Morgunblaðið - 30.05.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 146. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Takt
u en
ga
áhæ
ttu v
ið v
erk
lega
r
fram
kvæ
mdi
r
Þar
finn
ur þ
ú m
eist
ara
og
fagm
enn
til v
erk
sins
Samtök iðnaðarins
Kaffið er
ómissandi
Heimspekingar ræða hvort til
sé líf eftir kaffi | Daglegt líf
Ekki kosið
um fegurð
Af hverju var fegurð Reykjavíkur
ekki kosningamál? | Af listum
Svartnætti hjá Skagamönnum
Dagur meistari í Austurríki
Sigurbjörn kinnbeinsbrotinn
BRESKI leikarinn Paul Bettany
mun leika eitt af aðalhlutverkunum
í kvikmyndinni The Journey Home,
sem byggð er á skáldsögunni Slóð
fiðrildanna eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son. Bettany hefur vakið athygli að
undanförnu fyrir hlutverk sitt í
stórmyndinni Da Vinci-lyklinum
þar sem hann lék munkinn Silas, en
hann hefur einnig leikið í myndum
á borð við Master and Commander,
Wimbledon, Firewall og Dogville.
Áður hefur
verið staðfest að
eiginkona Bett-
anys, bandaríska
leikkonan Jenni-
fer Connelly,
muni leika aðal-
hlutverkið í
myndinni, en
þetta mun vera í
fyrsta skipti sem hjónin leika sam-
an í kvikmynd síðan þau kynntust
við gerð Óskarsverðlaunamyndar-
innar A Beautiful Mind árið 2001.
Einnig er staðfest að breski kvik-
myndatökumaðurinn Tony Pierce-
Roberts muni annast tökur á mynd-
inni. Hann hlaut tilnefningar til
Óskarsverðlauna fyrir tökur á
myndunum A Room With a View
árið 1985 og Howard’s End 1992.
Stefnt er að því að tökur á The
Journey Home hefjist í ágúst, en
hún verður tekin á Íslandi og í
Bretlandi. Norska leikkonan Liv
Ullmann leikstýrir myndinni. Hún
fjallar um íslenska konu sem býr í
Englandi en afræður að fara til Ís-
lands að gera upp ýmis mál úr for-
tíðinni.
Paul Bettany leikur í Slóð fiðrildanna
Paul Bettany
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Kabúl. AP, AFP. | Stjórn-
völd í Afganistan settu á
útgöngubann í höfuð-
borginni Kabúl í nótt er
leið eftir að þar hafði
komið til mikilla óeirða.
Brutust þær út eftir að
bandarískur hervagn
hafði ekið á fólksbíl og
orðið einum eða fleiri
mönnum að bana.
Í tilkynningu frá afg-
anska innanríkisráðuneytinu sagði að út-
göngubannið hefði verið ákveðið til að
tryggja öryggi borgaranna en í sjónvarps-
ávarpi, sem Hamid Karzai, forseti landsins,
flutti til þjóðarinnar, sakaði hann „undir-
róðursmenn“ um að hafa efnt til óeirðanna.
Grýtti fólkið, nokkur hundruð manns, her-
menn en talið er að 14 manns hafi legið í
valnum eftir áreksturinn og óeirðirnar.
Upphafið var að bandarískur hervagn ók
á fólksbíl en ekki er ljóst hve margir létust í
árekstrinum. Voru nefndar tölur frá einum
og upp í fimm. Eru óeirðirnar þær mestu
frá því Talibanastjórninni var steypt 2001.
Útgöngu-
bann
í Kabúl
Gífurleg reiði | 16
Hamid Karzai,
forseti Afganistans.
ÁHERSLAN á að vera á rétt barna til að
njóta samvista við foreldra sína, það er að
segja að komi til forræðisdeilu eftir skilnað
megi dómstólar dæma foreldrunum sameig-
inlegt forræði yfir börnunum jafnvel þótt
annað þeirra sé því andvígt.
