Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 10

Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 10
10 MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 1. Ég er þeirrar skoðunar að efla þurfi löggæsluna á flestum sviðum í því skyni að auka öryggi borg- aranna. Ég hef lýst þeirri skoðun minni að efla beri hverfalöggæslu og löggæslu í miðborginni, sér- staklega um helgar þar sem ástandið verður oft með öllu óvið- unandi. 2. Enginn vafi er á því að fjölgun lögreglumanna væri mikilvæg í þessum efnum og raunar nauðsyn- leg, en ekki síður að löggæslan verði sýnilegri og hafi þannig ákveðið forvarn- argildi í sjálfu sér. 3. Það er engin ein lausn til á því vandamáli [ vaxandi neyslu vímu- efna] og hér þurfa allir að koma að sameiginlegu þjóðarátaki gegn fíkniefnavandanum. Við eigum ekki að sætta okkur við að skólalóðirnar séu markaðstorg eiturlyfja og eig- um að vinna að því í sameiningu að vernda bernskuna. 4. Öryggi borgaranna verður að hafa forgang og fólk verður að hafa trú á því að þeir sem brjóta lög komist ekki upp með það. Á síðustu árum hafa dómar í fíkniefnamálum verið að þyngjast, en spurningin er hvort ekki þurfi að taka harðar á hvers kyns ofbeldisglæpum sem virðast því miður vera að færast í vöxt í okkar litla samfélagi og senda þannig skýr skilaboð til þeirra sem gerast jafnvel ítrekað brotlegir með þeim hætti. Ég er mjög hugsi yfir frétt sem Morgunblaðið og Fréttablaðið birtu á dögunum af því þegar ekið var vísvitandi og margsinnis á bíl manns í Grafarvogi. Sérstaklega er ég hugsi yfir því hve litla umræðu þessi frétt hefur vakið þá daga sem liðnir eru. Það er líka mikilvægt að stytta tímann sem líður frá því að brot er framið og þangað til viðurlögum er beitt. Það er ekki góð uppeldisfræði að menn – eins og þeir sem frömdu árásina í Grafarvogi – bíði mán- uðum saman þar til þeir eru látnir axla ábyrgð á gerðum sínum. En þegar mönnum er sleppt strax eftir yfirheyrslu eru skilaboðin í raun og veru þau að málið sé ekki litið mjög alvarlegum augum. Ég held að það sé kominn tími til að samfélag okk- ar segi hingað og ekki lengra í þessum efnum. Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki Þörf á sameig- inlegu þjóðar- átaki gegn fíkniefnum 1. Samfylkingin vill aukna og sýni- legri löggæslu í öllum hverfum borg- arinnar. Sér í lagi í miðborginni. Reynsla okkar sýnir að það gengur best að vinna gegn innbrotum, skemmdarverkum og öðrum af- brotum þegar lögreglan vinnur eins náið með borgaryf- irvöldum og kost- ur er, eins og við þekkjum úr Graf- arvoginum, þar sem löggæslan er órjúfanlegur hluti af starfsemi þjón- ustumiðstöðvarinnar í Miðgarði. Þessu fordæmi var fylgt nýlega í Breiðholti en við viljum að þessi leið verði farin í öllum hverfum. 2. Ég held að fjölgun lögreglu- manna sé brýn. Tölur sýna að 2002 voru almennir lögreglumenn í Reykjavík færri en árið 1976 þrátt fyrir að borgin hafi tvöfaldast í stærð. Þannig að þar þarf að gera átak en um leið gæta þess að kraftar þessara lögreglumanna nýtist sem best. Það í nánu samspili við aðra þjónustu við íbúa í borginni. Ef lögreglan vinnur með íbúum að viðfangsefnum og vandamálum sem upp koma hverju sinni þá margfald- ast í raun það afl sem hægt er að virkja til þess að beita sér gegn nei- kvæðri hópamyndun unglinga, veggjakroti, afbrotum og spell- virkjum, eða annarri óáran. 3. Forvarnir eru forgangsmál í okk- ar stefnu. Við höfum náð eftirtekt- arverðum árangri í síðustu árgöng- um grunnskóla þar sem vímuefnaneysla hefur lækkað ár frá ári frá árinu 1998. En við höfum bent á að það að því er ekki þannig farið í framhaldsskólunum. Sá ár- angur sem hefur náðst í grunn- skólum verður að haldast í hendur við áherslurnar inn á framhalds- skólaárin. 4. Ég held að það þurfi alltaf að spyrja, varðandi öll svona úrræði, hvort þau skili því sem til er ætlast. Áður en við tökum skref í að þyngja enn frekar refsingarnar þá verðum við að vita að það sé það sem dugi best. Ég held að verkefnin séu nær- tækari og liggi á framhalds- skólastiginu að verulegu leyti. Eins þurfa lögreglan og borgaryfirvöld að vinna þéttar saman og nýta sér nú- tíma upplýsingakerfi [landupplýs- ingakerfið] sem getur kortlagt þró- un afbrota þannig að við ættum að geta með reglubundnum fundum tekið á slíkri þróun. Dagur B. Eggertsson Samfylkingu Lögregla og borgaryfirvöld vinni þéttar saman 1. Það er á stefnuskrá F-listans að gera löggæslu í borginni sýnilegri og virkari í hverfum borgarinnar. 