Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. SAMFYLKINGIN á Akureyri sleit í gær við- ræðum um myndun meirihluta með Vinstri grænum og Lista fólksins og fór í stað þess fram á að ræða við Sjálfstæðisflokk um mögulegt sam- starf á kjörtímabilinu. Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðis- manna á Akureyri, verður við veiðar í Laxá í Aðaldal í dag og því var ákveðið að fulltrúar flokkanna hittist til að ræða mögulegt meiri- hlutasamstarf í kvöld. Flokkarnir ræddu stutt- lega saman á kosninganóttina en upp úr slitnaði þar sem sjálfstæðismenn gerðu þá kröfu strax í upphafi að Kristján Þór yrði áfram bæjarstjóri. Í gær slitnaði upp úr viðræðum milli Fram- sóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og óháðra og Vinstri grænna í Dalvíkurbyggð. Bjarnveig Ingvadóttir, oddviti framsóknarmanna, sagði í yf- irlýsingu að ekki hefði náðst samstaða um veiga- mikil mál. Skrifað var undir samkomulag um meirihluta- samstarf á Ísafirði í gær, en þar ætla Sjálfstæð- isflokkur og Framsóknarflokkur að starfa saman næstu fjögur árin. Samkvæmt drögum að mál- efnasamningi, sem lagður verður fram til sam- þykktar hjá flokkunum á næstunni, verður Hall- dór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ áfram. Guðni Geir Jóhannsson, oddviti framsóknar- manna, hafði fyrir kosningarnar lýst því yfir að hann vildi ráða ópólitískan bæjastjóra. Hann sagði framsóknarmenn nú líta svo á að Sjálfstæð- isflokkur væri sigurvegari kosninganna. Ekki hefði verið um annað að ræða en að éta ofan í sig þau ummæli. Þrýsta á um jarðgöng milli Norðfjarðar og Eskifjarðar Meirihluti Framsóknarflokks og Fjarðalista hélt velli í Fjarðabyggð og ákváðu flokkarnir í gær að mynda meirihluta á kjörtímabilinu. Guð- mundur R. Gíslason, oddviti Fjarðalistans, segir flokkana ætla að halda áfram á sömu braut. „Næstu uppbyggingarverkefni eru nýr leikskóli í Neskaupstað og að fara að beita mjög miklum þrýstingi á ríkisvaldið varðandi jarðgöng á milli Norðfjarðar og Eskifjarðar.“ Meirihlutaviðræður fóru fram víða um land í gær eftir sveitarstjórnarkosningar Samfylking og Sjálfstæðis- flokkur í viðræður á Akureyri  Meirihlutaviðræður | 10–12 KONUR lifa og starfa í auknum mæli í heimi stórfyrirtækja, sem breytir þeim en þær hafa sjálfar engin áhrif á. Þetta segir kvenrétt- indakonan heimsþekkta, Germaine Greer, en hún kom hingað til lands í gær. Hún segir að spyrja þurfi kon- ur hvort þær séu sáttar við að laga sig að þessum heimi. Þar ríki hörð samkeppni og samruni fyrirtækja sé daglegt brauð. Raunar tapi karlar líka á þessu fyrirkomulagi. Greer, sem er áströlsk, verður að- alfyrirlesari á ráðstefnunni Tengsl- anet – Völd til kvenna, sem haldin verður á Bifröst á fimmtudag og föstudag og dr. Herdís Þorgeirs- dóttir skipuleggur. Meginþemað á ráðstefnunni í ár er staðalímynd kvenna, kynbundinn frami, fyr- irtækjamenning og samskipti kvenna. Greer er ein af þekktari baráttukonum kvenfrelsishreyfing- arinnar á 20. öld, en frægasta bók hennar, The Female Eunuch, sem út kom 1969, hafði mikil áhrif á kven- frelsishreyfinguna upp úr 1970. „Staðan er svipuð á Englandi og hún er hérna á Íslandi,“ segir Greer. „Þar eru margar einstæðar mæður, sem eiga í miklu sálarstríði, því þær hafa áhyggjur af því að standa sig ekki í vinnunni og einnig af því að þær hugsi ekki nægilega vel um börnin sín. Hins vegar eru þær of út- keyrðar til þess að hafa tíma til þess að takast á við uppeldi barnanna. Þær hafa fleygt eiginmanninum á dyr, því hann tók of mikla orku. Og þær eru líka einmana,“ segir Greer. Hún segir baráttukonur fyrir aukn- um réttindum kvenna ekki hafa ætl- ast til þess að þróunin yrði þessi. Spurð um hvort konur séu langt frá því að hafa náð þeim mark- miðum sem kvenréttindasinnar 20. aldarinnar settu sér, segir Greer, að það fari eftir því hvernig þessi markmið séu skilgreind. „Ef mark- miðið var að konur kæmust í stjórnir fjölþjóðlegra stórfyrirtækja, hafa nokkrar konur náð því marki,“ segir Greer. „Þetta var hins vegar aldrei það sem ég barðist fyrir,“ bætir hún við. „Við vildum að konur fengju tækifæri til þess að auðga líf sitt,“ segir