Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Nýtt upphaf – nýævintýri Við opnum2. júní ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF héldu áfram að hækka í verði í Kauphöllinni í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,83% og er nú 5.648 stig. Viðskipti með hlutabréf námu 13,8 milljörðum króna, þar af fyrir 10,4 milljarða með bréf Tryggingamiðstöðvarinnar, sem eru tilkynnt viðskipti síðan á föstu- dag. Bréf Straums-Burðaráss hækk- uðu um 4,2%, bréf Alfesca og Lands- bankans um 3,7%. Bréf Atorku og Mosaic lækkuðu um 1,8%. Gengi krónunnar styrktist í gær um 0,31%. Gengi dollars er nú 72,55 krónur, evran 92,4 krónur og gengi pundsins 134,72 krónur. Áfram hækkun í Kauphöllinni ● FÉLAG í eigu Bjarna Ármanns- sonar, forstjóra Glitnis, Lands- sýn, hefur keypt 50 milljónir hluta í bankanum á genginu 16,9. Kaupvirði bréf- anna er því 845 milljónir króna. Eftir viðskiptin eiga Bjarni og fjár- hagslega tengdir aðilar tæplega 183 milljónir hluta í Glitni, eða um 1,3% af skráðu hlutafé. Bréf Glitnis hækk- uðu í gær um 2,4% og var lokagengi þeirra 17,3. Miðað við það er mark- aðsvirði hluta er tengjast Bjarna 3.165 milljónir króna. Markaðsvirði þess hlutar er Landssýn keypti í gær hækkaði um 20 milljónir króna yfir daginn. Kaupir í Glitni fyrir 845 milljónir Bjarni Ármannsson ● KÁRI Kárason mun frá 15. júní nk. taka við fram- kvæmdastjóra- stöðu hjá Ice- lease, dóttur- félagi Icelandair er stundar flug- vélaviðskipta á al- þjóðamarkaði. Kári, sem var um tíma framkvæmdastjóri Flugleiða- hótelanna, hefur undanfarið verið aðstoðarframkvæmdastjóri Icelease en tekur við starfinu af Halldóri Vil- hjálmssyni. Frá þessu var greint í At- vinnublaði Morgunblaðsins um helgina en þar birtist röng mynd. Fyr- ir mistök fylgdi með mynd af alnafna Kára og starfsbróður hjá Icelandair og er beðist velvirðingar á því. Kári yfir Icelease Kári Kárason BANDARÍSKA samheitalyfjafyrir- tækið Barr Pharmaceuticals er talið hafa lagt fram hærra tilboð en Actavis í króatíska samheitalyfja- fyrirtækið Pliva. Í frétt á fréttavef breska viðskiptablaðsins Financial Times segir að talið sé að tilboð Barr hjóði upp á 2,1 milljarð Bandaríkjadollara, eða liðlega 150 milljarða íslenskra króna en Acta- vis hafi boðið 1,85 milljarða dollara. Í fréttinni segir að Barr sé talið eiga meiri möguleika á að hreppa Pliva en Actavis, nema Actavis hækki tilboð sitt. Þá segir í frétt- inni að talið sé að Zeljko Covic, for- stjóri Pliva, sé meðmæltur því að Barr verði fyrir valinu, þar sem þá séu líkur á að yfirstjórn félagsins verði nánast óbreytt. Halldór Kristmannsson, forstöðu- maður innri og ytri samskipta Acta- vis, segir ótímabært að segja til um hvort Actavis muni hækka tilboð sitt í Pliva. Ekki sé komið að því að leggja fram bindandi tilboð í félag- ið. Barr hefur verið í samstarfi við Pliva frá því í maí á síðasta ári en þá hófu félögin í sameiningu þróun tiltekinna lyfja. Ef Barr kaupir Pliva verður það fyrsta yfirtaka bandarísks samheitalyfjafyrirtæks á þeim markaði í Evrópu. Ýtt í formlegt söluferli Pliva var ekki til sölu fyrr en í kjölfar þess að Actavis lagði fram óformlegt tilboð í félagið í mars síð- astliðnum. Upphaflegt tilboð Acta- vis hljóðaði upp á 1,6 milljarða doll- ara en þegar því var hafnaði hækkaði félagið tilboð sitt í 1,85 milljarða dollara. Deutsche Bank hefur verið falið að annast formlegt söluferli fyrir Pliva. Samkeppnin eykst um Pliva í Króatíu ● SAMKVÆMT fregnum breskra miðla er búist við því að farsímafyr- irtækið Vodafone tilkynni í dag 15 milljarða punda tap af rekstri síðasta árs, sem yrði mesta viðskiptatap í sögu Bretlands. Þetta jafngildir um 2.000 milljörðum króna. Reiknað er með tilkynningu um endurskipulagn- ingu á rekstri, sem hafi í för með sér uppsagnir hjá 6.000 starfsmönnum Vodafone. 2.000 milljarða tap Vodafone

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.