Morgunblaðið - 03.03.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ferðast þú til Flórída?
Hefur þú hugsað um að eiga þitt eigið sumarhús?
Viltu vita meira?
Umboðsaðilar frá Orlando Vacation Homes, USA, verða á
Íslandi til að veita þér nánari upplýsingar eftirtalda daga:
laugardag 4. mars frá kl. 9:00 til 18:00
sunnudag 5. mars frá kl. 13:00 til 18:00
á Hótel Loftleiðum, Reykjavík.
Allir þátttakendur á kynningunni eiga kost á að vinna
ókeypis gistingu í Orlandó!
www.livinfl.com
SAKSÓKNARAR í Moskvu hafa
endurnýjað ósk sína um að bresk
stjórnvöld framselji auðkýfinginn
Borís Berezovskí til Rússlands en
hann hefur nú verið ákærður fyrir
samsæri um að
fremja valdarán.
Berezovskí
hefur verið í út-
legð í Bretlandi
um árabil og
breska stjórnin
veitti honum
pólitískt hæli ár-
ið 2003, og hafn-
aði þannig beiðni
rússneskra
stjórnvalda um framsal hans. Nú
hafa rússnesk yfirvöld hins vegar
endurnýjað beiðni sína og sögðu
saksóknarar í gær að gögn þar að
lútandi hefðu verið send innanrík-
isráðuneytinu breska á mánudag.
Nýjar ákærur á hendur Berez-
ovskí eru byggðar á ummælum
sem hann lét falla í viðtali á Ekho
Moskvy-útvarpsstöðinni í janúar.
Sagði hann þar að hann ynni nú að
því að steypa núverandi stjórn af
stóli. Ríkisstjórn Vladímírs Pútíns
leyfði ekki frjálsar kosningar og
því væri fullkomlega réttlætanlegt
að beita valdi til að skipta um
stjórn „og það er það sem ég vinn
nú að“. Sagði Berezovskí að stjórn
Pútíns hefði „glatað öllu lögmæti“
og að Pútín „stefndi beina leið til
glötunar með Rússland“.
Hægt að endurskoða
ákvörðun um pólitískt hæli
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, hefur þegar fordæmt
ummæli Berezovskí, það gerði
hann í síðustu viku. „Að tala fyrir
því að stjórnarbylting í fullvalda
ríki verði gerð með ofbeldi er óvið-
unandi,“ sagði hann og varaði
Berezovskí við því að vel væri
mögulegt að svipta þá, sem hlotið
hefðu pólitískt hæli í Bretlandi,
réttindum flóttamanna. „Við mun-
um grípa til aðgerða gegn þeim
sem nota Bretland sem bækistöð
til að stuðla að ofbeldi og óreiðu
eða hryðjuverkum í öðrum ríkj-
um,“ sagði Straw í yfirlýsingu
sinni.
Berezovskí auðgaðist verulega á
vafasömum einkavæðingarsamn-
ingum sem gerðir voru í Rússlandi
snemma á síðasta áratug, er hann
talinn eiga um 91 milljarð ísl.
króna.
Berezovskí var jafnframt áhrifa-
mikill ráðgjafi Borísar Jeltsíns,
sem var forseti á undan Pútín.
Hann flýði hins vegar til Bretlands
eftir að Pútín tók við völdum árið
2000 í því skyni að forðast ákæru
fyrir peningaþvætti; en hann hefur
sagt um þær ákærur að þær hafi
verið af pólitískum rótum runnar.
Endurnýja ósk-
ir um framsal
Berezovskís
Hvatti til þess í útvarpsviðtali að Pútín,
forseta Rússlands, yrði steypt af stóli
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Borís Berezovskí
Róm. AFP. | Leiðtogar Sovétríkj-
anna fyrrverandi skipuðu svo fyrir,
að Jóhannes Páll páfi II skyldi
myrtur í maí árið 1981. Kom þetta
fram hjá formanni ítalskrar þing-
nefndar í gær.
Paolo Guzzanti öldungadeild-
arþingmaður og félagi í flokki Silv-
io Berlusconis forsætisráðherra,
Forza Italia, skýrði frá þessum nið-
urstöðum rannsóknanefndarinnar
en skýrslan verður birt opin-
berlega á næstunni.
„Nefndin telur engan vafa leika
á því, að leiðtogar Sovétríkjanna
hafi beitt sér fyrir því, að Karol
Wojtyla páfi yrði myrtur. Hafi
þeirri ákvörðun verið komið til
leyniþjónustu hersins og henni fal-
ið að skipuleggja þennan glæp,
sem á sér ekkert fordæmi í sögu
síðari tíma,“ segir í skýrslu Mítr-
okhín-nefndarinnar en hún er
kennd við sovéska skjalavörðinn
Vasílí Mítrokhín, sem settist að á
Vesturlöndum 1992. Fól ítalska
þingið nefndinni að kanna ýmis
leyndarmál kalda stríðsins í ljósi
þeirra upplýsinga, sem Mítrokhín
hefur gefið.
