Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ H ljómsveitin Theodore Supergrass var stofnuð árið 1993 í háskólabænum Ox- ford sem er norð- vestur af Lundúnum, af gítarleik- aranum og söngvaranum Gaz Coombes (sem þá var aðeins 16 ára gamall), trommaranum Danny Goffey og bassaleikaranum Mick Quinn. Þeir Gaz og Goffey höfðu áður en Supergrass var stofnuð verið saman í hljómsveitinni The Jennifers sem var spáð miklum frama, en eftir eina smáskífu, sem Nude Records-plötufyrirtækið gaf út, leystist sveitin upp. Gaz og Danny ákváðu þó að vinna áfram saman og þegar þeir komust í kynni við bassaleikarann og skóla- félaga þeirra, Mick Quinn, tók sveitin, sem nú er á leið til Íslands, formlega til starfa. Til allrar hamingju leið ekki á löngu þar til fornafnið Theodore var látið fjúka og innan árs var sveitin sú heitasta í Bretlandi. Supergrass á nú að baki fimm breiðskífur og sú sjötta kvað vera í bígerð, eða hvað? „Já, eða eiginlega,“ viðurkennir Danny. „Við erum þessa dagana heima hjá Gaz [Coombes, gítar- leikara og söngvara Supergrass] að semja og spila. Við erum í raun- inni bara nýbyrjaðir að leggja drög að næstu plötu sem kemur að öll- um líkindum út á næsta ári, þ.e.a.s. ef allt fer samkvæmt áætlun.“ Hlakka til sumarsins Vitið þið hvernig hún mun hljóma? „Við erum ennþá að reyna að ná eins konar heildarhljómi en ég held að hún muni vera hressari og hraðari en síðasta plata – núna finnst mér við vera að færa okkur í áttina að fönkhljómi áttunda ára- tugarins. Við erum mun ákafari en á seinustu plötu.“ Ég átti samtal við Rob (Coomb- es, hljómborðsleikara Supergrass) stuttu eftir að síðasta plata ykkar Road to Rouen kom út og hann tal- aði um að upptökuferlið á þeirri plötu hefði verið ykkur mjög erfitt. Á það við núna líka? „Nei, nei, alls ekki. Okkur geng- ur mun betur núna og okkur tókst, held ég, að yfirstíga öll okkar vandamál með þeirri plötu. Við höfum mjög jákvætt hugarfar til þessarar plötu og við hlökkum mikið til sumarsins og til þess að fara að spila á tónleikum.“ Stjórnið þið sjálfir upptökum á þessari plötu? „Já, eins og er. Við ætlum að sjá til hvort það sé þörf á öðrum upp- tökustjóra en eins og er munum við sjálfir reyna að stjórna upp- tökum.“ Sér á báti Supergrass kom fram á sjón- arsviðið þegar Brit-pop-senan var í algleymingi en þið hélduð samt uppteknum hætti eftir að hún fjar- aði út. Áttuð þið kannski ekkert sameiginlegt með þeirri senu? „Mér hefur alltaf fundist við vera sér á báti en það voru margar skemmtilegar sveitir sem áttu sín bestu ár á þessum tíma. Ég hélt sjálfur mikið upp á Pulp, Oasis og Blur – eins og svo margir aðrir – og þetta var mjög skemmtilegt tímabil í tónlistarsögunni. En auð- vitað finnst mér að við séum öðru- vísi. Annars hefði ég ekki trú á því sem við erum að gera.“ Nú eigið þið fimm plötur að baki á rúmum tíu árum. Sérðu ein- hverja ákveðna þróun frá fyrstu plötunni og til þeirrar sem þið er- uð að taka upp? „Persónulega finnst mér við allt- af verða betri og betri með hverri plötu. Ég efa að við munum nokk- urn tímann fara aftur að hljóma eins og við gerðum á I Should Coco. Við höfum þroskast mikið frá þeim tíma – enda vorum við á táningsaldri þegar sú plata kom út – og svo höfum við gengið í gegn- um hluti sem hafa haft mikil áhrif á okkur?“ Eins og hvaða hluti? „Bara … það hefur margt geng- ið á. Við höfum eignast börn og lent í ýmsu … ég get eiginlega ekki farið út í smáatriði en við er- um öruggari í trú okkar á því hvað það þýðir að vera í hljómsveit og að búa til tónlist.“ Besta starf í heimi Hafið þið ennþá jafngaman af því að búa til tónlist og þegar þið voruð að byrja? „Já, við erum allir mjög ástríðu- fullir gagnvart tónlistarsköpun og við hlustum allir mjög mikið á alls kyns tónlist. Það er margt sem við eigum enn ógert.“ Hvað ertu að hlusta á þessa dag- ana? „Eins og er hlusta ég mikið á Elliott Smith sem mér finnst frábær en svo er ég ennþá að hlusta mikið á David Bowie sem ég fæ aldrei leið á. Ef þú hlustar á Supergrass má heyra áhrif frá Bowie, The Jam, Jimi Hendrix og Neil Young og þetta eru þeir tón- listarmenn sem við hlustum ennþá á.“ Áður en Supergrass var stofnuð vorið þið Gaz saman í hljómsveit- inni The Jennifers. Hvernig tími var það? „Það var mjög gaman. Við vor- um mjög ungir og þetta var eig- inlega bara skólahljómsveit eða vinagengi sem fékk tækifæri til að spila um alla Evrópu.“ Var ykkur þá ljóst að þið vilduð gera þetta að ykkar ævistarfi? „Já, þegar það gengur vel og þeir sem starfa saman eru vinaleg- ir og tillitssamir er þetta besta starf í heimi. En lífið er fullt af óvæntum uppákomum og það er hættulegt að fullyrða um nokkurn skapaðan hlut. Okkur finnst alla vega ennþá gaman að fara í hljóm- leikaferðalög og á meðan þetta er skemmtilegt munum við halda því áfram.“ Spila kannski tökulög á Íslandi Hvað finnst þér um bresku tón- listarsenuna? „Mér finnst hún mjög skemmti- leg og hún er mun fjölbreyttari en hún var fyrir tíu árum. Ef þú ert til dæmis hneigður til einnar stefnu eru mun fleiri hljómsveitir að spila í þeim einstaka geira. Mér finnst svolítið eins og að gít- arböndin séu að koma aftur og það er gaman.“ Ég veit að það er mikil eftir- vænting fyrir tónleikum ykkar hér á Íslandi, vitið þið hvaða lög þið ætlið að spila? „Nei, ekki ennþá. Ég held að við séum að spila svolítið seint um daginn þannig að mér finnst lík- legt að þetta verði háværir tón- leikar. Kannski eitthvað af nýju lögunum sem við erum að semja en það mun koma í ljós þegar nær dregur. Svo getur verið að við spil- um einhver tökulög – það er aldrei að vita.“ Hvergi nærri hættir F.v. Danny Goffey, Gaz Coombes, Mick Quinn og Rob Coombes. Supergrass spilar laugardaginn 3. júní í risatjaldi sem staðsett verður í skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu HÍ. Miðasala fer m.a. fram á midi.is. Breska sveitin Super- grass kemur fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Trópík 3. júní næstkomandi. Höskuldur Ólafsson sló á þráðinn til trommu- leikara sveitarinnar Dannys Goffeys og spurði hann meðal ann- ars út í sjöttu breiðskíf- una sem nú er í vinnslu. hoskuldur@mbl.is „Við erum ennþá að reyna að ná eins konar heildar- hljómi en ég held að hún muni verða hressari og hraðari en síðasta plata – núna finnst mér við vera að færa okk- ur í áttina að fönkhljómi áttunda áratugarins. Við erum mun ákafari en á síðustu plötu.“ Tónlist | Styttist óðum í að tónlistarhátíðin Reykjavík Trópík hefjist Sími - 564 0000Sími - 462 3500 X-MEN 3 kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára The DaVinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára X-Men 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.i. 14 ára Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8 og 11 Cry Wolf kl. 10 B.i. 16 ára Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6 og 8 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 4 LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ? www.xy.is 200 kr afsláttur fyrir XY félaga MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? eee S.V. MBL. eee VJV - TOPP5.is LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI. NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS eee V.J.V.Topp5.is eee D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.