hún. Kvenréttindakonan Germaine Greer kom til landsins í gær Morgunblaðið/Jim Smart Greer sótti í gærkvöldi kvöldverðarboð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Hér er hún ásamt forsetanum og Herdísi Þorgeirsdóttur, t.v. Margar konur eiga í sálarstríði vegna vinnu og barna Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is SAMÞYKKT var á fulltrúaráðs- fundi Sjálfstæðisflokks í Vest- mannaeyjum seint í gærkvöldi að Elliði Vignisson tæki við starfi bæjarstjóra næstu fjögur ár- in. Formaður bæjarráðs verð- ur Páley Borg- þórsdóttir og forseti bæjar- stjórnar verður Gunnlaugur Grettisson. Sjálfstæðisflokkur fékk hreinan meirihluta í kosningunum á laug- ardag og fundaði fólkið sem skip- aði framboðslistann í gærkvöldi. „Þar kom fram einróma áskorun allra frambjóðenda um að ég myndi taka að mér starf bæjar- stjóra, og ég tók þeirri áskorun og þekktist það boð. Það var síðan borið undir fulltrúaráð og ein- róma samþykkt þar líka,“ segir Elliði. „Ég á feikilega skemmtilegt starf fyrir höndum, en ég hefði ekki tekið þessari áskorun nema af því hún var einróma og í kring- um mig er einvalalið. Einungis undir þeim formerkjum hefði ver- ið lagt af stað,“ segir Elliði. Elliði verður bæj- arstjóri í Eyjum Elliði Vignisson ÍSLENSKA liðið í opnum flokki vann sigur á liði Albaníu í 8. um- ferð Ólympíuskákmótsins sem fram fór í gær í Tórínó á Ítalíu, og unnu Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson sínar skákir. Kvennaliðið vann einnig sigur í viðureign sinni gegn liði Nígeríu, og unnu Guðlaug Þorsteinsdóttir og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sínar skákir. Íslenska liðið í opnum flokki hefur nú 18 vinninga. Stefán Kristjánsson hefur hlotið 41⁄2 vinn- ing í 6 skákum, Hannes hefur 31⁄2 vinning í 6 skákum og Helgi Ólafs- son 3 vinninga í 5 skákum. Kvennaliðið hefur 111⁄2 vinning, Guðlaug Þorsteinsdóttir hefur 5 vinninga í 7 skákum og Lenka hefur 31⁄2 vinning í 6 skákum. Karla- og kvenna- sigur í Tórínó SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR Landhelgisgæslunnar fóru með slysavarnaskipinu Ásgrími S. Björgvinssyni til móts við 10 metra langt hrefnuhræ í gærkvöldi, en það hafði fundist á reki nokkrar sjómílur undan Gróttuvita á Sel- tjarnarnesi. Komu sérfræðingarnir fyrir sprengjuhleðslum til að sökkva hræinu og gekk það að ósk- um. Var það gert bæði til að hræið skapaði sæfarendum ekki hættu og til að ekki þyrfti að fjarlægja það með tilkostnaði og vinnu af strand- stað. Sprengdu hrefnu- hræ undan Seltjarnarnesi SIGURÐUR VE hefur landað norsk-íslenzkri síld tvívegis nú á nokkrum dögum, fyrstur ís- lenzkra skipa. Hann landaði tæpum 1.400 tonn- um í Krossanesi á laugardag og síðan um 1.500 tonnum, eða fullfermi, á sama stað í gærkvöldi. Suðurey VE hefur einnig landað síld svo og kol- munnaskipin Börkur NK og Vilhelm Þor- steinsson EA. „Það var ekki mikil síld þarna, en þó nóg til að kasta á. Í fyrri veiðiferðinni tókum við 11 köst, en aðeins þrjú í þeirri síðari, 400, 500 og 600 tonn í hverju. Þetta gekk mjög vel hjá okk- ur núna í síðari veiðiferðinni. Við vorum ekki nema átta tíma á miðunum, en það skiptir öllu máli að vera fljótur að dæla síldinni úr nótinni, því hún byrjar að drepast eftir klukkutíma. Þá sekkur hún og verður eins og grjót í nótinni. Við erum með mjög öfluga dælu og vorum til dæmis ekki nema 45 mínútur að dæla síðasta kastinu, um 600 tonnum, um borð,“ segir Krist- björn. Kristbjörn fór fyrst á síld 1963 og hefur verið skipstjóri síðan. „Maður ætti að vera hættur þessu fyrir löngu, en það er erfitt. Þetta er eins og að fara í lax. Það er alltaf jafngaman,“ segir Kristbjörn. | 13 „Þetta er eins og að fara í lax“ Morgunblaðið/Alfons Kristbjörn á Sigurði VE með fyrstu síldina ALÞINGI kemur saman að nýju í dag eftir að fundum var frestað fyr- ir sveitarstjórnarkosningarnar. Þingfundur hefst kl. 13.30. Fyrsta mál á dagskrá er þriðja umræða um frumvarp mennta- málaráðherra um Ríkisútvarpið hf. Þá er á dagskrá frumvarp ráðherra um Sinfóníuhljómsveit Íslands og frumvörp um sjávarútvegsmál. Alþingi kemur saman í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.