Jóhannes Páll páfi særðist alvar-
lega er tyrkneski leigumorðinginn
Ali Agca skaut á hann á Péturs-
torginu 13. maí 1981. Var Agca yf-
irbugaður strax og dæmdur tveim-
ur mánuðum síðar í ævilangt
fangelsi. Var hann látinn laus í júní
í fyrra er forseti Ítalíu náðaði
hann.
Lengi hefur verið orðrómur um,
að Agca hafi á sínum tíma verið í
sambandi við búlgörsku leyniþjón-
ustuna og þá í raun við þá sovésku,
KGB, en tilgangurinn með morð-
tilræðinu hefur dálítið vafist fyrir
mönnum. Ýmsir sagnfræðingar
hafa þó bent á, að stuðningur páfa
við Samstöðu og lýðræðishreyf-
inguna í Póllandi hafi verið Sovét-
stjórninni mikill þyrnir í augum.
Búlgari á Péturstorginu
Á árinu 1986 voru þrír Búlgarar
og þrír Tyrkir ákærðir á Ítalíu fyr-
ir að hafa skipulagt morðtilræðið
en þeim var sleppt þegar saksókn-
arar gátu ekki tengt þá við Agca. Í
skýrslu rannsóknarnefndarinnar
segir hins vegar, að nú sé ljóst, að
einn Búlgaranna, Sergei Antonov,
hafi verið á Péturstorginu þegar
Agca skaut á páfa. Birtu ítölsku
dagblöðin mynd af honum í gær
þar sem hann er skammt frá Agca,
með yfirskegg og stór sólgleraugu.
Lögfræðingur Antonovs hélt því
fram á sínum tíma, að myndin væri
ekki af skjólstæðingi sínum en í
skýrslunni segir, að vísindamenn
og sérfræðingar lögreglunnar hafi
nú tekið af allan vafa um, að mynd-
in sýni Antonov.
Guzzani sagði, að líklega væri
ekki lengur grundvöllur fyrir að
taka þetta mál upp en miklu máli
skipti að upplýsa það í eitt skipti
fyrir öll.
Sovétstjórnin ákvað
að páfi skyldi myrtur
Ítölsk rannsóknarnefnd segir fyrirmælin um morðtilræðið
við Jóhannes Pál páfa hafa komið frá Moskvu
Reuters
Jóhannes Páll páfi II fyrirgaf Ali Agca banatilræðið við sig og tjáði honum
það er hann vitjaði hans í fangelsi 27. desember 1983.
SIR Menzies Campbell sigraði í gær
í formannskjöri Frjálslynda flokks-
ins í Bretlandi. Menzies, sem þykir
reyndur í utanríkismálum, fékk
fleiri atkvæði en helsti keppinautur
hans Chris Huhne. Campbell var
sigurreifur þegar úrslitin lágu fyrir
og sagði að flokkur sinn hefði með
kjörinu komið gagnrýnendum á
óvart.
Reuters
Campbell sigraði
Naíróbí. AFP. | Lögreglan í Kenýa
réðst í gærmorgun samtímis til at-
lögu inn á tvo fjölmiðla Standard
Group, næststærsta fjölmiðlafyr-
irtækis landsins. Lokuðu lög-
reglumennirnir, sem voru vopnaðir
AK-47 rifflum, tímabundið fyrir út-
sendingar sjónvarpsstöðvarinnar
KTN, ásamt því sem þeir eyðilögðu
prentvélar dagblaðsins Standard.
Því næst brenndu þeir megnið af
upplagi fimmtudagsútgáfu blaðsins,
en þetta er fyrsta árás yfirvalda á út-
breiddan fjölmiðil í landinu frá því að
það öðlaðist sjálfstæði frá Bretum
árið 1963.
Samkvæmt fréttavef BBC hafa
stjórnvöld lýst yfir ábyrgð á aðgerð-
unum og sagði John Michuki, ráð-
herra öryggismála, að markmiðið
væri að tryggja öryggi landsins.
Stjórnarandstaðan í Kenýa hefur
harðlega gagnrýnt aðgerðirnar.
„Þetta er grimmúðleg aðgerð og eins
og við höfum snúið aftur til miðalda,“
sagði Uhuru Kenyatta, leiðtogi
stjórnarandstöðuflokksins Afríska
þjóðarbandalag Kenýa (KANU).
Samkvæmt starfsmönnum Stand-
ard Group komu aðgerðirnar í kjöl-
farið á umfjöllun fjölmiðla þess um
að Mwai Kibaki, forseti landsins,
hefði átt í leynilegum viðræðum við
stjórnarandstæðing.
Þá hvöttu samtök blaðamanna í
Kenýa fjölmiðla til að sniðganga já-
kvæðar fréttir af stjórn Kibakis á
næstu tveimur vikum.
Í gær voru einnig þrír blaðamenn
Standard ákærðir fyrir að „birta
falskan orðróm sem hefði það mark-
mið að vekja ugg á meðal almenn-
ings“. Koma aðgerðir lögreglu í kjöl-
far vaxandi pólitískrar spennu vegna
ýmissa ásakana um spillingu innan
stjórnar Kibakis.
Fyrirskip-
uðu árás á
fjölmiðla