Morgunblaðið - 14.03.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.03.2006, Blaðsíða 43
og opna fyrir skapandi umræðu um verk sín. Rýnt verður í myndmálið í verkum Thors, sem teygir sig í myndlistina og fjallað um nýafstaðna sýningu á verkum hans í Gerðubergi. Aðgangur er ókeypis. Nánari uppl. í s. 659 3313. Söfn Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum. Opið daglega kl. 13–18.30 til 1. apríl. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn sýnir ljósmyndir. Mannfagnaður Bókasafn Kópavogs | Ritlistarhópur Kópavogs verður með upplestur 16. mars, á nýjum stað, Kaffibúðinni Hamra- borg 1–3. Óskar Árni Óskarsson handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör les úr verkum sín- um. Kynnir Birgir Svan. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Fyrirlestrar og fundir Vináttufélag Íslands og Kanada | Dr. Jónas Kristjánsson handritafræðingur fjallar um fræðibók sína „Landnáms- maður vesturheims; Vínlandsför Þorfinns karlsefnis“, í máli og myndum, á fundi hjá Vináttufélagi Íslands og Kanada. Fundurinn verður 15. mars kl. 20, í stofu 106 í Odda, Háskóla Íslands. Allir vel- komnir. Bókasafn Kópavogs | Félagar úr Ása- trúarfélaginu verða með erindi um ásatrú í Bókasafni Kópavogs, einnig fyr- irsp. og umræður. Fer fram 15. mars kl. 17.15–18.15. Þetta er hluti erindaraðar um trúarbrögð. Friðarhús | Dagur Þorleifsson sagnfræð- ingur heldur fyrirlestur kl. 20, á vegum Samtaka herstöðvaandstæðinga um sögu Íraks og rætur þeirrar borgarastyrjaldar sem þar geisar nú um stundir. Fyrir- spurnir og umræður í lok fundar. Kvenfélag Breiðholts | Kvenfélagið held- ur félagsfund kl. 20, í Safnaðarheimili Breiðholtskirkju (inng. suðurdyr). Um- ræðuefni: Samskipti ólíkra menningar- heima. Kaffiveitingar. Landakot | Fyrirlestur á vegum fræðslu- nefndar Rannsóknastofu í öldr- unarfræðum RHLÖ, verður í kennslusaln- um á 6. hæð á Landakoti, 16. mars kl. 15. Aðalsteinn Guðmundsson öldrunarlæknir mun fjalla um beinþynningu og beinbrot meðal aldraðra. Sent út með fjar- fundabúnaði. Náttúrulækningafélag Reykjavíkur | Að- alfundur verður 16. mars kl. 20, í húsi Eddu útgáfu Suðurlandsbraut 12, 7. hæð (lyfta). Á dagskrá verða venjuleg aðal- fundarstörf. Veitingar verða í boði félags- ins. Maður lifandi | Þorvaldur Þorsteinsson heldur fyrirlestur fyrir alla sem halda að þeir séu eitthvað. Hann fjallar um þá hugmyndakreppu sem einkennir menntun okkar og fjölmiðlasamfélag og veltir fyrir sér hvort við erum ef til vill að misskilja hlutverk okkar í lífinu. Fyrirlesturinn fer fram kl. 18–19. OA-samtökin | OA karlafundur að Tjarn- argötu 20 (gula húsinu) kl. 21–22. OA er félagsskapur karla og kvenna sem hittast til að finna lausn á sameiginlegum vanda – hömlulausu ofáti. www.oa.is ReykjavíkurAkademían | Fyrirlestur á vegum Mannfræðifélags Íslands verður kl. 12–14: Hver er reynsla íslenskra kvenna af hjónaskilnaði annars vegar og því að missa maka sinn í dauða hins veg- ar? Hver voru viðbrögð samfélagsins? Í erindinu verða kynntar niðurstöður rann- sóknar höfundar. Fyrirlesari: Sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Styrkur | Styrkur verður með fund að Skógarhlíð 8, kl. 20. Dagskrá: Reykingar og lungnakrabbamein. Sigríður Ólína Har- aldsdóttir lungnalæknir ræðir um reyk- ingar og Halla Skúladóttir krabbameins- læknir ræðir um lungnakrabbamein. Kaffi. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður í Borgarnesi við Hyrnuna 15. mars kl. 10– 17. Frístundir og námskeið Kennslustofa FSA, Akureyri | Fræðslu- námskeið fyrir fólk með vefjagigt, hefst á Akureyri 18. mars. Markmið námskeiðs- ins er að miðla aukinni þekkingu til þátt- takenda um sjúkdóm sinn, afleiðingar hans og hvað þeir geti sjálfir gert til að stuðla að betri líðan. Skráning á nám- skeiðið á skrifstofu Gigtarfélagsins í síma 530 3600. Mímir-símenntun ehf | Námskeið um Kenía í samvinnu Mímis og Úrvals- Útsýnar verður haldið 15. og 22. mars kl. 20–22. Á námskeiðinu verður fjallað um menningu, sögu og dýralíf Kenía. Umsjón með námskeiðinu hafa Elín Þorgeirsdóttir og Borgar Þorsteinsson. Skráning í s. 580 1800 eða á www.mimir.is. