkur persónuleiki sem kom
vel í ljós í veikindum hans, hann
kvartaði aldrei og tók öllu með jafn-
aðargeði.
Margar minningar streyma í
gegnum hugann en helstar eru þó
minningarnar um bíltúrana og spila-
kvöldin. Þeir eru nú ófáir bíltúrarnir
sem við afi fórum saman í, við
keyrðum um og spjölluðum saman.
Afi var mikill spilamaður og hann
kenndi mér margt í þeim efnum.
Þegar ég kom í heimsókn til ömmu
og afa sátum við afi oft langt fram
eftir að spila. Það var alltaf jafn
gaman.
Ég er rosalega þakklát fyrir þann
tíma sem ég átti með afa og allar
þær minningar sem ég á. Nú er
hann kominn á betri stað þar sem
honum líður vel.
Elsku amma mín, megi Guð al-
máttugur styrkja þig og varðveita í
sorg þinni sem og um alla framtíð.
Ástarkveðja.
Anna Rut.
Elsku afi. Við viljum bara þakka
þér fyrir alla þá ást, umhyggju og
fræðslu sem þú veittir okkur á okk-
ar stuttu ævi. Við munum sakna þín.
Þú varst alltaf svo góður í alla staði
og hafðir svör við öllu. Þú varst vit-
ur, traustur og áreiðanlegur.
Megir þú hvíla í friði.
Með kveðju.
Ágúst Orri og Gauti.
Látinn er á Akureyri vinur minn
og félagi, Þráinn Jónsson. Á stund-
um sem slíkum lætur maður hugann
reika og þá hrannast upp minningar
um vináttu og félagsskap um langan
aldur. Ég kynntist Þráni fyrst um
haustið 1961 þegar ég fór til Ak-
ureyrar í Menntaskólann. Hann
starfaði hjá fyrirtækinu Pétur og
Valdimar sem lengi var þekkt flutn-
ingafyrirtæki á Akureyri og víðar.
Þar starfaði Þráinn megintíma úr
starfsævi sinni, byrjaði á ferming-
araldri og vann þar þangað til fyr-
irtækið var sameinað öðru flutn-
ingafyrirtæki seint á öldinni sem
leið og Þráinn fluttist með og vann
þar til starfsþrek hans þvarr og
hann varð að hætta. Kynni okkar
Þráins og konu hans, Höllu Gunn-
laugsdóttur, jukust smám saman, en
ég gerðist félagi í Íþróttafélaginu
Þór og þar voru þau fyrir ásamt
fjölda góðra félaga og er margs að
minnast úr starfi og skemmtan með
Þórsurum. Eftir að ég fluttist til Ak-
ureyrar haustið 1971 endurnýjuðum
við fljótt kynni okkar og við inn-
göngu okkar í Oddfellowregluna
haustið 1973 má segja að við höfum
bundist tryggðaböndum sem aldrei
slitnuðu upp frá því. Kynni fjöl-
skyldna okkar urðu mikil og
ánægjuleg. Þráinn var afskaplega
þægilegur maður í allri umgengni.
Athugull, rólegur og æðrulaus og
vildi hvers manns vanda leysa og
eitt er víst að engum tróð hann um
tær. Hann var hinn mesti fagurkeri
og bera vandað bókasafn hans og
glæsilegt málverkasafn þeirra hjóna
vitni um vandaðan smekk og glæsi-
mennsku. Þráinn var afskaplega
vinsæll maður og æskuvinir hans
sýndu honum tryggð allt til enda.
Vinsældir hans sýndu sig best þegar
hann og fjölskylda hans héldu upp á
sjötugsafmæli hans í Oddfellowhús-
inu síðastliðið sumar. Að baki hans
stóð sterk fjölskylda, systkini og
ekki hvað síst kona hans Halla
Gunnlaugsdóttir og börnin þeirra
Ásta og Gunnlaugur ásamt með fjöl-
skyldum sínum. Að þessu fólki öllu
er því mikill harmur kveðinn við frá-
fall Þráins. Við höfðum öll vonast til
að honum auðnaðist að lifa lengur
þrátt fyrir áralanga baráttu við erf-
iðan lungnasjúkdóm. En enginn
ræður sínu skapadægri og nú kveðj-
um við Þráin hinsta sinni.
Ég og fjölskylda mín sendum að-
standendum öllum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og þökkum
tryggð og vináttu liðinna ára.
Arnar Einarsson,
skólastjóri á Þórshöfn.
ÞRÁINN
JÓNSSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GRÓA BJARNEY HELGADÓTTIR,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn
3. mars kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Sigrún Þorláksdóttir,
María Þorláksdóttir, Þór Jóhannsson,
Sigurjón Þorláksson, Svanfríður Magnúsdóttir,
Gunnar Þorláksson, Kristín Eyjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN KRISTINN STEFÁNSSON
bóndi,
Munkaþverá,
Eyjafjarðarsveit,
verður jarðsunginn frá Munkaþverárkirkju laugar-
daginn 4. mars kl. 13.30.
Anna Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Stefán G. Jónsson, Sigríður Jónsdóttir,
Guðrún Matthildur Jónsdóttir, Jón Már Björgvinsson,
Jón Heiðar Jónsson,
Vilhjálmur Björn Jónsson,
Guðmundur Geir Jónsson, Doris Adamsdóttir,
Þorgeir Smári Jónsson, María Stefánsdóttir,
Þóra Valgerður Jónsdóttir, Vignir Bragi Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
DAGBJÖRT Á. SIEMSEN,
Skaftahlíð 34,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
28. febrúar.
Gústav Magnús Siemsen,
Kristín Siemsen, Ásbjörn Sigurgeirsson,
Vera Siemsen,
Ólöf Guðfinna Siemsen, Baldur Bjartmarsson,
ömmubörn og langömmubarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
SVAVARS SIGURÐAR SÆBJÖRNSSONAR,
Miðnestorgi 3,
Sandgerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs, Garði,
fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur.
Guðbjörg Svala Guðnadóttir,
Sesselja Svavarsdóttir, Grétar Sigurbjörnsson,
Sigurgeir Svavarsson, Soffía Gunnþórsdóttir,
Fjóla Svavarsdóttir, Torfi Gunnþórsson,
Sæbjörn Ágúst Svavarsson, Bryndís Guðrún Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
Varmalæk í Skagafirði,
lést sunnudaginn 26. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Reykjakirkju föstudaginn
10. mars klukkan 14.00.
Lovísa Sveinsdóttir,
Björn Sveinsson, Magnea K. Guðmundsdóttir,
Gísli Sveinsson, Ásta Begga Ólafsdóttir,
Sigríður Sveinsdóttir, Smári Borgarsson,
Ólafur Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.