Það er dönsk þingnefnd sem leggur þetta
til og hefur Lars Barfoed fjölskylduráðherra
tekið því mjög vel. Býst hann við að tillagan
fái góðan stuðning á þingi og hann, eins og
nefndin, telur að með þessum hætti megi oft
koma í veg fyrir hörð átök um forræði yfir
börnunum. Kom þetta fram á fréttavef Jyl-
lands-Posten í gær.
„Hvorugt foreldranna á að hafa einkarétt
á börnunum en hins vegar hafa börnin rétt
til að umgangast þá báða,“ sagði Barfoed en
núgildandi lög í Danmörku kveða á um að
aðeins öðru foreldrinu skuli dæmt forræðið.
Í tillögum nefndarinnar er sleginn sá var-
nagli að ekki verði kveðið á um sameiginlegt
forræði nema foreldrarnir séu sæmilega
samstarfsfúsir og ábyrgir og tryggt sé að
niðurstaðan komi börnunum best.
Forræði verði
sameiginlegt
ODDVITAR sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna í Reykjavík náðu
samkomulagi í gær, eftir stuttar
formlegar viðræður, um myndun
nýs meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna,
verður borgarstjóri Reykjavíkur og
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti fram-
sóknarmanna, verður formaður
borgarráðs.
„Það ríkir mjög gott traust á milli
okkar og það er enginn ágreining-
ur,“ sagði Vilhjálmur á blaðamanna-
fundi fyrir framan heimili sitt í
Breiðholti í gær.
Björn Ingi sagði að sér sýndist
sem margt í málefnaskrám beggja
flokkanna færi vel saman. „Við vilj-
um athafnir í stað of mikilla funda og
of mikils skrifræðis.“
Formlegar meirihlutaviðræður
milli sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna hófust eftir hádegi í gær á
heimili Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
þingmanns og fráfarandi borgarfull-
trúa. Samkomulag þeirra um meiri-
hlutasamstarf var handsalað um
þrjúleytið.
Sjálfstæðismenn voru í viðræðum
við Frjálslynda flokkinn um meiri-
hlutasamstarf í borginni á sunnudag
og hafði nýr fundur verið boðaður í
gær. Vilhjálmur lagði áherslu á það á
blaðamannafundinum í gær að þær
viðræður hefðu verið óformlegar.
Ólafur F. Magnússon, oddviti
frjálslyndra og óháðra í Reykjavík,
segir að það hafi komið sér á óvart að
sjálfstæðismenn skyldu slíta viðræð-
unum. „En það er alveg ljóst að það
verður öflug stjórnarandstaða sem
tekst á við ríkisstjórnarflokkana
bæði á vettvangi landsmála og í
borginni í vetur.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í Reykjavík, seg-
ir að meirihlutasamstarfið komi sér á
óvart. Hann óski þó ríkisstjórnar-
flokkunum til hamingju með mynd-
un meirihlutans.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík, segir að þetta
sé einn versti meirihluti sem hægt
hafi verið að mynda. Björn Ingi hafi
með því tekið að sér að vera áttundi
maður sjálfstæðismanna í borginni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson voru sigurreifir á blaðamannafundi við heimili Vilhjálms í Breiðholti klukkan fimm í gær.
Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn sömdu á fáeinum klukkutímum
Vilhjálmur verður borgarstjóri og Björn Ingi formaður borgarráðs
♦♦♦
MÁLEFNASKRÁ sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna tek-
ur á brýnustu hagsmunamálum
Reykvíkinga á sviði málefna eldri
borgara, fjölskyldumála og skipu-
lags-, samgöngu- og lóðamála, seg-
ir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
verðandi borgarstjóri.
Vilhjálmur og Björn Ingi segjast
ætla að bíða eftir niðurstöðum
nefndar samgönguyfirvalda og
Reykjavíkurborgar um framtíð
Reykjavíkurflugvallar.
Aldraðir,
fjölskyldur
og skipulag
Nýr meirihluti til
valda í borgarstjórn
Eftir Örnu Schram og
Elvu Björk Sverrisdóttur
Mjög gott traust | Miðopna
Íþróttir í dag