Morgunblaðið - 30.05.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.05.2006, Qupperneq 26
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddvitisjálfstæðismanna í Reykjavík,verður næsti borgarstjóriReykjavíkur. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn komust að samkomu- lagi í gær, eftir stuttar formlegar viðræður, um myndun nýs meirihluta í borginni. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknar- manna í Reykjavík, verður formaður borg- arráðs. Vilhjálmur og Björn Ingi kynntu sam- starfið á blaðamannafundi sem haldinn var fyrir utan heimili Vilhjálms í Breiðholtinu um fimmleytið í gær. Þar voru einnig borg- arfulltrúar og frambjóðendur sjálfstæðis- manna og framsóknarmanna. „Okkar málefnaskrá grundvallast á mjög metnaðarfullri framtíðarsýn fyrir Reykja- vík, þar sem tekið er á brýnustu hagsmuna- málum Reykvíkinga á sviði málefna eldri borgara, fjölskyldumála, skipulags-, sam- göngu- og lóðamála,“ sagði Vilhjálmur. „Það ríkir mjög gott traust á milli okkar og það er enginn ágreiningur. Við erum sam- mála um það sem þarf að gera og við ætlum að vera dugleg, við ætlum að framkvæma og auka lífsgæðin í borginni á næstu árum.“ Hann sagðist vona að borgarbúar gætu treyst því að nú væri að hefjast nýr tími í Reykjavík. Þegar Björn Ingi og Vilhjálmur voru spurðir hvort ekki hefði þurft að jafna nein ágreiningsatriði þeirra á milli voru þeir báðir á því að svo hefði alls ekki verið. Björn Ingi bætti því við að fjölskyldumál, málefni eldri borgara, skipulagsmál og athafna- stjórnmál hefðu verið gegnumgangandi at- riði í kosningabaráttu beggja flokka. Björn Ingi sagði sömuleiðis að sér sýnd- ist sem margt í málefnaskrám beggja flokk- anna færi vel saman. „Við viljum athafnir í stað of mikilla funda og of mikils skrifræðis. Ég held að borgarbúar séu þeirrar skoð- unar líka.“ Hann sagði síðar að mikil já- kvæðni hefði einkennt viðræður þessa flokka og bætti við: „Við erum bjartsýnir og viljum hefjast þegar handa.“ Vantaði traust í viðræðunum Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hófust viðræður milli sjálfstæðismanna og fulltrúa Frjálslyndra og óháðra í Reykjavík eftir hádegi í fyrradag um meirihlutasam- starf í borginni. Vilhjálmur sagði við frétta- menn í gær að þær viðræður hefðu verið óformlegar. Hann hefði einnig verið í sam- bandi við aðra flokka. Fulltrúar sjálfstæð- ismanna og frjálslyndra funduðu tvisvar í fyrradag og til stóð að halda fund í gær. Fyrir þann fund hittust efstu menn á lista frjálslyndra og óháðra, þar sem farið var yfir viðræðurnar og þær undirbúnar. Ólafur F. Magnússon, oddviti frjálslyndra, segir að Vilhjálmur hafi hringt í sig klukku- tíma eftir boðaðan fundartíma og slitið við- ræðunum. Kom það fulltrúum frjálslyndra mjög á óvart. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði í raun ekki reynt mikið á málefna- ágreining milli flokkanna þegar þarna var komið við sögu. Sjálfstæðismenn töldu hins vegar að í viðræðunum hefði ekki skapast það traust á milli manna sem nauðsynlegt væri. Meðal annars tóku þeir því ekki vel að Ólafur skyldi upplýsa fjölmiðla um tíma og staðsetningu funda þeirra. Vilhjálmur sagði m.a. við fjölmiðla í gær um ástæður viðræðuslitanna að ekki hefði verið mikill áhugi hjá sínu fólki til að mynda meirihluta með frjálslyndum. „Það fannst ekki nægilega mikill samhljómur,“ sagði Vilhjálmur ennfremur við fréttamenn í gær og bætti við: „Það er mjög mikilvægt, þegar verið er að mynda nýjan meirihluta, að þar ríki fullt og gagnkvæmt traust og áhugi til að ráðast í framkvæmdir og vinna vel sam- an. Ég treysti Birni Inga fullkomlega til að standa með mér í því.“ Ólafur F. Magnússon sagði m.a. við fjöl- miðla í gær að hann velti því fyrir sér hvort viðræðurnar við frjálslynda hefðu verið sýndarviðræður og að engin alvara hefði verið að baki þeim. Vilhjálmur vísaði þessu á bug. „Menn verða að átta sig á því að í svona ferli, þar sem eru fimm flokkar, verða menn að tala saman,“ sagði hann og lagði áherslu á að viðræðurnar við frjálslynda hefðu verið óformlegar. „Hins vegar var greinilegt að fjölmiðlar fylgdust mjög vel með þessum fundum, mér er ókunnugt um það hvernig þeir vissu svona nákvæmar tímasetningar á þessum fundum.