Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Afneitun á ástríðum lætur þær ekki
hverfa, en gerir glufur sem myndast
svo þröngar að maður þarf að troða sér
í gegnum þær. Viðurkenndu langanir
þínar og tækifærin verða eins og renni-
hurð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Viðhorf manns er mikilvægara en það
sem raunverulega á sér stað. Það er
þýðingarmeira en staðreyndir. Viðhorf
megnar að breyta ófrjóu umhverfi í
stað þar sem ástin fær að dafna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Eitthvað er ekki eins og það á að vera.
List og glæsileiki verða að vera fyrir
hendi svo tvíburanum finnist hann vera
að lifa lífinu sem honum var ætlað.
Finndu leiðir til þess.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Furðulegt viðhorf krabbans til atburða
dagsins fær aðra til þess að hlæja, þó að
hann sé ekki einu sinni að reyna að vera
fyndinn. Hvað vinina varðar er krabb-
inn eins og gjöf sem heldur áfram að
gefa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Himintunglin ýta ljóninu út í að gera
góðverk sín strax. Núið er aldrei of
snemmt ef út í það er farið, því maður
veit aldrei hvort „á morgun“ er of seint.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan áttar sig á því að áhrif hennar á
heimilislífið eru mun meiri en hún gerir
yfirleitt ráð fyrir. Þegar upp er staðið
verður fordæmi hennar að gríðarlegri
skyldu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Yfirleitt á maður ekki að trúa orðrómi,
en voginni finnst sem að þessu sinni
geymi hann örlítinn sannleika. Innsæi
hennar er rétt en það gæti reynst tor-
velt að sannfæra raunsæismanneskju í
hópnum. Fylgdu hugboði þínu án þess
að segja öðrum frá því.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Skarpleiki sporðdrekans er forsenda
þess að tiltekið verkefni heppnist vel.
Hvíldu þig augnablik ef þú þarft eða
fáðu þér kaffibolla. Þú verður hetjan
sem allir skála fyrir í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Yfirleitt myndi bogmaðurinn ekki ætla
að tími sem hann ver með sjálfum sér
reyndist skemmtilegur, en þannig verð-
ur það einmitt í dag. Næstbesti kost-
urinn er einhver annar í bogmanns-
merkinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hugtakið möguleiki veldur steingeit-
inni gremju því hún kemur ávallt auga á
ónýtta getu í sínu eigin fari og annarra.
Þú ert frábær eins og þú ert. Það sem
þú hefur áorkað skiptir máli. Við-
urkenndu sjálfa þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vinnan reynist frábær skemmtun í dag.
Vatnsberinn Oprah Winfrey segir að
maður sé á réttri leið ef maður gæti
hugsað sér að vinna sömu vinnu og
maður er í án þess að fá borgað fyrir
það. Ábending fyrir stefnumót í kvöld:
Fylltu upp í þagnir með kossum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Makar fiskanna þurfa að venja sig á að
hlusta betur og oftar á þá. Þú getur
liðkað fyrir því með því að krefjast at-
hygli fallega – eða með því að skrifa á
miða, þó ekki væri nema til minnis.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Bylgjulengdir tungls í
vatnsbera spanna allt frá
glaðværð út í vingjarn-
leika og óeigingirni. Frjálsleg og hressileg
samskipti verða efst í huga á þessum
degi. Hinir lánsömu meðal okkar eru
þeir sem leggja eitthvað af mörkum, þótt
ekki sé annað en bros, til allra þeirra sem
verða á vegi okkar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 nægir, 4 sitja
að völdum, 7 stuttnefjan,
8 trjámylsnu, 9 gyðja, 11
fundvís, 13 púkar, 14 log-
ið, 15 fals, 17 skaði, 20
lipur, 22 drekka, 23
storkar, 24 úldin, 25 væg-
ar.
