Morgunblaðið - 14.03.2006, Side 33

Morgunblaðið - 14.03.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 33 UMRÆÐAN TILEFNI þessara skrifa minna er grein Guðjóns Traustasonar sjúkraþjálfara í Morgunblaðinu hinn 6. mars síðastliðinn. Ég er stundum spurð að því hvort nála- stungumeðferðin sé viðurkennd hér á landi. Ég svara því æv- inlega til að hún sé viðurkennd að því leyti að fólk innan „hefð- bundna“ heilbrigð- isgeirans, læknar, ljósmæður og sjúkra- þjálfarar, séu í aukn- um mæli farnir að nota þessa meðferð en að hún sé ekki lög- gild á Íslandi. Ég er í Nála- stungufélagi Íslands. Félagið skipa sjö meðlimir og öll erum við með þriggja til fjögurra ára nám í austurlenskri lækn- ingaaðferð (nála- stungum) að baki frá við- urkenndum skólum erlendis. Sjálf lauk ég fjögurra ára námi frá enskum nálastunguskóla og BS gráðu frá Brighton háskóla í nála- stungufræðum (acupuncture stud- ies). Samanlagt eru þetta tæp sex ár. Á fyrstu þremur árunum er farið ýtarlega í grunnfög vest- rænu læknavísindanna; anatómíu, lífeðlisfræði og meinafræði ásamt því að kennd eru fög austurlensku lækningaaðferðarinnar í þaula, öll fjögur árin. Fjórða árið er að mestu verklegt ásamt enn frekari kennslu í kínverskri læknisfræði og lokaritgerð. Ég starfa við nála- stungur í Reykjavík en hef ekki réttindi frá Landlæknisembættinu fyrir slíku. Í grein sinni segir Guðjón að sjúkraþjálfarar með BS-gráðu frá Háskóla Íslands fái réttindi frá Landlæknisembætti til að nota nálastungur eftir tveggja helga námskeið Magnúsar Ólasonar, læknis á Reykjalundi. Vart þarf að taka fram að aust- urlenska lækingaaðferðin eða kín- verskar lækningar eru gjörólíkar þeim vestrænu eða „hefðbundinni “ læknisfræði. Nálastungur eru orkulækningar sem ganga út á það, í mjög einföldu máli, að jafna orkuflæði. Á bak við þær eru mik- il fræði sem ekki verða kennd á nokkrum helgarnámskeiðum. Mér finnst það alvarlegt mál þegar fólk, þrátt fyrir að vera menntað í vestrænni læknisfræði, er að nota þær eftir stutt námskeið. Það veit ég vel að beita má nálastungu- meðferðinni við verkjum með góð- um árangri. En það gefur auga leið að þeir sem læra að beita nálastungum eftir stutt námskeið hafa litla sem enga kunnáttu í fræðunum sem að baki liggja. Þeir læra að velja nálastungu- punktana með tilliti til hvar verk- urinn er en við sem þekkinguna höfum notum púlsagreiningu og aðrar greiningaraðferðir kín- versku fræðanna sem segja okkur til um orkuflæði líkamans og þannig veljum við hvaða nálast- ungupunkta við not- um. Þannig erum við að jafna orkuflæðið og með því að vinna á einkennunum. Á þessum forsendum leyfi ég mér að efast um ágæti meðferðar sem beitt er af fólki með litla kunnátttu í fræðunum. Ég tel að það geti verið að koma á enn frekara ójafnvægi á orkuflæðið til lengri tíma litið, þrátt fyrir að einkennin, t.d höfuðverkur, hverfi. Austurlenska lækningaaðferðin lítur á hvern sjúkling sem ein- stakan og þar af leiðandi getur ástæða t.d. höfuðverkjar verið allt önnur „orkuójafna“ frá einum sjúklingi til annars, þrátt fyrir að báðir hafi þjáðst af verknum síð- an þeir lentu í slysi eða eitthvað slíkt. Við í Nálastungufélagi Íslands erum ekki löggild. Okkar sjúk- lingar fá ekki niðurgreidda nál- astungumeðferð hjá Trygg- ingastofnun ríkisins eins og sjúklingar Guðjóns og kollega hans, læknanna og ljósmæðranna sem beita nálastungumeðferð. Okkar sjúklingar fá ekki að fara í blóðgjöf hjá Blóðbankanum í 6 mánuði eftir að hafa fengið nála- stungur en hafi þeir fengið nála- stungur frá lækni með íslenskt læknaleyfi eða heilbrigðisstarfs- manni undir hans ábyrgð þá mega