Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 19 MINNSTAÐUR Hallormsstaður | Nemendur Hall- ormsstaðarskóla fengu Grænfán- ann í annað sinn um helgina sem viðurkenningu fyrir góðan árang- ur í umhverfismálum. Fulltrúi Landverndar afhenti fánann á Hallormsstað en nú blakta 16 nýir fánar við íslenska skóla áður en sumarleyfi hefjast. 8 skólar eru að fá fána í fyrsta skipti, 5 í annað skipti og 3 í þriðja skipti. Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga sjö skref í þessa átt. Þegar því marki er náð fá skól- arnir leyfi til að flagga Grænfán- anum næstu tvö ár en sú við- urkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skól- um. Vistverndarhópar á Héraði Þær 15 fjölskyldur á Fljótsdals- héraði sem tóku þátt í umhverf- isverkefninu Vistvernd í verki sl. vetur fengu einnig afhentar við- urkenningar frá Landvernd á Hallormsstað um helgina. Voru tveir visthópar útskrifaðir og auk þess fengu Anna Björk Hjalta- dóttir, umhverfisfulltrúi Fljóts- dalshéraðs og Agnes Brá Birg- isdóttir, sem voru leiðbeinendur hópanna, sérstök leiðbeinenda- skírteini þar sem þær hafa bæði lokið leiðbeinendanámskeiði og leiðbeint sínum fyrsta visthópi. Vistvernd í verki er íslenska nafnið á verkefninu Global Action Plan (GAP) sem sett hefur verið á laggir í 19 löndum. Verkefnið er sérstaklega sniðið til að stuðla að sjálfbærri þróun neðan frá gras- rótinni. Það snýr að sjálfbærum lífsstíl og styður og hvetur fólk til að tileinka sér lífsvenjur og heim- ilishald sem hlífir umhverfi og efl- ir heilsu. Grænfáninn í 2. sinn Nemendur og kennarar Hallormsstaðarskóla hafa lagt sig fram við að sinna umhverfismálum í skólastarfinu. Huga að umhverfinu Hluti tveggja vistverndarhópa sem fengu viðurkenn- ing frá Landvernd. Vistvernd í verki á Héraði Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Egilsstaðir | Rokktónleikarnir Road Rage Festival verða í Sel- skógi nk. laugardag. Þar koma fram austfirsku hljómsveitirnar Wartburg, Milano, South On Chair, Miri, Concrete og Tropical Nude Fantasy. Kvennahljómsveitin With Out The Balls frá Fljótsdalshéraði og norska hljómsveitin Quiritatio koma einnig fram. Tónleikarnir hefjast kl. 18 í skóginum og er að- gangur ókeypis. VegaHúsið stendur að tónleikunum og er tekið fram að um áfengislausa skemmtun sé að ræða. Á laugardag kl. 17 verða einnig haldnir aðrir rokktónleikar á Egils- stöðum, í íþróttamiðstöðinni og koma þar fram þau Snorri Snorra- son, Bríet Sunna, Ingó og Vignir í Írafári, ásamt Tinnu Guðjónsdóttur og Eiríki Hafdal. Miðaverð á þá tónleika er 1.800 krónur en að- standendur vefjarins austurlandid- .is bjóða öllum 10. bekkingum á Austurlandi frítt inn. Tvennir rokktón- leikar á Egilsstöðum Mótmæla lengingu | Dreifbýlis- og hálendisnefnd Fljótsdalshéraðs lýsir furðu sinni á að hvergi í skýrslu um nýjan veg frá Ármóta- seli í Jökuldalsheiði að Skjöldólfs- stöðum 2 á Jökuldal sé minnst á þau neikvæðu áhrif sem færsla þjóðvegar 1 út fyrir Gilsá hafi fyrir íbúa á Efri-Jökuldal. Þau séu fólgin í lengingu vegar nr. 923 sem tengi- vegar og augljósri minni þjónustu við þennan hluta sveitarfélagsins. Nefndin tekur því að fullu undir kröfu nærri 30 íbúa Efra-Jökuldals í bréfi til Vegamálastjóra um ný- bygging vegar frá Gilsá að Arnórs- stöðum samhliða lagningu hring- vegar og þar með væri komið á móts við neikvæð áhrif fram- kvæmdanna fyrir íbúa Efri-Jökul- dals, sem og aðra sem um veg 923 fara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.