Lóðrétt | 1 skart, 2 oflát-
ungs, 3 brún, 4 kusks, 5
hímir, 6 svarar,10 Evr-
ópubúi, 12 afkvæmi, 13
stefna, 15 megnar, 16
fnykur, 18 orustan, 19
líkamshlutar, 20 hafði
upp á, 21 nöldur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skrapatól, 8 allan, 9 óværð, 10 aum, 11 apann,
13 síður, 15 gulls, 18 halda, 21 ker, 22 mynda, 23 öskra,
24 samningur.
Lóðrétt: 2 kelda, 3 annan, 4 atóms, 5 óþægð, 6 dama, 7
æður, 12 Níl, 14 íma, 15 gums, 16 lynda, 17 skarn, 18
hrönn, 19 lukku, 20 afar.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Café Rosenberg | Sígauna-djass-
hljómsveitin Krummafótur spilar í sama
stíl og Django Reinhardt gerði um 1940.
Þeir spila líka íslenska tónlist, t.d. eftir
Jón Múla. Sveitina skipa þeir Grímur
Hjörleifsson á klarínett, Jóhann Guð-
mundsson á gítar, Ólafur Haukur Árna-
son á gítar og Ingólfur Magnússon á
kontrabassa.
Hótel Búðir | Djasshljómsveitin Smáaur-
anir mun leika djasstónlist ásamt söng-
konunni Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur á
Hótel Búðum helgina 21.–22. apríl nk.
Klúbburinn við Gullinbrú | Í kvöld
skemmta trúbadorar Halli og Kalli gest-
um og gangandi. Tilvalið fyrir Graf-
arvogsbúa að fá sér göngutúr yfir brúna
og líta inn. Laugardaginn 22. mars treð-
ur hljómsveitin Hafrót upp og skemmtir
fram á nótt.
Langholtskirkja | Skagfirska Söngsveitin
í Reykjavík heldur vortónleika í Lang-
holtskirkju laugardaginn 22. apríl, kl. 17.
Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson.
Einsöngvarar: Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson tenór og Baldvin Júlíusson
bassi. Aðgangseyrir kr. 1.800.
Myndlist
Anima gallerí | Helga Egilsdóttir, huginn.
Sýningin stendur til 23. apríl.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson –
Íslandsmyndir. Til 5. maí.
Eden, Hveragerði | Ingunn Jensdóttir
með myndlistarsýningu til 23. apríl.
Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður
þráður. Myndirnar á sýningunni eru ellefu
talsins og eru þær raunverulegar myndir
úr mannlífinu, málaðar með blandaðri
tækni – akrýl á striga. Til 19. maí.
Gallerí Galileó | Ljósenglar. Myndlist-
arkonan Svala Sóleyg sýnir olíumálverk
sem eru að uppistöðu englamyndir og
verk með trúarlegu ívafi í tilefni
páskanna. Til 26. apríl.
Gallerí Humar eða frægð! | Við krefj-
umst fortíðar! Sýning á vegum Leik-
minjasafns Íslands um götuleikhópinn
Svart og sykurlaust. Ljósmyndir, leik-
munir, kvikmyndasýningar.
Gallerí Húnoghún | Þorvaldur Óttar Guð-
laugsson til 5. maí.
Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með
sýningu á hestamálverkum til 7. maí.
Gerðuberg | Tískuhönnun Steinunnar
Sigurðardóttur, myndbönd frá tískusýn-
ingum, ljósmyndir o.fl.
Gerðuberg | Margræðir heimar – Alþýðu-
listamaðurinn Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum. Til 30. apríl.
Hafnarborg | Í Hafnarborg stendur nú
yfir 25. ára afmælissýning á verkum fé-
lagsmanna Leirlistafélagsins. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11
til 17, og frá 11 til 21 á fimmtudögum. Til
24. apríl.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíu-
málverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til
30. maí.
i8 | Tumi Magnússon sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk út apríl.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Ketilhúsið Listagili | Soffía Sæmunds-
dóttir myndlistarmaður sýnir málverk á
tré, striga og pappír unnin á und-
anförnum árum. Til 30. apríl.
