Morgunblaðið - 05.04.2006, Page 16
Tálknafjörður | Ungmennafélag
Tálknafjarðar var með svokall-
aðan fiskidag í íþróttahúsinu
síðastliðinn laugardag. Vel var
mætt í fiskiveisluna, þangað
komu um 130 manns, og tóku
gestirnir vel til matar síns. Mar-
grét Lilja Aðalsteinsdóttir
kunni vel að meta kræsing-
arnar.
Fiskidagurinn er liður í fjár-
öflun hjá ungmennafélaginu.
Ágóðinn af veislunni í ár verður
notaður til endurbóta á frjáls-
íþróttavelli staðarins.
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Fiskidagur á Tálknafirði
Veisla
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fiskar á þurru landi | Leikritið Fiskar á
þurru landi eftir Árna Ibsen sem Leikfélag
Hólmavíkur hefur verið að æfa undanfarnar
vikur verður frumsýnt um páskana. Kemur
þetta fram á fréttavefnum strandir.is.
Frumsýning verður á skírdag, 13. apríl,
og einnig verða sýningar laugardaginn 15.
apríl og annan í páskum, mánudaginn 17.
apríl. Þessar þrjár fyrstu sýningar fara allar
fram í Bragganum á Hólmavík og hefjast kl.
20. Leikstjóri er Kolbrún Erna Péturs-
dóttir.
Eins og venjulega hugar Leikfélagið svo á
leikferðir með verkið, en leikfélagið er þekkt
fyrir hversu víðförult það er, segir á strand-
ir.is. Hér í nágrenninu er hugmyndin að fara
í Króksfjarðarnes, Drangsnes, Árneshrepp
og á Hvammstanga, en ætlunin er líka að
heimsækja Ketilás, Bolungarvík, Þingeyri
og Mosfellsbæ og sýna þar.
300 skoðuðu fjósið | Nú styttist í að
nýtt og glæsilegt fjós hjá bændum á Kú-
skerpi í Blönduhlíð verði tekið í notkun. Af
því tilefni var opið fjós þar laugardaginn 25.
mars og mættu þangað liðlega 300 manns
við þetta tækifæri. Kemur þetta fram á
skagafjordur.com.
,,Þetta var frábær dagur og tókst mjög
vel. Það kom miklu fleira fólk en við áttum
von á sem sýnir að fólk hefur áhuga á að
fylgjast með þegar verið er að taka nýbygg-
ingar í notkun,“ sagði María Jóhannsdóttir
á Kúskerpi við vefinn, spurð um viðbrögð
fólks. Hún sagði að fólk hefði komið úr
Húnavatnssýslu og Eyjafirði en Skagfirð-
ingar hefðu verið uppistaðan í gestunum.
Ríkið veitti 40 milljónir
kr. til verksins. Lagaðar
verða múrskemmdir og
skipt um glugga. Þá verð-
ur húsið vonandi málað.
Fyrir nokkrum árum var
skipt um þak.
„Hálfnað verk þá hafið
Hafin er vinna viðlagfæringar áHéraðsskólanum
á Laugarvatni. Verktakar
hafa reist verkpalla við
suðurenda hússins og
færa sig svo væntanlega
hringinn.
er,“ skrifar Þorkell
Bjarnason, gamall nem-
andi skólans, og bætir
við: „Nú geta gamlir
Laugvetningar glaðst,
sem lengi hafa alið þá von
í brjósti að gamla skóla-
húsinu sé vel við haldið.“
Ljósmynd/Þorkell Bjarnason
Viðgerðir hafnar á Héraðsskólanum
Kristinn Krist-mundsson ortium limruvæðingu
gamals kveðskapar, en
varaði sig ekki á því hve
limruvæðingin er smit-
andi:
Ferskeytlan er fyrsta barnaglingur
Frónbúans sem veit nú hvað hann
syngur.
En þó hann þykist klár
þá verður hann sár
að finna hversu fast og vel hún
stingur.
Og svo yrkir hann litla
ferskeytlu í yfirbótar
skyni:
Aldrei fæst við öllu séð
eða þó menn kunni
að langa til að leika með
í limruvæðingunni.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
orti til vinar síns, heim-
iliskattarins Ragnars:
Inn vill koma köttur
kominn skýjahöttur.
Húkir títt í tröppum
tiplar köldum löppum.
