Morgunblaðið - 14.03.2006, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ósk Guðmunds-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 11. sept-
ember 1924. Hún
lést í Malmö í Sví-
þjóð 26. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Indriði Guðmunds-
son, f. 1894, d. 1942,
og Anna Þorláks-
dóttir, f. 1885, d.
1930. Ósk átti níu al-
systkin, þau eru,
Einar Júlíus Indr-
iðason, f. 1916, d.
1993, Guðrún Indriðadóttir, f.
1917, Una Indriðadóttir, f. 1918,
d. 1994, Guðríður Jóna Indriða-
dóttir, f. 1920, Guðmundur Hann-
esson Indriðason, f. 1923, Sigurð-
ur Rósant Indriðason, f. 1923, d.
2003, Gunnar Þorkell Indriðason,
f. 1925, Sigrún Alda Indriðadóttir,
f. 1926, og Drengur Indriðason, f.
1930, d. 1930, og tvö hálfsystkin,
Pétur Þorlák Einarsson, f. 1907,
d. 1972, og Önnu Sigurlaugu Ein-
arsdóttur, f. 1908, d. 1983.
Ósk ólst frá 1930 upp hjá kjör-
foreldrum í Hafnarfirði, þeim
Guðmundi Þorbjörnssyni og Ingi-
björgu Símonardóttur.
Dóttir Óskar og
Kristins Jóhanns
Björgvins Helga-
sonar er Guðbjörg
Guðmundsdóttir, f.
1942, d. 2002. Eigin-
maður Guðbjargar
er Björgvin Krist-
jánsson, f. 1936.
Synir þeirra eru
Guðmundur, f. 1961,
Indriði, f. 1962,
Trausti, f. 1963, og
Halldór, f. 1966.
Ósk giftist Guð-
mundi Jónssyni og
áttu þau heimili sitt á Bolungar-
vík. Leiðir þeirra skildi og fluttist
hún þá til Keflavíkur og starfaði
þar sem læknamiðill fyrir Sálar-
rannsóknarfélag Suðurnesja ár-
um saman. 1990 fluttist Ósk svo til
Svíþjóðar þar sem dóttir, tengda-
sonur og fjórir dóttursynir henn-
ar bjuggu. 2002 varð hún fyrir því
að fá heilablóðfall og missti hún
dóttur sína sama ár úr krabba-
meini, eftir þetta bjó hún á hjúkr-
unarheimilum þar ytra.
Ósk verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Kveikt er ljós við ljós,
burt er sortans svið.
Angar rós við rós,
opnast himins hlið.
(Stefán frá Hvítadal.)
Ljós og rósir koma upp í huga
okkar um leið og við minnumst
elskulegrar vinkonu, Óskar Guð-
mundsdóttur, sem nú hefur kvatt
jarðlífið eftir erfið og sársaukafull
veikindi.
Hún Ósk var sannur ljósberi sem
kom mörgu góðu til leiðar enda
fékk hún í náðargjöf kraft til að
líkna öðrum og fengum við sem
aðrir að njóta þess óspart. Hún var
mikill fræðari um andleg málefni
og óspör að miðla þekkingu sinni til
okkar samferðamannanna og má
segja að hún hafi tendrað ljós í
hjarta fjölda fólks sem varð á vegi
hennar.
Ósk var ákaflega heilsteypt kona,
trú og trygg. Útgeislun hennar og
fegurð minntu á geisla sólarinnar.
Hún sóttist ekki eftir auði og met-
orðum en gaf samferðamönnum
sínum mikið með því einu að vera
til og veita þeim vináttu og skiln-
ing. Sérstakt lífslán var að njóta
samvista við slíka merkiskonu.
Nærvera hennar var afar góð og
hlý.
Minningar streyma fram í hug-
ann þegar við rifjum upp allar
skemmtilegu stundirnar sem við
áttum saman. Oft var glatt á hjalla,
mikið hlegið, sagðir brandarar og
má með sanni segja að „maður er
manns gaman“.
Fyrir allmörgum árum fluttist
Ósk til Svíþjóðar. Þar átti hún
margar góðar stundir ásamt fjöl-
skyldu sinni. Mesti gleðigjafinn í
lífi hennar var dóttirin Guðbjörg en
hún bjó líka í Svíþjóð með fjöl-
skyldu sinni. Guðbjörg andaðist
fyrir nokkrum árum og um svipað
leyti veiktist Ósk hastarlega og
náði aldrei heilsu eftir það. Má
ætla að miklir fagnaðarfundir verði
þegar þær hittast í nýjum heim-
kynnum.
Elsku Ósk þökkum við samfylgd-
ina og biðjum Drottin Guð að taka
hana að sér, lýsa henni veginn og
veita henni styrk og blessun í ríki
sínu. Aðstandendum hennar vott-
um við okkar dýpstu samúð.
