Morgunblaðið - 08.05.2006, Side 12
Ólafsvík | Sjóvá opnaði nýlega
nýtt umboð í Ólafsvík í samstarfi
við Sparisjóð Ólafsvíkur. Boðið
var til kaffisamsætis og trygg-
ingaráðgjafar frá Sjóvá buðu upp
á heildarráðgjöf varðandi trygg-
ingar.
Við þetta tækifæri voru for-
eldrafélög leikskólanna styrkt til
að efna forvarnastarf.
Starfsfólks Sparisjóðs Ólafs-
víkur mun veita ráðgjöf og að-
stoða viðskiptavini Sjóvár við
hvers kyns tryggingamál. Mark-
miðið með þessari opnun er að
auka þjónustustigið við við-
skiptavini Sjóvár og Sparisjóðs
Ólafsvíkur með því að gera þeim
kleift að vera með tryggingar
sínar og fjármál á einum stað.
Sparisjóðurinn mun þjóna öllu
Snæfellsnesi.
Sjóvá opnar nýtt
umboð í Ólafsvík
Opnun Böðvar Þórisson, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Sjóvár, og
Helga Valdís Guðjónsdóttir sparisjóðsstjóri við opnunina.
12 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Akranes | Lionsklúbbur Akraness
heldur upp á 50 ára afmæli sitt um
þessar mundir. Klúbburinn hefur
verið ötull við stuðning til góðgerða-
mála á Akranesi og lét heldur betur
til sín taka á hátíðarfundi á dögunum
í tilefni þessara merku tímamóta.
Verkefni klúbbsins hafa verið
margvísleg í gegnum tíðina, en aðal-
áhersla hefur verið lögð á að styrkja
starfsemi Sjúkrahús Akraness með
tækja- og áhaldakaupum. Árið 1958
var stofnaður áhaldakaupasjóður
Sjúkrahússins af klúbbfélögum og úr
honum hefur verið úthlutað fjármun-
um til þessara kaupa nær árlega.
Að þessu sinni veitti klúbburinn
Sjúkrahúsinu fjármuni að upphæð
1.300.000 kr. sem eru fjögur tæki,
sjúklingalyfta, stuttbylgjutæki,
hljóðbylgjutæki og blóðhitari. Guð-
jón Brjánsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahússins, veitti gjöfinni við-
töku. Auk þessarar höfðinglegu gjaf-
ar veitti klúbburinn einnig peninga-
styrki til Dvalarheimilisins Höfða,
Björgunarfélags Akraness, Íþrótta-
félagsins Þjóts og Tónlistarskólans
að upphæð 700.000 kr. og veittu for-
svarsmenn þeirra gjöfunum viðtöku.
Á hátíðarfundinum rakti formað-
urinn, Jósef H. Þorgeirsson, sögu
klúbbsins. Í máli hans kom fram að
það var 26. apríl 1956 sem nokkrir
ungir og áhugasamir menn komu
saman og stofnuðu klúbbinn. Fyrsti
formaður hans var Ólafur E. Sig-
urðsson útgerðarmaður og með-
stjórnendur voru Elías Guðjónsson
kaupmaður og Jón Ben Ásmundsson
síðar bæjarritari. Allir eru þessir
menn látnir fyrir allnokkrum árum,
en voru kunnir menn á Akranesi á
sinni tíð. Einn af stofnendum, Ár-
mann Ármannsson rafvirkjameist-
ari, er enn félagi í klúbbnum. Flutt
voru tónlistaratriði og ávörp fluttu
Guðmundur Páll Jónsson bæjar-
stjóri og Sigrún Björnsdóttir, for-
maður Lionsklúbbsins Eðnu.
Veglegir styrkir til áhalda-
kaupa fyrir sjúkrahúsið
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Stuðningur Jósef H. Þorgeirsson, formaður Lionsklúbbs Akraness, ásamt
fulltrúum viðtakenda styrkja, f.v. Guðjón Guðmundsson, Ólöf Guðmunds-
dóttir, Guðjón Brjánsson, Lárus Sighvatsson og Ásgeir Kristinsson.
Lionsklúbbur Akraness fagnar fimmtíu ára afmæli
Eftir Jón Gunnlaugsson
„VIÐ þurfum ekkert þjóðarátak til
þess að fara á hjólunum í og úr vinnu.
Þetta hefur D-vaktin í Norðuráli gert
undanfarin sumur,“ sögðu þeir Sig-
þór Hreggviðsson, Sigurður Halldór
Sævarsson, Hjálmar Þór Jónsson og
Márus Lúðvík Heiðarsson er Morg-
unblaðið hitti þá rétt utan við Akra-
nes á sólríku laugardagskvöldi. Fjór-
menningarnir blésu varla úr nös
þrátt fyrir að hafa lagt að baki um 18
km, en þeir áttu eftir um 2 km spotta
inn í bæinn.
