Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 tiltækar, 8 tré, 9 liðugur, 10 straumkast, 11 mögulegt, 13 lélegar, 15 málms, 18 sjá eftir, 21 missir, 22 holdugu, 23 styrkir, 24 ofsóttur. Lóðrétt | 2 þurrkað út, 3 skepnan, 4 heldur, 5 Mundíufjöll, 6 ráma, 7 frjáls, 12 reið, 14 gefa í skyn, 15 róa, 16 héldu, 17 tími, 18 skaði, 19 hita- sóttar, 20 siga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skjól, 4 fjasa, 7 mýkja, 8 áflog, 9 nær, 11 rýrt, 13 æran, 14 Áslák, 15 þarm, 17 ildi, 20 þró, 22 kytra, 23 látin, 24 tjara, 25 asnar. Lóðrétt: 1 sæmir, 2 jakar, 3 lóan, 4 flár, 5 aular, 6 augun, 10 ætlar, 12 tám, 13 æki, 15 þekkt, 16 rytja, 18 látin, 19 iðnir, 20 þara, 21 ólga.  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sú skoðun er viðhöfð í nútímanum að fólk í góðum samböndum skilji hvort annað virkilega. Þú afsannar þá kenn- ingu og gefur þig á vald óljósrar feg- urðar flókinnar persónu og gerir þér leyndardóminn að góðu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er enn á valdi ástríðnanna, og til- finningin er lágstemmd en ólgandi. Þú kýst að upplifa hjartað hamast í brjóst- inu í einrúmi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Himintunglin raða sér upp og búa til myndhverfan steinvegg á fjármálasviði tvíburans. Síðan hvenær hefur þú látið steinvegg stöðva þig? Þú ert sérfræð- ingur í því að fara framhjá hindrunum og átt öll tól sem þú þarft á að halda. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn sveiflast á milli þess sem hann þarfnast til þess að efla góð tengsl og þess sem tryggir honum frelsi. Það hjálpar að leggja sig fram við að vera hlutlaus. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið er einstaklega góður talsmaður ef það trúir á eitthvað eða einhvern. Ef þú heldur kynningu í dag verður hún al- ger smellur. Viðræður eru uppi um var- anlegt samstarf sem allir njóta góðs af. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Atburðarás verður með þeim hætti sem meyjan gat ekki séð fyrir eða stjórnað. Svona eins og ef hún væri gestur í eigin brúðkaupi. Ekki streitast á móti. Leyfðu fólki að njóta hæfileika þinna og njóttu ferðarinnar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Eins og venjulega tekst voginni að vingast við erfiða fólkið sem er í kring- um hana. Neikvæð orka þess minnkar og gæska hennar vex. Athafnafólk takið eftir, vísbending færir ykkur heppni og viðskipti af besta tagi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er ekki rétti tíminn til þess að láta Davíð slást við Golíat. Það þarf meira en einn stein til að rota risann. Notaðu kvöldið í að gera áætlun. Hvað fjármál- unum viðvíkur lítur út fyrir að ávísunin hafi verið í póstinum eftir allt saman. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ef bogmaðurinn losar sig við farangur af tilfinningalegum toga miðar honum loksins áfram í ástamálum. Einhleypir: Búið til ykkar eigin tilviljanir, róm- antíkin byrjar með hversdagslegu spjalli. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Eltu rómantíkina bara uppi ef þér finnst að það séu straumar milli þín og ótil- greindrar manneskju. Vitsmunalegt samband er ekki það eina sem þú þarft á að halda núna. Hinn óræði x-þáttur er það sem þarf til þess að kalla fram rétt- an skammt af hinu yndislega brjálæði sem fylgir því að vera ástfanginn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Litlu, gætilegu skrefin sem þú tekur til þess að bæta starfsaðstöðuna leiða til stórfelldra breytinga. Að deila með öðr- um er vel við hæfi. Segðu sögu þína og hvettu aðra til hins sama. Sameiginleg reynsla þjappar hópnum saman. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Himintunglin virkja kennarann í þér. Sagt er að fólk kenni það sem það þarf sjálft að læra. Reyndar veit maður ekki hvað maður kann fyrr en maður reynir að miðla því. Sláðu því til og finndu þér nemanda. Stjörnuspá Holiday Mathis Með þokka ballettdans- arans hefur plánetan Ven- us liðið inn í hið nautna- fulla nautsmerki. Það, ásamt fleiri af- stöðum, ljær rómantík og unaði glitrandi blæ og þó að ekki sé allt gull sem glóir er sannarlega gaman að leggja vantrú á hilluna um sinn. Því þegar upp er staðið er sumt sem glóir einmitt gull. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Gamla bókasafnið í Hafnarfirði | Opnun myndlistarsýningar ungs listafólks og tón- leikar þar sem koma fram hljómsveitirnar Sometime, Retron og fleiri. Ýmsir jað- armenningarhópar kynna málefni sín. Boðið upp á veitingar. Húsið opnað kl. 19, frítt inn. Sjá: wwww.myspace.com/ gamlabokasafnid Hveragerðiskirkja | Ragnheiður Gröndal og trúbadorinn Helgi Valur halda tónleika í Hveragerðiskirkju í kvöld. Þau flytja frumsamið efni ásamt tökulögum og spila saman og hvort í sínu lagi. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og kostar 1.500 kr. inn. Sér- stakur gestur er Magnús Þór. Myndlist 101 gallery | Steingrímur Eyfjörð – Bein í skriðu. Opið fim.–laug. kl. 14–17. Til 3. júní. Aurum | Árni Sæberg ljósmyndari hjá Morgunblaðinu sýnir í tilefni stórafmælis síns ljósmyndir í versluninni. Café Karólína | Gunnar Kristinsson sýnir málverk, teikningar og prjónaskap þar sem sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2006 er kynnt. Til 2. júní. Energia | Sandra María Sigurðardóttir – Málverkasýningin moments stendur yfir til 30. júní. Viðfangsefni sýningarinnar er manneskjan. Gallerí Fold | Bragi Ásgeirsson er með málverkasýningu í Baksalnum og báðum hliðarsölum Gallerís Foldar við Rauð- arárstíg. Sýningin er sett upp í tilefni af 75 ára afmæli listamansins sem var 28. maí sl. Sýningin stendur til 11. júní. Gallerí Úlfur | Gallerí Boreas frá New York sýnir verk eftir Adam Bates í Gallerí Úlfur. Sýningin „Sögur“ stendur yfir til 31. maí. Gel Gallerí | Dirk Leroux „A Model for The Treeman“. Til 8. júní. Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí. Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith, list- málari, sýnir í Menningarsal til 12. júní. Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð- nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný og unnin sérstaklega fyrir þessa sýn- ingu. Til 18. júní. Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð- mundsdóttir sýnir málverk. Til 9. júní. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Lista- og menningarverstöðin Hólm- aröst | Málverkasýning Elfars Guðna. Opið frá kl 14–18 alla daga. Sýningu lýkur 11. júní. Listasafn Íslands | Sýning á verkum Birg- is Andréssonar og Steingríms Eyfjörð til 25. júní. Ókeypis aðgangur. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfir- litssýning á verkum Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Náttúrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffistofa. Til 3. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | Í Eygsjón? Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær- eysk náttúra. Þeir sem eiga verk á sýn- ingunni eru: Amariel Norðoy, Bárður Ják- upsson, Eyðun av Reyni, Kári Svensson, Torbjörn Olsen og Össur Mohr. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýning á úrvali verka úr safneign Ás- mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti listamaðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, stein, brons, og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn. Stendur til 3. desember 2006. Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja & Emiliu Kabakov konseptlistamenn. Á sýn- ingunni vinna þau með ólík þemu úr æv- intýrum sagnaskáldsins mikla, H.C. And- ersen. Hluti sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafnarhússins. Sýningin stendur til 5. júní. Listasalur Mosfellsbæjar | Þórdís Alda Sigurðardóttir sýnir lágmyndir. Opið á af- greiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina. Sýningin stendur til 28. ágúst. Saltfisksetur Íslands | Sýning Önnu Sig- ríðar, Dýrið, hefur verið framlengd til 1. júní. hronn@saltfisksetur.is Skriðuklaustur | Svandís Egilsdóttir sýnir olíumyndir og verk unnin í gifs og lakkrís í gallerí Klaustri. Til 7. júní. Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með ljósmyndasýninguna „dreams“. Til 9. júní. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um Ísland. Sýningin Huldukonur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæ- björnsdóttur og Mark Wilson að skapa listaverk. Skytturnar skutu haglaskotum á kort af miðborg Reykjavíkur. Gæludýra- húsin sem urðu fyrir skoti voru mynduð og eru til sýnis á Veggnum. Líka var unnið með nemendum Austurbæjarskóla og má sjá afraksturinn á Torginu. Til 11. júní. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn kl. 10–17 alla daga nema mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl- unarsýning og gönguleiðir í nágrenninu. Sjá nánar á www.gljufrasteinn.is Listasafn Árnesinga | Sýningin Hér er verðlaunasýning Hrafnhildar Sigurð- ardóttur, en hún tók við norrænu text- íllistaverðlaununum í Svíþjóð 2005. Sýn- ingin Formleikur – GeoMetria er sýning Sonju Hakansson, en hún var tilbúin með þessa einkasýningu sama ár og hún lést, árið 2003. Til 18. júní. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður Bachmann sýnir í Skotinu, myndir sem hún hefur tekið af börnum. Til 7. júní. Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja sög- una frá landnámi til 1550. www.saga- museum.is Þjóðmenningarhúsið | Það gisti óður – Snorri Hjartarson 1906–2006. Skáldsins minnst með munum, myndum og höfund- arverkum hans. Aðrar sýningar: Handritin – m.a. Snorra Edda, Eddukvæðin og Ís- lendingasögur. Þjóðminjasafnið svona var það – þegar sýning þess var í risinu. Fyr- irheitna landið – vesturfarar. Sýning á níu fornleifarannsóknum Kristnihátíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2. hæð. Boðið er upp á fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga kl. 10–17. Fyrirlestrar og fundir Félag íslenskra háskólakvenna | Árlegur vorfundur verður haldinn 31. maí kl. 19.30 í Þingholti, Hótel Holti. Aðalsteinn Ingólfs- son, listfræðingur, heldur erindi um lífs- hlaup Jóhannesar Kjarvals. Snæddur verður kjarvalskur kvöldverður. Allir vel- komnir, þátttaka tilkynnist í síma 899 3746. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.