“ Fram kom í máli Vilhjálms að hann hefði rætt við fulltrúa allra framboðanna í Reykjavík, utan Samfylkingarinnar, eftir kosningarnar. „Ég hef rætt við Vinstri græna og ég ræddi við Björn Inga í gærmorgun [í fyrradag].“ Hann sagði aðspurður að viðræður við framsóknar- menn hefðu hafist fyrir alvöru eftir að við- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður borgarst „Það ríkir mjög okkar og það er e Að loknum fundi á heimili Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í G stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, og Eggert Skúlason Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Þetta er búinn að vera ótrúlegurdagur, ég segi ekki annað,“ sagðiÓlafur F. Magnússon, oddviti F-listans, frjálslyndra og óháðra í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Atburðarásin hefur verið svo hröð að maður er ekki búinn að átta sig á þessu öllu. Spennufallið er mikið.“ Hann sagði að það væri þó viss léttir að niðurstaða væri komin í stöðuna í Reykja- vík. Fulltrúar F-listans funduðu með sjálf- stæðismönnum í fyrradag um mögulegt meirihlutasamstarf. Þá var fundur fyr- irhugaður í gær. Viðræðunum var hins veg- ar slitið af hálfu sjálfstæðismanna. Það kom Ólafi mjög á óvart. „Því miður tel ég að viðræðurnar við Sjálfstæðisflokkinn hafi verið sviðsettar [af þeirra hálfu] til að tryggja að aðrar viðræður færu ekki fram á meðan milli flokkanna fjögurra,“ segir hann og vísar þar til viðræðna milli fram- boða F-listans í Reykjavík, Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokks- ins. Fulltrúar þessara fjögurra flokka fund- uðu snemma á sunnudag, daginn eftir kosninganóttina, og hefur m.a. verið haft eftir Svandísi Svavarsdóttur, oddvita Vinstri grænna í Reykjavík, og Birni Inga Hrafnssyni, oddvita framsóknarmanna í Reykjavík, að Ólafur hafi yfirgefið fundinn í hádegishléi, ekki komið aftur, heldur hafið viðræður við sjálfstæðismenn. Ólafur segir ekki rétt að hann hafi stung- ið af í matarhléi. Hann segir að það hafi leg- ið fyrir eftir þreifingar flokkanna fjögurra að oddvitar þeirra myndu kanna baklandið. „Og mitt bakland talaði skýrt. Það bar ekki traust til framsóknarmanna og vildi kanna betur hug sjálfstæðismanna.“ Ólafur segir brugðið eftir a ið viðræðunum „Ótrúlegur dagur“ Ólafur F. M ljóst varð a 26 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. NÝR MEIRIHLUTI Í REYKJAVÍK Í gær var myndaður nýr meiri-hluti sjálfstæðismanna ogframsóknarmanna í borgar- stjórn Reykjavíkur. Þar með er lokið 12 ára vinstri stjórn í höf- uðborginni og Sjálfstæðisflokkur- inn hefur endurheimt borgar- stjórastólinn, þótt hann hafi ekki endurheimt meirihluta sinn í borg- arstjórn. Eins og við mátti búast tók það ekki langan tíma fyrir þá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Björn Inga Hrafnsson að semja um nýjan meirihluta eftir að Sjálfstæðis- flokkurinn hafði slitið viðræðum við Frjálslynda. Öðrum megin við samningaborðið sat æfður stjórn- málamaður með aldarfjórðungs reynslu í borgarmálum. Hinum megin sat gott efni í æfðan stjórn- málamann. Viðræðuslitin við Frjálslynda kunna að leiða til þess að dráttur verði á alvöru viðræðum á milli for- ystumanna Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra um sameiningu eða samstarf. En smátt og smátt gleymast þau sárindi og veruleiki stjórnmálanna tekur við. Ef marka má viðbrögð Svandísar Svavarsdóttur hefur þessi niður- staða orðið nokkurt áfall fyrir Vinstri græna. En getur ekki verið að þeir hefðu átt að stökkva í stað þess að hrökkva, þegar tækifærið bauðst? Samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn fylgja ýmis vandkvæði fyrir báða flokka. Innan Framsóknarflokks- ins er sú skoðun útbreidd að lang- vinnt stjórnarsamstarf með Sjálf- stæðisflokki í ríkisstjórn hafi leitt til alvarlegra vandamála fyrir Framsóknarflokkinn. Að minni flokkar verði illa úti í samstarfi við stóra flokkinn. Það hefur ekki ver- ið sýnt fram á það með rökum að þessi kenning standist. Og auðvit- að er ljóst, að þátttaka í nýjum meirihluta í borgarstjórn þýðir, að Framsóknarflokkurinn heldur sterkri vígstöðu í borgarmálum, sem ætti að styrkja stöðu flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum báð- um, ef rétt er á haldið. Frá sjónarhóli sjálfstæðismanna má segja, að samstarfi við Fram- sóknarflokkinn í borgarstjórn fylgi ekki mikill ferskleiki eftir að sömu flokkar hafa starfað saman í rík- isstjórn frá vorinu 1995. Hins vegar er ljóst að samstarf þessara tveggja flokka í borgar- stjórn þýðir meiri stöðugleika en ef samið hefði verið við Frjálslynda flokkinn. Með því er ekki sagt að sá flokk- ur hefði ekki orðið traustur sam- starfsaðili en kannski litríkari ef svo má að orði komast. Það er ástæða til að óska Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni til ham- ingju með borgarstjóraembættið, sem samið hefur verið um, þótt hann hafi ekki tekið formlega við því. Hann hefur unnið til þess með þrotlausu starfi í þágu borgarbúa frá árinu 1982. Vilhjálmur hefur áður komið til greina, sem borg- arstjóri. Það var árið 1991, þegar Davíð Oddsson lét af því starfi, og tók við embætti forsætisráðherra. Af því varð ekki þá. Sjálfur svaraði Vilhjálmur spurningu fréttamanna í gær um það hvers konar borg- arstjóri hann yrði með því að segja að hann yrði gamli, góði, hæverski Villi og yrði góður borgarstjóri. Sennilega eiga þessi orð eftir að lýsa borgarstjóraferli hans betur en nokkuð annað, sem hann hefur sagt og aðrir hafa sagt. Hann hefur alla tíð verið stjórnmálamaður, sem hefur verið óþreytandi við að tala við fólkið í borginni og leysa úr vandamálum þess, hvort sem hann hefur verið í meirihluta eða minni- hluta. Hinn nýi borgarstjóri verður ekki með neina stjörnustæla. Hann verður borgarstjóri fólksins. Gera má ráð fyrir að flugvallar- málið verði eitt stærsta viðfangs- efni borgarstjórnar á nýju kjör- tímabili. Það verður erfitt úrlausnarefni. Innan Sjálfstæðis- flokksins eru þær skoðanir uppi, að flokkurinn hefði endurheimt meiri- hluta sinn í Reykjavík ef hann hefði snúizt gegn brottflutningi Reykjavíkurflugvallar. Sundabrautin verður annað stórt verkefni borgarstjórnar á nýju kjörtímabili og í því sambandi eru sjónarmið Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra óneitanlega athygl- isverð, að hin mikla uppbygging sem fyrirhuguð er við Úlfarsfell valdi því að önnur vandamál í vega- samgöngum verði mikilvægari úr- lausnarefni en Sundabrautin. Þá má gera ráð fyrir að framtíð Landsvirkjunar verði á dagskrá borgarstjórnar á nýju kjörtímabili og augljóslega auðveldari úrlausn- ar en ef meirihlutinn hefði verið skipaður með öðrum hætti. En þrátt fyrir þessi stóru mál er ástæða til að minna hinn nýja borgarstjórnarmeirihluta á, að ekki má láta undan síga í mikil- vægum félagslegum málum í borg- inni. Þannig skiptir máli að nýi meirihlutinn tryggi gjaldfrjálsa leikskóla sem allra fyrst. Og hinn nýi borgarstjóri, sem hefur mikla þekkingu á málefnum aldraðra, hlýtur að beita sér sérstaklega fyr- ir þeim og sérfræðingur Fram- sóknarflokksins í fjölskyldumálum hlýtur að beita sér mjög í mála- flokkum, sem snúa að fjölskyldun- um í borginni. Sú var tíðin, að Sjálfstæðisflokk- urinn í Reykjavík hafði forystu um mestu byltingu, sem framkvæmd hefur verið í félagslegri þjónustu borgarinnar. Nú ætti það að verða metnaðarmál hins nýja meirihluta að útrýma fátækt í borginni á næstu fjórum árum. Með því út- rýma þeir fátækt á Íslandi vegna þess að yfirgnæfandi meirihluti fá- tæka fólksins á Íslandi býr í Reykjavík. „ÉG verð m sagði Vilhjá viti sjálfstæ blaðamenn hvernig bor verð áfram – bara hæve Vilhjálmu lögfræðingu verið borga árinu 1982 o lenskra sve Sambýlisko jánsdóttir. „Ég v þess Vilhjálmur sambýlisko jánsdóttur dóttur, ömm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.