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 43 MENNING Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Jóga kl. 9, postu- línsmálning kl. 13, spænska kl. 10, lestrarhópur kl. 13.30. Farið verður í Iðnó 15. mars, á leiksýninguna Snúð og Snældu kl. 14. Aðgöngumiðar á Aflagranda Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi, sund, vefnaður, línudans, boccia og fótaaðgerð. Dalbraut 18–20 | Félagsvist kl. 14. Leikfimi, postulín, framsögn o.fl. Snúður og Snælda 19. mars kl. 14. Handavinnustofan Dalbraut 21–27 opin alla virka daga. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, afmælismót, Friðrik Ólafsson verður heiðursgestur. Framsögn fellur niður. Félagsvist kl. 20. Göngu-Hrólfar ganga 15. mars kl. 10 og leikfélagið Snúður og Snælda sýnir „Glæpir og góðverk“ í Iðnó kl. 14. Miðapantanir í Iðnó s. 562 9700 einnig seldir við innganginn. Sýn- ingar eru á miðvikudögum og sunnu- dögum í mars. Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu- starf í Ármúlaskóla kl. 16.20–18. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.50, gler- og postulíns- málun 9.30, handavinna kl. 10, róleg- ar æfingar 10.50, tréskurður 13, al- kort 13.30, ganga kl. 14, fræðslu- fundur Glóðar kl. 20, Þorgrímur Þráinsson ræðir um lífið og tilveruna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi kl. 13 í Mýri. Línudans kl. 13 og tré- smíði kl. 13.30 í Kirkjuhvoli. Opið hús í safnaðarheimilinu á vegum kirkj- unnar kl. 13 og kóræfing kl. 17. Hraunbær 105 | Kl. 9 handavinna, glerskurður, kaffi, spjall, dagblöðin, hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 ferð í Bónus, kl. 12.30 skrautskrift, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, myndmennt kl. 10, leikfimi kl. 1.30, myndmennt kl. 13, brids kl. 13 og glerskurður kl. 13. Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur kl. 9–13, hjá Sigrúnu. Boccia kl. 9.30– 10.30, helgistund kl. 13.30, í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Myndlist kl. 13.30–16.30, hjá Ágústu. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s. 588 2320. Hársnyrting s. 517 3005. Hæðargarður 31 | Leikfimi, fé- lagsvist, tölvukennsla, postulín, gler- skurður, framsögn, gönguferðir, ljóð- listarnámskeið, myndlist o.fl. Snúður og Snælda 19. mars kl. 14. Sími 568 3132. Korpúlfar Grafarvogi | Félagsvist á Korpúlfsstöðum á morgun kl. 13. Kvenfélag Kópavogs | Félagsfundur kvenfélagsins verður haldinn 15. mars kl. 20, í sal félagsins, Hamra- borg 10, 2. hæð. Norðurbrún 1, | Myndlist og smíði kl. 9, opin vinnustofa kl. 9–16.30, Boccia kl. 10, postulínsmálning kl. 13–16.30, leikfimi kl. 14. Safnaðarheimili Fella- og Hóla- kirkju | Kvenfélagið Fjallkonurnar heldur aðalfund kl. 20, í safn- aðarheimilinu. Á eftir verður spiluð félagsvist. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Bingó í kvöld kl. 19.30, félagsheimilinu Hátúni 12. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 postulínsmálun, kl. 13–16 bútasaum- ur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, handmennt alm. kl. 9–16.30, hár- greiðsla kl. 9, morgunstund kl. 9.30, fótaaðgerðir kl. 9.30, leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 1). Áskirkja | Opið hús kl. 10–14. Hádeg- isbæn kl. 12. Boðið upp á hádeg- isverð. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.10, léttur málsverður, helgistund, Ólafur Skúlason biskup, kaffi kl. 12. 10–12 ára starf KFUM&K kl. 17–18.15. Húsið opnað kl. 16.30. www.digra- neskirkja.is Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta kl. 18.30. Alfa námskeið kl. 19. Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund í Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn kl. 12. Eftir stundina er hægt að kaupa súpu og brauð. Kl. 13–16 er opið hús fullorðinna. „Spil og spjall“, kaffi og meðlæti í boði kirkjunnar. Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju kl. 13–16. Pútt og spil- aður lomber, vist og bridge. Kaffi og meðlæti kl. 14.30. Helgistund í kirkj- unni kl. 16. Akstur fyrir þá sem vilja, upplsími: 895 0169. Grafarvogskirkja | Helgistundir alla virka daga föstunnar kl. 18–18.15. Lesið úr Passíusálmunum. Í dag les Ásta R. Jóhannesdóttir alþing- ismaður. Grensáskirkja | Kyrrðarstund í há- deginu kl. 12. Orgelleikur, ritning- arlestur, altarisganga og fyrirbænir. Léttur matur á eftir í safnaðarheim- ilinu gegn vægu gjaldi. Kl. 15.30– 16.30 vd. KFUM og KFUK 6–9 ára. Kl. 17–18 yd. KFUM og KFUK 10–12 ára. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Starf með öldruðum kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta er í Hjallakirkju kl. 9.15–11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfs- sonar héraðsprests. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 18. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 1 kl. 19. www.gospel.is – www.alfa.is KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK 14. mars kl. 20. „Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi …“ Svanhvít Hall- grímsdóttir, tónlistarkennari fjallar um uppáhaldssöngvana sína. Kaffi. Allar konur eru velkomnar. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, 15. mars kl. 20. Karl Jónas Gíslason talar. Bænastund. Kaffi. Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20, Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunn- arssonar. Sóknarprestur flytur Guðs- orð og bæn. Kl. 20.30 ganga 12 sporahópar til sinna verka en í safn- aðarheimilinu, boðið upp á trú- fræðslu þar sem Bjarni Karlsson fræðir um mannréttindi og Biblíulega trú. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7 4. Bxd7+ Rxd7 5. 0-0 Rgf6 6. De2 e6 7. c3 Be7 8. d4 0-0 9. Bg5 Hc8 10. dxc5 Rxc5 11. Rbd2 h6 12. Bh4 Db6 13. b3 e5 14. Bxf6 Bxf6 15. Had1 Hfd8 16. Hfe1 Re6 17. c4 Rf4 18. Df1 Da5 19. g3 Re6 20. De2 a6 21. Rf1 b5 22. Re3 bxc4 23. Rxc4 Db4 24. Hd3 Hc6 25. Hed1 Be7 26. Hd5 Hdc8 27. Kg2 Hxc4 28. bxc4 Hxc4 29. Rd2 Hc2 30. Dxa6 Rd4 31. Da5 Db8 32. Rf3 Re6 33. H1d2 Hc1 34. Hd1 Hc4 35. Rd2 Hc2 36. Rb3 Dc8 37. Hxd6 Staðan kom upp í fyrstu deild í seinni hluta Íslandsmót skákfélaga sem fram fór fyrir skömmu í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Fléttukóngurinn að norðan, Gylfi Þórhallsson (2.187), hafði svart gegn Haukamanninum Ágústi Sindra Karlssyni (2.307). 37. ... Rf4+! 38. Kf3 hvítur hefði orðið mát eftir 38. gxf4 Dg4+ 39. Kf1 De2+ sem og eftir 38. Kg1 Dh3. 38. ... Hc3+ 39. H6d3 Rxd3 40. Ke2 Dc4! 41. Dxc3 Rf4+ 42. Kd2 Bb4 43. Dxb4 Dxb4+ 44. Ke3 Dc3+ og hvítur gafst upp. Lokaumferð alþjóðlega Reykavík- urmótsins hefst kl. 13.00 í dag í skákmiðstöðinni í Faxafeni 12. Skákáhugamenn eru hvattir til að mæta og fylgjast með spennandi skákum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Gallerí + á Akureyri fagnar nú tíu ára starfsafmæli sínu með því að sýna verk listamannsins sem var fyrstur til að sýna þar, Hlynur Hallsson er mættur aftur. Mynd- listarmennirnir og hjónin Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Joris Rademaker hafa unnið aðdáun- arvert starf með nokkuð stöðugu og metnaðarfullu sýningarhaldi í sýningarrýminu, en margir okkar bestu myndlistarmanna hafa sýnt verk sín í Gallerí + og gefið norð- anmönnum aukin tækifæri til að fylgjast með samtímamyndlist. Pál- ína og Joris eiga sinn þátt í að koma Akureyri svo rækilega á kortið sem raun ber vitni, en sýn- ingaraðstaða fyrir myndlist er mjög breytt frá því sem var fyrir áratug. Þau hafa unnið mikið starf í sjálfboðavinnu og væri sannarlega