þeir fara jafnvel samdægurs í blóðgjöf. Er ekki kominn tími til að við sem menntunina og mestu þekk- inguna höfum fáum að beita nál- astungum á sama grundvelli, þ.e. séum „viðurkennd“ og meðferðir okkar niðurgreiddar af ríkinu, eins og þeir í vestræna eða „hefð- bundna“ heilbrigðisgeiranum? Væri ekki þannig verið að bjóða sjúklingum upp á bestu mögulegu þjónustu og í leiðinni að auka val sjúklinga sem vilja leita annarra úrræða en hafa ekki efni á því? Nálastungur Ólöf Einarsdóttir fjallar um nálastungur ’Nálastungur eru orku-lækningar sem ganga út á það, í mjög einföldu máli, að jafna orku- flæði.‘ Ólöf Einarsdóttir Höfundur er með BS-gráðu í nálastungufræðum. TENGLAR .............................................. www.nalastungur.com Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg Fáðu úrslitin send í símann þinn Hvalvitleysa Því miður tel ég mig knúinn til að lýsa furðu minni á því sem stjórnvöld hafa í lengstu lög reynt, og það eftir megni, að koma í veg fyrir að hinn almenni Íslend- ingur viti um hval- veiðistefnu Íslend- inga. Það er kannski ekki nema furða því sú stefna virðist ekki til. Þegar stjórnvöld tóku þá ákvörðun að setja saman vís- indaáætlun og ganga inn í Alþjóðahval- veiðiráðið virðist það gert í einum tilgangi. Að geta veitt hvali og selt afurðir þeirra til Japans ekki til að rannsaka lífshætti þeirra. Vil ég með þessum skrifum koma fram þeim upplýsingum sem allir ættu að vita sem borgarar veiðimannaþjóðar. Ríkisstjórnin og ráðuneyti undir henni, hefur ausið á þriðja hundrað milljónum í að kynna hval- veiðistefnu Íslendinga. En hafa Ís- lendingar sjálfir notið góðs af þess- ari kynningu? Hvað vita margir sem þetta lesa hvað upphaflega vísindaáætlunin hefði framleitt mikið kjöt sem samkvæmt reglum hvalveiðiráðsins er skylt að nýta? Það er tekið fram á vef alþjóðahvalveiði- ráðsins að áætlaðar afurðir yrðu u.þ.b. 4.000 tonn. Er það meira enn allt nauta- kjöt framleitt á Ís- landi. Þannig að fyrir þann sem þetta magn veiðir, verkar og sel- ur, eru talsverðir hagsmunir. En hvað er að? Af hverju geng- ur svo illa að nýta kjötið? Í fyrra var kjötið af hrefn- unum um 35–40 tonn. Þetta þýðir að það þyrfti 250 ár fyrir Íslend- inga að innbyrða vísindaáætlunina. Nú hugsa eflaust margir „af hverju ekki flytja það út?“ Það væri búbót fyrir efnahaginn. Mikið rétt. En framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekki hafi tekist að finna markaði enn og Sjávarútvegsráðherra hefur engar áhyggjur um að það náist ekki að selja kjötið. Málið er nefni- lega þannig að það eru góðir og stórir markaðir í Asíu Kína, Indónesíu, Taívan og Taílandi, en þeir eru lokaðir. Japan eins og Ís- land og Noregur eru með fyrirvara á milliríkjasamningi sem leyfir verslun með afurðirnar en Japan hefur sjálft sett innflutningsbann á hvalkjöt. Ef menn staðhæfa í sjón- varpi fyrir alþjóð að það sé ekkert mál að selja þessar afurðir verða þeir ekki að veifa pappírum sem sanna þeirra mál? En það efast enginn. Alþjóðahvalveiðiráðið saman- stendur af 60 ríkjum og gengur al- veg hörmulega að fá meirihluta þeirra þjóða jafnvel að ræða at- vinnuveiðar, hvað þá að leyfa þær. Aðilar að Cites sáttmálanum eru um 200 ríki og þarf þar eins og í Alþjóðahvalveiðiráðinu 2⁄3 ríkja til að taka dýr út af listum um dýr í útrýmingarhættu. Halda menn að það gangi eitthvað betur þar? Þá komum við að merg máls- ins!!! Til hvers stöndum við í öllu þessu þrasi við heimsbyggðina? Til hvers erum við að ergja þjóðir sem líta upp til okkar þegar náttúra og nýting auðlinda hafsins eru ann- arsvegar? Erum við að fórna mikl- um hagsmunum fyrir hagsmuni sem eru ekki raunhæfir? Ég verð að segja fyrir mitt leyti, mann sem hefur alist upp í kring- um og í sjávarútvegi, að það á að veiða og nýta hvalina ef það stuðl- ar ekki alvarlega að fækkun og hættu á útrýmingu dýranna, en það er forsenda allra vinnubragða að reyna að gera hlutina rétt. Ekki fara í kringum hlutina og gefa rangar vísbendingar og jafnvel rangar upplýsingar bara til að láta ætlunarverkið ganga upp. Eða bara til að sanna að það geti eng- inn sagt okkur fyrir verkum? Og ef það er svona mikið hjartans mál að grisja hvalinn er ekkert annað en að leigja skyttu og skjóta hann. Ekki eru mávarnir á tjörninni mat- reiddir eftir að þeir eru grisjaðir. Í öllum fréttum dagblaðanna um hvalveiðar er því miður verið að éta upp texta sem þeim er afhent- ur og innihalda engar upplýsingar í reynd. Formaður sendinefndar Íslands í fyrra á fundi Alþjóðahval- veiðiráðsins sagði að stór skref hafi verið stigin á ársfundinum! Þessi stóru skref voru „víkkun á umræðu á veiðireglunum“ sem nánast verður ógerlegt að nokkurn tímann verði samþykktar. Ef það tók heilt ár í að fá þá til að víkka umræðuna (ekki ákvörðunartök- una) hvað verðu þá langt í að veið- ar í atvinnuskyni verði leyfðar? Það hefur verið annað uppi á ten- ingnum ef vilyrði frá Japönum fyr- ir kaupum á afurðum lægi fyrir. Þá gætu jú líka aðrir sem sæju tæki- færi til að skapa sér atvinnu á þessum veiðum að koma sér upp aðstöðu, tækjum og tólum til að taka þátt í þessum veiðum. En það er jú einungis eitt fyrirtæki í dag sem gæti hugsanlega farið út í veiðar á stórhvelunum. Japanir hóta að ganga úr Al- þjóðahvalveiðiráðinu og ef þeir gera það verður Íslandi ekki heim- ilt að flytja þangað kjöt nema að segja sig aftur úr hvalveiðiráðinu. En okkur er það ekki leyfilegt einu sinni núna því þeir vilja ekki ut- anaðkomandi kjöt hvort sem er. Þannig að vonandi sér almenn- ingur nú hverskonar vitleysa þetta er, og kannski ráðamenn líka sem standa kannski of utanvið málin, eða átta sig á því að þeir hafa sokkið of djúpt í eigin loforð um að við munum veiða hval aftur. Óska ég hér með að Íslendingum verði skýrt frá og kynnt hval- veiðistefna ríkisstjórnarinnar og sjávarútvegsráðuneytisins það er jú með peningum sem við allir Ís- lendingar greiddum sem verið er að eyða í þessa hringavitleysu. Hvalveiðar Gunnar Halldórsson fjallar um hvalveiðar ’Óska ég hér með að Ís-lendingum verði skýrt frá og kynnt hvalveiðistefna ríkisstjórnarinnar og sjávarútvegsráðuneyt- isins.‘ Gunnar Halldórsson Höfundur er frumkvöðull á nýsköpun á sjávarfangi. H er dí s Pá la In ga H an na Á re lía E G ís li M ar te in n Samræming vinnu og einkalífs vongó›ra millistjórnenda Hádegisver›arfundur FVH í samstarfi vi› Starfsmannastjóraklúbbinn, flri›judaginn 14. mars nk. kl. 12, í Gullteig, Grand Hótel Reykjavík. Skrá›u flig strax! Vinsamlega skrái› flátttöku á vef FVH, www.fvh.is e›a í síma 551 1317. Ver› me› hádegisver›i er 3.000 fyrir félaga FVH og 4.800 fyrir a›ra. Fundurinn er öllum opinn! D A G S K R Á Kl. 11.45 SKRÁNING Kl. 12.00-12.20 HVA‹ EINKENNIR VONGÓ‹A STJÓRNENDUR? Árelía E. Gu›mundsdóttir, Ph.D. Lektor vi› vi›skipta- og hagfræ›i- deild Háskóla Íslands Kl. 12.20-12.40 MIKILVÆGI VILJASTYRKS OG ÚTSJÓNARSEMI MILLISTJÓRNENDA Inga Hanna Gu›mundsdóttir Starfsmannastjóri hjá Landhelgis- gæslu Íslands Kl. 12.40-13.00 JAFNVÆGI VINNU OG EINKALÍFS HJÁ GLITNI Herdís Pála Pálsdóttir Deildarstjóri í starfsmannafljónustu Glitnis Kl. 13.00-13.30 PALLBOR‹SUMRÆ‹A FUNDARSTJÓRI Gísli Marteinn Baldursson E N N E M M / S IA / N M 2 0 8 6 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.