„Þetta eru um 40 km, fram og til
baka frá Akranesi og upp á Grund-
artanga. Þótt ótrúlegt sé þá er jafn-
langt til baka,“ segir Sigþór og hlær.
Hann notar götureiðhjól en flestir
eru á fjallahjólum. „Við keppum yfir
sumartímann og kallast keppnin
Tour de Norðurál. Þar er keppt í mis-
munandi flokkum eftir því hvaða gerð
af hjólum menn nota,“ segir Hjálmar
en hann fullyrðir að hann hafi sigrað í
sínum aldursflokki á síðasta sumri en
hann verður fertugur á næsta ári.
Sigþór tekur undir það að stundum
sé erfitt að hjóla á móti rokinu en
hann og Hjálmar keppa í götuhjóla-
flokki í keppni starfsmanna Norður-
áls. „Við erum um eina klukkustund
að fara aðra leiðina ef „færðin“ er góð
en ef það blæs á móti þá erum við að
sjálfsögðu eitthvað lengur. En við
komust alltaf á leiðarenda,“ segir Sig-
þór.
Hressandi líkamsrækt
Hjólreiðaferðirnar eru hressandi
líkamsrækt í hugum þeirra sem það
stunda enda er hitinn mikill á vinnu-
staðnum í þá 12 tíma sem vaktirnar
standa yfir. Hressandi hjólreiðatúr er
því kærkomið tækifæri til þess að
viðra lungun og fá hjartavöðvann til
þess að slá örar. Vinnufélagarnir
voru spurðir að því hvort þeir væru
búnir að fjárfesta í rándýrum keppn-
ishjólum og horfðu þeir spekingslegir
hver á annan áður en þeir svöruðu.
„Nei, þetta eru bara venjuleg hjól
sem má kaupa í næsta stórmarkaði.
Það kemur eflaust að því að ein-
hverjir á vaktinni kaupi eitthvað voða
flott og rándýrt en þessi hjól sem við
erum að nota duga ágætlega,“ sögðu
þeir félagar.
Starfsmenn D-vaktar nota ekki að-
eins reiðhjólin til þess að koma sér úr
og í vinnu. Þrír starfsmenn Norður-
áls reru frá Grundartanga á laug-
ardagskvöldið en þeir voru á þremur
kajak-bátum. Sigþór bjóst við að þeir
myndu líklega vera um þrjár klukku-
stundir inn í Akraneshöfn frá Grund-
artanga en veðrið var hentugt til sjó-
ferða á laugardaginn. Um 12 stiga
hiti, sólskin og ekki mikill vindur.
Reiðhjólagarparnir stigu á fáka
sína og kvöddu þann sem þetta ritar
og var kappið mikið og skiptust þeir á
um að brjóta vindinn og taka foryst-
una. „Tour de Norðurál“ verður að
sjálfsögðu á dagskrá sumarsins hjá
starfsmönnum D-vaktar sem leggja
mörg hundruð km að baki á reið-
hjólum sínum á hverju sumri á leið
sinni til og frá vinnu og þegar mest
lætur eru allt að 12 starfsmenn á
sama tíma að hjólreiðum sínum á leið
til eða frá vinnu.
„Tour de Norðurál“ haldið á hverju sumri
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Hjálmar Þór Jónsson, Márus Lúðvík Heiðarsson, Sigþór Hreggviðsson og Sigurður Halldór Sævarsson.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skessu-
horn á Vesturlandi hefur opnað
nýjan vef á slóðinni skessu-
horn.is.
Þónokkrar nýjungar eru á
vefnum umfram gamla vef fyr-
irtækisins, segir í fréttatilkynn-
ingu. Má þar nefna tengingar á
veður og færð á Vesturlandi,
leitarvélar og aðra fréttavefi.
Síðusafn
Vesturlands
Þá mun þessi vefur taka yfir
hlutverk gamla Vesturlands-
vefjarins og verða síðusafn
Vesturlands þegar fram líða
stundir. Gagnvirk skráning
smáauglýsinga og viðburða-
skrá eru á vefnum sem fyrr.
Tengingar eru inn á fréttir
sveitarfélaga á Vesturlandi,
bæði nýjar og eldri, og jafn-
framt eru ferðaþjónustu gerð
sérstök skil á undirsíðu vefjar-
ins. Fréttir frá fyrirtækjum
sem hafa vefumsjónarkerfi frá
Nepal birtast á sérstakri und-
irsíðu vefjarins.
Í kjölfar þessara breytinga
verður fréttavakt skipulögð hjá
Skessuhorni alla daga vikunn-
ar.
Skessu-
horn opnar
nýjan
fréttavef
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
VESTURLAND