Morgunblaðið - 30.05.2006, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
14
6
9
Ég er hættur a› hjóla í vinnuna
SKIPTAR skoðanir voru innan
Framsóknarflokksins í Kópavogi
um hvort halda ætti áfram sam-
starfi við Sjálfstæðisflokkinn í bæj-
arstjórn. Samtöl áttu sér stað milli
forystumanna í flokknum og Sam-
fylkingar og Vinstri grænna um að
mynda meirihluta undir forystu
Framsóknarflokksins, en formlegar
viðræður milli flokkanna hófust
hins vegar ekki. Framsóknarmenn
og sjálfstæðismenn hafa í gær og í
fyrradag unnið að því að ganga frá
formlegum samstarfssamningi og
verður hann lagður fyrir félagsfund
í flokkunum á morgun.
Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingarinnar í Kópavogi,
sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar
sem segir að nú liggi fyrir að odd-
vitar Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks hafi ákveðið áfram-
haldandi meirihlutasamstarf í
bæjarstjórn Kópavogs. Samfylking-
in í Kópavogi hafi leitað allra leiða
til að ná fundi með Ómari Stef-
ánssyni, oddvita framsóknarmanna,
undanfarna daga með það að mark-
miði að ræða hugsanlegt meiri-
hlutasamstarf Framsóknarflokks,
Vinstri grænna og Samfylkingar.
Þær tilraunir hafi ekki borið árang-
ur.
„Á meðan á viðræðum Sjálfstæð-
ismanna og Framsóknarmanna stóð
óskaði Framsóknarflokkurinn eftir
skriflegu tilboði oddvita Samfylk-
ingarinnar með hugmyndum okkar
um skiptingar í embætti, þá sér-
staklega hvort við værum tilbúin að
gefa þeim bæjarstjórastólinn eftir
ef til samstarfs kæmi.
Samfylkingin hafnar algjörlega
slíkum vinnubrögðum, við tökum
ekki þátt í meirihlutaviðræðum þar
sem við skilum inn lokuðum til-
boðum og öllum málefanalegum við-
ræðum er hafnað. Slíkt minnir
meira á þátttöku í lokuðu útboði án
útboðsgagna og á ekkert skylt við
málefnalegar, lýðræðislegar viðræð-
ur. Því er ljóst að frá byrjun hefur
enginn vilji verið hjá framsóknar-
mönnum í Kópavogi til að mynda
nýjan meirihluta með Samfylkingu
og Vinstri grænum en samt sem áð-
ur hafa þeir kosið að halda öllum
aðilum volgum í þeirri von að þann-
ig myndu þeir bera mest úr být-
um.“
„Hef aldrei óskað eftir
neinu skriflegu tilboði“
„Ég hef aldrei óskað eftir neinu
skriflegu tilboði frá Samfylking-
unni. Það liggur alveg ljóst fyrir,“
sagði Ómar Stefánsson þegar
Morgunblaðið spurði hann út í
gagnrýni Samfylkingarinnar í
Kópavogi á framgöngu Framsókn-
arflokksins eftir að úrslit kosning-
anna lágu fyrir.
Ómar sagðist ekki vita hvers
Samfylkingin væri að vísa til þegar
hún segði að „Framsóknarflokkur-
inn [hefði óskað] eftir skriflegu til-
boði oddvita Samfylkingarinnar.“
„Ég veit ekki hvað menn úti í bæ
eru að gera. Þeir hafa ekki neitt
umboð til þess. Ég er oddviti
flokksins og ég stýrði þeim um-
ræðum sem fóru í gang. Hvað aðrir
eru að gera skiptir mig engu máli.“
Guðríður sagði í samtali við
Morgunblaðið að Samfylkingin
hefði haft fullan áhuga á að komast
í meirihluta í Kópavogi og strax eft-
ir að úrslit hefðu legið fyrir hefðu
framsóknarmenn og Samfylkingin
rætt saman. „Þeir sögðu að það
væri forsenda fyrir einhvers konar
viðræðum að þeir fengju bæjar-
stjórastólinn. Ég neitaði að ræða
það í gegnum síma. Mér fannst
eðlilegt að til að fara í viðræður
yrðum við fyrst að hittast.“
Aðspurð sagði Guðríður að Ómar
hefði ekki sjálfur gert þessa kröfu,
en hún hefði fengið skýr skilaboð
frá Ómari, „eða svo var okkur sagt.
En þeir [framsóknarmenn] verða
auðvitað að eiga það við sig hvort
það er rétt eða ekki,“ sagði Guð-
ríður.
Guðríður var spurð hvort Sam-
fylkingin hefði hafnað því að fram-
sóknarmenn fengju bæjarstjórastól-
inn. „Við útilokuðum það ekki, en
svona verða meirihlutaviðræður
ekki til, þ.e. að menn segi: „Ég
neita að ræða við þig nema að þið
séuð tilbúin að gefa okkur bæj-
arstjórastólinn án skilyrða.“ Það
sem skiptir máli er að menn viti
hvað hugsanlegur samstarfsflokkur
er að hugsa og að þeir séu tilbúnir
að ræða það.“
Guðríður sagði augljóst af þess-
um samtölum að ekki hefði verið
full eining innan Framsóknar-
flokksins um hvort halda ætti
áfram samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Samfylkingin segir að framsóknarmenn í Kópavogi hafi krafist bæjarstjórastólsins
Framsókn átti í viðræðum við
Samfylkingu og Vinstri græna
Guðríður
Arnardóttir
Ómar
Stefánsson
Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknar-
flokksins, segir flokkinn ekki hafa
gert skriflega kröfu um eitt né neitt
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
VINSTRIHREYFINGIN –
grænt framboð í Kópavogi
harmar þá ákvörðun Ómars
Stefánssonar, oddvita fram-
sóknarmanna í Kópavogi, að
semja við Sjálfstæðisflokkinn
um áframhaldandi meirihluta-
samstarf í bæjarstjórn Kópa-
vogs, að því er segir í yfirlýs-
ingu.
„Framsóknarflokkurinn
kastar þar með frá sér sögu-
legu tækifæri sem hann hefur
til að losna úr viðjum þess
meirihluta sem er á góðri leið
með að þurrka Framsókn-
arflokkinn út, ekki bara í
Kópavogi heldur víðast hvar á
landinu. Það eru kaldar kveðj-
ur til bæjarbúa, sem sögðu
Framsóknarflokknum með af-
gerandi hætti í kosningunum
að meirihlutasamstarf Fram-
sóknar með Sjálfstæðis-
flokknum væri þeim ekki að
skapi,“ segir í yfirlýsingunni.
Veita kröftugt aðhald
Þakka VG jafnframt bæj-
arbúum það traust sem þeim
var sýnt í kosningunum og
heita því að veita væntan-
legum meirihluta kröftugt að-
hald og halda áfram að berj-
ast fyrir þeim áherslum
félagshyggju, jafnréttis og
umhverfis sem flokkurinn
setti fram í aðdraganda kosn-
inganna.
VG í Kópa-
vogi harmar
meirihluta-
samstarf