2. Það þarf að efla samstarf rík- isins og borg- arinnar á þessu sviði. Við teljum að auka þurfi framlög til lög- gæslu og örygg- ismála í borg- inni. Við teljum fjölgun lögreglu- manna óhjá- kvæmilega. 3. Það þarf fyrst og fremst að efla forvarnir og fræðslu, sérstaklega í grunnskólum borgarinnar. 4. F-listinn er fylgjandi því að herða viðurlög við fíkniefnabrotum þegar um ofbeldi er að ræða. Íslensk löggjöf tekur almennt of vægt á ofbeldisbrotum miðað við önnur brot. En við ítrekum að for- varnir og fræðsla eru lykilatriði í fíkniefnavörnum. Ólafur F. Magnússon F-lista Framlög til löggæslu verði aukin FJÖLGA þarf lögreglumönnum og gera lögregluna sýnilegri í hverfum borgarinnar. Þetta er samdóma álit forystumanna allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosn- ingunum í vor. Rannsókn á ítrekaðri ákeyrslu á bifreið manns í Grafarvogi fyrir helgi heldur áfram. Ökumaðurinn sem varð fyrir árásinni sagði í samtali við Morgunblaðið sl. föstudag, að um hefndaraðgerð hefði líklega verið að ræða af hálfu þeirra sem á hann óku, en að ódæðismennirnir hafi farið bílavilt. Forystumenn flokkanna voru að þessu tilefni spurðir: 1. Hvað ætlar flokkur þinn að gera í borgarstjórn Reykja- víkur á næsta kjörtímabili til þess að tryggja öryggi borg- aranna í Reykjavík? 2. Hvernig verður það best gert: með fjölgun lögreglu- manna eða með öðrum hætti og þá hvernig? 3. Hvernig ætlar flokkur þinn að taka á því undirliggj- andi meini, sem er að flestra mati meginorsök þess örygg- isleysis, sem íbúar Reykjavíkur búa nú við, þ.e. vaxandi neyslu vímuefna? 4. Á að þínu mati að herða refsingar vegna fíkniefna- brota og annarra brota sem tengjast þeim? Löggæsla í hverfunum verði aukin HELGI Ólafsson skákmeistari var mættur til þess að skýra skákir í þar til gerðu herbergi á Reykjavík- urskákmótinu sem nú stendur. Hann sagði margar skákir í gangi en að helst væru þær á efstu borðunum skýrðar. Af nógu væri að taka. Með Helga var sonur hans, Arnar Leó, og hver veit nema þar sé á ferðinni skáksnillingur framtíðarinnar. Hann virtist í það minnsta una sér vel með pabba sínum á meðal bikaranna á kaffistofunni. „Það verður gaman að sjá hvernig Hannesi og Þresti reiðir af og svo eru þarna strákar eins og Jón Viktor og Hjörvar Steinn sem er að gera góða hluti,“ sagði Helgi spurður um hvort hann væri spenntastur fyrir einhverjum vissum skákum. Hann tók fram að mótið hefði verið mjög gott og aðstandendum þess til mikils sóma. „Ég hef voðalega gaman af þessu og sérstaklega af því að þetta er hluti af stærra framtaki. Þetta er búið að vera ansi gaman.“ Spurður um uppáhalds keppendur sagði Helgi Íslendingana marga vini sína og að svo þekkti hann vel til Timmans og Sokolovs. „Það eru margir sem ég held upp á og óska góðs gengis.“ Blaðamaður sá fyrir sér að skemmtilegt væri að lýsa skákum í stemningu eins og ríkti á þessu móti og Helgi jánkaði því. Hann hló þó að hugmyndinni um háværa áhorf- endur sem hvettu sína menn með borðum og húrrahrópum. „Þetta er nú heldur hógværara andrúmsloft en á fótboltaleik,“ sagði hann brosandi en sagði að alltaf væri slæðingur af áhorfendum. „Það er stemning fyrir þessu móti og vel fylgst með því. Það sem hefur breyst og var ekki áður er að nú eru skákirnar sýndar í beinni útsend- ingu á netinu líka. Skákin og netið virðast tengjast mjög vel. Þetta er grein sem á sterkan og flottan að- gang að netinu og það hefur komið vel út.“ Hugsanleg heimsmeistaraefni Í Skákhöllinni fer ekki aðeins fram skákmót heldur má þar skoða ýmsar minjar úr skáksögunni og eykur það á skemmtilegan andann á keppnisstað. Bragi Halldórsson, ís- lenskufræðingur og skákmaður, var á meðal áhorfenda og virtist fylgjast náið með tilþrifum hins unga og efni- lega Hjörvars Steins Grétarssonar. Hann settist með blaðamanni við hlið taflborðsins þar sem hið sögu- fræga einvígi Fischers og Spasskýs fór fram og sagði skemmtilegt að fylgjast með mótinu. Þarna væru ungir strákar að láta finna fyrir sér. „Það er gaman að fylgjast með Harikrishna, Carlsen og Mamedya- rov. Þessa þrjá eigum við eftir að heyra meira um í framtíðinni og þeir eru allir hugsanleg heimsmeist- araefni,“ sagði Bragi inntur eftir skákmönnum í uppáhaldi og spá um úrslit mótsins. „Þeir eru líklegir sig- urvegarar en ég hefði nú mest gam- an af að sjá Carlsen vinna mótið. Maður skyldi þó ekki vanmeta gamla refi eins og Sokolov og Timm- an sem hafa reynsluna með sér. En það geta margir unnið þetta mót.