Morgunblaðið - 30.05.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 9
FRÉTTIR
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Glæsileg undirföt
frá
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 36-56
Full búð
af nýjum
vörum
ll
j
Nýir sumarkjólar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Þunnir og glæsilegir kjólar og
kápur. Straufrítt efni.
Fjölbreytt úrval
Fyrir kóra og aðra hópa
JENSEN gallafatnaður
str. 36 - 48
Verið velkomnar
Mjódd, sími 557 5900
23
29
/
Ta
kt
ik
nr
.6
Akureyri • Egilsstöðum • Hafnarfirði • Höfn • Keflavík • Kópavogi •Reykjavík •Selfossi
BREMSUKLOSSAR
BORÐAR DISKAR-
DÆLUR
USA - EVRÓPA - ASÍA
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð
brautskráði 169 stúdenta á laugar-
dag, 97 konur og 72 karla. Jóhann
Þorvaldur Bergþórsson, stúdent af
náttúrufræðibraut, varð dúx skólans.
Meðaleinkunn Jóhanns var 9,73 og
lauk hann náminu á 3 árum. Þá var
einingadúx skólans Benjamín Ragnar
Sveinbjörnsson, stúdent af öllum
brautum skólans með samtals 221
einingu. Jóhann segir sínar „veik-
ustu“ hliðar í náminu hafa verið í
kringum tungumálin. „Lægstu ein-
kunnirnar voru aðallega í spænsku og
ensku, ég er sterkari í raungreinum,“
segir Jóhann. Lægsta einkunn hans
var níu í nokkrum áföngum.
Varðandi framtíðina segir Jóhann
allt enn óráðið. „Ég stefni á að fara í
stærðfræði í Háskóla Íslands og sjá
hvernig mér fellur þar,“ segir Jó-
hann. „Eftir það fer ég sennilega út í
háskóla. Ég er samt bara að spila eft-
ir eyranu núna.“
Hvað varðar rætur velgengninnar
segir Jóhann fjölskylduna hafa stutt
vel við bakið á sér. „En svo er þetta
bara mikil vinna,“ segir Jóhann. „Fé-
lagi minn Stefán studdi líka vel við
mig í stærðfræðinni.“
Tónlistin hefur að sögn Jóhanns í
raun átt meiri hluta af hjarta hans en
námið. Hann gaf m.a. út plötu um jól-
in í litlu upplagi. Þá leikur hann með
pönkhljómsveitinni Fjölni, sem hefur
gefið út lög á rokk.is. Ætla þeir að
spila mikið í sumar að eigin sögn. Jó-
hann leikur á mörg hljóðfæri en syng-
ur þó mest og leikur á gítar. „Það
felst vissulega agi í tónlistinni, þó ég
hafi kannski ekki verið sá agaðist í
henni,“ segir Jóhann. „Ég var samt
mjög agaður við námið. Ég hafði hug-
ann við tónlistina, en sinnti náminu
betur. Það er fátt meira gefandi en að
semja og skapa. Það hefur hjálpað
mér mikið gegnum námið að virkja
sköpunargáfuna, ég held að það teng-
ist mjög mikið.“
Dúx Menntaskólans við Hamrahlíð er gefinn fyrir tónlist
Hjálpar mikið við námið að
virkja sköpunargáfuna
Morgunblaðið/Eggert
Jóhann Þorvaldur tekur á móti viðurkenningu frá Lárusi H. Bjarnasyni, skólameistara MH.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, hefur sent for-
seta Indónesíu, hr. Susilo
Bambang Yudhoyono, einlæg-
ar samúðarkveðjur sínar og ís-
lensku þjóðarinnar vegna jarð-
skjálftanna sem riðu yfir og
leitt hafa til dauða þúsunda
manna.
Í fréttatilkynningu frá for-
setaskrifstofunni kemur fram,
að forseti Íslands hefur jafn-
framt áréttað nauðsyn þess að
alþjóðasamfélagið komi til
hjálpar á slíkum neyðartímum.
Í samúðarkveðjunum víkur for-
seti Íslands að reynslu Íslend-
inga af náttúruhamförum á
sviði jarðskjálfta og eldgosa. Sú
reynsla hafi skapað sterka
samkennd í hugum Íslendinga
og stuðlað að þróun hjálpar-
starfs, bæði nýrrar tækni og
þjálfunar björgunarfólks.
Samúðar-
kveðjur til
forseta
Indónesíu
Fullt hús
ævintýra
Við opnum2. júní