Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 2
Kanna leiðir til að lækka raforkuverð SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar hefur samþykkt tillögu þess efnis að kanna aðgang að rafmagni á sem hagstæðustu verði til heimila og fyr- irtækja í Skagafirði. Jafnframt var samþykkt að óska eftir viðræðum við stjórnvöld um að kannaðir verði kostir þess að sveitarfélagið og Skagafjarðarveitur ehf. eignist þá starfsemi sem Rafveita Sauðárkróks áður gegndi og annan rekstur RARIK í héraðinu. Bjarni Jónsson, sveitarstjórn- armaður og einn flutningsmanna til- lögunnar, sagði að ef sveitarfélagið hefði möguleika á að bjóða raforku á hagstæðara verði til smærri fyr- irtækja og almennings, væri upp- bygging auðveldari og myndi laða til sín fólk. Á sínum tíma keypti Raf- veita Sauðárkróks rafmagn í heild- sölu og seldi á hagstæðu verði en hún varð síðar eign RARIK. Nú standa fyrir dyrum breytingar hjá RARIK og því hefði sveitarfélagið hug á því að taka yfir eignir þess á svæðinu. Eignamyndum RARIK sé komin til vegna sölu á þjónustu til sveitarfélaganna og íbúa þeirra. Reynslan sýni að sveitarfélög sem eiga veitur standa sterkar að vígi og geta beitt þeim til að efla uppbygg- ingu í sínu héraði. Með því að Sveit- arfélagið Skagafjörður og Skaga- fjarðarveitur ehf. fái umráð yfir þeirri starfsemi, sem Rafveita Sauð- árkróks gegndi áður og öðrum rekstri RARIK í Skagafirði gætu skapast frekari sóknarfæri. 2 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TÍMAMÓTASAMNINGUR George W. Bush Bandaríkja- forseti og Manmohan Singh, for- sætisráðherra Indlands, innsigluðu í gær tímamótasamning á sviði kjarn- orkumála. Er hann álitinn hápunkt- urinn á þriggja daga heimsókn Bush til Indlands. Fyrirskipaði árás á páfa Leiðtogar Sovétríkjanna fyrrver- andi skipuðu svo fyrir að Jóhannes Páll II páfi skyldi myrtur í maí árið 1981. Kom þetta fram hjá formanni ítalskrar þingnefndar í gær. Kavíarvinnsla úr landi Ágústson ehf., áður Sigurður Ágústsson ehf, hefur ákveðið að flytja kavíarvinnslu Noru til Dan- merkur. Húsnæði kavíarvinnslunnar Nóru verður breytt og þar hefst vinnsla á saltfiski í haust. Ástæða breytinganna er sú að rekstr- arforsendur fyrir kavíarvinnslu á Ís- landi eru ekki lengur fyrir hendi. Áföll í æsku hafa áhrif síðar Áföll sem fólk verður fyrir í æsku, svo sem kynferðislegt ofbeldi, eða annað andlegt og líkamlegt ofbeldi, geta haft mikil áhrif á andlegt og lík- amlegt heilsufar síðar á ævinni og geta leitt til ýmissa sjúkdóma og ótímabærra dauðsfalla, að sögn sér- fræðings í heimilislækningum. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 32 Fréttaskýring 8 Viðhorf 34 Úr verinu 14 Bréf 36 Viðskipti 18 Minningar 37/46 Erlent 20/22 Myndasögur 50 Minn staður 24 Dagbók 50/52 Höfuðborgin 26 Staður og stund 51 Akureyri 26 Leikhús 54 Suðurnes 25 Bíó 58/61 Landið 27 Ljósvakamiðlar 62 Menning 30 Veður 63 Umræðan 31/36 Staksteinar 63 * * * Morgunblaðinu fylgir kynningarblað frá Þróunarfélagi Miðborgar. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %         &         '() * +,,,                         NÝTT Íslandsmet var sett í hópknúsi af nem- endum Austurbæjarskóla í gær. Að sögn Finn- boga Fannars Jónassonar, formanns árshátíð- arnefndar, sem jafnframt á sæti í nemendaráði skólans, tóku alls 550 nemendur, sem jafngildir um 93% allra nemenda skólans, þátt í knúsinu á skólalóðinni undir dyggri stjórn Rúnars Matthías- sonar umsjónar- og dönskukennara. Aðspurður hvernig hugmyndin að uppátækinu sé til komin segir Finnbogi hana komna frá Unn- steini Manúel Stefánssyni, formanni nemenda- ráðs, sem heyrt hafi af hópknúsi nemenda Versl- unarskóla Íslands og lagt til að Austurbæjarskóli slægi það met. „Í nóvember heldu nemendur ung- lingadeildar nokkurs konar æfingu fyrir knúsið, sem gekk reyndar ekkert sérlega vel, þar sem allt endaði í stórri kássu. Knúsið í morgun gekk hins vegar mjög vel og hér ríkti góð stemning, enda skemmtilegt að gera eitthvað svona,“ segir Finn- bogi og segir hlut Rúnars í skipulaginu hafa skipt þar sköpum. Að knúsi loknu sneru nemendur sér að því að skreyta skólann og fínpússa skemmti- atriði því síðar um kvöldið var árshátíð skólans haldin við mikinn fögnuð nemenda. Aðspurður segir Finnbogi alls ekki loku fyrir það skotið að hópknúsið verði hér eftir gert að árlegum við- burði í skólanum á árshátíðardegi, enda ekki á hverjum degi sem nemendur allt niður í fyrsta bekk og upp í tíunda bekk hafi tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt saman. Morgunblaðið/RAX Nýtt Íslandsmet í hópknúsi Kominn úr gjörgæslu