kominn tími til að Akureyrarbær áttaði sig á gildi þessa litla sýning- arstaðar og mæti hann að verð- leikum. Hlynur Hallsson er sá listamaður íslenskur sem hvað staðfastast og jöfnustum höndum hefur unnið að því að flétta saman líf og list í myndlist sinni. Hann forðast að flækja hlutina, verk hans eru jafn- an einföld að gerð og auðskilin án þess þó að vera rýr að merkingu, oftar en ekki fæst hann við al- þjóðleg, pólitísk málefni. Sýning Hlyns nú endurómar að nokkru leyti sýninguna fyrir tíu ár- um. Þá voru t.a.m. fjórar útvarps- rásir á Akureyri og fjögur útvörp á sýningunni sem útvörpuðu í síbylju. Nú eru rásirnar átta og útvörpin sömuleiðis, síbyljan dynur yfir sýn- ingarrýmunum þremur. Í innra rými sýnir Hlynur töluverðan fjölda skjala og pappíra frá Alþingi þar sem hann situr um stundar- sakir en hann er varaþingmaður Vinstri grænna og kom inn á þing eftir slys Steingríms J. Sigfússonar í janúar. Einnig sýnir hann mynd- band frá Alþingi og stóra ljósmynd af syni sínum áletraða stuttum texta, eins og dagbókarbrot. Á borði má skoða bækling og bækur um list Hlyns. Þessi samsetning er nokkuð dæmigerð fyrir viðhorf Hlyns til listarinnar og stöðu lista- mannsins sem þátttakanda, áhorf- anda og listræns skrásetjara sam- tímans. Með því að gera hið daglega líf að viðfangsefni list- arinnar án þess að upphefja það í annað form, leitast hann við að fá áhorfandann til að horfa og hugsa á sjálfstæðan hátt, sjá merkingu, gildi, fegurð eða stærra samhengi í daglegum athöfnum okkar. Í fremra rými hefur Hlynur skrifað með bláu graffiti á tvo veggi eft- irfarandi texta: „Vinsamlega stattu í skammarkróknum og snúðu and- litinu hérna út í horn og vertu þar þangað til einhver leysir þig sjálf- viljugur af hólmi. Hlynur hefur birt áþekkan eða samhljóma texta áður en hér stendur textinn einn og sér og er opinn til túlkunar. Hver á að standa í skammarkróknum? Lista- maðurinn, áhorfandinn, við öll? Þessi stutti og einfaldi texti býður upp á vangaveltur um samfélag sem hikar ekki við að refsa, hvort sem í hlut eiga einstaklingar eða heilar þjóðir. Um leið er þetta eins konar ákall til samúðar og sjálfs- fórnar sem er hvorug hátt skrifuð í dag. Ljósmynd Hlyns í dagbókarformi er hluti af stærra verkefni sem sjá má í Jónas Viðar Gallery í Lista- gili, en þar gefur að líta allnokkrar stórar ljósmyndir og nokkrar minni. Hér birtist daglegt líf í sam- tímanum, öllum myndum fylgir stuttur texti á þremur tungumálum eins og til að ítreka tilvist íslenskr- ar tilveru sem hluta af stærri heild, myndirnar eru teknar jafnt hér heima sem erlendis. Hlynur kemur í þessum einföldu og aðgengilegu verkum inn á marga þætti vest- ræns samfélags bæði í listheim- inum og einkalífinu. Hlaðið morg- unverðarborð öðlast stærri merkingu, ofgnótt og allsnægtir eru okkar daglega brauð. Íslenskur landbúnaður, alþjóðlegt myndlist- arlíf og pólitík, allt snertir þetta hvað annað í heildrænni heimssýn hvíts, upplýsts Evrópubúa en list Hlyns er einmitt mjög evrópsk og í anda strauma og stefna innan hins vestræna heims á síðustu áratug- um. Hlynur fylgir list sinni eftir á öllum sviðum, þátttaka hans í póli- tík er hluti af list hans og afstöðu og einmitt þannig verður sú bar- átta fyrir betra lífi, jafnrétti og lífs- ins gæðum öllum til handa, sem er til staðar að baki verkum hans án þess að vera færð í orð, trúverðug og sannfærandi. Hluti af stærri heild MYNDLIST Gallerí + Jónas Viðar Gallery Til 25. mars. Gallerí + er opið lau. og sun. frá 14–17 og samkvæmt samkomulagi. Jónas Viðar Gallery er opið 13–18 fös. og lau. og samkvæmt samkomulagi. Blönduð tækni, Hlynur Hallsson Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eitt verka Hlyns Hallssonar á tíu ára afmælissýningunni í Gallerí +. Joris Rademaker, annar eigenda gallerísins, stendur í horninu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.