Eftirfarandi erindi viljum við
hafa sem kveðjuorð til minningar
um Ósk okkar.
Þú alltaf verður einstök rós,
elsku vinan góða.
Í krafti trúar kveiki ljós
og kveðju sendi hljóða.
(Jóna Rúna Kvaran.)
Kristín Th. Ágústs-
dóttir, Guðrún Norð-
fjörð.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Kær vinkona mín, Ósk Guð-
mundsdóttir, hefur kvatt þetta líf.
Sárt þykir mér að henni skyldi ekki
verða að ósk sinni að koma heim til
Íslands sem hún þráði svo heitt.
En, það er einn sem ræður. Eitt
getum við verið fullviss um, að hún
hefur fengið góða heimkomu. Hún
Guðbjörg dóttir hennar og ættingj-
ar hafa tekið henni opnum örmum.
Ósk var fædd með þann mikla
hæfileika að hjálpa fólki sem var
veikt. Hér á landi eru þeir ófáir
sem hún hjálpaði og eru henni
þakklátir. Hún starfaði við að
hjálpa öðrum alla ævi og bænirnar
hennar voru svo sannarlega guðs-
gjöf.
Hún starfaði hjá Sálarrannsókn-
arfélagi Suðurnesja um 20 ára
skeið. Með okkur tókst mikil vin-
átta frá fyrstu tíð og hélst alltaf
síðan. Hún hjálpaði mér, hvatti og
kenndi. Fyrir þetta allt get ég seint
fullþakkað.
Eftir að hún flutti til Svíþjóðar
kom hún hingað einu sinni á ári og
dvaldi oft hjá mér í Vogunum.
Þessi tími sem hún var hér var allt-
af stuttur, því það voru svo margir
sem vildu hitta hana. Oft sátum við
fram á nótt og töluðum um andleg
málefni og spjölluðum um allt
mögulegt og skemmtum okkur vel.
Allar þessar stundir og margt
fleira geymi ég með sjálfri mér.
Það eru margar myndir sem ég
sé fyrir mér þegar ég hugsa um þig
og það er gott að ylja sér við þær.
Já, margs er að minnast og mikið
er þér þakkað af allri minni fjöl-
skyldu og, elsku Ósk mín, kærar
þakkir fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig. Ég veit að þú hefur litið við
þegar þú fórst til Guðs þíns, sem
þú trúðir svo heitt á.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldu þinnar.
Ég kveð þig eins og við vorum
vanar að kveðjast, Guð geymi þig,
kæra vinkona mín.
Hrefna Kristjánsdóttir.
ÓSK
GUÐMUNDSDÓTTIR
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUÐMANN SKÆRINGSSON,
Suðurbraut 2A,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins
13. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ósk Alfreðsdóttir,
Jóna Birna Guðmannsdóttir, Sveinn Gunnarsson,
Inga Kristín Guðmannsdóttir, Kristinn Þór Ásgeirsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Litlu-Tungu í Holtum,
Grænumörk 2,
Selfossi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
10. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Karl Jóhann Þórarinsson, Inga Jóna Einarsdóttir,
Vigdís Þórarinsdóttir, Gunnar A. Jóhannsson,
Vilhjálmur Þórarinsson, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Þorsteinn Gunnar Þórarinsson, Sigríður Ása Sigurðardóttir,
Þórdís Torfhildur Þórarinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við
fráfall bróður míns, stjúpföður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURÐAR SVEINSSONAR,
Gullsmára 10,
Kópavogi.
Björgvin Ólafsson,
Rögnvaldur Guðmundsson, Helga Björg Stefánsdóttir,
Áslaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Sölvi Ásgeirsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Theo Taytelbaum
og afabörn.
Látin er
MARÍA INGIBJÖRG GUÐNADÓTTIR,
Ásgarði 24a,
Reykjavík.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ragnar Steingrímsson,
Hulda Ragnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Ragnar Snorrason, Petra Baumbruk,
Haukur Snorrason,
Atli Snorrason.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Sléttahrauni 23,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
12. mars.
Sonja Jónasdóttir, Ingimar H. Victorsson,
Ása Rún, Bjarki Þór,
Jónas Logi, Una Dís.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
STEINUNN PÁLSDÓTTIR,
Sigtúni 29,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt
sunnudagsins 12. mars.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson,
Sigurbjörn Þorkelsson, Laufey G. Geirlaugsdóttir,
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson,
Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson,
Páll Steinar Sigurbjörnsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍSABET PÉTURSDÓTTIR,
áður Langholtsvegi 150,
síðast til heimilis á
Dalbraut 27,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu-
daginn 13. mars.
Eyjólfur Pálsson, Margrét H. Ásgeirsdóttir,
Marta Pálsdóttir, Guðmundur Hannesson,
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
SIGTRYGGUR JÓSEFSSON,
Breiðumýri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 12. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Björg Arnþórsdóttir.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR