Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 57
Leikkonan Teri Hatcher hefurviðurkennt að hún hafi fengið
bæði bótox- og kollagensprautur til
að slétta hrukkur
og stækka varir.
Hatcher, sem
leikur eitt aðal-
hlutverkið í Að-
þrengdum eigin-
konum, gerði
uppskátt um
þetta í viðtali ný-
verið. Hún sagði
nokkuð um liðið
síðan hún gerði þetta, og að hún
hefði ekki látið gera neitt við andlitið
á sér í rúmt ár og það stæði ekki til. Í
fyrra viðurkenndi hún að hafa litað á
sér grá hár síðan hún var 25 ára.
Fólk folk@mbl.is
EÐALTRÍÓIÐ kanadíska Rush gaf í
hitteðfyrra út plötuna Feedback, átta
laga grip sem inniheldur nokkur
uppáhaldslög sveitarmeðlima, lög
sem höfðu áhrif á og mótuðu þá í
fyrndinni. Verandi aðdáandi urðu til-
finningarnar blendnar þegar ég
heyrði af þessu, annars vegar tók
hjartað kipp við það að heyra að ný
plata væri að koma út en mjög fljót-
lega rann á mann værukærð, jafnvel
eilítil vonbrigði. Nenni ég virkilega að
hlusta á Rush
trukka í gegnum
„Summertime
Blues“?
Maður spyr
svipaðra spurn-
inga hvað þessa
plötu varðar, sem er önnur plata Á
móti sól sem inniheldur einungis lög
eftir aðra í flutningi sveitarinnar.
Fyrir hvern er platan eiginlega? Við-
kvæmasti markhópurinn eru líklega
harðir aðdáendur, sem „neyðast“ til
að kaupa plötuna en svona plötur
virðast þó aðallega þjóna hljómsveit-
unum sjálfum, oft gerðar til að brúa
eitthvert bil, líkt og er gjarnan með
tónleikaplötur.
Það er ekkert beinlínis að plötunni
þannig séð. Sveitin rennir sér í lögin
af fagmennsku af auðheyranlegri
virðingu fyrir viðfangsefninu. Þegar
best tekst til eru útgáfurnar heið-
arlegar og renna ljúft en tilþrifalítið
um eyrun.
En um leið er platan að gera sára-
lítið fyrir mann. Virðingin fyrir lög-
unum er greinilega það mikil að lítið
er breytt út af hinu upprunalega og
því er ekki verið að blása nýju lífi í
lögin, útgangspunktur sem gerir
tökulagaplötur iðulega þess virði. Á
móti sól eru einfaldlega að spila þessi
lög eins vel og þeir geta, eitthvað sem
gengisfellir plötuna á endanum, eins
ankannalega og það hljómar.
„Hjálpaðu mér upp“ hljómar þann-
ig nokkurn veginn eins og það gerir í
öll þau skipti sem það er glamrað í
partíum. „Við erum við“ og „Þrisvar í
viku“ eru bara þarna, svipuð og frum-
gerðirnar. Svínvirkar efalaust á böll-
um en ekki hér. „Lítill drengur“ olli
því t.d. að upprunalega útgáfan tók
að glymja í hausnum á mér. Magni
syngur lagið hins vegar vel, hljóm-
sveitin spilar það vel – en samt …
Ég er farinn að bíða með óþreyju
eftir nýju efni frá ÁMS, en sveitin
hefur tekið feikigóða spretti í þeim
efnum í gegnum tíðina. Nóg er hins
vegar komið af þessum æfingum.
Gömlu
„góðu“ lögin
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Lögin sem plötuna prýða eru eftir ýmsa
íslenska höfunda. Á móti sól skipa þeir
Magni Ásgeirsson (söngur, gítar, raddir
og „mannlegt perk“), Sævar Helgason
(gítar, raddir og klapp), Stefán Þórhalls-
son (trommur), Þórir Gunnarsson (bassi,
raddir og klapp) og Heimir Eyvindarson
(hljómborð, harmonikka og raddir). Fjöl-
margir aðstoðarmenn koma við sögu á
plötunni, þ.á m. Birgitta Haukdal, Berg-
sveinn Arilíusson, Pétur Örn Guðmunds-
son og Vignir Snær Vigfússon. Upptöku-
stjórn var í höndum hljómsveitarinnar og
Baldvins A B Aalen. Hljómsveitin gefur
sjálf út.
Á móti sól – Hin 12 topplögin
Arnar Eggert Thoroddsen