“ Bragi sagði íslensku keppendurna eiga í vök að verjast og fannst eng- inn þeirra líklegur til sigurs að þessu sinni. Hann tók undir að rafmögnuð spenna ríkti á mótsstað. „Stundum þegar fylgst er með skákmótum virðist ekkert vera að gerast en maður getur fundið spennuna með því að líta undir borð- in og horfa á fæturna á fólki, þeir skjálfa,“ sagði Bragi. „Spennan kemur ekki fram í andlitunum held- ur kannski frekar í fótunum.“ Blaðamaður rifjaði í huganum upp sögur um tilburði skákmanna til að slá andstæðinga sína út af laginu og spurði hvort þeir tileinkuðu sér visst látbragð í þeim tilgangi. „Það eru nú ákveðnar reglur um hvernig eigi að haga sér við skák- borðið og maður á ekki að trufla andstæðinginn. Það er ekki vel lið- ið,“ svaraði Bragi en blaðamaður var ekki af baki dottinn og minnti á þá tíma þegar reykingar við skákborðið voru óspart notaðar til truflunar. „Benjamín Franklín var nú skák- maður og hann skrifaði skemmtilega grein um það hvernig maður ætti að „Hógværara andrúmsloft en á fótboltaleik“ Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Guðmundur G. Þórarinsson Morgunblaðið/Ómar Helgi Ólafsson og Arnar Leó Helgason. Morgunblaðið/Ómar Bragi Halldórsson 1. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokksins hefur heimsótt lög- reglustjóraembættið í Reykjavík og kynnt sér starfsemi þess á kjör- tímabilinu. Í heimsókn okkar kom fram með skýrum hætti sú mikla áhersla sem lögreglan leggur á betra og skilvirkara eftirlit og sýni- lega löggæslu. Við viljum standa að því að borgin styðji með öllum ráð- um hverfislöggæslu í borginni. Góð og öflug hverfislöggæsla, sem er í góðum tengslum við einstaklinga, fé- lagasamtök og stofnanir í viðkom- andi hverfi, eykur öryggi íbúanna og heimilanna og reynsla okkar af störfum hverfislögreglunnar er mjög góð. 2. Lögreglumönnum sem starfa sér- staklega við hverfislöggæslu hefur fjölgað á und- anförnum árum og við hvetjum til þess að sú starf- semi verði efld enn frekar. Enn- fremur teljum við mikilvægt að efla samstarf lögregl- unnar og íbúa með svokallaðri nágrannavörslu. Við fluttum tillögu í borgarstjórn í júní á síðasta ári um að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öllum hverfum Reykjavíkur. Nú er í gangi tilraunaverkefni um nágrannavörslu í hverfum borgarinnar, sem er fólgið í því að íbúar við ákveðna götu bind- ist samtökum í samvinnu við lögregl- una um varnir gegn innbrotum. Við sjálfstæðismenn viljum styðja það verkefni eins vel og kostur er og að borgin leggi fram fjárhagslegan stuðning í því sambandi. Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram tillögu um að gerður verði þjónustusamningur milli borg- arinnar og lögreglunnar í þeim til- gangi að tryggja öryggi borgaranna í miðborginni enn frekar. Við viljum setja á laggirnar miðborgardeild í samvinnu við lögregluyfirvöld, fé- lagasamtök og hagsmunaaðila í þeim tilgangi. 3. Við teljum afar mikilvægt að sprautufíklum bjóðist ávallt góð fé- lags- og heilbrigðisþjónusta, þ.m.t. meðferðarúrræði. Í því sambandi er afar mikilvægt að styðja vel við starfsemi þeirra stofnana, sem ann- ast meðferð áfengis- og fíkniefna- sjúklinga. Einnig er sérstaklega brýnt að beita í enn frekara mæli að- haldi og forvarnarstarfi gagnvart ungu fólki sem notar áfengi í óhófi og önnur örvandi vímuefni. 4. Ég vil ekki útiloka að það verði gert og þá ekki síst hvað varðar of- beldisafbrot. Langflestir þeirra sem lenda í fíkniefnabrotum eru fíkni- efnaneytendur. Á hinn bóginn verð- ur aldrei lögð nægileg áhersla á hve forvarnir eru mikilvægar. Þess vegna ætlum við sjálfstæðismenn að beita okkur fyrir því að forvarnir verði stórefldar sem hluti af daglegu og reglubundnu starfi hvers grunn- skóla. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son Sjálfstæðisflokki Þjónustu- samningur við lögregluna tryggi mið- borgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.