MAÐURINN sem slasaðist alvar- lega í jeppaslysinu á Hofsjökli síð- astliðinn laugardag var útskrifaður af gjörgæsludeild á þriðjudag, eftir þriggja daga legu. Hann var fluttur yfir á skurðdeild Landspítalans þar sem hann fær áframhaldandi að- hlynningu og er hann á batavegi að sögn læknis. BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti á fundi sínum í gær að leita formlega eftir áliti stjórnsýslu- og starfsmannasviðs á fram komnum athugasemdum vegna umsóknar þýsku byggingarvöruverslunarinnar Bauhaus um lóð undir verslun í landi Úlfarsfells. Að sögn Dags B. Egg- ertssonar, formanns skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, er annars vegar um að ræða athugasemdir frá Smáragarði fasteignafélagi [dóttur- félagi Norvíkur sem einnig á BYKO] og hins vegar bæjarstjóra Mosfells- bæjar vegna þróunaráætlunar á svæðinu. „Lögfræðilega álitsgerðin frá BYKO barst á elleftu stundu og því náðist ekki að senda hana út með gögnum fyrir fundinn. Lögfræðing- ar okkar höfðu heldur ekki náð að kíkja yfir hana. Við höfum reynt að standa mjög vel að allri þessari máls- meðferð þannig að við töldum rétt að taka af allan vafa um það að farið væri yfir öll sjónarmið sem þar koma fram,“ segir Dagur þegar hann var spurður um ástæðu þeirrar ákvörð- unar borgarráðs að leita eftir fyrr- nefndu áliti. „Sjálfur tel ég hins veg- ar að ekkert hafi komið fram í málinu sem breyti því að rétt sé að Bauhaus fái úthlutað lóð þarna, þó ég telji um leið sjálfsagt að fara yfir þau sjón- armið sem fram komu á elleftu stundu.“ Spurður um athugasemdir Ragn- heiðar Ríkharðsdóttur, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, segist Dagur undrast þær þar sem Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri hafi verið búin að funda með bæjarstjóra um málið auk þess sem farið hafi verið vand- lega yfir það í skipulagsráði. Líkt og fram kom í Viðskiptablaði Morgun- blaðsins í gær telur bæjarstjóri að úthlutun borgarinnar á lóð til handa Bauhaus í Úlfarsfelli brjóti í bága við þróunaráætlun sem sveitarfélög undirrituðu um miðbæjarkjarna á mörkum Mosfellsbæjar og Reykja- víkur, auk þess sem hún sé ekki í samræmi við svæðisskipulag höfuð- borgarsvæðisins. „Við teljum ótví- rætt að úthlutun til Bauhaus á þess- um stað mundi falla að þróunaráætluninni, en því verður líka svarað í yfirferð stjórnsýslu- og starfsmannasviðs,“ segir Dagur. Að- spurður segir hann málið verða á dagskrá næsta fundar borgaráðs sem haldinn verður eftir viku. Borgarráð leitar álits á athugasemdum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt fjóra karlmenn á aldrinum 18 til 25 ára í fangelsi fyrir fjölda brota, þar á meðal þrjá þeirra fyrir stórfellda líkamsárás á 17 ára pilt í mars á síðasta ári en þeir mis- þyrmdu piltinum og skildu hann eftir meiddan í húsasundi á nærbuxum einum fata þótt um fimm gráða frost væri. Sá sem þyngsta dóminn hlaut var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, annar var dæmdur í tveggja mánaða fang- elsi en tveir yngstu piltarnir, 18 og 19 ára, voru dæmdir í fjögurra og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þrír þeirra voru dæmdir til að greiða pilt- inum, sem þeir réðust á, 708 þúsund krónur í miskabætur. Tveir yngstu mennirnir voru sak- felldir fyrir að hafa þvingað piltinn ofan í farangursgeymslu bíls á bíla- stæði á Akureyri og haldið honum þar nauðugum í um það bil klukku- stund á meðan bílnum var ekið um götur Akureyrar að Akureyrarflug- velli. Þar veittust þeir í sameiningu að piltinum og slógu hann í andlitið og þvinguðu hann svo aftur niður í farangursgeymsluna og óku inn í bæinn. Í húsasundi við Kaldbaksgötu var pilturinn dreginn úr farangurs- geymslunni og þar réðust ungu mennirnir tveir ásamt þriðja mann- inum á hann, rifu hann úr fötum, spörkuðu í andlit hans svo að hann vankaðist og lagðist í jörðina, spörk- uðu ítrekað í hann liggjandi, slógu hann hnefahögg í andlit og líkama, rifu hann úr skóm og buxum og drógu hann eftir malarborinni jörð nokkra metra. Hlaut pilturinn mar og bólgur á vinstra kinnbeini, fleiður og rispur á baki og vinstri öxl, auk annarra áverka á maga, bringu og handleggjum. Hann var síðan skilinn eftir klæðlítill í húsasundinu. Mennirnir fjórir voru einnig dæmdir fyrir fjölda fíkniefnabrota og annarra brota en talsvert magn af fíkniefnum fannst í fórum þeirra. Tveir mannanna voru einnig dæmdir fyrir tvær aðrar líkamsárásir til við- bótar og var annar þeirra dæmdur til að greiða manni sem hann réðst á tæpar 367 þúsund krónur í bætur. Dæmdir fyrir líkamsárás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.