Mjálmar lágt að manni
muntu ljúka upp ranni.
Liðast loðin rófa
langar inn í sófa.
Enn af
limruvæðingu
pebl@mbl.is
Skagafjörður | Níu af hverjum tíu Skagfirð-
ingum eru ánægðir með að búa í Skagafirði
og eykst ánægjan eftir því sem íbúarnir hafa
búið þar lengur. Fjölbreytni í atvinnulífi er
sá þáttur sem skiptir íbúa Skagafjarðar
hvað mestu máli varðandi val á búsetu, en
nauðsynlegt er að auka hana. Íbúarnir eru
hins vegar almennt mjög ánægðir með þjón-
ustu sveitarfélagsins, svo sem grunn-, leik-
og tónlistarskóla.
Þetta er meðal fjölmargra niðurstaðna í
viðamikilli könnun sem IMG Gallup vann
fyrir sveitarfélagið Skagafjörð þar sem við-
horf íbúa til þjónustu sveitarfélagsins og bú-
setu var kannað. Samkvæmt könnuninni
eru um 90% íbúa sveitarfélagsins ánægðir
með að búa í Skagafirði, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu. Þegar niðurstöðurn-
ar eru skoðaðar nánar virðast íbúar ánægð-
ari því lengur sem þeir hafa búið á svæðinu
og þá virðast íbúar á aldrinum 16–24 ára og
55–75 ára vera heldur ánægðari en aðrir
með að búa í Skagafirði.
Ánægja með þjónustuna
Ef marka má niðurstöður könnunarinnar
virðast íbúar í Skagafirði almennt nokkuð
ánægðir með þá þjónustu sem sveitarfélagið
veitir. Mikil ánægja er með starfsemi leik-
skóla, grunnskóla, skólavistun og tónlistar-
skóla og nær allir þátttakendur í könnuninni
segja uppvaxtarskilyrði fyrir börn mjög góð
í Skagafirði. Óánægja er þó með nokkra
þætti sem tengjast skólakerfinu, s.s. mötu-
neytismál í Árskóla á Sauðárkróki, umferð-
aröryggi við skólana og þá fengu leikað-
stæður utandyra á leik- og grunnskólum
frekar slaka einkunn hjá svarendum.
Mjög stór hluti svarenda er ánægður með
aðstöðu til íþróttaiðkunar í Skagafirði og
sömu sögu má segja um starf íþróttafélag-
anna. Þó kom fram greinilegur munur á
starfsemi íþróttafélaganna milli kynja, um
79% voru ánægð með starf íþróttafélaganna
fyrir stráka en aðeins um 60% með starf
þeirra fyrir stelpur. Varðandi íþróttaaðstöð-
una skar sundlaugin á Sauðárkróki sig úr en
rúm 63% aðspurðra voru óánægð með
ástand hennar.
Framboð á leiguhúsnæði, verslun og fjöl-
breytni í atvinnulífi eru meðal þeirra atriða
þar sem óánægja íbúa í Skagafirði er hvað
mest auk þess sem svarendum finnst al-
mennt að þeir hafi ekki næga möguleika til
að hafa áhrif í sveitarfélaginu.
Niðurstöðurnar verða notaðar við stefnu-
mörkun hjá sveitarfélaginu. Allar niðurstöð-
ur könnunarinnar er unnt að nálgast á vef
sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is.
Vilja fjöl-
breyttari at-
vinnutækifæri
Stærri farþegabátur | Ferðaþjónustan
Grunnavík ehf. í Bolungarvík hefur fest
kaup á farþega- og þjónustubát sem er
stærri en sá sem fyrirtækið átti áður. Bát-
urinn er keyptur af Nesveri ehf. á Rifi í
Snæfellsbæ og var kaupsamningur und-
irritaður á ferðatorginu í Fífunni í Kópa-
vogi sl. laugardag. Kemur þetta fram á
fréttavef Bæjarins besta.
Í sumar verður Grunnavík með áætl-
unarferðir á föstudögum og sunnudögum
frá Bolungarvík til Grunnavíkur, Jökul-
fjarða og Hesteyrar, sem bætist við áætlun
vegna fjölda beiðna um það. Þá er einnig
verið að kanna áhuga og þörf á áætl-
unarferðum til Aðalvíkur. Siglt verður á
aðra staði eftir þörfum og eftirspurn.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111