Morgunblaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bryndís SigrúnKarlsdóttir
fæddist í Nesi í
Saurbæjarhreppi
29. mars 1921. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Seli hinn
17. febrúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jakob-
ína Þorbjörg
Ágústsdóttir, d. 1.8.
1967, og Karl Júlíus
Friðriksson, d.
10.12. 1961. Bryndís
átti fimm systkini,
elst var hálfsystir, Ragnheiður,
f. 31. jan. 1910, þá hálfbróðir,
Sveinn Bragi, f. 14. nóv. 1913,
svo kom Bryndís, sem hér er
kvödd, þá Kamilla, f. 4.8. 1922,
Friðrik Júlíus, f. 31.5. 1927, og
Baldur, f. 3.1. 1930. Þau eru öll
látin.
Bryndís ólst upp í Nesi til níu
ára aldurs en fluttist þá með
foreldrum sínum
til Akureyrar og
bjó þar alla tíð.
Maki Bryndísar
var Þór Sigþórs-
son, f. 11. apríl
1917, d. 3. apríl
1971. Áttu þau
þrjú börn. Þau
eru: Björg Þór, f.
27.1. 1943, búsett
í Reykjavík, Júl-
ía, f. 5.2. 1949,
búsett á Akur-
eyri, og Friðrik
Baldur, f. 29.6.
1955. Barnabörnin voru sex og
langömmubörnin orðin sjö tals-
ins.
Bryndís vann sem kaupakona
á yngri árum en seinna við
saumaskap á Heklu og Burkna á
Akureyri á meðan heilsa leyfði.
Útför Bryndísar var gerð frá
Glerárkirkju á Akureyri hinn
28. febrúar síðastliðinn.
Í kvæði eftir Jóhann Helgason
segir svo:
„Eitt sinn verða allir menn að
deyja.“ Ég man eins og gerst hefði
í gær, þegar þú baðst um að lagið,
Söknuður, yrði sungið yfir þér á
kveðjustund og þú fékkst ósk þína
uppfyllta með yndislegum söng.
Elsku amma, í örfáum orðum
langar mig að minnast þín og
þakka þér svo góðar samveru-
stundir.
Við minnumst þín, amma mín,
sem ljúfrar, einstaklega gestris-
innar og umfram allt fallegrar
konu. Snyrtimennskan og fínheitin
voru alltaf áberandi í fari þínu. Þú
vildir alltaf vera svo fín um hárið
og hver man ekki eftir fallegu
nöglunum þínum, alltaf að pússa
og lakka.
Mikið varstu hrifin af börnum
og að kjassa barnabarnabörnin og
knúsa, það var þitt yndi.
Þú hafðir yndi af því að sauma
út og spila. Það var mörg góð
yatzy-stundin sem við áttum sam-
an þegar ég gekk með drenginn
minn og eftir að hann fæddist voru
ófáir morgnarnir sem við eyddum
saman. Þetta verða mér ógleyman-
legir tímar.
Við sem söknum þín vitum að þú
ert nú komin í faðm Dúdda afa,
sem kvaddi svo löngu á undan þér,
og við erum sátt, þú varst svo
sannarlega farin að þrá það.
Barn sem á ömmu eða afa
hefur mildari sýn á tilveruna og veit að
lífið hefur fleira að færa en það sem
sést,
meira en bara það að eignast og fá,
vinna og tapa.
Það veit að til er ást sem gerir engar
kröfur.
(Lois Wyse.)
Elsku amma, takk fyrir allar
yndislegar stundir. Blessuð sé
minning þín.
Ólöf Bryndís.
Elsku amma. Okkur finnst mjög
leitt að þú sért dáin. Okkur fannst
svo gaman að koma á Sel og heim-
sækja þig, og þér fannst svo gam-
an að sjá okkur og mömmu þegar
við komum til þín. Þá var amma
Júlía hjá þér.
Vonandi líður þér vel núna hjá
afa Dúdda á himnum.
Sigríður Júlía og
Hjörtur Geir.
BRYNDÍS SIGRÚN
KARLSDÓTTIR
Elskuleg tengdamóðir mín, lág-
vaxin virðuleg kona, kemur og
heilsar mér og kynnir sig sem til-
vonandi tengdamóður mína og
hlær. Ég get ekki annað en bros-
að í gegnum tárin þegar ég hugsa
um hennar dillandi hlátur. Það
voru forréttindi að fá að kynnast
svona elskulegri konu, sem er bú-
in að reynast mér svo góð, hún
var ekki bara tengdamóðir mín,
heldur líka mikil vinkona. Ég gat
rætt allt milli himins og jarðar
við hana og alltaf var hún ráða-
góð. Hún Sólveig mín er búin að
reyna margt í gegnum árin, og
aldrei lagði hún árar í bát, hún
stóð alltaf upp úr sem klettur og
brosti fram á við, alltaf jákvæð og
stutt í hláturinn, sátt við guð og
menn. Hún lét velferð fjölskyld-
unnar sig miklu varða og hafði
mikið yndi af barna- og lang-
ömmubörnunum. Sólveig var
klæðskeri að mennt og var mjög
myndarleg í allri handavinnu og
þótti henni sárast þegar sjón
hennar hrakaði og öll handavinna
lá ekki eins vel fyrir henni og áð-
ur. Hún var ávallt með fimm til
sex gleraugu í gangi í einu og
taldi sér oft trú um að ein væru
betri en önnur, „en svona er líf-
ið,“ sagði hún svo oft.