Kling og Bang gallerí | Listakonurnar
Andrea Maack og Unnur Mjöll S. Leifs-
dóttir, betur þekktar sem listteymið Mac
ńCheese, neyddu listamanninn Serge
Comte til samlags við sig á mjög lúmsk-
an og skipulagðan hátt. Kling & Bang er
opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl.
14–18.
Listasafn ASÍ | Í Ásmundarsal er Anna
Jóelsdóttir með innsetningu stórra, lít-
illa, örsmárra, ferhyrndra, sporöskjulaga
og þrívíðra verka. Ásta Ólafsdóttir sýnir í
Gryfju og Arinstofu ljósmyndir, mynd-
bandsverk o.fl. frá ferðalagi sínu um Afr-
íkuríkið Malí.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick
– Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefn-
farar. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga 12–15.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri
Arinbjarnar – Máttur litarins og spegill
tímans. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tær-
leikar – Samsýning listamannanna Elinu
Brotherus, Rúríar og Þórs Vigfússonar.
Opið kl. 11–17 þrið.-sun. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin
Náttúrurafl er samsýning 11 listamanna
þar sem viðfangsefnið er náttúra Ís-
lands. Málverk, skúlptúrar, vefnaður og
grafíkmyndir.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni.
Sýning á úrvali verka úr safneign Ás-
mundarsafns, sem sýnir með hvaða
hætti listamaðurinn notaði mismunandi
efni – tré, leir, stein, brons, og aðra
málma – og hvernig sömu viðfangsefni
birtast í ólíkum efnum. Til 30. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Á
sýningunni má sjá ýmis verk Erró frá
barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu
einkasýningu á Íslandi í Listamannaskál-
anum árið 1957. Öll verkin á sýningunni
eru úr Errósafni Listasafns Reykjavíkur
og gefa áhugaverða mynd af hæfi-
leikaríkum og vinnusömum ungum
manni. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | AF-
sprengi HUgsunar – Sprengiverk Guðjóns
Bjarnasonar. Guðjón er kunnur fyrir öflug
verk sín þar sem hann sprengir sundur
stálrör og stillir brotunum saman á nýj-
an leik. Á sýningunni getur að líta nýja
nálgun Guðjóns við viðfangsefni sitt sem
hann vinnur í ólíka miðla. Til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett
er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bók-
ar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn
þar sem kynnt eru verk úr safneign
Listasafns Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja
& Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons-
eptlistamenn heimsins í dag. Á sýning-
unni vinna þau með ólík þemu úr æv-
intýrum sagnaskáldsins mikla, H.C.
Andersen. Hluti sýningarinnar fer einnig
fram í porti Hafnarhússins. Til 5. júní.
Nýlistasafnið | „Our House is a house
that moves“ er alþjóðleg sýning 12 lista-
manna. Sýningarstjóri er Natasa Petres-
in. Listamennirnir eru að fjalla um hreyf-
ingu og hvernig hún umbreytir heiminum
stöðugt. Einnig hvernig hreyfing hlut-
anna umbreytir einnig okkur sjálfum hið
innra eins og í náttúrunni allri. Til 30.
apríl.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borg-
ina. Sýningin stendur fram yfir Menning-
arnótt eða til 28. ágúst.
Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds-
dóttir með málverkasýninguna Vinir og
vandamenn. Til 1. maí.
Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning
Kjartans Guðjónssonar er opin alla daga
kl. 10–17, nema föstudaga og stendur til
7. maí.
Skaftfell | Sýning á afrakstri hinnar ár-
legu vinnustofa á vegum Listaháskóla Ís-
lands og Dieter Roth Akademíunnar
stendur nú yfir í Menningarmiðstöðinni
Skaftfelli. Þátttakendur sýningarinnar
eru útskriftarnemendur frá myndlist-
ardeild LHÍ ásamt erlendum listnemum.
Til 29. apríl.