Nú er komið að kveðjustund, ég
mun sakna elskulegrar tengda-
móður. Blessuð sé minning henn-
ar.
Sigrún Halldórsdóttir.
SÓLVEIG
HJÁLM-
ARS-
DÓTTIR
✝ Sólveig Hjálmarsdóttirfæddist á Hlíð í Álftafirði 10.
desember 1916. Hún andaðist á
hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafn-
arfirði að kvöldi 23. febrúar síð-
astliðins og var útför hennar
gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 3.
mars.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU MARÍU AHRENS.
Georg Ahrens Hauksson, Ingibjörg Sveina Þórisdóttir,
Erlendur Hauksson, Kristín Helgadóttir,
Sonja Georgsdóttir,
Ingi Haukur Georgsson, Sigrún Pétursdóttir,
Ágústa Ruth Ahrens Georgsdóttir, Ragnar Páll Dyer,
Ólafur Haukur Erlendsson, Berglind Björgúlfsdóttir,
Almar Þór Ingason, Annamaría Alesdotter,
Haraldur Haukur Ingason
og barnabarnabörn.
Elskuð og dáð móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RAGNA LÍSA EYVINDSDÓTTIR,
(Góa),
Borgarheiði 13v,
Hveragerði,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 9. mars kl. 15.00
Eyvindur Ólafsson, Sigríður R. Jónsdóttir,
Hjörtur Ólafsson, Svandís Ingimundardóttir,
Hlynur Ólafsson, Þórdís Magnúsdóttir,
Ásta Katrín Ólafsdóttir, Jóhannes Guðmundsson,
Lilja Björk Ólafsdóttir, Óskar Óskarsson,
Elva Ósk Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
HANSÍNA HANNESDÓTTIR,
Hlaðbrekku 12,
verður jarðsungin frá Hjallakirkju í Kópavogi föstu-
daginn 10. mars kl. 13.00.
Jónína Magnúsdóttir, Jens Karlsson,
Perla Dögg Jensdóttir, Magnús Geir Jensson.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og
sonur,
HJÁLMUR SIGURJÓN SIGURÐSSON,
Mánabraut 5,
Skagaströnd,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 2. mars,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
10. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á Minningarsjóð Geðhjálpar í síma 570 1700.
Sigríður Rut Sigurðardóttir,
Guðbjörg Hjálmsdóttir,
Harpa Hjálmsdóttir, Brett Harris,
Ólafur Freyr Hjálmsson,
Ásdís Hjálmsdóttir,
Guðbjörg Hjálmsdóttir, Sigurður Sigurjónsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi,
JÓHANN KRISTINN GUNNARSSON
frá Flatey á Skjálfanda,
Garðarsbraut 57,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstudaginn
3. mars sl.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
11. mars kl. 14.00.
Kristín Jóna Kristjánsdóttir,
Guðrún Kristín Jóhannsdóttir,
Ómar og Jakob,
Gunnar Jóhannsson,
Jóhann Kristinn og Hilmar Valur,
Bergdís Björk og Tryggvi Grani.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Hringbraut 97,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Jón R. Jóhannsson, Ásgerður Kormáksdóttir,
Steinar Jóhannsson, Sigurlaug Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir
og mágkona,
JÓHANNA EINARSDÓTTIR
(Nanný),
Flókagötu 69,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 3. mars, verður jarðsungin frá Áskirkju
föstudaginn 10. mars kl. 11.00.
Einar Jónsson, Sveinhildur Vilhjálmsdóttir,
Anna Jónsdóttir, Hallgrímur Stefánsson,
Þórunn María Einarsdóttir,
Valgerður Anna Einarsdóttir,
Stefán Fannar Hallgrímsson,
Þorsteinn Einarsson, Sigríður Steingrímsdóttir.
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
RAGNAR KR. KARLSSON
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn
10. mars kl. 15.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Björn R. Ragnarsson,
Karl Ragnarsson, Jóhanna Þormóðsdóttir,
Ásta Margrét Ragnarsdóttir, Ólafur Mar Jósefsson.